Íslendingur - 07.06.1950, Page 1
XXXVI. árg.
Miðvikudaginn 7. júní 1950
25. tbl.
Sjötugur:
Kristján Árnason
kaupmaður
Kristján kaupmaöur Árnason varð
sjötugur 4. þ. m. og kona hans Hólm-
fríður Gunnarsdóttir hálfsjötug 5. þ.
m. Þau voru suður í Reykj av.k á af-
mælinu hjá syni sínum. Þessi valin-
kunnu sómahjón hafa nú dvalizt á
Akureyri samfleytt frá 1909, og má
óhætt fullyrða, að þau hafa áunnið
sér mikla hylli og vináttu samborg-
ara sinna. Kristján og Hólmfríður
eru ákaflega hlédræg, en hjúskapar-
og heimilislíf þeirra hefir verið ást-
ríkt og fagurt.
Kristján er fæddur á Lóni í Keldu-
hverfi, en Jaangað liafði faðir hans
flutt búferlum vorið 1875. Árni
Kristjánsson var maður vel að sér
og fékkst við opinber störf langa
ævi, var hrepps'jóri, sýslunefndar-
maður, amtsráðsmaður og í verzlun-
ar-umsýsli fyrir sveitunga sína. Hann
hafði fengið staðgóða fræðslu, lært
eitthvað undir skóla hjá Sauðaness
presti, en einhverra hluta vegna varð
ekki af skóla-lærdómi. Ekki stóð þó
á gáfum né lærdómshug Árna. —
Af þessu má sjá, að hann var vel að
sér, eftir því sem tíðkaðist um bænd-
ur. Hann var sýsluskrifari hjá Lár-
usi Sveinbjörnssyni á Húsavík og
byrjaði snemma að fást við verzlun,
fyrst með „spekulant“. — Einna
fyrstur bænda norður Jjar byrjaði
Árni að fá kennara handa börnum
sínuni og annarra. Hjá honum var
fyrst Tómas Davíðsson um hríð og
síðan kom Guðmundur Hjaltason,
inn merki kennari, fyrirlesari og fé-
lagsmála-forkólfur. Var hann 2—3
mánuði á vetri, og þótti ágætur kenn-
ari. Hann kenndi sumar greinir í
fyrirlestrum. Nemendurnir hlökkuðu
til, þegar hann kom, og kviðu fyrir,
þegar hann fór. — Árni bóndi sá
þannig vel fyrir menntun barna
sinna. Sjálfur kenndi hann til byrj-
unar reikning, skrift og ofurlítið í
dönsku.
Kona Árna í Lóni og móðir af-
mælisbarnsins var Anna Hjörleifs-
dóttir prests á Skinnas'.að Guttorms-
sonar prófasts á Hofi í Vopnafirði,
þess sem stofnaði sjóðinn, Þorsteins-
sonar. Þær Skinnastaða-systur voru
sjö, og sungu allar eins og englar og
móðir þeirra Jjó allra bezt, Guðlaug
Björnsdóttir prests í Kirkjubæ i
Tungu Vigfússonar prests í Garði í
Kelduhverfi Björnssonar. Frú Guð-
laug var eftir seinni konu sr. Björns
Önnu Stefánsdóltur prests Scheving
að Presthólum. — Kristján hafði
mikið ástríki af móður sinni.
• Faðir Árna í Lóni var Kristján
hóndi í Ærlækjarseli Árnason. Kona
hans og móðir Árna var Sigurveig
Guðmundsdóttir bónda í Ærlækjar-
seli Árnasonar. Þótti hún sérlega
mikilhæf.
Foreldrar Kristjáns í Ærlækjarseli
voru þau Árni Þórðarson, stúdent
og umboðsmaður í nyrðra hluta
Munkaþverárklausturs, síðast í Árna-
nesi í Kelduhverfi, og Jóhanna
Gunnarsdóitir frá Ærlæk. Árni Jjótti
dugnaðarmaður og var vel að sér.
Hann drukknaði í Djúpá fyrir 99
árum.
Foreldrar Árna voru þau Þórður
Pálsson á Kjarna (inn mikli ættfað-
ir) og Björg Halldórsdóttir frá Æsu-
stöðum í Eyjafirði Björnssonar, en
hún var systir sr. Björns á Eyja-
dalsá, síðar í Garði, föður sr. Hall-
dórs í Sauðanesi, en hann var afi
Þórhalls biskups Bjarnarsonar.
Gaman væri að rekja lengra, en
þetta verður að nægja í bili.
Kristj án kaupmaður Árnason
. dvaldist heima fram undir tvítugt
og vann á búi foreldra sinna. Þá dró
músikin hann til Akureyrar. Var
hann þar vetrarlangt að læra að
leika á orgel hjá Magnúsi organista
Einarssyni. Var Kristján snemma
mjög lmeigður fyrir söng og alls-
konar hljómlist (úr móðurættinni
eins og fyrr segir). Frá Akureyri
réðst hann að Grund í Eyjafirði til
Magnúsar kaupmanns og stórbónda
Sigurðssonar,og var verzlunarmaður
þar samfleytt til 1909. Eitthvað stund
aði Kristján nám á Grund, því að
Magnús hélt þar unglingaskóla um
wm
Sjálfvirka símastöðin opnu-ð
s.l. laugardag.
hríð, og var Ingimar Eydal kennar-
inn. Þótti það góður skóli.
Svo var það, að Magnús á Grund
stofnaði verzlun á Akureyri
(,,Grundarverzlun“), og fluttist
Kristján þá þangað og tók við for-
stöðu hennar. Átti hann verzlunina
móti Magnúsi. Það er verzlunin
„Eyjafjörður“. Síðar keypti Kristján
hlut Magnúsar í verzluninni og rak
hana síðan einn. Hefir hún löngum
síðan verið stærsta kaupmanns-verzl-
un í bænurn og er Jjað enn. Er hún
stofnuð vorið 1909, og hefir hún
verið rekin alltaf á sama stað og
Kristján verið heimilisfastur í þessu
húsi allan Jjennan tíma.
Sá félagsskapur, sem Kristjáni er
einna kærastur, mun vera Góðtempl-
arareglan. Hefir hann verið í henni
um eða yfir 40 ár. Bindindismaður
hefir hann verið alla ævi. Hefir á-
hugi hans á bindindismálum alltaf
verið samur og jafn. — Kristján hef-
ir látið sér hægt um svokölluð opin-
ber mál og allt það skvaldur, sem
fylgir pólitíkinni. Eg lield, að liann
liafi aldrei haft mikinn áhuga á
stjórnmálum. En bæjarmálum hefir
hann sinnt talsvert, að óskum sam-
borgara sinna. Bæjarfulltrúi var
hann nokkur ár, og reyndist hann á
því sviði bæði duglegur, tillögugóð-
ur og skyldurækinn, en dró sig út úr
því sem fyrst hann gat (því miður
bæjarins vegna, því að slíka ráðs-
menn sem liann er gott að hafa).
Átt hefir hann sæti í sjó- og verzlun-
ardómi lengi og enn í dag. Endur-
skoðandi bæjarreikninga var hann
einnig nokkurt skeið. Loks er þess
að geta, að hann er í verzlunarráði
íslands. í Reglu Góðtemplara hefir
hann gegnt mörgum trúnaðarstörf-
um.
Ég kynntist Kristjáni Árnasyni
fljótt eftir það, að ég kom hingað til
bæjarins, og hefir verið með okkur
vinátta um þrjá tugi vetra. Þakka ég
Kristjáni vináttu hans, mér til handa.
á þessum merku tímamótum í ævi
hans. Við kynntumst fyrst í „bank-
anum“ hjá Bjarna Jónssyni og
Solveigu, þeim öndvegishjónum. —
Kristján er glaðsinna, fjörmaður
mikill og hlær innilega. Það er hæði
andleg og líkamleg hressing að vera
með slíkum mönnum. •— Glaðværð-
ina tel ég fyrst af einkennum Krist-
jáns, svo iðjusemina. Honum fellur
aldrei verk úr hendi. Síðast en ekki
sízt er að telja ást hans á Musica.
Hann er söngvinn mjög, ann hæði
söng og alls konar hljómlist. Mér er
sagt, að Kristján sæki alla concerta
hér og hljómleika, og heima blótar
hann sönggyðjuna einnig. •— Spila-
maður er hann góður, en í seinni tíð
Sjálfvirka símastöðin hér í hæ var
opnuð s.l. laugardag 3. júní, eins og
áður hafði verið gert ráð fyrir.
Á sunnudaginn var hlaðamönnum
hoðið að skoða hana. Haarde verk-
fræðingur, sem séð hefir um upp-
setningu hennar, fylgdi blaðamönn-
unum um húsakynni stöðvarinnar
og útskýrði fyrir Jjeiin gerð og gang
kerfisins, sem er svo margþætt og
margvíslegt, að engin tök eru á að
lýsa því fyrir lesendum. En hver,
sem á það lítur, hlýtur að fyllast
undrun yfir Jiví hugviti, sem að haki
því liggur.
Sá kostur íylgir hinni nýju stöð,
að frá henni er hægt að fylgjast með
öllu bæjarkerfinu, og verði þar bil-
ana vart, er Jjegar gert við þær, oft
fæst liann miklu minna við Jjá íþrótt
en áður fyrr.
Þess er áður getið, að Kristján
reki stóra verzlun. Sveitamenn hafa
alllaf verzlað mikið við hann, og ég
hygg óhætt að fullyrða, að bæði
hæjar- og sveitamenn, sem við hann
hafa verzlað, séu sammála um það,
að hj álparsamari kaupmanni hafi
þeir ekki kynnst og alúðlegri. Krist-
ján hafði lengi mikla lánsverzlun og
hefir enn, og oft voru Jiað fátækustu
mennirnir, sem leituðu til hans, þeg-
ar önnur sund voru lokuð. Þar fengu
Jjeir alllaf úrlausn. — Ég held mig
mega fullyrða, að Kristján liafi
aldrei stefnt manni fyrir skuld eða
annað, þó að hann hafi rekið stóra
| verzlun í höfuðstað Norðurlands í
40 ór. Er það næsta athyglis-
vert og lýsir manninum vel. Alveg
er söm greiðvikni Kristjáns um ó-
byrgðir eins og um vörulán. Ég
held, að liann geti helzt ekki neitað
að liðsinna mönnum, svo framúr-
skarandi öðlingur er hann. En þó
að Kristjón hafi tapað nokkru fé
fyrir hjálpsemi sína, rnunu menn al-
veg furðanlega hafa staðið í skilum
við liann, þó að liann hafi ekki
„rukkara“ á hælum viðskiptamanna
sinna með nýjurn og niðum.
Þau Hólmfríður og Kristján eiga
tvo sonu, Árna píanóleikara í Reykja-
kvík, kennara við Tónlistarskólann,
og Gunnar Höskuld, er tekið hefir
nú við stjórn verzlunarinnar „Eyja-
fjörður“ fyrir nokkrum árum með
föður sínum.
Ég árna þessum heiðurshjónum
árs og friðar á þessum tímamótum
í ævi þeirra og hið þeim hlessunar,
bæði þessa heinis og annars.
B. T.
áður en símanotandinn sjálfur verð-
ur bilunar var. Gengur stöðin fyrir
rafhlöðum, og eru Jrær margar og
stórar. Er gert ráð fyrir, að raforka
frá geymunum endist til 6 eða 7
daga, þannig að þótt rafstraumur frá
Laxárvirkjuninni rofni það lengi,
myndi síminn vera í eðlilegu lagi.
í tilefni af opnun sjálfvirku stöðv-
arinnar hér kom Guðmundur Hlíð-
dal póst- og símamálastjóri norður
og með honum C. Berglund, yfir-
verkfræðingur og E. Sundkvist verk-
fræðingur, báðir frá firmanu L. M.
Ericsson í Stokkhólmi, er sjálfvirka
kerfið gerði. Auk þess voru nokkrir
gestir aðrir í förinni, svo sem yfir-
menn Landsímans og Bæjarsímans í
Reykjavík, verkfræðingur Landsím-
ans og skrifstofustjóri, Sigurður E.
lllíðar yfirdýralæknir, sem greiddi
mjög götu þessa máls, meðan liann
sat á Alþingi og Magnús Jónsson,
formaður Fjárhagsráðs, en hann
fékk samþykkt í ráðinu fj árfestingar-
leyfi fyrir sjálfvirku stöðinni. Kon-
ur margra fyrrnefndra gesta voru
með í förinni hingað.
Á sunnudagskvöldið hauð Póst-
og símamálastj órnin til kvöldverðar
á Hótel KEA, og sátu .boðið fyrr-
nefndir gestir hennar og nokkrir
bæjarbúar, en hóf þetta var haldið
í tilefni af opnun stöðvarinnar.
Gunnar Schrarn símastjóri stjórn-
aði hófinu. Flutti Guðm. Hlíðdal,
póst- og símamálastj óri, ræðu, og
rakti þar sögu stöðvarmálsins frá
upphafi og Jjakkaði þeim mönnum,
er mest og hezt hafa unnið að fram-
kvæmd þess og uppsetningu stöðvar-
innar, en það verk hefir Haarde
símaverkfræðingur unnið með ágæt-
um. Aðrir ræðumenn voru: Sigurð-
ur E. Hlíðar, fyrrv. alþm., Jónas G.
Rafnar alþm., Steinn Steinsen bæj-
arstjóri, C. Berglund yfirverkfræð-
ingur, Jakob Frímannsson framkv.-
stjóri, Haarde símaverkfræðingur,
Svavar Guðmundsson bankastjóri,
Steindór Steindórsson hæj arfulltrúi,
Bernharð Stefánsson alþm., Indriði
Helgason rafvirkjam., Magnús Jóns-
son form. Fjárhagsráðs og Gunnar
Schram símastjóri.
í öllum ræðunum kom fram
ánægja yfir hinum gagnmerka
áfanga í símamálum hæjarins, er nú
er náð með opnun sjálfvirku stöðv-
arinnar. Var Gunnari Schram síma-
stjóia sérstaklega þakkað hans ötula
starf við framkvæmd málsins, svo og
öðrum þeim, er að því hafa unnið á
einn og annan hátt.