Fréttablaðið - 15.08.2011, Blaðsíða 42
15. ágúst 2011 MÁNUDAGUR
AÐALVINNINGUR MACBOOK
FARTÖLVA (Z0JQ)
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
Leik líkur 9. september. Þú færð 3 mínútur til að
svara annars byrjar þú upp á nýtt
H
VER FÆR VINNIN
G
9.
SENDU SMS
ESL MAC
Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ FÆRÐ SPURNINGU OG SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ
SENDA SMS SKEYTIÐ ESL A, B EÐA C Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! AUKAVINNINGAR ERU
TÖLVULEIKIR · DVD MYNDIR OG FLEIRA!
FRJÁLSAR ÍR-ingar urðu á laugar-
dag bikarmeistarar í frjálsum
íþróttum þriðja árið í röð en keppt
var á Kópavogsvelli. ÍR-ingar
höfðu betur í samanlagðri stiga-
keppni eftir baráttu við FH-inga.
ÍR hlaut 170 stig en FH 153 stig.
„Þetta var æði. Hópurinn
er rosalega góður þótt liðið sé
mjög ungt. Ég var aldursforseti
í kvennaflokknum, 22 ára,“ sagði
Sandra Pétursdóttir fyrirliði ÍR.
Hún sagði góða liðsheild lykilinn
að sigrinum sem var sá tuttugasti
í sögu félagsins.
„Það voru allir vel samstilltir
og ætluðu að vinna. Við töpuðum
í samanlögðu á Meistaramótinu
á Selfossi um daginn og það kom
ekki til greina að tapa aftur. Það
voru allir mjög hungraðir í þenn-
an sigur.“
Kvennalið ÍR varð í efsta sæti
en karlaliðið í öðru sæti á eftir
FH. „FH er með mjög sterkt kar-
lalið þannig að það hefur verið
erfitt fyrir strákana að sigra þá.
En það á eftir að koma einn dag-
inn,“ sagði Sandra sem hafði sigur
í sleggjukasti fyrir hönd ÍR-liðs-
ins.
Óðinn Björn Þorsteinsson, fyrir-
liði FH, sigraði í kúluvarpi og
sleggjukasti á mótinu.
„Þetta var svipað og búist var
við. Að við myndum vinna karla-
bikarinn og stelpurnar myndu
bæta aðeins við sig frá því í
fyrra,“ sagði Óðinn Björn. Hann
sagði bæði FH og ÍR skipuð ungu
fólki og að barátta yrði milli félag-
anna um bikarinn næstu ár.
„Við vorum búin að vinna bik-
arinn 15 ár í röð. ÍR er að vinna
í þriðja skiptið í röð. Það fer að
styttast í að við tökum þá aftur,“
sagði Óðinn Björn.
Þrjú met voru sett á mótinu og
voru það ÍR-ingar sem settu þau
öll. Hilmar Örn Jónsson setti
piltamet í sleggjukasti og kvenna-
sveitin stúlknamet í 1000 metra
boðhlaupi. Þá setti karlasveitin
einnig með í 1000 metra boðhlaupi
í flokki 22 ára og yngri.
kolbeinntd@365.is
ÍR vann bikarinn í 20. sinn
ÍR-ingar urðu bikarmeistarar í frjálsum íþróttum þriðja árið í röð. Kvennalið
félagsins hafði nokkra yfirburði en FH-ingar höfðu sigur í karlaflokki.
GOLF Karlasveit GR lagði sveit
Golfklúbbs Kópavogs og Garða-
bæjar 3-2 í úrslitum í Sveita-
keppninni á Leirdalsvelli í Garða-
bænum í gær. Hvort lið vann
tvær viðureignir í tvímenningi
þar sem leikin er holukeppni
maður gegn manni. Í fjórmenn-
ingi, þar sem tveir leika gegn
tveimur, hafði GR betur í bráða-
bana eftir að staðan var jöfn að
loknum 18 holum.
„Það er frábært afreksstarf í
gangi hjá GR. Ég er orðinn næst-
elstur í þessu lið þótt ég sé bara
26 ára. Við erum með marga mjög
góða unga stráka sem eru að spila
frábærlega,“ sagði Stefán Már
Stefánsson liðsmaður GR sem lék
í fjórmenningnum í gær ásamt
Arnóri Inga Finnbjörnssyni.
Stefán Már segir úr góðum hópi
kylfinga að velja hjá GR og því sé
hörkusamkeppni að tryggja sér
sæti í sveitinni.
Kvennasveit GR mætti Golf-
klúbbnum Keili í úrslitum á Hval-
eyrarvelli. Líkt og í karlaflokki
voru leikar jafnir að loknum
fjórum viðureignum í tvímenn-
ingi. Á 19. holu í fjórmenningnum
tryggðu stelpurnar í GR sér sigur.
„Þetta var mjög stressandi.
Ég var alveg að fara á taug-
um á tímabili,“ sagði Hildur
Kristín Þorvarðardóttir sem
tryggði GR-stelpunum sigur
í fjórmenningnum ásamt
Írisi Kötlu Guðmundsdóttur.
Þetta er annað árið í röð sem
GR leggur GK að velli í úrslitum
Sveitakeppninnar.
„Mér fannst skemmtilegra að
vinna þetta núna af því að það
voru ekki allar Keiliskonurnar
með í fyrra. Núna sýndum við
öllum að við gætum þetta,“ sagði
Hildur Kristín. - ktd
Tvöfaldur sigur hjá GR
Golfklúbbur Reykjavíkur vann sigur í karla- og kvennaflokki í Sveitakeppni GSÍ
sem fram fór um helgina Þetta er annað árið í röð sem GR vinnur tvöfalt.
HEIMAMENN LAGÐIR AÐ VELLI Karlasveit GR fagnaði vel sigrinum á heimamönnum í
GKG á Leirdalsvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VINDASAMT Á HVALEYRARVELLI Það blés vel á kvennalið GR sem sigruðu Keiliskonur
annað árið í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SKIPST Á KEFLUM Einar Daði Lárusson og Helgi Björnsson úr ÍR í baráttu við Trausta
Stefánsson og Guðmund Heiðar Guðmundsson úr FH. MYND/BJÖRN GUÐMUNDSSON
Lokastaðan
1. ÍR 170 stig
2. FH 153 stig
3. Fjörmann 123 stig
4. Norðurland 117,5 stig
5. HSK 114 stig
6. Breiðablik 93,5 stig