Íslendingur


Íslendingur - 11.08.1948, Side 3

Íslendingur - 11.08.1948, Side 3
Miðvikudaginn 11. ágúst 1948 ÍSLENDINGUR t Það var margmennt að Svalbarði síðastliðinn mánudag. Frændur og vinir sLreymdu að höfuðbólinu úr öllum áttum, til að gleðjast með Stefáni bónda, sem þann dag liafði þrjá aldarfjórðunga að baki. Á heimili afmælisbarnsins ríkti glaumur og gleði, og hvenær er ekki glaðværð, þar sein Stefán fer? Það er ekki að undra, þótt Slefáni bónda verði gott til vina. Aldrei vantar hann umræðuefni, því að hann er fjölfróður, og þegar menn hlýða á hin hnittnu tilsvör þessa góðlynda og velviljaða bændaöldungs, finna allir, að hér fer sannmenntaður drengskaparmaður. Lífsstarf Stefáns er helgað bú- skapnum, og honum hefir auðnazt, að sjá frumstæðan kotbúskap breyt- ast í vélrænan nýtízku landbúnað, torfkofana í vistleg steinhús, olíu- og grútarlampa í glóandi rafkúlur og nú síðast er stefnl að því, að gera búskapinn óháðan duttlungum nátt- úrunnar, með því að nota vélaaflið lil að þurrka heyin. Hin nýju viðhorf hafa ekki vald- , ið Svalbarðsbóndanum neinum erf- iðleikum, hans meðfædda greind, kennir honum að velja og hafna rétt, tiieinka sér það sein nothæft er, af því sem tæknin hefir að bjóða, án þéss að reisa sér hurðarás um öxl. Hið glögga búmannsauga er fljótt að sjá, hver nýbreytni er hagkvæm, hefir Stefán því jafnan verið manna fyrstur til að hagnýta þær nýjungar, sem fram liafa komið í landbúnaði, enda ólatur að leggja í smáferð, til að kynna sér reynslu annarra um hvaðeina, sem að bú- skap lítur. Á sumrin unir Svalbarðsbóndinn við búskapinn og fer þá sjaldan að heiman, en þegar hausta tekur og komið er fram á vetur, kemur í hann ferðahugur, og er hann þá alloft langdvöluin að heiman. Þessi útþrá er sennilega ættarfylgja, því að Vilhjálmur Stefánsson iandkönn- uður er bróðursonur Stefáns, og munu þeir vera líkir um fleira en útlitið eitt. Á ferðum sínum hittir Stefán að rnáli mikinn hóp vina og kunningja og hefir ánægju að ræða við þá sín hugðarefni, kynnast reynslu þeirra og áliti á ýmsum sviðum. Hafa þessi samskipti Stef- áns við mikinn fjölda merkismanna í öllum stéttum, víkkað sjóndeildar- hring hans og aflað honum marg- víslegrar þekkingar á hinum fjar- skyldustu efnum. Það lætur að líkmn, að spor Stef- áns liggi víða í þessu byggðarlagi. Skal ekki leitast við að rekja þau, enda ógerlegt, því að hann mun hafa lagt lið nálega öllum framfara- rnálum byggðarlagsins síðustu 50 árin, Vil ég þó geta starfa hans fyrir 75 ára Stefán Stefánsson Svalbarði héraðið í landbúnaðar- og sam- vinnumálum. Stefán var frá öndverðu einn af forustumönnum Ræktunarfélags Norðurlands og hefir átt sæti í stjórn félagsins' frá 1924 og til þessa dags. Alkunnugt er hvílíka þýðingu Rækt- unarféiagið hefir haft fyrir allar framfarir á sviði iandbúnaðar, síð- asta mannsaldurinn og má raunar segja að stofnun þess marki tíma- mót í búnaðarmáluin hér um slóðir. Ilefir það verið félaginu ekki lítil stoð, að eiga Stefán meðal félaga sinna, óþreytandi og síhvetjandi tii nýrra átaka. Á sviði samvinnunnar er Stefán einnig í hópi brautryðjendanna. Hann var einn þeirra merkisbænda, scm fastast studdu Hallgrím heitinn Krisrinsson, meðan hann var að endurskipuleggja og byggja upp myndarlegustu samvinnuverzlun þessa lands, enda var þeirra vinátta mikil og góð og hélzt, þar til Hall- grímur féll frá. Ifinn sívakandi áhugi Stefáns fyr- ir málefnum Kaupfélagsins, var met- inn að verðleikum af þeim, sem Guðbrandur ísberg, sýslumaður Ilúnvetninga, setti mótið og stjórn- aði því. Hann flutti ítarlega ræðu um slefnumál sljórnmálaflokkanna og starfsaðferðir þeirra. Sérstaklega ræddi hann stefnu Sjálfstæðisflokks- ins, sem hann sagði að fyrst og fremst mólaðist af því, að vinna jafnt að liagsmunamálum allra stétta þjóðfélagsins. Næstur talaði Gísli Jónsson alþm. Ræddi hann sérslaklega viðhorfið lil Framsóknarflokksins og minntist á þau mál, sem Sjálfstæðismann og Framsóknarmenn hefir greint á um. Þá söng Jóhann Konráðsson nokk- ur lög með undirleik Áskels Jóns- sonar. Var söng hans mjög vel tek- ið og varð hann síðar að syngja brautina ruddu, og meðan félagið átti f vök að verjast. Var hann fyrst kosinn endurskoðandi félagsins ár- ið 1906 og jafnan síðan fram til ársins 1936. Á 30 ára starfsafmæli Stefáns' gerðu nokkrir „Framsókn- armenn“, sem þá nutu góðs af fórn- fúsu starfi brautrvðjendanna, sam- blástur um að fella hann frá kosn- ingu. Svalbarðsbóndinn tók þessum mótgerðum andstæðinganna með sinni venjulegu rógsemi, en hefir síðan lagt meiri alúð við að hlú að öðrum samvinnugróðri. Honum hef- ir sennilega eins og ýmsum öðrum fundizt orrnar vera farnir að naga rætur hins græna trés. Víst er um það, að Kaupfélagið á Svalbarðs- ströndinni hefir færzt í aukana síð- an Stefán flutti úteftir. Eg vil enda þessar línur með því að þakka Stefáni bónda góða vin- áttu um fjölmörg ár og óska. að hon- um endist aldur og heilsa til að koma öllum sínum áhugamálum í framkvæind, veit ég þá, að hann verður ekki skammlífur. mörg aukalög í viðbót. Jónas G. Rafnar, formaður Fjórð- ungssambands ungra Sj álfstæðis- manna á Norðurlandi, flutti ávarp frá ungum Sjálfstæðismönnum. Jón Norðfjörð leikari las upp og söng gamanvísur við ágætar undir- tektir. Héraðsmótið var fjölsótt, enda á- kjósanlegt veður, og var samkomu- húsið í Ásbyrgi þéttskipað áheyr- endum meðan á ræðuhöldunum stóð. Á héraðsmóti þessu kom það greinilega í ljós, að Sjálfstæðismenn í Vestur-Húnavalnssýslu ætla sér að taka upp skelegga baráttu fyrir næstu kosningar, enda er óvíst, að fylgi Framsóknarflokksins standi þarna svo föstum fótum, sem und- Akireyrl fær listaverk al gjðf. Hjónin Barbara og Magnús Á. Árnason, sem höfðu hér mál- verkasýningu fyrir skömmu, gáfu Akureyrarbæ að skilnaði stærsta málverkið á sýningunni. Málverk þetta er af Stokkalækj- argili á RangárvöRum. Er þetta höfðingleg gjöf og er ætiun gef- endanna, að þetta verði fyrsti vísir til listasafns á Akureyri. Myndi það mjög ánéegjulegt að geta komið upp slíku safni hér. Mikið urn árekstra í nágrenni Reykjavíkur um síöustu helgi. Alvarlegur árekstur varð um helg- ina, er þrjár bifreiðar rákust saman á Þingvallavegi. Meiddust þrjár stúlkur veruiega og mun ein þeirra hafa farið úr axlarlið, en hinar skár- ust mjög af rúðubrotum. Dr. Ola P. Hjaltested bar þarna að í bifreið íjinni og gerði hann að meiðslunum lil bráðabirgða, en síðan var hinu slasaða fólki ekið til Reykjavíkur í Landsspítalann. Gífurleg umferð var á Þingvalla- vegi um helgina og varð nokkur um- ferðartöf við slysið, en lögreglu- menn, er staddir voru í Valhöll, komu brátt á vettvang og greiddu úr fiækjunni. Þá var einnig árekstur á Mosfells- sveitarvegi í Helgafellshverfi svo- nefndu, stutt frá Álafossi. Þar rák- ust saman jeppabíll og áætlunarbíll. Roskin hjón voru í jeppabílnum, er fór út af veginum, og meiddust þau talsvert og voru flutt í sjúkrahús í Reykjavík. Þá urðu einnig ýmsir minni hátt- ar árekstrar. Ohætt er að segja, að ekki verður nógsamlega brýnt fyrir vegfarend- um að sýna fyllstu varúð á vegum úti. Það var tilviljun ein, að ekki urðu banaslys um helgina, svo mikil var umferðin og margir ökuinenn sýndu fádæma kæruleysi og glanna- skap. BÆÍARBRUNI í HÚNAVATNSSÝSLU Bæjarbruni varð í Húnavatns- sýslu síðari hluta vikunnar sem leið. Kom upp eldur í bænum Þverár- dal árla dags á fimmtudag og varð ekki ráðið við hann, svo að bærinn brann lil grunna. Hefir tjón bónd- ans orðið mikið, því að verðmæti var lítið vátryggt, eins og víða er um sveitir. anfarið hefir virzt. Um kvöldið var dansað, og lék hlj ómsveit fyrir dansinum. Um næstu helgi halda Sjálfstæðis- menn i Austur-IIúnavatnssýslu liér- aðsmót sitt á Blönduósi. Meðal ræðumanna þar verða Ólafur Thors fyrrv. forsætisráðherra og þingmað- ur kjördæmisins, Jón Pálmason. Sv. G. HéraOsmðt Sjálistæúis- manna 1 Vestur - Húna- vatnssjslu. Síðastliði?in sunnudag héldu Sjálfstœðismenn í Vestur-Húnavatnssýslu héraðsmút að Ásbyrgi í Mið- firði. Um 40Ö manna sóttu mótið og er nú mikill áhugi Sjálfstœðismanna þar vestra á að hefja mark- vissa sókn til þess að vinna þetta kjördcemi flokknum til handá. Jóhannes Jónsson bóndi á Þorleifsstöðum í Skagafirði 60 ára 2 júní 1948. Þú verkbóndinn gódi þig virði. ég í Ijóði, er vaxtar þitt pund; þú moldina dáðir að gróðrinum gáðir með geislandi lund. Og uppskeru þáðir, eins og til sáðir á arðbœrri stund; markinu náðir og manndóm þinn skráðir á móa og sund. Eg sá þig á liesti úr hlaði með gesli sem hýrgaður er. Djarflega fœtur folinn ágætiir, um foldina ber. Þótt væri ’ann lítt sœtur þá varð' liann þér mætur sem víðkunnugt er. Að taumhaldi lælur, og tekur sér bætur í tamning hjá þér. Minningar streyma um hugarins lieima frá horfinni tíð; er keyrðum um ísa, og kveðin ei visa af körlum úr ..Hlíð“. Tónöldur rísa, er tjáningu lýsa hjá trúföstum lýð. Þœr gleðina hýsa til frjálslyndis fýsa um farsviðiu víð. Þú hjálpsami drengur, hvert happ var þér fengur í hamingjuleit. Þú bœgðír oss gröndum, í viðhorfum vöndum, þá vá að oss hneit. Með líknsömum höndum þá leystir úr böndum mörg líf hér í sveit. A minninga löndum, á meðan vér stöndum, það maður hver veit. Við sextigu ára œvibraut klára óskin er mín. Að Ijósgeislinn bezti í lífsfarar nesti sé leiðsagan þin. Þú höfðinginn mesti, er hlynnir að gesti unz hrollurinn dvín. Aldrei þig bresti ánœgja af hesti, og angandi vín. MAGNÚS Á VÖGLUM.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.