Íslendingur


Íslendingur - 19.12.1946, Page 3

Íslendingur - 19.12.1946, Page 3
Fimmtudaginn 19. desember 1946. ÍSLENDINGUR 3 fí Samband ungra Sjálístæðis- ___________rn a n n a_________ p I Ungir Sjá/fstæðismenn í Ólafsfirði hafa mikinn áhuga á verk/eg'um iramkvæmdum í bænum. Á fundi ungra Sjálfstæðismanna í Eyjafj.sýslu mættu sem fulltrú- ar frá félagi ungra Sjálfstæðismanna í Ólafsfirði: Baldvin Tryggva- son, Birgir Jóhannsson, Guðmundur Williamsson, Jón Ólafsson og Þorsteinn Jónsson. Blaðið notaði tækifærið til þess að spyrjast fyr- ir um lielztu framkvæmdir í Ólafsfirði, en eins og mörgum er kunn- ugt, liafa Ólafsfirðingar liaft mörg járn í eldinum upp á síðkastið. Öllum ber saman um, að hafnar- gerðin sé þýðingarmesta málið, þar sem langflestir byggja afkomu sína á útgerðinni. Síðan 1942, hefir ver- ið unnið öll surnur við hafnargerð- ina. Vonast er til, að framkvæmdum verði svo langt komið á næsta hausti, að bátar geti notað höfnina að vetr- inum. Til þessa hafa allir bátar orð- ið að leila burtu vetrarmánuðina, og þá ýmist farið suður eða til Siglufjarðar. I Ólafsfirði er þegar hafinn undir- búningur að byggingu stórrar ný- tízku niðursuðuverksmiðju. Fraiu- kvæmdum hefir mioað vel áfram, þrátt fyrir ýmsa örðugleika. Fram- kvæmdastjóri er ráðinn Magnús Gamalíelsson, útgerðarmaður. Hluta- félag sér um reksturinn og á bærinn þar hlut. Á þessú ári hafa komið til Olafs- fjarðar 3 nýir bátar, tveir smíðaðir í Svíþjóð en einn á Akureyri. Fyrir Voru 4 bátar. Það má því segja, að útgerðin í Ólafsfirði sé nú í örum vexti. Hitaveita hefir verið í Ólafsfirði i um 2 ár og reynzt vel. Valn er þó ekki að öllu leyti nægilegt og var því hafin borun eftir meira vatni í vor, og eru rniklar líkur til þess, að heita vatnið aukist til muna við þær franrkvæmdir. I fyrra sumar var vígð sundlaug í Ólafsfirði, en íþrótta félagið stóð að byggingu hennar. í- þróttafélagið hefir nú afhcnt bæjar- félaginu sundlaugina til eignar með þvi skilyrði, að það annist og kosti að Öllu leyti rekstur hennar. I vor var hafin bygging nýs barnaskóla. Húsið er nú komið undir þak og verður byggingin hin fullkomnasta, taeð áföstum leikfimisal. I sumar hafa einnig verið byggðir 5 verka- taannabústaðir, tveggja hæða hús, setluð tveimur fjölskyldum. Eilt af áhugamálum Ólafsfirðinga, og þá ekki sízt yngra fólksins, er b.ygging samkomuhúss, sem uppfylli nútímakröfur. Til þess ^ð hrinda málinu í framkvæmd hefir verið myndað hlutafélag og standa að því flest félög bæjarins. Lokið var við að steypa grunninn að annarri álm- unni, en ætlunin er, að húsið verði 3 hæðir, gistiliús á efstu hæð, en skrifstofur á miðhæðinni og sam- komu- og kvikmyndasalur á neðstu hæð. Samgöngur hafa jafnan verið frem ur eríiðar við Ólafsfjörð. Miklar lík- ur eru til þess að fjörðurinn kom- ist í akvegasamband við Fljótin á næsla sumri. í sumar var sú leið far- in á jeppum, og telja kunnugir menn að þegar vegagerð sé lokið verði sú leið fær allt sumarið. Stofonn sðmhands ungra Sjálfstæiismanna í EyjafjarBarsýslu. IJm síðustu helgi var stofnað sam- band ungra sjálfstæðismanna í Eyja- fjarðarsýslu. Á fundinum, sem hald- inn var á Akureyri, mættu fulltrúar úr flestum hreppum sýslunnar, en gert er ráð fyrir því, að þátttakan muni aukast til muna á næsta ári. Stjórn fyrir sambandjð var kosin: Kristján Pálsson, Kollugerði, for- maður, Gunnar Jónsson, Merkigili, gjaldkeri og Baldvin Tryggvason, Ólafsfirði, ritari. Starfsemi ungra sjálfstæðismanna og þátttaka þeirra í stjórnmálabar- áttunni hefir á uridanförnum árum stöðugt farið vaxandi. Á þessu ári hafa verið stofnuð félög á Eskifirði, Norðfirði, Seyðisfirði og á Héraði fyrir austan. I sýslunum sunnan lands, Rangárvalla- og Árnessýslu cru samlök ungra sjálfstæðismanna i örum vexli. Sumarið 1945 var stofnað samband ungra sjálfstæðis- manna í Snæfellssýslu og lét það mikið til sín taka í kosningabarátt- unni sl. sumar. Sömu sögu er að segja af starfseminni í stærri bæjun- um. Á síðastliðnum vetri gengu um 1000 nýir félagar í Heimdall og bæði Stefnir í Hafnarfirði og Vörður á Akureyri fjölguðu félögum. W. Somerset Maugham: Svona var það og er það enn. Útgájan BS Akureyri. Somerset Maugham er heimskunn- ur höfundur og hefir ritað fjölda bóka. Hafa allmargar skáldsögur lians verið þýddar á íslenzku og náð hér miklum vinsældum. Svona var það og er það enn er síðasta skáldsaga þessa höfundar. Hefir hann valið sér hér stórbrotið viðfangsefni, enda liefir sagan vak- ið mikla athygli bæði í Bandaríkj- unum og víðar. Efnið er sögulegt, en er fært í skáldsögubúning. Sögusviðið er hin umbrotasama Ítalía miðaldanna og aðalpersónurnar eru tveir heimskunn ir stjórnmálamenn, sem báðir hafa þótt æði harðlyndir, Machiavelli, sljórnspekingurinn mikli, og Caesar Borgia, sem mannkynssagan telur hafa verið bæði grimman og sið- lausan. í sögu þessari birtist í rauninni nýr skilningur á Machiavelli, því að Maugham vill ekki dæma hann eins liart og flestir sagnfræðingar hafa gert. Það eru víða mikil tilþrif i þess- ari sögu Maughams, enda eru sögu- heljurnar ekki neinir méðahnenn. Mun mega fullyrða, að hún sé ein af beztu bókum þessa snjalla höf- undar. Brynjólfur Sveinsson, menntaskóla' kennari, hefir þýtt bókina, og er þýð ingin góð. Sama er að segja um ann- an frágang bókarinnai'. Auglýsið í íslendingi er ástarsoga um fagrar konur, fræga menn og forna daga. Gleðileg j ól! Gott nýtt ár! Þöhkum viðskiptin d liðna drinu. Heildverzl. Árni Jónsson h.f. Reykjavík. Heiðruðu viðskiptavinir! •Ójkum yður gleðilegra jóla og farsœls komandi drs. Virðingarfyllst, I. Brynjólfsson & Kvaran; Margar stærðir af BARNASKÓM fóst í Baldarsbagi hf. Árbækur Espólíns II. og III. deild, eru komnar til okkar. Áskrifendur beðnir að vitja þeirra hið allra fyrsta IV. og V. deild eru einnig komnar út, og er ætlast til, að útgáfunni verði lokið á næsta ári. Bókavcrzlunin EDDA Herrahattar nýjasta tízka. VALDABÚÐ JÓLÁBÓK ungu stúlknanna er „Ungfrú Ærslabelgnr” Beztu óskir um GLEÐILEG JÓL! Og FARSÆLT KOMANDI ÁR! Þökhum viðskiptin á liðnum árttm. Fataverzlun Tómasar Björnssonar h.f. GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT KOMANDI ÁR! Þökkum viðskiptin á gamla árinu. Bílaverkst. Þórshamar h.f. GLEÐILEG JÓL! og FARSÆLT KOMANDI ÁR! Þökkum viðskiptin á liðnutn árum. Byggingavöruverzlun Tómasar Björnssonar h.f. Beztu óskir um GLEÐILEG JÓL! GOTT OG FARSÆLT NÝÁR! Þökkum viðskiptin á gamla áfinu. Bókaverzl. Gunnl. Tr. Jónssonar

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.