Fréttablaðið - 06.08.2011, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 06.08.2011, Blaðsíða 20
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR20 H eimsbyggðin stend- ur nú frammi fyrir einhverju alvar- legasta neyð - arástandi síð - ustu áratuga þar sem milljónir manna, kvenna og barna líða skort í Austur-Afríku. Hungursneyð ríkir nú í suður- hluta Sómalíu og er búist við því að ástandið versni enn frekar ef ekki kemur til aukin aðstoð frá alþjóða- samfélaginu. Langhrjáð svæði Rúmlega tólf milljónir íbúa á hinu svokallaða Horni Afríku standa frammi fyrir matarskorti vegna verstu þurrkatíðar sem um getur í sextíu ár. Þessi hluti heimsins hefur lengi verið viðkvæmur fyrir áföllum og hafa þau dunið reglulega yfir. Flestir muna eftir hörmungun- um í Eþíópíu á níunda áratugnum og Sómalíu í upphafi þess tíunda. Yfirstandandi ástand er einmitt það alvarlegasta sem upp hefur komið síðustu tuttugu ár og er ekki úti- lokað að eymdin muni aukast enn frekar. Fjögur ríki eru á þurrkasvæðinu, Kenía, Eþíópía, Djíbútí og Sómalía, en ástandið er sýnu verst í því síð- astnefnda, þar sem 3,7 milljónir af um 7,5 milljónum íbúa búa nú við matarskort. Tugir þúsunda hafa þegar lát- ist síðustu vikur og mánuði, þar af 29 þúsund sómalísk börn yngri en fimm ára síðustu þrjá mánuði. 640 þúsund börn til viðbótar búa við alvarlegan næringarskort. Hundruð þúsunda hafa flúið þurrkasvæðin í suðurhluta Sómal- íu og leitað aðstoðar í höfuðborg- inni Mogadisjú og flóttamanna- búðum í nágrannalöndunum. 440 þúsund hafast við í Dadaab-flótta- mannabúðunum í Norður-Kenía og 120 þúsund til viðbótar í Dollo Ado í Eþíópíu. Straumurinn er síst að léttast, þar sem 73 þúsund manns hafa komið til Dadaab á síðustu tveimur mánuðum og 1.300 manns bætast í hópinn á degi hverjum. Þá koma um 2.000 til Dollo Ado á dag. Þurrkar og ófriðarbál Meginorsök þessa hörmunga er uppskerubrestur og dauði búfén- aðar af sökum þurrka, en efnahags- legir og pólitískir þættir magna neyðina. Uppskerubresturinn hefur leitt til gríðarlegra verðhækkana á mat og nauðsynjavörum. Til dæmis hefur verð á svokallaðri dúrru, kornjurt sem er mikið notuð í mjöl- gerð, hækkað um 240 prósent í Sómalíu síðasta ár. Þá hefur mikill óstöðugleiki ein- kennt stjórnmálaástandið í Sómal- íu síðustu tuttugu ár og má segja að borgarastyrjöld geisi í mörgum af þeim héruðum þar sem ástandið er verst. Allt frá því að Siad Barre var velt úr forsetastóli fyrir tutt- ugu árum hafa flokkar undir stjórn ýmissa stríðsherra barist um völd- in. Opinber stjórnvöld í Mogadisjú sitja í skjóli Afríkusambandsins en stýra í raun aðeins takmörk- uðum hluta landsins. Víða hafa skæruliðahópar, meðal annars úr samtökunum al-Shabab sem hafa tengsl við al-Kaída, hindrað hjálp- arstarf alþjóðlegra hjálparstofnana og jafnvel meinað flóttamönnum að leita sér hjálpar. Friðargæslusveitir Afríkusam- bandsins hafa undanfarna daga og vikur herjað á al-Shabab til að tryggja að hjálparaðstoð nái til borgaranna, og orðið nokkuð ágengt í þeim efnum. Hnetusmjör bjargar lífum Alþjóðleg samtök og stofnanir hafa hert verulega á starfi sínu að undanförnu og vakið athygli almennings um heim allan á neyð fólks í Austur-Afríku. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur lagt megináherslu á að aðstoð við börn sé sett í for- gang. Mjólkurblöndur og hnetu- mauk eru nýtt fyrir vannærð börn en einnig eru börn bólusett gegn hættulegum sjúkdómum. UNICEF hefur þegar komið hundruðum tonna af hjálpargögnum til barna á neyðarsvæðunum og tugþúsund barna hafa verið bólusett gegn mislingum og mænusótt. Þá hafa Matarhjálp Sameinuðu þjóðanna, WFP, og Alþjóða Rauði krossinn sent tugi tonna af hnetu- smjöri til neyðarsvæðanna og er von á annarri sendingu á allra næstu dögum. Loks má geta þess að Flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna leggur mikla áherslu á að byggja upp aðstöðu fyrir flóttamenn í búð- unum í Dadaab og reisa tjöld fyrir 7.500 manns á degi hverjum. Enn er mikil þörf Þrátt fyrir að heimsbyggðin hafi tekið við sér undanfarnar vikur er enn töluvert í að ástandið verði viðráðanlegt, bæði vegna skorts á fjármunum og erfiðleikum við að ná til nauðstaddra. Rúmlega millj- arður Bandaríkjadala hefur safn- ast frá ríkisstjórnum, stofnunum og einstaklingum um heim allan en annað eins þarf til, þar sem talið er að umfangsmikilla hjálparaðgerða verði þörf allt fram í desember. Íslendingar hafa stutt ötullega við hjálparstarfið og hafa þúsundir gefið í safnanir UNICEF og Rauða krossins síðustu vikur. Þá standa Barnaheill og Hjálparstarf kirkj- unnar einnig fyrir söfnunum, en nánari upplýsingar um hvernig má bera sig að við stuðning má finna á heimasíðum fyrrnefndra aðila. Yfir 29 þúsund börn undir 5 ára látin Milljónir svelta heilu hungri á þurrkasvæðum í Austur-Afríku. 650 þúsund börn eru í bráðri lífshættu og hafa þörf fyrir mikla aðstoð frá alþjóða- samfélaginu. Þorgils Jónsson kynnti sér aðstæður hinna fjölmörgu þjáðu. TÁRADALUR Hungursneyð ógnar lífi milljóna manna á þurrkasvæðunum í Austur-Afríku. Tugþúsundir hafa þegar látist, þar af rúmlega 29 þúsund börn undir fimm ára aldri á síðustu þremur mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Aden er þriggja ára gamall og sést hér með föður sínum Abdille í flóttamannabúðum í Kenía. Aden kom ásamt föður sínum, ömmu og tveimur systkinum í Dadaab-búðirnar fyrir viku og var þá aðframkominn af næringarskorti en hefur náð sér undraskjótt. Móðir hans lést áður en fjölskyldan komst á leiðar- enda. Ekki tekur nema tvær til fjórar vikur að hjúkra vannærðum börnum til fullrar heilsu komist þau undir hendur hjálparsam- taka, en kostnaður við slíka meðferð er um 1.500 krónur. NORDICPHOTOS/AFP Í öruggum höndum Food security Sep forecast 1. Minimal 2. Stressed 3. Crisis 4. Emergency 5. Famine Refugee centres Pop. as of July 29 Dollo Ado 120,000 Famine predicted throughout southern Somalia by SeptembeSOUTH SUDAN UGAND A TANZANIA DJIBOUTI 165,000 SOMALIA 3.7 millio ETHIOPIA 4.8 million KENYA 3.7 million Addis Ababa Nairobi 200km 125 miles People in need of food aid HUNGURSNEYÐ BREIÐIST ÚT UM SUÐUR-SÓMALÍU Hungursneyð hefur nú breiðst út til þriggja héraða til viðbótar í Sómalíu og þykir líklegt að neyð muni heltaka allan suðurhluta landsins innan sex vikna. Rúmlega 12 milljónir manna líða nú skort vegna verstu þurrka sem geisað hafa í Austur-Afríku í 60 ár. æðuskort r: pá fyri september . Min i háttar . Nokkur . Erfiðleikar . Neyðarástand . Hungursneyð Flóttamannabúðir Fjöldi hinn 29. júlí Matarþurfi einstaklingar Hungursneyð spáð um alla Suður-Sómalíu í septem- ber. Djíbútí 165. 0 Sómalía 3,7 milljónir Eþíópía ,8 milljónir Kenía 3,7 milljónir Mogadisjú Naíróbí Addis Ababa Djibouti Ali Addeh 14.400 Dollo Ado 120.000 Dadaab 440.000 SUÐUR-SÚDAN ÚGANDA TANSANÍA ©GRAPHIC NEWS Heimildir: OCHA, USAID, FEWS NEYÐARMATVÆLI VEGNA HUNGURSNEYÐAR Matarhjálp Sameinuðu þjóðanna hefur fl utt 74 tonn af næringarbætta hnetusmjör- inu Plumpy‘Sup til neyðarsvæðanna í Sómalíu. Það nægir til að fæða 28 þúsund börnum í einn mánuð. Alþjóða Rauði krossinn og UNICEF hafa einnig dreift slíku til barna á svæðinu. Tilbúinn neyðarmatur: Hnetumauk, grænmetisolía, sojaprótín, mysa, maltódextrín, sykur, kakó, snefilefni. Neytt beint úr pokanum Orka í 100 gr. 545 Kcal Bakteríur þrífast ekki í mat sem byggður er á olíu. Pakkning- arnar eru hentugar til flutnings og geymast lengi. Fjörefnabætt blanda: Kornmeti sem blandað er með soja, belgjurtum, olíufræjum og undan- rennuduft, Bætt með fjör- efnum og steinefnum. Blandað við vatn og eldað eins og hafra- grautur Orka í 100 gr. 380 Kcal Næringarstangir: Hveiti, grænmeti, fita, sykrur, sojaprótín og maltþykkni. Stundum mulið út í vatn og eldað sem hafragrautur. Orka í 100 gr. 446Kcal Orkuríkt kex: Hveitikex með prótínríku korni, grænmetis- olíu, kornsýrópi og undanrennudufti. Orka í 100 gr. 450 Kcal Heimildir: Matarhjálp Sameinuðu þjóðanna og Nutriset. ©GRAPHIC NEWS Þúsund manna koma í flóttamannabúðir á degi hverjum en margir láta lífið áður en þeir geta leitað sér hjálpar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.