Fréttablaðið - 06.08.2011, Page 4

Fréttablaðið - 06.08.2011, Page 4
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR4 VESTMANNAEYJAR Páll Scheving Ingvarsson, formaður Þjóð- hátíðar nefndar og bæjarfulltrúi Vinstri grænna í bæjarráði Vestmannaeyja, segir að þó að umræða og gagnrýni eigi full- an rétt á sér sé honum þungbært að sitja undir þeirri gagnrýni að hann stjórnist af gróðasjónar- miðum, styðji nauðgunarmenn- ingu og sé skjól fyrir kynferðis- brotamenn. „Vanþekkingin verður ekki betur auglýst. Í þessu sambandi vil ég minna alla Íslendinga á að Þjóðhátíð Vestmannaeyja er fjölskylduhátíð samfélags- ins sem hald- in hefur verið samfleytt frá árinu 1874,“ segir Páll í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. Hann minn- ir á að útilok- að sé að færa ábyrgð nauðgana og líkamsárása sem gerðust á hátíðinni á starfsmenn hennar. Gerandinn skuli bera ábyrgðina. Þá segir Páll að það sé niður- lægjandi fyrir Vestmannaeyinga að sitja undir jafn „ömurlegu froðusnakki“ og að halda því fram að því fram að þeir velji menn sem meðal annars stjórnist af gróða- sjónarmiðum og styðji nauðgun- armenningu. Sex nauðganir hafa nú verið til- kynntar eftir Þjóðhátíð í ár. - sv GENGIÐ 05.08.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,8282 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,79 116,35 188,68 189,60 164,02 164,94 22,017 22,145 21,069 21,193 17,760 17,864 1,4752 1,4838 184,53 185,63 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Öryggi í samskiptum -námskeið við félagsfælni Ellefu vikna árangurmælt námskeið Kvíðameðferðar- stöðvar innar þar sem kenndar eru leiðir til að draga úr kvíða og óöryggi í félagslegum aðstæðum og í samskiptum með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Kennsludagar: Mánudagar frá 15:00-17:00, alls 22 klst. Kennarar: Sálfræðingar Kvíðameðferðarstöðvarinnar Næsta námskeið hefst mánudaginn 22. ágúst 2011 Skráning og fyrirspurnir í síma 534-0110 eða kms@kms.is Nánari upplýsingar: www.kms.is FÓLK Víða um borgina má sjá skokk- ara koma sér í form fyrir Reykja- víkurmaraþonið en blaðamenn Fréttablaðsins ráku þó upp stór augu í fyrrakvöld þegar þeir sáu Þórð Pétursson hlaupa meðfram Miklubrautinni en hann er nær blindur og notast því við blindrastaf á skokkinu. „Ég hleyp hérna frá Lönguhlíð eftir Miklubrautinni og fer síðan upp hjá Suðurveri en þaðan er leiðin svo ógreiðfær heim í Hamrahlíðina að ég geng þann spöl,“ sagði Þórð- ur móður þegar blaðamaður fékk að trufla hann. „Ég fer þetta núna á hverjum degi enda er ég að æfa fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Þar ætla ég að hlaupa þrjá kílómetra. Ég er nú að vonast til þess að fá aðstoðarmann með mér í það.“ Hann segist óhræddur við að hlaupa með blindrastafinn og enn hafi hann ekki lent í neinu óhappi. Stafurinn er frábrugðinn öðrum blindrastöfum að því leyti að það er kúla á endanum sem Þórður rennir á undan sér. Það þarf heldur betur traust á stafinn til að skokka við þessar aðstæður en Þórður sér einung- is birtu. „Ég sé þig til dæmis ekki núna,“ sagði hann við blaðamann þegar hann stóð um metra frá honum. Svava Oddný Ásgeirsdóttir hlaup- stjóri segist ekki vita til þess að blindur maður hafi áður tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. „Reyndar er það svo að fólk er svo duglegt og lætur nánast ekkert aftra sér svo það gæti verið að einhver blindur hafi hlaupið hjá okkur án þess að við hefðum orðið vör við það,“ segir hún. Hún segir að um ellefu þúsund manns hafi hlaupið í fyrra og allt útlit sé fyrir svipaðan fjölda í ár. Meðal keppenda verða um þúsund erlendir hlauparar frá um fimmtíu þjóðlöndum. jse@frettabladid.is Nær blindur maður ætlar í langhlaup með hvíta stafinn Þórður Pétursson skokkar daglega en hann er nær blindur og treystir því alveg á blindrastafinn. Þórður ætlar að hlaupa þrjá kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu. Hann vonast eftir aðstoðarmanni í hlaupinu. ÞÓRÐUR Á HLAUPUM Ekki getur hjarta Þórðar verið sem fóarn úr fugli fyrst hann lætur sig hafa það að hlaupa einungis með stafinn að vopni. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Guðmundur Felix Grétarsson er á meðal þeirra sem undirbúa sig fyrir Reykjavíkurmaraþonið en hann missti báðar hendur í vinnuslysi árið 1998. Hann hefur leitað til fjölmargra sérfræðinga í Frakklandi með það fyrir augum að fara í handaágræðslu. „Þeir koma svo allir saman þann 9. september næstkomandi og þá fæst úr því skorið hvort af verður,“ segir Guðmundur Felix. Hann segist vera bjartsýnn þar sem rannsóknirnar hafi komið vel út. Þessar rannsóknir hafa kostað Guðmund Felix óhemju fjár en þeir sem vilja styrkja hann í þessari þolraun geta heitið á hann á vefsíðunni hlaupastyrkur.is. Guðmundur Felix er ekkert fyrir neinn tepruskap þegar ástand hans er rætt. Blaðamaður komst að því þegar hann spurði hvort það væri við hæfi að hann titlaði sig sem handlangara í símaskránni. „Já, já,“ svaraði hann að bragði, „mig langar í hendur svo það er alveg við hæfi.“ Handahlaup GUÐMUNDUR FELIX GRÉTARSSON ÞJÓÐKIRKJAN Innanríkisráðherra hefur skipað nefnd til að meta hvaða áhrif niðurskurður fjárveit- inga hafi haft á starfsemi þjóð- kirkjunnar og hverjar yrðu afleiðingarnar ef haldið yrði áfram á þeirri braut. Nefndin kom saman til síns fyrsta fundar í fyrra- dag og mun skila áliti til ráðherra fyrir 1. maí 2012. Nefndina skipa Ingibjörg Pálma- dóttir, fyrrverandi ráðherra, sem er formaður, Oddur Einarsson, sérfræðingur í innanríkisráðu- neytinu, séra Gísli Jónasson og séra Halldóra Þorvarðardóttir. - kh Nefnd skoðar þjóðkirkjuna: Meta afleiðing- ar niðurskurðar INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR NÁTTÚRA Verulega hefur dregið úr líkum á hlaupi úr eystri Skaft- árkatli. Mæligildi aurs og leiðni eru ennþá há, en rennsli árinnar hefur ekki aukist. Sérfræðingur hjá Veðurstof- unni segir þessar sveiflur skýr- ast fyrst og fremst af dægur- sveiflu jökulleysinga og því að vestari ketillinn er að tæmast. Það var í lok júlí sem vaxandi leiðni og grugg mældist svo talið var að hlaup myndi hefjast í Skaftá. Síðast hljóp úr Skaftár- kötlum í júní árið 2010. - kh Dregur úr hlaupi í Skaftá: Minni líkur á hlaupi úr ánni SAMGÖNGUR Talsverðar breyt- ingar verða á akstri Strætó í dag vegna Gleðigöngu Hinsegin daga og hátíðarhalda í miðborginni. Í tilkynningu frá Strætó segir að breyta þurfi akstursleiðum og loka nokkrum stoppistöðvum meðan á hátíðarhöldunum stend- ur en gangan fer ekki niður Laugaveg eins og síðustu ár held- ur hefst við Vatnsmýrarveg og gengið verður norður Sóleyjar- götu, eftir Fríkirkjuvegi og Lækjargötu. Breytingar verða á níu aksturs- leiðum, leiðum 1, 3, 6, 11, 12, 13, 14, 15 og 19. Nánari upplýsingar um breytingar á akstri Strætó má finna á vefnum strætó.is. - kh Strætó fer aðrar leiðir: Breytingar á níu leiðum vegna Gleðigöngunnar Formaður Þjóðhátíðarnefndar sendi yfirlýsingu vegna nauðgunarumræðu: Niðurlægjandi fyrir Eyjamenn PÁLL SCHEVING INGVARSSON Vanþekkingin verður ekki betur auglýst. PÁLL SCHEVING INGVARSSON FORMAÐUR ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFNDAR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 33° 26° 27° 22° 26° 27° 21° 22° 25° 19° 29° 28° 34° 22° 22° 21° 21°Á MORGUN Víða 3-8 m/s, hvassara NV- og SA-til. MÁNUDAGUR Víða 3-8 m/s, hvassara NV- og SA-til. 15 13 11 13 12 9 10 13 14 12 9 6 2 3 3 9 7 5 3 5 6 7 15 11 11 8 13 14 12 11 10 9 BEST SV-TIL Það léttir til næstu daga og nokkuð bjart S- og V- til. Skýjað með köfl um A-lands og líkur á þokulofti við ströndina. Það verður dálítið svalt A-til næstu daga. Einhver væta SA-til í dag en svo styttir upp. Strekkingur við SA-ströndina í dag og á morgun. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.