Íslendingur - 13.11.1946, Blaðsíða 1
XXXII. árg.
Miðvikudaginn 13. nóvember 1946
47 tbl.
Vill FransoknarflokkurinR hrun?
Er SÍS vísvitandi að spilla
fyrir sölu vaxtabréfa Stofn-
lánadeildarinnar ?
FYRIR nokkru síðam sendi Samband ísl. samvinnufélaga flug-
miða út um allt land, þar sem fólk var hvatt til þess að kaupa
vaxtabréf, sem SÍS væri að gefa út. Eftir að Stofnlánadeild sjáv-
arútvegsins bauð út sín vaxtabréf, virðist Sambandið hafa hlaupið
> kapp við Stofnlánadeildina um fjársöfnun. Hefir erindreki SÍS
gengið berserksgang hér við Eyjaf jörð og víðar og hvatt menn til
þess að kaupa vaxtabréf SÍS. Mun honum hafa orðið vel til fanga
°g safnað hér nyrðra mörgum tugum, ef eklri liundruðum þnsunda
króna.
Ekki er ljóst, hvort hér er um
klaufaskap að ræða, eða vísvit-
andi tilraun til þess að spilla fyr
ir sölu vaxtabréfa Stofnlána-
deildarinnar. Vonandi er þó
fyrri getgátan réttari, því að
ðaumast getur það dulizt hinum
ágætu leiðtogum SlS, hversu
mjög efnahagslegt öryggi þjóð-
arinnar er undir því komin, að
bægilegt fé fáist til þess að hin-
ar stórkostlegu framkvæmdir
einstaklinga og bæjarfélaga í
sjávarútvegnum fari ekki út um
Þúfur.
Framsóknarflokkurinn hefir
tekið undir áskorun annarra
flokka til þjóðarinnar að bregð-
ast nú vel við og lána Stofnlána
deildinni fé sitt. Þótt blað Fram
sóknarmanna hér á Akureyri
kafi lítið tekið undir þessi hvatn
ingárorð, verður ekki að ó-
neyndu ætlað, að hér hafi ekki
kugur fylgt máli. Hins vegar fer
ekki hjá því, að hin harðvítuga
fjársöfnun SlS veki grunsemdir
hm það, að Framsóknarmenn
kafi ekki að öllu leyti gengið
koilir til verks.
^Vamleiðslan fyrst.
Sambandið skýrir frá því i
Þoðsbréfi sínu, að það þurfi mik
ið fé til ýmissa framkvæmda.
Þessar framkvæmdir geta án
efa verið góðar, en það ætti öll-
úm að vera ljóst, að framleiðsl-
an er sú undirstaða, sem allar
aðrar framkvæmdir þjóðarinn-
an hljóta að hvíla á. Meginhluti
^ls útflutningsverðmætis þjóð-
arinnar eru sjávarafurðir, og
efling sjávarútvegsins hlýtur
Því að verða að sitja fyrir öllum
°ðrum framkvæmdum. Með
Samstilltu átaki er þjóðinni leik-
að tryggja nægilegt fé til ný-
sköpunar sjávarútvegsins. En
þar má enginn skerast úr leik,
því að þetta er mál málanna nú.
Vilja þeir hrun?
Mikið er talað um hrun í fjár-
málalífi þjóðarinnar. Auðvitað
getur svo farið, að þetta marg-
umtalaða hrun verði, en það
verður sjálfskaparvíti eins og
fjármálaráðherra komst að
orði. Það er ekki óeðlilegt að sú
hugsun skjóti upp kollinum hjá
mörgum, að þeir menn, sem sí-
fellt hafa prédikað það, að hin-
ar stórfelldu framkvæmdir og
umbætur á atvinnutækjum þjóð
arinnar myndu leiða hana í glöt
un, myndu ekki gráta mörgum
tárum, þótt spár þeirra rættust.
Framsóknarmenn hafa reiðst
mjög ef á þetta hefir verið
minnst. Ekki skal hér neitt full-
yrt um það, hvort þessi ákæra
er rétt, en Framsóknarmenn
eru naumast svo skini skroppn-
ir, að þeir geri sér ekki ljóst að
pólitísk framtíð þeirra og örlög
nýsköpunarinnar eru nátengd.
Hver sá maður eða flokkur,
sem reynir að torvelda f jársöfn-
unina til Stofnlánadeildar sjáv-
arútVegsins er stuðningsmaður
hrunstefnunnar. Aukin tækni
og betri hagnýting sjávarafurða
þýðir meiri erlendan gjaldeyri
ogum leið betri skilyrði til þess
að skapa öllum landsins börn-
um góð lífskjör. Enginn góður
Islendingur getur barizt gegn
þeirri stefnu.
Ritstjóm og afgreiðsla „ís-
Iendings“ er flutt í Gránufé-
lagsgötu 4. — Prentsmiðju
Björns Jónssonar.
I. 0. O. F. — 12811158% — 9 — 0.
□ Rún: 594611137 = 5.
Þórsfélagar! Innanfélagsskemmtun að
Hótel Norðurland í kvöld. Sjá götuaug-
lýsingar.
Stúkan Isafold-Fjallkonan hefir hræð’ra-
kvöld næstkomandi mánudag 18. þ. m. kl.
3.30 síðd. í Skjaldborg. — Öllum systrum
stúkunnar er sérstaklega boðið. — Ymis
skemmtiatriði fara franr undir borðurn,
sn á eftir verður fjörugur dans. Þess er
t
vænzt, að félagar fjölmenni. Engin inntaka
getur farið fram í þetta sinn.
Ferðafélag Akureyrar lieldur fræðslu-
og skemmtikvöld í Samkomuhúsi bæjar-
ins 14. þ. m. (fimmtud.) kl. 9 e. b. —
Ólafur Jónsson, framkvstj.: Ferð um
Kverkfjöll og Vatnajökul. E. Sigurgeirs-
son: Kvikmyndir frá útilegumannakofum.
Ingvar Björnsson frú Brún: Erindi um
Svíþjóð. E. Sigurgcirsson: Kvikmyndir frá
Svíþjóð. Dans. — Árbók Ferðafélagsins
fyrir árið 1945 er nýkomin út, og er um
eldfjallið Ileklu. Bókin er vænlanleg norð-
ur næstu daga.
Hjúskapur. Þorsteinn Pálmason, iðn-
nemi frá Núpufelli, og Guðfinna Óskars-
dóttir (Sæmundssonar, kaupmanns).
Goljklúbbur Akureyrar heldur ársbátíð
sína að Iíótel KEA n. k. laugardag kl.
7,30 e. h.
Kirkjukvöld verður baldið í Akureyrar-
kirkju eins og að undanförnu sunnud. 17.
nóv. kl. 8,30 e. b. Ennfremúr verða merki
seld þenna dag. Nánar á götuauglýsingum.
Hornsteinn liins nýja beimavistarbúss
Menntaskólans verður lagður kl. II f. b.
í morgun.
Sjálfstæðiskvennafélagið
V Ö R N
heldur aðalfund föstudaginn 18.
þ. m. í Samkomuhúsi bæjarins
(uppi) kl. 8.30 síðdegis.
Fundarefni:
Ræða: Magnús Jónsson, ritstj.
Framtíðarstarfið rætt.
Stjórnarkosning o. fl.
Stjórnin.
Þeir, sem kynnu að hafa séð
rjálað við kranann á norður-
horni Torfunefsbryggjunnar,
nálægt miðdegi s. 1. sunnudag,
eru vinsamlega beðnir um upp-
lýsingar. Lögreglan.
Myndin liér að ojan sýnir Húsavíkurhöjn. Er hajnargerðin þar
orðin liið mesta rnannvirki. — 1 grein á 3ju síðu er nokkuð greint
jrá ýmsum framkvœmdum á Húsavík.
Frá Húsavík
Vetrarstarfsemi Leikfélags
Akureyrar að hefjast
Leiksýningar byrja í næstu viku
ISLENDINGUR hefir átt tal
við formann Leikfélags Akur-
eyrar, Guðmund Gunnarsson,
og 'leitað frétta af fyrirhugaðri
starfsemi félagsins í vetur.
Guðmundur kvað Leikfélagið
hafa ýmislegt á prjónunum.
Hefði félagið undanfarnar vikur
æft franskan sjónleik eftir René
Fauchois, sem nefnist „Varið
ykkur á málningunni". Er þetta
gamanleikur, en um leið ádeila.
Var leikrit þetta sýnt í Reykja-
vík fyrir nokkrum árum.
Sýningar á þessum leik hefj-
ast í næstu viku. Er leikritið í
þremur þáttum. Aðalhlutverkin
leika þau Jón Norðfjörð, Sigur-
jóna Jakobsdóttir og Freyja
Antonsdóttir. Aðrir leikendur
eru Hólmgeir Pálmason, Júlíus
Oddsson, Sigríður Schöith,
Anna Tryggvadóttir, Skjöldur
Hlíðar og Guðmundur Gunnars-
son, sem einnig er leikstjóri.
Ráðgert er, að næsta leikrit,
sem félagið tekur til sýningar,
verði „Skálholt“ eftir Guðmund
Kamban. Munu sýningar á því
hefjast í janúarlok eða febrúar.
Aðalhlutverkið í þeim leik, jóm-
frú Ragnheiði, leikur væntan-
lega frú Regína Þórðardóttir,
sem gestur Leikfélagsins.
Ekki er enn fullráðið, hvort
þriðja leikritið verður sýnt, en
það mun þá verða nýtt leikrit.
Þá mun Leikfélagið efna til
hátíðasýninga í tilefni af 30 ára
afmæli félagsins í apríl í vetur.
Verða þá í eitt eða tvö kvöld
sýndir þættir úr leikritum, sem
félagið hefir áður sýnt.
Þá gat fermaður Leikfélags-
ins þess að lokum, að miklar
endurbætur hefðu nú verið gerð
ar á leiksviðinu í Samkomuhús-
inu. Héfði það verið hækkað, og
siytu leiksýningarnar sín því
betur. *
ENN FRESTUR TIL
21. NÓVEMBER.
Forseti Islands kvaddi í fyrra-
dag formenn allra þingflokka á
sinn fund til þess að fá upplýsing-
ar um það, hvernig gengi með
stjórnarmyndun.
Formenn flokkanna munu hafa
tjáð forseta, að enn hefði ekkert
samkomulag náðst, og mun for-
seti nú hafa veitt þeim framhalds-
frest til 21. nóv.
I lólf manna nefndinni liafa
illir flokkar lagt fram drög að
tnálefnasamningi, en ekkert hefir
í'erið skýrt frá þeim tillögum op-
ínherlega. Álit hagfræðinganefnd
irinnar mun ekki enn komið
fram.