Íslendingur


Íslendingur - 31.08.1949, Síða 8

Íslendingur - 31.08.1949, Síða 8
GJALDDAGI blaðsins var 1. júní. Miðvikudagur 31. ágúst 1949 ÍBtÐ ÓSKAST sem fyrst. Fyrirfram- greiðsla, ef óskað er. Snorri Sigfússon Fjólugötu 10. — Sími 311 „Kristindómnrinn í tramkvæmd“ Kirkjan: Messað á Akureyri n.k. sunnu- dag kl. 2. — F. R. 70 ára varð 29. þ. m. Eggert Melstað slökkviliðsstjóri. 65 ára verður í dag Snorri Sigfússon, námsstjóri. 40 ára varð 29. þ. m. Hjálmar Helgason bílstjóri. SlökkviliSiS var kallað að húsinu Strand götu 51 s. 1. laugardagskvöld. Halði kvikn að þar í viðtæki. Brann tækið, en aðrar skenmidir munu litlar hafa orðið. Strandakirkja. Áheit frá N. N. kr. 50,00. Móttekið á afgr. íslendings. Sent áleiðis. Frá kvenjélaginu Hlíj. Bæjarbúar, mun- ið hlutaveltu lilífar næstkomandi sunnu- dag. Þar getið þið eignast, ef heppnin er tneð, margan ágætan lilut, fyrir aðeins 2 krónur og um leið styrkt dagheimili barna; sem að öllu forfallalausu tekur til starfa næstkomandi suinar. Leiðrétting. I greinina — Að kveðja — í 30. tbl. íslendings, hafa slæðst tvær vill- ur, sem þarf að leiðrétta: Litlidalur er í Austur-Húnavatnssýslu, en ekki í vestur- sýslunni.* Fremst í 6. línu að neðan í 4. dálki er orðið „e/að“, — á að vera: efnt. Breytist efni viðkomandi máfsgr. svo við þetta, að allt önnur meining kemur fram. S. G. S. Sjónarhœð. Samkoma á sunnudaginn kl. 5 e. h. Allir velkomnir. Hjáípmðisherinn. — Almenn samkoma sunnudaginn 4. september kl. 8,30. Frú kapt. Ingibjörg Jónsdóttir stjórnar útisam- komu ef veður leyfir kl. 4. — Merkjasölu- dagur Hjálpræðishersins er á föstudag og laugardag. Vinsamlegast kaupið merki dagsins. Sjáljboðavinna er nú að hefja6t við íþróttasvæðið. Stjórn í. B. A. óskar eftir, að þeir, sem hafa gefið loforð fyrir vinnu- framlögum og aðrir, sem vildu leggja fram sjálfboðavinnu, setji sig í samband við formann I. B. A. — sími 464, — eða Stein- grím Hansson, Brekkugötu 12, — sími 216 — til samkomulags um hvenær vinnan verði innt af hendi. Næstu daga er mikil þörf fyrir vinnu við undirbúning hlauþa- brautar. Kvöldvinna verður eftir samkomu lagi við sjálfboðaliða. Happdrœtti templara. Fyrri dráttur í Happdrætti templara fór fram hjá Borg- arfógeta í Reykjavík 9. ágúst s. 1. og hlutu eftirtalin númer vinning: 69201 — 55640 — 14554 — 4477 — 60766 — 20307 — 27558 — 77572 — 58593 — 54727 — 37799 — 29294 — 36727 — 21833 — 51297. * svo í handriti. (Ritstj.). Birglr Halldúrsson. S.l. mánudagskvöld hélt Birg- ir HaUdórsson söngvari söng- skemmtun í Nýja Bíó með að- stoð Ragnars Björnssonar. Á söngskránni voru 17 lög, 10 er- lend og 7 islenzk. Rödd Birgis er ekki stórbrot- in( en hann kann að syngja og meira en það. Hann á þann reista að ná með sinni mjúku og elskulegu rödd, hug allra er á hann hlusta. Hver gleymir Sólskríkjunni eftir Laxdal, Móðir við barn, eftir Björgvin Guðmundsson. Ave María( eftir Schubert, svo að nokkur lög séu r.efnd. En hyar voru hinir söngoisku Akureyringar þessa kveld- stund? En hvað um það, það er víst að enginn, sem hlustaði á : Birgi Halldórsson á mánudags- kvöldið( sá eftir því. Var honum forkunnarvel tek- ið af þakklátum áheyrendum. Undirleikur Ragnars Björns- sonar var athygliverður. Er þetta nýr undirleikari, sem má vænta mikils af. Hafi þeir báð- ir þökk fyrir komuna. A. b. GÓÐ FRAMMISTAÐA ÍSLENZKRA SUNDMANNA Um miðjan ágústmánuð var háð Sundmeistaramót Norður- landa í Helsingfors i Finnlandi. Tóku þátt í því 6 keppendur frá Islandi, þ. á. m. nafnarnir Sigurðui' Þingeyingur og Sigurð ur KR-ingur og Ari Guðmunds- son. Sigurður Jónsson Þingey- ingur varð Norðurlandameistari í 200 m. bringusundi á 2,49,1 mín. 1 4 X 100 m. boðsundi varð íslenzka sveitin hin 3. í röðinni. Á öðru sundmóti í Finnlandi varð Atli Steinarsson fyrstur í 200 m. bringusundi á 2,52,9 mín en annar Sigurður Þingeyingur á 2,53,0 mín. Þá kepptu Isiend- ingarnir á móti í Aabo og urðu þar sigursælir. Varð Ari fyrstur í 100 m. frjálsri aðferð, Hörður Jóhannsson annar í 100 m. bak- sundi( Ólafur Diðriksson annar í 400 m. frjálsri aðferð á sama tíma og sigurvegarinn, Sigurður Þingeyingur fyrstur í 200 m. bringusundi á 2,47,0 mín. en Atli annar. 3 x 100 m. boðsund unnu Islendingarnir á 3,37,2 mín.( og sigruðu úrvalslið frá Helsingfors. Loks tóku þeir þátt í sundmóti í Svíþjóð, og urðu þar fremstir í öllum grein- um. Þar settu þeir nýtt ísl. met í 3 X100 m. boðsundi á 3,36,6 min.. (Grein þessi birtist nýlega í hafn- firzka Sjálfstæðisblaðinu „Hamri“, og leyfir íslendingur sér að taka hana upp). Kommúnistar um allan heim hafa, þegar hentugra þykir, breitt yfir nafn og númer og skotið sér á bak við ýms menningar- og tilfinninga- mál til að dylja sitt rétta eðli og sinn rétta tilgang. Hér á landi gangu þeir ekki undir sinu rétta nafni, þótt hins vegar koini það daglega í ljós, hvert hugur þeirra hneigist. Á þann hótt reyna þeir að blekkja fólkið til fylgis við flokk sinn og nota svo tiltrú þess 1,1 að koma því í framkvæmd, sem það sjálft sízt vildi. Nú fyrir skönnnu átti frú Sigríður Sæland, ljósinóðir hér i bæ, sextugs- afmæli. í tilefni af því birti Þjóð- viljinn viðtal við hana, sem út af fyrir sig er ekki í frásögur færandi. En tilefni þess, að á þetta er minnst ■ hér, eru eftirfarandi orð, sem frúin ! lætur hafa eftir sér: „Þegar ég kyiuitisl sósíalism- anurn, skildi ég, að hann var lcristindómurinn í jramkvœmd.“ Sósíalisininn er „kristindómurinn í framkvæmd“, segir frúin. Þjóðvilj- inn er málsvari sósíalismans, er að reyna að koma honum á hér á landi eða með orðum frúarinnar að fram- kvæma kristindóminn á meðal ís- lenzku þjóðarinnar. Þelta er lítið dæmi þess, hve lágt er lagzt til að blekkja auðtrúa fólk. Það er ekki úr vegi, að fólk hugleiði lítillega það kristniboð, sem Saineiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn rek- ur hér á landi svo og félagar þeirra, kommúnistar, erlendis. Föðurland allra kommúnista, Rússland, er að mestu leyti lokað erlendu fréttafólki, það má ekki segja dýrðarsögurnar þaðan um „kristindóminn i framkvæmd“. Rúss neskar eiginkonur brezkra manna fengu ekki að fara úr landi til að búa með mönnum sínum. Hefði þó mátt ætla, að þær hefðu frekar flutt með sér bætandi áhrif fyrir hin syndmn spilltu lönd vestan járntjalds ins. Nei,.þær máttu ekki segja frá kristindóminum í föðurlandi sínu. — Hefði þó mátt ætla, að fram- i , kvæmendur kristindómsins vildu gjarnan ná sem flestum eyrum til að efla hann sem mest. En það er fleira einkennilegt en það, að fólk fái ekki að fara frá þessu dásamlega landi sósíalismans, heldur eru mörg dæmi þess að það fólk, sem kemst burtu, vill ekki fara þangað heim aftur, heldur lifa og deyja fjarri ættlandi sínu. Eitt gleggsta dæmið um það er, þegar frú Oskana Stepanovna Kosen- kina varpaði sér út um glugga á þriðju hæð í rússneska sendiráðs- bústaðnuin í New York og lagði þannig líf sitt í hættu til að losna \ið að koma heim til Rússlands aft- ur. Hún hefir ef til vill þekkt, hvern- ig kristindómurinii er í framkvæmd þar. Hér eru aðeins tvö lítil dæmi af fjölda mörgum, sem sýna ljóslega, að það er eitthvað annað en kærleik- ur til allra manna og þjóða, sem er ríkjandi í föðurlandi sósíalismans, sem mest er gumað af i blöðum sósíalista hér. Þegar vikið er að forsvarsmönn- um sósíalismans hér á landi, sem eru þá samkvæmt því, sem kemur fram i áður nefndu viðtali, að koma „kristindóminum í framkvæmd“ meðal íslenzku þjóðarinnar, þá verð ur ekki hægt að segja, að kærleikur- inn og trúarleg umbun sé alltaf full- komin í ræðuin þeirra og ritum. Að vísu er sagt, að kommúnistar hugsi öðruvísi en annað fólk og má því vel vera,‘ að orð eins og hér fara á eftir og kommúnistar hafa notað í Þjóðviljanum um andstæðinga sína hljómi eins og nokkurskonar engla- söngur í eyrum þeirra. Þessi orð eru m. a.: Ragmenni, auðnuleysingjar, blóðþyrstir, grimmir, trylltir, fól, fantar, fúlmenni, glæpamenn, þræla- pískarar, fífl, illþýði, ræningjar, morðþyrstir, svikarar o. fl. Oll þessi orð og miklu fleiri af svipuðu tagi má finna í Þjóðviljanum, málgagni sósíalismans hér á landi. En þessir frainkvæmendur kristindómsins hafa ekki látið sitja við orðin tóm. At- burðirnir 30. marz s. 1. sýndu ljósar en nokkur orð fá lýst, hvert innræti kommúnista er. Þeim er alveg sama, hvort þeir beita ofbeldi, ósannind- uin, blekkingum eða öðru slíku, að- eins ef þeir ná tilgangi sínum. M. ö. o. lögmálið, sem þeir lifa eftir er það, að tilgangurinn helgi meðalið. Þess vegna hika þeir ekki við að fela sig bak við ýms nauðsynja- og tilfinningamál, til að villa á sér heim ildir. Þeir fara jafnvel laumulega, þegar þeir fara að hitta húsbaSnd- urna, því við og við þarf að afneita þeim, sé það hentugra í svipinn o. s. frv. Hér að framan hefir verið drepið á örfáar staðreyndir. Að lesendum finnist, að sósíalisminn og fram- kvæmd hans sé á þann veg, að hægt sé að tala um hann sem „kristindóm- inn í framkvæmd“, er fráleitt, enda hefir reynslan verið sú, að þar er um fullkomnar andstæður að ræða. YMSAR FREGNIR PRENTARAR hafa ákveðið að segja upp kaup- og kjara- samningum frá morgundeginum að telja, en núgi.dandi samning- ar ganga úr gildi 1. október n.k. Sjötugur varð 26. ágúst Stein grímur Arason kennari og upp - eldisfræðingur í Reykjavík. Er hann landskunnur uppeldismála frömuður og barnavinur. Var aðalhvatamaður að stofnun Barnavinafél. Sumargjöf í Rvík. Hefir ritað margt barna- og unglingabóka( og nýlega komu út eftir hann bækurnar „Mann- bætur“, „Landnám í nýjum heimi“ og „Ljóðmæli". Stein- grímur hefir dvalið langdvölum í Ameríku við nám og rann- sóknir í uppeldisvísindum. Hann er eyfirzkrar ættar( sonur Ara Jónssonar leikritahöfundar í Víðigerði. Miklir skógareldar geisuðu nýlega í Suður-Frakklandi, er eyddi heilum þorpum og blóm- legum ræktarlöndum. Yfir 80 manns fórust í eldinum. Slökkvi lið og her unnu að því að ráða niðurlögum eldsins, en það tók marga daga. Ung stflika g*etur fengið atvinnu i Hattabúð Ákureyrar nú þegar. Gagnfræðapróf eða hliðstæð menntun æskileg. Sigríður Krístjánsdóttir. SlLDARAFLI Akureyrarskipa um síðustu helgi var sem hér segir: Bjarki Mál og tn. 2010 Akraborg 1275 Auður 3560 Erna 1268 Gautur 589 Ingvar Guðjónss. 6129 Kristján 1176 Narfi 2157 Njörður 2774 Snæfell 2880 Straumey 1959 Súlan 3500 Sædís 2132 Sæfinnur 1984

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.