Fréttablaðið - 15.08.2011, Blaðsíða 2
15. ágúst 2011 MÁNUDAGUR2
MENNING Steinasafn hjónanna
Snjólaugar Maríu Dagsdóttur og
Þorsteins Þorleifssonar, var flutt
til Winnipeg í Kanada. Það er nú
til sýnis á New Iceland Heritage
Museum, eða Sögusafni Nýja-
Íslands í Gimli í Manitoba.
Þorsteinn segir safnið sam-
anstanda af grjóti sem Dagur
Óskars son hóf að safna upp úr
miðri síðustu öld en megninu af
því safnaði Jón, sonur Dags um
langt tímabil.
„Það er gott að vita af safninu
þar ytra, þetta eru jafnvel meiri
Íslendingar en við,“ segir Þor-
steinn. Það var þó ekki vand-
kvæðalaust að koma safninu út en
eins og alkunna er mun það ólög-
legt að flytja berg á milli landa.
Þjóðræknifélagið, sem flutti safn-
ið út, fékk þó undanþágu.
Iceland Express flutti safnið
endurgjaldslaust, að sögn Svavars
Gestssonar, ræðismanns í Kan-
ada, í sinni fyrstu áætlunarferð til
Winnipeg, í júní og þurfti félagið
að fá til þess sérstakt leyfi en það
hafði ekki leyfi til slíkra frakt-
flutninga. Síðan héldu þau Þor-
steinn og Snjólaug María utan í
lok júnímánaðar til þess að setja
safnið upp.
Það var svo um síðustu mánaða-
mót, á Íslendingadeginum, sem
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra afhenti Sögusafn-
inu í Gimli steinasafnið.
Þorsteinn segir að í safninu séu
nánast allar bergtegundir sem
fyrirfinnast hér á landi. „Það var
afskaplega áhrifamikið að vera
þarna í Gimli og sjá verslanir með
íslensku nafni og heyra fólk tala
sín á milli á lýtalausri íslensku.
En einnig var það skemmtilegt
þegar fólk var að snerta bergið
og sagðist vera að snerta íslenskt
berg í fyrsta sinn jafnvel þótt það
væri af íslensku bergi brotið,“
segir Þorsteinn.
Hann segir enn fremur að jarð-
fræðideild Háskólans í Manitoba
hafi tekið þessu afar vel og ætli
að nýta sér tækifæri sem nú gefst
þeim við túnfótinn til að kynnast
íslensku bergi.
jse@frettabladid.is
Íslenskt berg komið
til ekta Íslendinga
500 kílóa steinasafn var flutt frá Íslandi til Gimli í Kanada. Það er nú til sýnis
á Sögusafni Nýja-Íslands þar ytra. Mörgum, sem eru af íslensku bergi brotnir,
þótti mikið um að fá að snerta íslenskt berg í fyrsta sinn á ævinni.
HJÓNIN BÚIN AÐ KOMA GRJÓTINU Í GÓÐAR HENDUR Þau Þorsteinn Þorleifsson og
Snjólaug María Dagsdóttir sjá ekki eftir steinunum sem gleðja nú margan manninn í
Gimli. MYND/HELGI DAN
VEÐUR Nokkuð kólnar á landinu næstu daga. Rign-
ing eða stöku skúrir verða í flestum landshlutum í
vikunni.
„Það er spáð lægð fyrir austan landið og hún
nær að draga niður svalara loft úr norðri og tals-
verða úrkomu á norðan- og norðaustanverðu landinu
næstu tvo daga,“ segir Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur og bætir við að þegar líði á vikuna sé
spáð rólegra veðri.
Einar segir að talsvert kalt loft sé nú í háloftun-
um. „Það berst til okkar kalt loft frá Grænlandi. Það
hittist þannig á að kaldasta loftið á norðurhveli er
hér hjá okkur,“ upplýsir Einar og tekur sem dæmi
að í vikunni sé spáð sérlega miklum hlýindum norð-
ur við Svalbarða. Inntur eftir því hvort veðurspáin
sýni að haustið sé á næsta leiti segir Einar að hit-
inn við Svalbarða sé ekki haustmerki. „Það haustar
þegar kólna fer fyrir norðan okkur,“ segir Einar og
bætir við að alltaf kólni hér á landi með norðanátt-
inni. „Íbúar á Norðurlandi þekkja það vel.“
Einar segir að nokkur óvissa ríki um veðurspár
fyrir næstu helgi. „Það er spurning hvort lægð sem
er í pípunum taki upp á því að vera nálægt okkur
eða sunnan við Ísland og þá finnum við lítið fyrir
henni.“ - mmf
Það spáir kólnandi veðri og rigningu eða stöku skúrum víða næstu daga:
Haustið ekki enn í kortunum
RIGNING OG KÓLNAR Óvissa ríkir um spár fyrir næstu helgi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SPÁNN Tveggja ára stúlkubarn
fannst í ruslagámi á Suður-Spáni
á laugardag að því er fram kom
í fréttum breska ríkisútvarpsins
BBC. Barninu var bjargað eftir
að íbúar í grennd við ruslagáminn
heyrðu ekkasog úr gáminum. Íbú-
arnir sem fundu barnið sögðu að
það hefði verið grátandi, í svita-
baði og með skelfingarsvip á and-
litinu þegar þeir komu að því.
Foreldrarnir sem eru frá Norður-
Afríku, voru fangelsaðir á laugar-
dag. Þeir bíða nú réttarhalda vegna
gruns um vanrækslu. - mmf
Foreldrarnir bíða réttarhalda:
Barn fannst í
ruslagámi
Þorsteinn, eruð þið slánalegir
í dag?
Við berum höfuðið hátt eftir að hafa
næstum því náð að slá í gegn um
helgina.
Þór og KR mættust í úrslitum Valitors-
bikars karla á laugardag. Þórsarar áttu
fimm skot í slána í leiknum og KR fór
með sigur af hólmi.
Ungur maður, fæddur árið
1993, lést síðdegis í gær á gjör-
gæsludeild Landspítalans í
Fossvogi.
Maðurinn slasaðist alvarlega
í bílslysi á Geirsgötu á föstu-
dagskvöld. Hann komst aldrei
til meðvitundar eftir slysið.
Maðurinn var farþegi í bíl
sem ökumaður missti stjórn á.
Þrír voru fluttir á slysadeild
eftir að bíllinn hafnaði á vegg
húss við götuna. Hinir farþeg-
arnir voru minna slasaðir.
Lést eftir bílslys
á Geirsgötu
BEIRÚT, AP Sýrlensk herskip létu
skotum rigna yfir hafnarborgina
Latakia í gær og urðu í það minnsta
nítján að bana. Árásinni var beint
að andstæðingum sýrlenskra
stjórnvalda sem staðið hafa fyrir
mótmælum síðustu vikur.
Sýrlensk stjórnvöld hafa síðustu
vikur ítrekað ráðist á mótmælend-
ur en aukin harka hefur hlaupið í
aðgerðirnar í ágúst. Nokkur hundr-
uð manns létust í árásum í fyrstu
viku mánaðarins segja mannúð-
arsamtök en ríkisstjórnir Vestur-
landa hafa fordæmt aðgerðirnar.
Auk árásar frá herskipunum réð-
ust hermenn inn í hús í nokkrum
hverfum í borginni í gær.
Árásinni í gær var aðallega beint
að al-Ramel hverfinu í Latakia en
þar hafa fjölmenn mótmæli farið
fram gegn Bashar al-Assad, forseta
landsins, síðustu vikur.
Bandarísk stjórnvöld kölluðu
eftir viðskiptabanni á olíu og gas
frá Sýrlandi í kjölfar árásarinnar.
Sýrlensk stjórnvöld hafa hins vegar
réttlætt þær með því að segja þeim
beint gegn hryðjuverkahópum og
glæpamönnum. - mþl
Í það minnsta nítján eru látnir eftir árás herskipa á mótmælendur í Sýrlandi:
Herskip skutu á fólk í borginni Latakia
MYND FRÁ LATAKIA Á myndinni sjást brynvarðir bílar hersins fyrir utan hús í hverfinu
al-Ramel. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN Rick Perry, ríkisstjóri
í Texas, tilkynnti á laugardag
að hann hygðist gefa kost á sér
sem frambjóðandi repúblikana í
bandarísku forsetakosningunum
á næsta ári.
Þá dró Tim Pawlenty, fyrr-
verandi ríkisstjóri í Minnesota,
framboð sitt til baka í gær eftir
slakan árangur í óformlegu könn-
unarkjöri í Iowa á laugardag.
Þingkonan Michele Bachmann
sigraði í kjörinu en fyrsta for-
kosningin meðal repúblikana fer
fram í Iowa í febrúar.
Perry þykir nú líklegastur til
að hljóta tilnefninguna en Mitt
Romney, fyrrverandi ríkisstjóri
í Massachusetts, þykir einnig
sigur stranglegur. - mþl
Tim Pawlenty hættir við:
Rick Perry í
forsetaframboð
RICK PERRY Perry þykir nú líklegastur
til að verða frambjóðandi repúblikana í
forsetakosningunum 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR Lögreglan í Ósló fór
í gær með fjöldamorðingjann
Anders Behring Breivik aftur til
Úteyjar þar sem hann myrti tugi
manna 22. júlí
síðastliðinn. Í
Útey var Brei-
vik látinn lýsa
ódæðisverkinu
fyrir lögreglu.
Breivik hefur
játað að hafa
framið fjölda-
morð í eyjunni
og sprengt
sprengju í mið-
borg Óslóar en
segist ekki hafa framið glæp.
Heimsóknin til Úteyjar í gær
varði í átta klukkustundir. Brei-
vik var umkringdur fjölda lög-
reglumanna og hafður í taumi
auk þess sem hann var klæddur í
skothelt vesti.
Verði Breivik dæmdur sekur
um hryðjuverk bíða hans allt að
21 ár í fangelsi. Þó er hægt að
halda honum lengur verði hann
enn talinn ógn við almenning að
refsingunni lokinni. - mþl
Lýsti fjöldamorðunum:
Breivik sneri
aftur til Úteyjar
ANDERS BEHRING
BREIVIK
SPURNING DAGSINS
DIESEL gleraugu, sjóngler og s ónmælin hjá Prooptik j g
gleraugnaumgjörð, þunnt ESEDI L
t með rispuvörn, glampavörnsrðplha a
uvörn og sjónmæling. Hartmóog ð
g klútur. Mikið úrval í öllumo sturhul
m Prooptik.uslunver
rooptik.ispww.w
50 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
30.825 kr. GILDIR 24 TÍMA
68.500 kr.
Verð
55%
Afsláttur
37.675 kr.
Afsláttur í kr.
PI
PA
R\
TB
W
A
R\
PI
PA
R
TB
W
A
•
SÍ
A
SÍ
A