Fréttablaðið - 06.08.2011, Blaðsíða 68
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR32
krakkar@frettabladid.is
32 6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR
Mér finnst mjög
gaman að lesa,
læra og gera margt.
Mér þykir líka mjög
gaman að syngja, æfa
ballett og á fiðlu.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Íslendingar í enska boltanum
Enska knattspyrnan hefst formlega um helgina
þegar Manchester City og Manchester United
eigast við um Samfélagsskjöldin. Enska úrvals-
deildin sjálf hefst svo um næstu helgi.
Aðeins tveir Íslendingar spila í ensku
úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
Það eru þeir Grétar Rafn Steinsson,
bakvörður hjá Bolton Wanderers
og Heiðar Helguson, framherji
hjá Queens Park Rangers
eða bara QPR. Eiður Smári
Guðjohnsen, sem spilaði
með Tottenham og Ful-
ham í ensku úrvalsdeild-
inni í fyrra, leikur nú með AEK
í Grikklandi.
Bæði Heiðar og Grétar Rafn eru utan af landi.
Heiðar er alinn upp á Dalvík en spilaði svo með
Þrótti Reykjavík áður en hann gerðist atvinnu-
maður með Lilleström árið 1998. Heiðar
hefur spilað með liðum á borð við
Watford, Fulham og Bolton.
Grétar Rafn er alinn upp á Siglufirði
en lék með Skagamönnum
áður en hann hélt utan. Hann
gerðist atvinnumaður hjá
Young Boys árið 2004.
Síðar lék hann með AZ
Alkmar en leikur nú, sem
fyrr segir, með Bolton
Wanderers.
SNILLIHEIMAR námsvefur er vefsíða þar sem krakkar geta æft sig
í myndlist og tónlist, leyst þrautir og fleira skemmtilegt. Slóðin er
http://mennta.hi.is/vefir/snilliheimar/lok/forsidabyrja.html.
Jón og Gunnar voru að tala
um mat.
Jón: „Ég er búinn að borða
nautakjöt alla mína ævi og er
nautsterkur!“
Gunnar: „Skrítið, ég hef borð-
að fisk alla mína ævi og ég
kann samt ekki að synda.“
Áhyggjufullur hundaeigandi
fer til dýralæknis.
Hundaeigandi: „Læknir,
hundurinn minn er ekki með
trýni!“
Dýralæknir: „Hvernig lyktar
hann þá eiginlega?“
Hundaeigandi: „Alveg hræði-
lega!“
Kennari einn biður börnin í
bekknum að segja frá nöfn-
um sínum. Þegar röðin kemur
að Hans litla spyr hann:
Kennari: „Eftir hverjum ert þú
nú skírður, Hans?
Hans: „Eftir spænska kóng-
inum.“
Kennari: „En hann heitir ekki
Hans.“
Hans: „Jú, hans hátign!“
Hvað ertu gömul? „Tíu ára en
verð ellefu ára í nóvember.“
Hvenær lékstu fyrst í atvinnu-
leikhúsi? „Þegar ég var sjö ára,
þá lék ég í Kardimommubæn-
um.“
Hvaða hlutverk lékstu? „Ég lék
Kamillu, sem var eitt stærsta
barnahlutverkið í sýningunni
og ég söng einsöng.“
Hvernig fékkstu hlutverkið?
„Ég fór í tvær prufur og komst
síðan inn.“
Ertu að leika í einhverju núna?
„Já, í Galdrakarlinum í Oz. Það
er mjög gaman en við erum
bara í sumarfríi núna. Leikrit-
ið verður síðan frumsýnt í sept-
ember í Borgarleikhúsinu.“
Um hvað fjallar Galdrakarlinn
í Oz? „Hann fjallar um stelpu
sem á fáa vini og hundurinn
hennar er besti vinur hennar.
Hún verður mjög leið þegar
það á að taka af henni hundinn
og langar mikið að komast til
draumalands. Þegar hún sofnar
dreymir hana um land sem er
fyrir ofan regnbogann og þar
gerast ýmsir undrahlutir.“
Hvaða hlutverk leikur þú?
„Ég leik ýmis hlutverk eins
og Pinkla lögmann, bæjarbúa,
skógardýr og blóm.“
Hefur þú leikið í öðrum
atvinnuleikritum? „Já, í
Oliver.“
Hvenær talaðir þú fyrst inn á
teiknimynd? „Ég fór í fyrstu
prufuna á sjö ára afmælisdag-
inn minn og talaði síðan inn á
þættina Bangsímon, Tumi og
ég. Þar gerast þau spæjarar og
ég talaði fyrir Dagnýju, sem er
ein af aðalspæjurunum.“
Hvað hefur þú talað inn á?
„Drekabana, Konungsríki
uglanna og líka Prinsessuna og
froskinn. Það eru svona helstu
bíómyndirnar sem ég hef lesið
inn á. Helstu þættirnir eru
kannski Bangsímon, Olivía,
Tóta trúður og ég var að tala
inn á jóladagatalið núna síðast.“
Eru leikarar í fjölskyldunni
þinni? „Já, Sigrún Edda Björns-
dóttir er frænka mín og Guð-
rún Ásmundsdóttir er systir afa
míns.“
Er draumurinn að verða leik-
kona? „Já, ég held það.“
Hefur þú áhuga á öðru en leik-
list? „Mér finnst mjög gaman
að lesa, læra og gera margt.
Mér þykir líka mjög gaman að
syngja, æfa ballett og á fiðlu.“
Hefur þú tíma til að mæta í
skólann? „Þegar ég er að leika
í leikriti þarf ég bara stundum
að fá frí í skólanum. Get samt
oftast mætt, allavega fyrst.“
SÖNG EINSÖNG SJÖ ÁRA
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir hefur leikið í atvinnuleikhúsi og talað inn á
fjölda teiknimynda þrátt fyrir ungan aldur. Í haust mun hún síðan spreyta sig á
ýmsum spennandi hlutverkum í undraheimi Galdrakarlsins í Oz.
FJÖLHÆF Ragnheiði Ingunni dreymir um að verða leikkona en hefur áhuga á öðru
svo sem söng, ballett og fiðluleik. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.