Íslendingur - 27.09.1946, Side 6
■'-*P
ÍSLENDINCtUR
$ "jWTWFIPW*
Islendingur er 6 síður í dag.
I. O. O. F. — 1289278%. —
Kirkjan. Messað í Glerárþorpi næstk.
sunnudag kl. 1 e. h. — Akureyri kl. 5 e. h.
Guifsþjónustur í Grundarþingapresta-
kalli: Grund, sunnudaginn 29. sept. kl. 1
•. h. -— Kaupangi, sunnudaginn 6. okt. kl.
2 e. h. — Munkaþverá, sunnudaginn 13.
okt. kl. 1 e. h. ■— Möðruvöllum, sunnudag-
inn 20. okt. kl. 1 e. h. — Hólum, sunnu-
daginn 27. okt. kl. 1 e. h. — Saurbæ, sama
dag, kl. 3 e. h.
Vegna þrengsla verður svar til Bern-
harðs Stefánssonar og mikið annað efni
að bíða n»sta blaðs.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af sóknarprestinum, sr. Frið-
rik J. Rafnar, vígslubiskupi: Ungfrú Elín
Davíðsson, Hafnarfirði og Guðmundur
Þórðarson, bryti, e.s. Lagarfossi. Ungfrú
Kristjana Olafsdóttir, Akureyri, og Víking
ur Guðmundsson, frá Akurseli í Axarfirði.
Sjötug ve.rður í dag frú Asta Þor-
valdsdóttir, fyrrum húsfreyja á Krossum,
nú til heimilis í Norðurgötu 16 hér í bæn-
urft.
Karlakór Akureyrar óskar eftir söng-
mönnum til viðbótar — fyrst og fremst
tenórröddum. -— Nýir liðsmenn snúi sér til
singstjórans, Askels Jónssonar, Gagn-
fræðaskólanum, sem gefur allar nánari.
upplýsingar. — Stjórnin.
Blindrajélagið í Reykjavík hefir fengið
leyft til að selja merki til ágóða fyrir hús-
sjóð sinn á sunnudaginn kemur. Munu
merkin verða borin hér um bæinn í trausti
þess að bæjarbúar taki jafnvel og 2 síðustu
ár á móti stúlkunum sem selja merkin.
Með því er áreiðanlega stutt að góðu mál-
efni.
Hjálprœðisherinn. Sunnudag kl. 11
hslgunarsamkoma. Kl. 8.30 iijálpræðissam
koma. Kl. 2 sunnudagaskóli.
Skjaldborgarbíó sýnir um jxwsar mund-
ir ítalska söngvamynd úr ævi tónsnillings-
ins Paolo Tosti. Myndin er vel leikin og
•Cngurinn ájættir. Leikararnir eru kvik-
Myndahússgestum hér ókunnugir. I hotld
er myndin góð. Danskur texti fylgir henni.
Berklavörn á Akureyri heldur fund í
Rotary-sal^ Hótel KEA mánudaginn 30.
september n. k., kl. 8.30 e. h. Fundarefni:
Berklavarnardagurinn, Fréttir frá 5. þingi
SÍBS.
Kvennadeild Slysavarnarjélage Islands,
Akureyri, heldur fund og kveðjusamsæti
að Hótel KEA í kvöld kl. 9, í tilefni
af brottför formanns félagsins, frk. Sess-
elju Eldjárn. Félagekonur! Mætið allar.
Aðalfundur Kennarufélags Eyjafjarðar
verður settur í barnaskólahúsinu hér laug-
ardaginn 28. þ. m. kl. 4 síðdegis.
Gagnfrœðaskéli Akureyrar verður sett-
ur þriðjudaginn 1. okt. næstk. kl. 4 síðd.
í vetur verða meira en 300 nemendur í
skólanum og er húarúmið því þegar full-
skipað. Horfur eru á mjög aukinni aðsðkn
að skólanum næsta ár og þvi »ýirilegt að
hásið er þegar orðið of lítið.
Ilvassajell, hið nýja skip SÍS, er vænt-
anlegt hingað til bæjarins í dag. Skipið er
keypt í Genúa á Ítalíu og lét þaðan úr
höfn þann 6. þ. m. Var skipið afhent með
hátíðlegri athöfn, að viðstöddum aðalræð-
ismanni íslands í Genúa, hr. Ifálfdáni
Bjarnasyni, borgarstjóra Genúarboígar og
fleirum.
Tójuveiðar. Hjörtur Eldjárn, búfjár-
ræktarfræðingur, handsamaði í fjallgöng-
um nú um helgina stéran og myndarlegan
ref. Náði hann rebba lifandi með aðstoð
fjarhunds síns og þótti hafa veitt vel.
Föstudagur 27. september 1946
FeOgarnir frá
Breiðabóli
2. bindi sagnabálksins uYn Breiðabðlsfeðga, „Bærinn og
byggðin“, er nú komið í bókaverzlanir. 1. bindið, Stórviði,
var gefið út fyrir nokkrum árum, og fæst enn í bókaverzl-
unum.
„Bærinn og byggðin“ segir frá átökumim
milli bræðranna, Páls, óðalserfingjans og
Hákonar unga, sem barg óðalinu Iianda ætt-
inni..—
204 bis. — Verð óbundin kr. 14,00
í bandi kr. 20,00
Hvítir vængir
eftir Evu Hjálmarsdóttur frá Stakkalilíð
18 sögur og ævintýri um 100 Ijóð og lausavísur, 232 bls.
Verð, óbundin kr. 18,00
1 bandi kr. 28,00
usvar
Kona óskast til að taka að sér húsvörzlu, hrein-
gerningar og veitingar í Oddfellow-húsinu,
Brekkugötu 14, frá 1. okt. n. k.
Ibúð húsvarðar 2 herbergi og eldhús. Nánari
uppl. í síma 99 kl, 7—8 á kvöldl-n.
Samoinostilboð Bauda-
ríkjanna.
Framliald af 1. síu.
ríkjanna um herslöðvar og því hin
mesta fjarstæða að halda því fram,
að þeir menn séu svikarar við fynti
afstöðu sína, þótt þeir hafi yfirlýet-
sig andvíga herstöðvum, en telji þetta
samningstilboð Bandaríkjanna að-
gengilegt í höfuðatriðum. Hafa
kommúnigtar einkum reynt að sví-
virða einn hinn mætasta stjórnmála-
mann í Iandinu, Gunnar Thorodd-
sen, prófessor, fyrir svik við fyrri
stefnu sína. Hefii' þó lítið orðið úr
köppunum fyrír röksemdum Gunn-
ars Thoroddsen og hefir Morgun-
blaðið bírt mjög eftirtektarvei'ða
ræðu eftir haiin um þetta mál, þar
sem fjarslæður kommúnista eru
hraktar lið fyrir lið.
Eigum við að semja við
Bandaríkin?
Ofstækisfullir kommúnistar halda
því fram, að við eigum ekki að gera
neinn samning við Bandaríkin, held
ur skipa þeim að fara héðan þegar í
stað og banna þeim öll afnot af ís-
lenzkum flugvöllum. Þetta eru monn-
irnir, sem halda því fram, að Banda-
ríkjamönnum sé ekki treystaijdi til
neins góðs og vilja rjúfa öll vinsam-
leg tengsl við þetta vestræna lýðræð-
isríki. Meginþorri íslenzku þjócfar-
innar er á öndverðum meiði við
þessa ofstækismenn.
íslenzka þjóðin hefir alla jafna
leitast við að tryggja réttindi sín
með vinsamlegum samningum Við
þær þjóðir, sem þeir þurfa mest til
Kristniboðsfélag kvenna, Akureyri, lief-
ir kaffisölu í Zíon í dag, föstudag 27. sept.
frá kl. 3 e. h. Eintiig verður þar útsala
ýmissa muna. — Alhugið, hvað er á boð-
stólinn.
1 kvöld mun frú GuSrún Brunborg
endurtaka fyrirlestur sinn um Noreg
á hernámsárunum og sýna kvikmyndir í
því satnbandi. Einnig mjög skemmlilega
kvikmynd frá skíðamóti við Holmenkollen
1946. — Frú Guðrún er alíslenzk, dóttir
Bóasar Bóassonar að StuSlum við Reyðar-
fjörð, en hefir nú dvalið 28 ár í Noregi og
á þar mann og þrjú börn uppkomin. Ilún
talar svo góða íslenzku að margir tala ekki
hreinna mál, sem dvalið liafa hér lioima
allan sinn aldur. — DugnaÖur og vilja-
þrek þessarar kenn er með eindæmum, og
munuð þið sannfærast um þaS, þcgar j*ð
sjálf hafið Iicynt sögu hennar. — Nú ferð-
ast hún hér um sitt elskaða fóslurland og
heldur fyrrrlestra. Tilgangur hennar er
ekki einungis, að fræða landa sína um á-
standið í heimalandi sínu á hernámsárun-
um, sem er þó mikils virði, þar sem við
skiljum það ekki til hlítar, nema við heyr-
um-það af vörum þeirra, sem sj’álfir hafa
reynt, heldnr og aðallega til þess a5 'mynds
sjóð við Óslóar-háskóla til rtyrktar cfna-
litlum stúdentum, norskum og íslen«kum,
sém við liann lesa. A sjóður þessi að bera
nafn elzta sonar hennar, Olafs Brunborg,
sem nazistar kvöldu til dauða í fangabúð-
um sínum. Frú Guðrún elskar bæði lönd-
in, ísland og Noreg, jafn heitt, og er því
cinn sterkur hlekkur f þeirri keðju sem
tengir þessar frændþjóðir órjúfandi bönd-
iim. — Br nú vonandi að Akureyringar
sýni skilning og bræðrahug og fylli Nýja-
Bíó á föstudagskvöldið kl. 9. Engan mun
iðra þess, sem kemur þangað og hlustar á
frú Cuðrúnu Brunborg.
3.
aS leita. Þannig hafa þeir náS því
takmarki að verða frjáls og full-
valda þjóð. Engilsaxnesku slórveld-
in hafa sýnt Islandi hina ntesLu vin-
semd og Bandaríkin urðu fyrst til
þess að viðurkenna íslenzka lýðveld-
ið. Þau kornu hingað með her sam-
kvæmt beiðni íslenzkra stjórnar-
valda. Þótt vér *ynj uðuia algerlega
beiðni þeirra um herstöðvar, hafa
þau ekki gert neina tilíaun til þess
að fá vilja sínum framgengt með
nauðungarráðstöfunum, sem vér'vit-
um ósköp vel, að þehn værí í lófa
lagið að beita. Þau hafa nú fjölmenn
an her í Þýzkalandi og mörgum
fleiri löndum í Evrópu og er sú her-
seta skyldukvöð. ísland er eina milli-
stöðin á leiðinni yfir Atlantshafið
frá Bretlandi. Þau hafa nú beðið ís-
land um þann vinargreiða að fá að
hafa afnot af Reykjancssflugvellin-
um meðan þau þurfi að sinna skyldu
störfum sínnm í Þýzkalandi og fá
að hafa þar nauðsynlegt starfslið.
Það er vitað, að íslendingar hafa
nú enga þjálfaða menn lil flugvall-
arstarfa þar syðra. Bandaríkjamenn
bjóðast til að þjálfa íslenzkt starfs-
lið og á það smám saman a-ð taka við
gæzlu vallarins.
Þessar óskir Bandaríkjamanna
virðast ekki óeðlilegar eins og sakir
standa. Vér getum hæglega orðið
við þeim, án þess að fórna nokkru
af hagsmunum voírar eigin þjóðar.
Helztu rök anBstæðinga samningsins
eru þau, að ekki sé hægt að treysla
Bandaríkjunum til að virða samning-
inn. Meðmælendur samningsgerðar-
innar eru annarrar skoðunar. Ef vér
ætlum oss að vera fullir af tortryggni
í garð annarra þjóða, er hætt við,
að margir erfiðleikar bíði vor í sam-
búðinni við þær. Það kátbroslegasta
er, að hinar nýju „sjálfstæðishetj-
ur“, sem telja það landráð að gera
nokkra vinsamlega samninga við
Bandarjkin, eru kommúnistar —
einu íslendingarnir, seni dýrka á-
kvaðið stórveldi — og surnir þeirra
manna, er mest bör-ðust gegn stofn-
un íslenzka lýðveldisins. Þessir menn
eiga ntí að Tera hinar einu frelsis-
hetjur, ea allar at&fc' ktadjsá’tímenn.
Engin vafaatriði mega vera
Þótt menn séu í höfuðatriðum
samþykkir því samningsuppkasti,
sem liggur fyrir Alþingi, þá getur
verið full ástæða til þess að gera á
því ýmsar lagfæringar. Það er auð-
vitað rétt, sem bent hefir verið á, að
í samningnum þarf ekki nákvæmlega
að tilgreina réttarstöðu íslendinga,
]tví að þeir eiga allan þann rétt, sem
ekki er beinlínia áskilinn öðrum.
Hinsvegar er nauðsynlegt að ákvæði
samningsins séu svo ólví^eð, að
ekki geti valdið ágreiningi. Má t. d.
henda á það, að í herverndarsamn-
ingnum við Bandaríkin hefir orðið
rerulegur ágreiningur um *kilning
á hugtakinu „ófriðarlok“-
Alyklanir Stúdentaráðs Háskólans
og Stúdentafélags Reykjavíkur bera
vott um, að þéssir aðilar hafa athug-
að málið með skynsemi. Þó eru
nokkrar aðfinnslur þessara aðila
byggðar á misskiÍningi, en öðrum
sleppt. Það verður».t. d. að tryggja
það, að hergagil„.4rgðir verði ekki
geymdar á flugvellinutn og herflokk-
um ekki leyft að hafa hér viðdvöl.
Islenzk tollayfirvöld verða að hafa
eflirlit með innfhitningi til ameríska
starfsliðsins og tryggja verður það,
að smygl geti ekki átt sér stað. Er
þess að vænta, að atriði þessi og ýms
fleiri verði gerð ótvíræð.
U ppreisnarverkf allið
Kommúnistar sýndu með Iiinu svo
kallaða allsherjarverkfalli sínu, að
þeir svífast þess ekki að nota verk-
lýðssamtökin — gagnstætt vilja allra
gætinna verkamanna — í þágu póli-
tísks ofstækis síns. Verkfallið var
með öllu ólöglegt og lil þess-eins ætl-
að að knýja þingmenn til þess að
láta ekki sannfæringu sína ráða í af-
greiðslu þessa máls, eins og þó er
boðið í stjórnarskránni. Er að sjálf-
sögðu hægt að gera Alþýðusam-
bandið ábyrgt fyrir öllu því tjóni,
sem af verkfalli þessu hefir Jalotizt.
Hafa kommunistar meira að segja
gengið svo langt í ofstæki sínu, að
staríslið Landsspítalans var lútið
gera verkiall. Mun hin kommúnist-
iska yfirhjúkrunarkona bera ábyrgð
í því verkfalli.
Mál eins og þetta, sem nú liggur
fvrir, er víðkvæmt og mjög auðvelt
að gera það að sesingamáli. Hér er
þó um að ræða svo mikilvægt utan-
ríkismál, að brýna nauðsyn ber til
að það sé rætt með skynsamlegri í-
bugun. Skrílslæti og ofstæki geta
aldrei orðið þjóðinni til annars en
skammar.
ENN FÆKKAB 1
SVEITUNUM.
■- j
1 árslok 1945 voru samtals
130.356 íbúar á öllu landinu, og
hefir fjölgað á árinu um sam-
tals 2,565 manns, eða 2% og ver
það mun meiri f jölgun en und-
anfarin ár.
1 kaupstöðunum hefir fólkinu
fjölgað um 2.821 manns, en í
sýslunum hefir fólkinu fækkað
um 256 manns. Næstum öll
fólksfjölgun kaupstaðanna er í
Reykjavík, eða 2.297 manns. Á
Akureyri hefir íbúunum f jölgað
um rúmlega 200.
Enn er ekki tekið fyrir hinn
alvarlega straum fólksins úr
sveitunum, og hefir íbúum
sveitanna fækkað um 1.671
manns, eða um 3.8% á árinu.
Eru þá talin með sveitum öll
þorp, sem hafa innan við 300
íbúa.
Kristniboðsfélag kvenna, Akureyru \
hefir kaffisölu í Zíon í dag, föstudag 27-
sqjttember, frá kl. 3 c. h. Einnig verður
þar úlsala ýntissa rnuna. — Athugið, hva*
er á bo'ðstólum.