Fréttablaðið - 06.08.2011, Page 55
LAUGARDAGUR 6. ágúst 2011 23
Útboð
Útboð
Tilkynningar
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
ÚTBOÐ ÚTBOÐ
LANDSPÍTALI GRENSÁSDEILD
BÍLSKÝLI OG LÓÐARLÖGUN
ÚTBOÐ NR. 15106
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Landspítala óskar eftir tilboðum í
verkið: Landspítali Grensásdeild – Bílskýli og lóðarlögun.
Verkið felst í byggingu bílskýlis og frágangi lóðar framan við aðalinngang
Grensásdeildar Landspítala að Grensásvegi 62. Byggja skal bílskýli að
mestu úr stáli, steypu og gleri sem myndar skjól fyrir sjúklinga sem
sækja deildina. Þá skal samhliða endurnýja lóð og aðkomu framan við
aðalinngang og bílskýli.
Vettvangsskoðun verður haldin 12. ágúst 2011 kl. 13:00 að viðstöddum
fulltrúa verkkaupa.
Frágangi lóðar skal vera lokið eigi síðar en 1. nóvember 2011.
Byggingu bílskýlis skal vera lokið eigi síðar en 20. desember 2011.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni
7C, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 9. ágúst 2011. Tilboðin verða
opnuð hjá Ríkiskaupum mánudaginn 22. ágúst 2011, kl. 14:00 að viðstöd-
dum þeim bjóðendum sem þess óska.
FRAMKVÆMDASÝSLA RÍKISINS
- með þér alla leið -
569 -7000 Síðumúl i 13 www.miklaborg. is
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar
Þrætuás í Borgarfirði
Erum með til sölu 7 glæsileg 92,3 m2 heilsárshús.
Fullbúin að utan sem innan þ.m.t. húsbúnaður og
innanstokksmunir. Vandaðar innréttingar og gólfefni,
hiti í gólfum. 70 m2 timburverönd er umhverfis húsin
og fullfrágengin lóð. Allt nýtt. Verð: 25,9 millj.
Hentar jafnt einstaklingum sem og félagasamtökum.
Nánari upplýsingar veita:
Hilmar Jónasson, Sölufulltrúi
sími 695-9500 hilmar@miklaborg.is og
Heimir Eðvarðsson, Sölufulltrúi
sími 893-1485 heimir@miklaborg.is
Starfsfólk – skólaliðar
til ræstinga, útigæslu og gangavörslu
Óskum að ráða sem allra fyrst starfsfólk til
ræstinga á dagvinnutíma í 50 -100% störf.
Upplýsingar um starfið gefa Sveinbjörn Markús
Njálsson skólastjóri, í símum 540-4700 og 821-
5007, netfang: sveinbjorn.njalsson@alftanesskoli.
is og Andrés Haukur Hreinsson húsvörður í
síma 540-4700 og 821-5008, netfang andres.
hreinsson@alftanesskoli.is
Umsóknir sendist skólastjóra eða húsverði á netfang
þeirra eða í pósti til skólastjóra Álftanesskóla, 225
Álftanesi.
Skólastjóri
Rekstur óskast til kaups eða leigu.
Samhennt hjón bæði menntuð m.a. sem matreiðslumeistarar
með mikla reynslu í rekstri óska eftir að kaupa eða leigja góðan
veitingastað/kaffihús, gistiheimili eða hótel á Reykjavíkursvæði
eða Akureyri, einnig kemur til greina að kaupa eða leigja starfsemi
í kringum heilsufæðisgeirann og því tengdu.
Skoðum ýmsa aðra möguleika.
Áhugasamir vinsamlega sendið upplýsingar á krk@internet.is
Fyllstum trúnaði heitið.
Vegna aukinna umsvifa leita Landslög að lögfræðingum
til starfa til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Meistara- eða embættispróf í lögfræði
Málflutningsréttindi æskileg
Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði
í starfi
Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku
Góð kunnátta í ensku
Á Landslögum starfa 18 lögfræðingar og er heildar-
fjöldi starfsmanna stofunnar tæplega 30. Helstu
verk efni Landslaga eru á sviði samninga gerðar,
málflutnings fyrir dómstólum auk álitsgerða á ýmsum
sviðum. Þá hefur stofan sérhæft sig í uppgjöri slysa og
skaðabótamála, fjármálarétti, hlutafélagarétti, sam-
keppnisrétti, sveitarstjórna- og stjórnsýslurétti, verktaka
og- útboðsrétti.
Nú leitum við að liðsauka. Kostur er ef umsækjendur
hafa reynslu af verktaka- og útboðsrétti eða félaga- og
fjármálarétti.
Umsóknir berist Landslögum, Borgartúni 26, eða á
netfangið aslaug@landslog.is fyrir 19. ágúst nk.
•
•
•
•
•
Forval um umferðaröryggisaðgerðir á Víkurbraut
og Austurvegi í Grindavík
Grindavíkurbær efnir til forvals vegna vals á
verktökum til að taka þátt í lokuðu útboði á
framkvæmdum við gerð þéttbýlishliða, gönguleiða
og umferðareyja við Víkurbraut og Austurveg í
Grindavík. Allt að fimm aðilar verða valdir til að taka
þátt í lokuðu útboði um framkvæmdina.
Verkefnið
Verkefnið felst í gerð tveggja þéttbýlishliða, þriggja
gönguþverana með hellulögðum eyjum, breytingar
á tveimur gatnamótum með hellulögðum eyjum og
gerð stétta og göngustíga.
Helstu magntölur eru
Netgirðing 330 m
Fylling 640 m3
Burðarlög 700 m3
Malbik á götur 590 m2
Stígar og stéttar 1900 m2
Kantsteinar 310 m
Hellulögn 190 m2
Tímaáætlun
• Verkkaupi miðar við eftirfarandi dagsetningar:
• Forvalsgögn afhent frá og með 8. ágúst 2011
• Skil forvalsgagna 17. ágúst 2011
• Niðurstaða forvals 22. ágúst 2011
• Afhending útboðsgagna framkvæmdar 22. ágúst
2011
• Opnun tilboða 31. ágúst 2011
• Framkvæmdir hefjast um 8. sept. 2011
• Verklok 1. desember 2011
Forvalsgögn verða afhent á geisladiski hjá Eflu hf.,
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík og hjá Bæjarskrif stofum
Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 240 Grindavík.
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar,
Grafarvogslaug, eimbað.
Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000, frá
mánudeginum 8. ágúst 2011 í þjónustuveri
Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1.hæð.
Opnun tilboða þriðjudaginn 23. ágúst 2011 kl.
10:00, í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í
þjónustuver.
12691
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.
is/utbod