Íslendingur - 02.08.1950, Page 5
Miðvikudagur 2. ágúst 1950
ÍSLENDINGUR
5
Samtök iðnrekenda
Framhald af 2. síðu
Laxdal, klæðaverksm.; Ofnasmiðja
Steindórs H. Steindórssonar; Neta-
gerð Akureyrar, forstj. Oli Konráðs-
son; J. S. Kvaran h.f., skóverksm.,
forstj. Einar Sigurðsson; Ö1 og gos-
drykkir h.f., forstj. Marinó Stefáns-
son.
Tvö ný iðnfyrirtæki hafa síðan
bæzt í hópinn: Súkkulaðiverksm.
Linda h.f., forslj. Eyþór Tómasson
og Saumastofan Brynja.
Félagið hefir að vonum starfað að
sömu og svipuðum málum og FII í
Reykjavík, enda tekið fullan þátt í
störfum þess.
Iðnrekendafélag Akureyrar hefir
frá stofnun eitt að öllu leyti annazt
kjarasamninga fyrir meðlimi sína
hér á Akureyri við Iðju íélag v'erk-
smiðjufólks. Þá hefir félagið og
reynt eftir fremsta megni að greiða
fyrir og styðja félagsmenn í vand-
ræðum þeim, sem skapazt hafa
vegna gj aldeyrisvandræðanna.
Stjórn félagsins liafa skipað frá
stofnun þeir: Vigfús Þ. Jónsson,
formaður, Egill Sigurðsson, ritari,
og Skarphéðinn Ásgeirsson, gjald-
keri, og hafa þessir menn unnið mik-
ið og óeigingjarnt starf í þágu fé-
lagsins.
ÚTLIT OG HORFUR.
Á síðustu árum hafa félagssamtök
iðnrekenda eflst afar rnikið og fyrir
barátlu þeirra er nú svo komið að
stjórnarvöld landsins hafa öðlast
aukinn skilning á nauðsyn og þörf-
um iðnaðarins, þannig að í ríkari
mæli er nú farið að óskum þeirra
manna, sem samtökin hafa kosið til
þess að vera málssvarar sínir. En
eftir því sem samtökunum liefir vax-
ið fiskur um hrygg, þá hefir og
þróun iðnaðarins tekið stórstígum
framförum á síðasta áratugnum, og
kemur þeUa glöggt fram í skýrslu
Fjárhagsráðs. Storvirkar vinnuvél-
ar af fullkomnustu gerð hafa verið
fluttar til landsins svo að afköst í
einstökum greinum hafa margfald-
ast. Verðmæti framleiðslu fyrir-
tækja, sem nota innlend hráefni sem
aðalefni, var fyrstu 9 mánuði árs-
ins' 1947 26 niilljónum króna meiri
en allt árið 1946, en með fullum af-
köstum var áællað að verðmæti iðn-
vörunnar yrði 270 millj. kr. meiri
árið 1948. Þetta er aðeins tekið sem
dæmi úr skýrslu ráðsins en sömu
söguna er að segja um allan iðn-
rekstur.
I skýrslunni er heldur ekki farið
dult með það, að iðnaðurinn sé einn
veigamesti þáttur í ísl. atvinnuLfi,
og að hann gæti orðið það í enn
rikari mæli, og þess vænst að iðnað-
urinn megi á næstu árum verða sá
atvinnuvegur þjóðarinnar, sem mest
fer fyrir, og það talið leiða til þess
að auka verðmæti úlflutningsafurð-
anna og minnka gjaldeyrisverðmæti
innfluttu vörunnar. Þar er bent á
að nauðsynlegt sé fyrir þjóðiua að
hverfa frá þeim Molbúa hætti, sem
ríkt hefir í milliríkjaverzlun henn-
ar, sem sé þeim að flytja út hráefn-
in að mestu eða öllu óunnin, en
flytja svo inn sams konar vörur
unnar.
Afstaða ríkisvaldsins til iðnaðar-
ins á auðvitað að markast fyrst og
fremst af því, hvað iðnaðinum má
verða til mestrar eflingar og að hon-
um séu búin slík starfsskilyrði, að
afköst og gæði sé í fyllsta máta sam-
keppnisfær við iðnaðarvöru annarra
landa, og svo að unnt sé að kveða
niður það vantraust, sem þjóðin hef-
ir fengið á íslenzkum iðnaði, fyrir
það eitt að allsendis ófullnægjandi
hefir verið að honum búið, en slíkt
vantraust er og verður alltaf einhver
verstur Þrándur í Götu iðnaðinum
að því sæti, sem hónum ber með
réttu í íslenzku atvinnulífi.
I'
f
Akureyrarbær.
TILKYNNING
Ár 1950, þann 28. júlí, framkvæmdi notarius publicus í Akur-
eyrarkaupstað 7. útdrátt á skuldabréfum bæjarsjóðs Akureyrar
fyrir 4% láni frá 1943 til aukningar Laxárvirkjunar.
Þessi bréf voru dregin út:
LITRA A, nr. 3, 25, 27, 60, 69, 71, 75, 127, 137, 157, 158, 168,
219, 230, 233, 250, 253, 258, 266.
LITRA B, nr. 2, 54, 101, 112, 124, 127, 156, 181, 185, 191, 208,
228, 235, 237, 246, 250, 253, 306, 353, 363, 365, 370, 371,
380, 390, 394, 405, 407, 435, 441, 457, 460, 562, 592, 632,
637, 640, 666, 685, 695, 698, 716, 756, 785, 790, 805, 850,
857, 862, 865, 868, 874, 889, 909, 961, 969, 970, 976, 981,
984, 986, 989.
Skuldabréf þessi verða greidd á skrifstofu bæjargjaldkerans á
Akureyri eða í Landsbanka íslands í Reykjavík þann 2. janúar
1951.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 29. júlí 1950.
St'einn Sfeinsen.
Almenn skráning
atvinnulausra manna í Akureyrarkaupstað fer fram á Vinnumiðl-
unarskrifstofunni dagana fimmtudag, föstudag og laugardag, 3.— N
5. þ.m., kl. 14—17 alla dagana. Skráningin nær til verkamanna,
verkakvenna, iðnaðarfólks og alvinnubílsljóra.
Akureyri, 1. ágúst 1950.
Bæjarstjóri.
o a o cig>»oo O'co»q<o i
TILKYNNING
Innflutnings- og gj aldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefir ákveðið eftir-
farandi hámarksverð á benzíni og olíum: •
Benzín ........ pr. líter kr. 1.46
Ljósaolía ..... pr. tonn kr. 1050.00
Hráolía ....... pr. tonn kr. 670.00
Hráolía ....... pr. líter kr. 0.58
Að öðru leyti eru ákvæði tilkynningar verðlagsstjóra lir. 7 frá
31. mars 1950 áfram í gildi.
|
Verðlagsstjórinn. |
Lögtak
Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og að undangengnum úr-
skurði verða lögtök látin fara fram, á kostnað gjaldenda en ábyrgð
ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
fyrir ógreiddum söluskatti, veitingaskatti, skatti samkvæmt 17. gr.
eignakönnunarlaga, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi af bifreiðum,
vátryggingargjaldi ökumanna, aðflulningsgjöldum og útflutnings-
gjöldum.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 28. júlí 1950.
«?i®
GREIPÁR GLEYMSKUNNAR
formælti mér. Varðmbnmrnir ráku hann áfram, en hann
væri kominn til þess að horfa á hann tekinn af líti.
Hann leit á mig' hatursfullum augum, nair staðar og
leit um öxl, og hélt áfram forinælihgum sínum, þar íil
einn hermanna sló hann á munninn. Það kann að teljast
grimmdarlegt, en Kommúnistum var lítil miskuun sýjid
urn þetta leyti. Varðmennirnir hurfu nú með fangana
fyrir horn á fangelsinu.
»Eigum við að sjá endalokin?« spurði vinur minn
og sló öskuna af vindli sínum.
»Nei þakka þér fyrir.«
En við heyrðum endalokin. Tíu mínútum síðar gall
við skothríð úr rifflum, og þá vissi ég, að hinn síðasti
og sekasti af morðingjum Anthony March hafði hlotið
vkrðskuldaða refsingu.
Ég minntist loforðsins við Ceneri. Með mikilli fyrir-
liöfn tókst mér að fá sent bréf, sem ég gat vonast til,
að kæmist alla Ieið. Sex mánuðum síðar fékk ég bréf,
stimplað með fjölmörgum óskiljanlegum póststimplum.
Það skýrði mér frá því, að fanginn, dem ég liafði skrif.
að hefði dáið tveim árurn eftir að hann kom til nám-
anna. Þannig naut hann ekki ánægjunnar af þvíað fá
að vita um endalok manns þess, sem hafði svilcið hann.
Saga mín <er á enda. Við Pauline byrjuðum sameigin
lega að njóta lífsinsj er við snérum frá' kirkjugarðinum
og ákváðum að gleyma fortíðinni. Síðan höfum við lif-
að saman rólegu og hamingjusömu lífi. Er ég nú skrifa
þetta á sveitasetri mínu, hamingjusamur hjá konu og
börnum, þá á ég bágtt með að trúa því, að ég hafi eitt
sinn vferið blindi maðurinn, sem heyrði hin skelfandi
hljóð og sá síðan hina hræöilegu sýn, að þð hafi veriö
ég, sem ferðaðist yfir þvera Evrópu og mikinn hluta
Asíu, til þess að uppræta grun, sem ég roðna við að
hugsa um. Getur Jrað verið að Pouline, konan mín, sem
hjá mér*situr, andrík, ástúðleg og skemmtileg, sé hin
sama, sem eitt sinn var mánuðum eða árum saman
svipt réttu ráði?
Jú, þannig hlýtur þetta að vera. Hún hefir lesið al!a
þessa sögu mína, og er við nú sitjum hér, og erum að
fara yfir síðustu blaðsíðuna leggur hún handleggin,i
utan um mig og segir, og krlefst þess, að ég skrifi orð
hennar niður: »Þú hefir sagt of mikið, allt of mikið frá
mér, en ekki nógu rnikið um það, sem þú gerðir og hefir
alltaf gert fyrir mig.«
Mbð því að skýra frá þessu eina ágreiningsefni okkar
lýk ég gögu minni.
E N D I R
Ný framhaldssaga.
/ nœsta blaði hefst ný, ajarspennandi jramhaldssaga, jjall-
ar hún um ástir og ajbrot. — Sagdn er þýdd úr enshu og
nefnist ÁKÆRÐUR TVISVAR.
Nokkrar stfllkur
vantar mig nú þegar til sildarsöltunar á Raufarhöfn.
Fríar ferðir. —• Kauptrygging.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 1439, Akureyri.
Valtýr Þorsteinsson.
ÍMSllgÍÍliÍ^^
Bæntiur
Nokkrar snúningsvélar, fyrir einn hest, væntanlegar
með næsta skipi.
Verzl.
EEyjafjörður h.f.