Íslendingur - 04.10.1946, Síða 1
XXXII. árg.
42. tbl.
MEIRI HLUTI UTANRÍKIS-
MÁLANEFNDAR SKILAR
ÁLITI UM FLUGVALLAR-
SAMNINGINN
Framsóknarmenn skila
séráliti.
1 gær skilaði meiri hluti
utanríkismálanefndar og ann
ar minni hluti nefndarinnar
áliti um flugvallarsamning-
inn. 1 meiri hluta nefndarinn-
ar eru þeir Bjarni Benedikts-
son, Stefán Jóh. Stefánsson,
Gunnar Thoroddsen og Jó-
hann Þ. Jósefsson.
Álit meiri hlutans er mjög
ítarlegt, og er ekki kostur að
rekja efni þess hér. Leggur
meiri hlutinn til að samning-
urinn verði í höfuðatriðum
samþykktur óbreyttur, en
breytt verði sumstaðar orða-
lagi til þess að gera réttindi
Islendinga ótvíræð. Verði í
því skyni bætt inn í samning-
inn nýrri 5. grein svohljóð-
andi:
„Hvorki ákvæðin í næstu
grein á undan né neiii önnur
fyrirmæli þessa samnings,
raska fullveidisrétti né úr-
slitayfirráðum lýðveldisins
ísland varðandi umráð og
rekstur vallarins og mann-
virkjagerð eða athafnir þar.“
1 þeim minni hluta, sem
lagt hefir fram álit, öru
Framsóknarmennirnir Her-
mann Jónasson og Bjarni
Ásgeirsson. Virðast þeir vilja
samninga við Bandaríkin, en
vilja láta amerísku starfs-
mennina á flugvellinum vera
talda í þjónustu íslendinga,
en Bandaríkjamenn eigi þó
sjálfir að greiða þeim laun
og bera allan kostnað af vell-
inum. Eru sum atriði álits-
ins dálítið einkennilfeg.
Kommúnistar hafa ekki
enn skilað áliti. Ekki hefir
verið endanlegi? ákveðið, hve
hær seinni umræða fer fram
úm samninginn á Alþingi. —
Hugsanlegt er þó, að hún
verði á morgun.
LANDSSÍMINN 40 Ara
Landssimi Islands varð 40
ára þann 29. sept. s. 1. Var þess
minnst víðsvegar um land.
Hér á Akureyri hélt Lands-
siminn starfsfólki sínu hóf mik-
H* að Hótel KEA s. 1. laugardags
kVöld.
Jvassafell” kemur til Akureyrar.
Stærsta flutningaskip Iandsins
gert út frá Akureyri.
„Hvasssafell“, hið nýja flutningaskip Samhands ísl. samvinnufé-
laga, kom til Akureyrar s. 1. föstudagsmorgun. Var margt manna
á liafnarbakkanum, er skipið lagði að hryggju fánum skrýtt, enda
sérstök ástæða fyrir Akureyringa að fagna þessu glæsilega skipi,
því að stjórn SlS liefir ákveðið, að Akureyri verði heimaliöfn þess
Hvassateíl
Hinn „nýi borgari“ Akureyrarkaupstaðar sézt hér við hajnargarðinn
á Akureyri. Er myndin tekin rétt ejtir að skipið lagðist að bryggju, og
er jmð allt fánum skreylt.
Gagnfræðaskólinn settur
1. október.
Gagnfræðaskóli Akureyrar var
settur kl. 4 s. 1. þriðjudag. Voru
kennarar skólans, flestir nemendur
og allmargt gesta við skólasetning-
una.
Athöfnin liófst með því, að sungiö
var „ísland ögrum skorið“.
Skólastjóri Þorsteinn M. Jónsson
tók því næst til máls. Skýrði hann
nokkuð frá þeim breytingum, sem
verða á skólanum vegna hins nýja
fræðslukerfis. Um tveir þriðju hlut-
ar 7. bekkjar barnaskólans koma nú
þegar inn í unglingadeild 1. bekkj-
ar gagnfræðaskólans. Verða í vetur
samtals rúmlega 300 nemendur í skól
anum og skólahúsið þegar orðið of
lítið, svo að ein deild skólans verð-
ur að vera á hálfgerðum vergangi.
Ber brýna nauðsyn til að hefjast
sem fyrst handa um stækkun skóla-
hússins, því að árið 1950 má gera
ráð fyrir að um 500 nemendur verði
í skólanum. Hin nýju lög um gagn-
fræðanám munu leiða af sér mikinn
sparnað fyrir Akureyri, því að fasta
kennarar gagnfræðaskóla verða sam
kvæmt þeim launaðir af ríkinu.
Nokkrar breytingar verða á kenn-
araliði skólans og ýmsir kennarar,
sem áður voru stundakennarar munu
sennilega verða skipaðir fastakenn-
arar, en endanlegt samþykki mennta
málaráðherra liggur þó ekki fyrir.
Að lokinni skýrslu sinni ávarpaði
skólastjóri nemendur nokkrum orð-
um. Benti hann þeim á að nota vel
tíma sinn og temja sér góða siði,
stundvísi og reglusemi. Var ræða
hans lærdómsríkar leiðbeiningar fyr
ir hina ungu nemendur á þessum
uplausnartímum, þegar svo miklum
tíma dýrmætra æskuára er oft sóað
í fánýti.
UNDANHALDSMENN
— FRELSISHETJUR
Það er mikið talað um sjálf-
stæðishetjur og landráðamenn á
þessum tímum.
Árið 1943 sendi hópur svokall-
aðra „menntamanna“ áskorun til
Alþingis um það að slíta ekki
sambandinu við Dani og stofna
íslenzkt lýðveldi. Frá þeim tíma
eru kunn nöfn Hannibals Valdi-
marssonar, Gylfa Þ. Gíslasonar,
Þorvaldar Þórarinsaonar o. fl.
Árið 1946 á að gera samning
við Bandaríkin um það, að þau
flytji her sinn úr landi og viður-
kenni úrslitayfirráð Islendinga yf-
ir öllu landi sínu. Þá rísa „sjálf-
stæðishetj urnar“ Gylfi Þ. Gísla-
son, Hannibal Valdemarsson, Þor-
valdur Þórarinsson o. fk.upp og
skipa sér í hóp kommúnistiskra
ofstækismanna til þess að mót-
mæla þessum sanmingi. Og „Þjóð-
viljinn“ syngur þeim lof og dýrð.
Hvernig skyldi stefnan verða
árið 1949?
Merkilegur tón-
listarviðburður.
Hinir heimskunriu tónsnilling
ar Adolf Rusch og Rudolf Ser-
kin héldu tónleika í Nýja Bíó
s. 1. mánudagskvöld á vegum
Tónlistarfélags Akureyrar. Að-
sóknin sýndi það, að Akureyr-
ingar kunna að meta góða tón-
list, því liúsið var þétt setið.
X upphafi tónleikanna ávarp-
aði Björgvin Guðmundsson, tón-
skáld, tónsnillingana og báuð þá
velkomna til Akureyrar. Flutti
hann ávarp sitt bæði á íslenzku
og ensku.
Busch og Serkin léku saman
sónötu í d-moll, op. 108 fyrir
fiðlu og píanó eftir Brahms. Þá
lék Busch einleik á fiðlu Partítu
í d-moll eftir Bach. Því næst lék
Serkin einleik á píanó Zwei lieder
ohne Worte og rondo capricloso
eftir Mendelsohn. Síðast léku
þeir saman Kreutzersónötu
Beethovens fyrir fiðlu og píanö.
Leikur þessara heimsfrægu
tónsnillinga var dásamlegur og
furðulegt, að þeir skyldu leika
allar sónöturnar utanað. Var
líka hrifning áheyrenda mikil
og snillingarnir kallaðir fram
hvað eftir annað. Einnig bárust
þeim fagrir blómvendir.
Að tónleikunum loknum hélt
Tónlistarfélagið meisturunum
veizlu að Hótel KEA.
Áheyrendur kunnu vel að
haga sér, og hefir það mikið að
segja. Óviðeigandi var þó að
k' vpa milli þátta í Kreutzer-
sónötunni, enda virtist tónsnill-
ingunum líka það miður.
Tónlistarfélagið á skilið þakk
ir fyrir að hafa gefið bæjarbú-
um kost á að hlýða á þessa
miklu snillinga.
Stjórn SÍS bauð blaðamönn-
um og ýmsum fleiri gestum að
skoða hið nýja skip. Kom aðal-
framkvæmdastjóri SÍS, Vil-
hjálmur Þór, loftleiðis að sunn-
an, ásamt blaðamönnum frá
dagblöðunum syðra og útvarp-
inu, skipaskoðunarstjóra og for-
stjóra Skipaútgerðar ríkisins.
,,Hvassafell“ er smíðað í Ans-
aldo-skipasmíðastöðinni í Genúa
á Italíu, sem er ein stærsta
*
skipasmíðastöð í Evrópu og hef-
ir m. a. smíðað stórskipið
,,Rex“. 2000 hestafla dieselvél
er í skipinu og einnig allar nauð
synlegar hjálparvélar. Þá er
olíukyntur gufuketill fyrir vind-
ur og stýrisvél og til upphitun-
ar. Skipið hefir 8 bómur, sem
lyfta fimm smálestum og 2, sem
lyfta tuttugu og fimm smálest-
um.
Skipið er 1665 smálestir
brúttó, en 1208 smálestir nettó.
Burðarmagn skipsins er rúmar
2300 smálestir, og er það því
stærsta skip, sem Islendingar nú
eiga.
íbúðir skipverja eru aftast í
skipinu og virðast þær vera
þægilega útbúnar. Tveir vel
búnir farþegaklefar eru í skip-
inu.
Farmur skipsins nú var aðal-
lega salt, en einnig nokkuð af
saumavélum og áfengi.
Hóf að Hótel KEÁ.
Að lokinni skoðun skipsins,
bauð stjórn SlS gestum til mið-
degisverðar að Hótel KEA.
Stýrði Einar Árnason á Eyrar-
landi hófinu. Gat hann þess, að
nú væri að rætast draumur
samvinnumanna um að eignast
flutningaskip, en þó væri það
von stjórnar SlS, að þetta væri
þó aðeins vísir að enn fiþ’komn-
Framhald á 8. síðu