Fréttablaðið - 06.08.2011, Side 48

Fréttablaðið - 06.08.2011, Side 48
6. ágúst 2011 LAUGARDAGUR16 Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2011. Í umsókn skal koma fram lýsing á náms- og starfsferli, sem og nöfn og símanúmer meðmælenda. Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir, fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar. Umsóknir skulu sendar á umsoknir@mila.is E N N E M M / S ÍA / N M 4 7 6 2 1 Starfslýsing Um er að ræða vaktavinnu hjá Kerfisvöktun Mílu þar sem unnið er á þrískiptum 8 tíma vöktum allt árið um kring. Starfið felst í bilanagreiningu og vöktun á þeim fjar- skiptakerfum sem Míla á og rekur. Kerfisvöktun tekur einnig við og skráir tilkynningar um bilanir auk þess að bregðast við þeim í gegnum eftirlits- kerfin. Að auki veitir Kerfisvöktun viðskiptavinum, innan- og utanlands, upplýsingar um framkvæmdir á vegum Mílu og þær bilanir sem verða á kerfum fyrirtækisins. Menntunar- og hæfniskröfur · Menntun á sviði rafeindavirkjunar, rafiðnfræði eða sambærilegt nám · Reynsla af fjarskiptalögnum er mikill kostur · Samskiptalipurð · Hæfni til að vinna með öðrum · Aðlögunarhæfni · Skipulagshæfni · Sjálfstæð og öguð vinnubrögð · Góð enskukunnátta Míla ehf. Stórhöfða 22 Sími 585 6000 www.mila.is Lífæð samskipta Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi. Míla sér fjarskipta- og afþreyingarfyrirtækjum fyrir aðstöðu og dreifileiðum um net ljósleiðara og kopar- strengja sem tengja byggðir landsins við umheiminn. Míla er lífæð samskipta. Gildi Mílu eru virðing, forysta og traust. Míla leitar að rafeindavirkja eða rafiðnfræðingi Úrskurðarnefnd almannatrygginga Úrskurðarnefnd almannatrygginga óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa frá 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi. Verkefnin felast aðallega í túlkun og beit- ingu réttarreglna á sviði almannatrygginga, sjúkratrygg- inga, sjúklingatryggingar og stjórnsýslu og í undirbúningi úrskurða fyrir úrskurðarnefndina. Starfið krefst lipurðar í samskiptum, nákvæmni í vinnu- brögðum og sjálfstæðis til verka. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og stéttarfélags lögfræðinga. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist til úrskurðarnefndar almannatrygginga, Hafnar- húsinu v/Tryggvagötu, Reykjavík, eigi síðar en 23. ágúst 2011. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri í síma 551-8200. Yfirmaður mötuneytis Sækja skal um starfið á vefsíðu Reykjavíkurborgar, www. reykjavik.is, undir Auglýsingar, Störf í boði. Við Hólabrekkuskóla er laus staða yfirmanns í mötuneyti skólans. Um tímabundna ráðningu er að ræða. Hólabrekkuskóli er heilstæður grunnskóli með um 500 nemendur og 70 starfsmenn. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, sem á auðvelt með að vinna með börnum og fullorðnum. Um er að ræða 100% starf. Helstu verkefni og ábyrgð Yfirmaður í mötuneyti skólans ber ábyrgð á matseld fyrir nemendur og starfsmenn. Lögð áhersla á fjölbreyttan og hollan mat þar sem notast er við viðmið Lýðheilsustöðvar. Yfirmaður mötuneytis hefur yfirumsjón með mat- reiðslu, hönnun matseðla, frágangi í eldhúsi, samskip- tum við birgja auk innkaupa á hráefni. Yfirmaður mötu- neytisins hefur mannaforráð. Einnig sér viðkomandi um veitingar fyrir ýmsar uppákomur í starfinu ásamt því að sinna öðrum tilfallandi verkefnum. Hæfniskröfur Menntun og reynsla á sviði matreiðslu. Góð þekking á næringarfræði. Færni í mannlegum samskiptum. Þekking á rekstri mötuneyta. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Frumkvæði í starfi, reglusemi og stundvísi. Geta til að vinna undir álagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 18. ágúst 2011. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmfríður G. Guðjónsdóttir, skólastjóri í síma 4117550 / 6648235 eða með því að senda fyrirspurnir á netfangið holmfridur.g.gudjonsdottir@reykjavík.is Heilbrigðisfulltrúi - Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur Starfið felst m.a. í: • Að hafa reglubundið eftirlit með matvælum, neysluvatni og starfsleyfisskyldum fyrirtækjum í samræmi við lög um matvæli nr. 93/1995, lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, og lög nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni og reglugerðum skv. þeim. • Að sinna skráningum, skýrslugerð og bréfaskriftum, sinna kvörtunum og annast fræðslu. Beita þvingunarúrræðum í samráði við deildarstjóra. • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt fyrirmælum deildarstjóra. • Að vinna með hópi sérfræðinga Heilbrigðiseftirlitsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, raunvísinda, umhverfisfræða eða sambærileg menntun s.s. dýralækninga, líffræði, matvælafræði eða verkfræði. • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni, sem og geta til að leiða og taka þátt í uppbyggilegu hópastarfi. Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi. • Jákvæðni, samviskusemi og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar. • Færni til að setja fram ritað mál fyrir stjórnsýslu borgarinnar á greinagóðri íslensku. • Réttindi til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi eru æskileg. Laust er til umsóknar starf heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Matvælaeftirliti. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar veitir Óskar Ísfeld Sigurðsson, deildarstjóri Matvælaeftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, frá kl. 9-16 í síma 411 1111. Umsóknir skulu berast til deildarstjóra Matvælaeftirlitsins, Borgartúni 12- 14, 105 Reykjavík, netfang oskar.isfeld.sigurdsson@ reykjavik.is eigi síðar en 21. ágúst 2011. Reykjavík 4. ágúst 2011. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar/ Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Matvælaeftirlit. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar er eitt af fagsviðum borgarinnar og samanstendur af skrifstofum Samgöngumála, Neyslu og úrgangs og Náttúru og útivistar, auk Staðardagskrár 21, Bílastæðasjóði og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem skiptist í tvær deildir: Matvælaeftirlit og Umhverfiseftirlit auk þess sem Heilbrigðiseftirlitið sér um vöktun umhverfisgæða og hundaeftirlit. Leiðarljós Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er að tryggja borgarbúum heilnæm lífsskilyrði, að neysluvatn og matvæli séu örugg og vernda heilnæmt og ómengað umhverfi. Starf í boði er hjá Matvælaeftirliti sem sér um eftirlit með matvælum, matvælafyrirtækjum og hollustuháttum í fyrirtækjum og stofnunum, gististöðum, útgáfu starfsleyfa, umsagnir, fræðslu og sinnir kvörtunum, ásamt öðrum verkefnum. Deildarstjóri er næsti yfirmaður. Óskastarfið laust til umsóknar Skrifstofa stéttarfélaganna á Húsavík leitar eftir skrifstofu- og fjármálastjóra til starfa. Starfið felur í sér umsjón með bókhaldi, fjármálastjórn og almennri þjónustu við félagsmenn stéttarfélaganna sem telja um 2600 manns. Tölvu- og tungumálakunnátta og lipurð í mannlegum samskiptum er æskileg. Starfsmaðurinn heyrir undir forstöðumann skrifstofunnar, Aðalstein Á. Baldursson, sem jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 8646604. Starfsemi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum er ein sú öflug asta á landsvísu. Umsóknarfrestur um starfið er til 10. ágúst 2011 og skal umsóknum skilað á Skrif- stofu stéttarfélaganna, Garðarsbraut 26, 640 Húsavík í lokuðu umslagi eða á netfangið kuti@framsyn.is.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.