Íslendingur - 01.04.1953, Page 2
t
ISLENDINGUR
MiSvikudagur 1. apríl 1953
-♦
Daggardropar ...
♦------------------------
»Fyrst er spýta, “
svo er spýta«
Ritstjóri annarar siðu Dags
finnur hjá sér hvöt til þess að
minnast á andúð ungra Sjálfstæð-
isinanna á kommúnislum í þætti
sínum „Laust og fast“ s. 1. laug-
írdag. Það var varla við öðru að
búast úr þeirri átt. „Litla Fram-
sókn“ hefir löngum fundið til
skyldleikans við „arfleifð Stalíns
á íslandi“, þótt hagkvæmt þyki
ekki að láta nú bera á því um of
svona fyrir kosningar. Enn er ekki
lengra liðiö en svo, að mönnum er
í fersku minni, þegar vart mátti á
milli sjá hverjir voru hinir raun-
verulegu þjónar Moskvuvaldsins,
„Litla Framsókn“ eða kommúnist-
ar og hinir nytsömu sakleysingjar
þeirra, Þj óðvarnarmenn. Og úr
því farið var nú að minnast á
flokksformenn, er ekki úr vegi að
„rifja upp með sér(!) í einrúmi“
hver það var, sem hatramast barð
ist gegn stjórn Stefán Jóhanns,
og hver það var, aem jafnvel í
hinum örlagaríkustu utanríkis-
málum, varð viðskila við flokk
sinn, til þess að særa ekki um of
hina austrænu vini sína. Hermann
sá, að Ólafi Thors hafði tekist að
nota kommúnista í ríkisstjóm
með ekki lakari árangri en raun
ber vitni. Honum hafði meira að
segja tekizt að fá þá til þess að
lýsa því yfir, að þeir störfuðu
ekki á sósialistiskum grundvelli.
En háttvirtur formaður Fram-
sóknar Hermann Jónasson ætlaði
að gera þeim betur til, hann ætl-
aði að renna skeiðiö með vinun-
um úr austrinu á fimmtuherdeild-
argrundvelli þeirra. Og sökum
þess, að Þjóðleikhús-Snoddas-rit-
stjórarnir viröast ekki hafa feng-
ið nóg af umræðum um nýsköp-
unarstjórnina, þá er rétt að rifja
upp afstöðu formanns þeirra til
nýsköpunartogaranna og kaup-
anna á þeim. Hermann Jónasson
sagði í ræðu, er hann flutti á Al-
þingi 26. apríl 1946: „Rikis-
stjórnin kaupir 30 nýja togara
fyrir allt að tvöföldu verði. —
Líkur benda því til, að þessi ný-
"iköpun sé jafnvel þegar úrelt.
Þessi flausturslegu kaup afsakaði
ríkisstj ómin með, að ef þessu
boði væri ekki tekiÖ, mundi ekki
hægt að fá skip smíðuð næstu
árin. Það er full sannaö, að þessi
slaðhæfjng er röng.“ Eða kannske
muna þeir betur orð Skúla Guð-
mundssonar, þar sem hann ræðir
togarakaupin. „Þetta nefndahrúg-
ald ríkisstjómarinnar, minnir á
mannvirki, sem einu sinni var
Iýst á þessa Ieið: Fyrst er spýta,
svo er spýta, svo er spýta í kross
— svo er spýta upp, svo er spýta
niður og svo fer allt í ganginn.
Munurinn er bara sá, að það er
stórkostleg hætta á því, að nýju
togararnir fari aldrei í ganginn.“
Þannig mælti skörungurinn Skúli.
Alþjóð er nú kunnugt um gang
togaranna og ennfremur það, að
þegar Framsókn komst í stjórnar-
sængina voru keyptir 10 nýir tog-
arar, en þá var verðið orðið 30%
-----------------------♦
hærra en á hinum fyrri. Þá sagði
Hermann ekki eitt aukatekið orð
mn „tvöfalt verð“. Nei, það væri
hollt fyrir ritsmiði „Dags“ að
muna, að það er að nefna snöru í
hengds manns húsi, að tala um
verk nýsköpunarstjórnarinnar í
herbúðum Framsóknar.
Málefnasnauðir
andstæðingar
Nú eru Tómasarháliðarnar
liðnar hjá í bili, og getur nú hinn
amerísklærði Esso-sérfræðingur
helgað sig ritsmíðunum af full-
um krafti. Enda skortir nú ekki
efni á síðuna, þótt ekki birtist
ræðurnar, sem hann hélt á Þorra-
blólum og sveitahátíðum hér í
firÖinum. Þó tekur hin mjög svo
gáfulega stefnuyfirlýsing ekki
meira rúm en svo, að Tóraasi, eða
heiðursborgaranum, gefst rúm til
svolítilla hugleiðinga lit af síðasta
Akureyrarbréfi Mgbl. Minnir rit-
smíð þessi ofurlítið á hina frægu
grein Jónasar frá Hriflu um bíla-
kaup og sölu Hermanns Jónasson-
ar á sínmn tima. Orð og setning-
ar eru slitnar úr samhengi og
þeim raðað upp eftir geðþótta
ritsmiðsins. Annars virðist hafa
komið felmtm á Dagsritstjórana,
er þeir rákust á „málefnasnauða
andstæðinga“ Sj álfstæðisflokks-
ins, og rennur nú upp úr þeim
stefnuskrá Framsóknarflokksins
daginn eftir að flokksþing Fram-
sóknarmanna er sett í Reykjavík.
Ekki er nú verið að bíða eftir því
að flokksþingið marki slefnuna,
heldur er leitað í gömlum stefnu-
skrárn og af þeim dustað rykið,
og þær siðan sendar á þrykk út
til lærdóms og lestrar fyrir fram-
sóknaræsku Tómasar.
Að vísu voru Framsóknarrnenn
hvergi nefndir á nafn í fyrr-
greindu Akmeyrarbréfi, en
taugaóstyrkur Tómasar er nú
svo mikill orðinn, síðan heil hér-
uð tóku að hlæja að brölti hans
og bægslagangi, að hann má ekki
sjá svo getið um andstæðinga
Sjálfstæðismanna að hann ekki
aki það allt til sín.
X , —--- ■■ »
ðlvoiiir M sendir
ít neyðarhall
Þau fordæmalausu tíðindi gerð-
ust í bátnum Sigurfara á Akra-
nesi nýlega, er hann var í blíð-
viðri á leið heim frá Reykjavík,
að ölvaður farþegi komst í tal-
stöð bátsins og sendi út neyðar-
kall, þar sem hann tók fram, að
báturinn væri að sökkva út af
Garðskagavita. Nokkur skip, er
heyrðu neyðarkallið, fóru þegar
á vettvang og leituðu bátsins en
auk þeirra 3 flugvélar. Fljótlega
komst þó upp, að hér hefði verið
um gabb að ræða og hvernig á
því stóð. Fékk hinn ölvaði mað-
ur þegar húsaskjól hjá lögregl-
unni á Akranesij er þangað kom.
Gabb þetta mun hafa kostað
15—20 þúsund krónur, og verð-
ur það að teljast dýrt „spaug“.
TUNGURNAR TVÆR.
„Verzlunin stynur annars veg-
ar undan lánsfjárleysi, hins vegar
síminnkandi umsetningu og
ágóða“.
Hvar skyldu þessi orð standa?
Þau standa í Alþýðumanninum
17. f. m. á forsíðu i ritstjórnar-
grein. Hún stendur í blaði þess
flokks, sem jafnan áður hefir
haldið því fram, og heldur því að
sjálfsögðu ennþá fram, að verzl-
unin dragi undir sig mestallt láns-
féð, og að verzlunarálagningin sé
svo óhófleg, að nauðsynlegt sé að
koma sem fyrst á aftur ströngu
verðlagseftirliti til að fyrra fólk-
ið í landinu okri verzlunarstéttar-
innar, sbr. skrif Gylfa Þ. Gísla-
sonar í Alþýðublaðinu.
Þetta er í daglegu máli kallað
að hafa tvær tungur og tala sitt
með hvorri.
BETLISTAF URINN.
í sömu grein segir:
„Við gullinn betlistaf banda-
rískrar hjálpar hefir þessi auðnu-
leysisstjórn stutt s:g í 4 ár ....,“
og er þar átt við núverandi ríkis-
stjórn.
Já, það er leiðlnlegt til þess að
vita, að fyrrverandi formaður AI-
})ýðufIokksins, sem fékk þenna
gullbúna staf hjá Bandaríkja-
stjórn, þegar hann var forsætis-
ráðherra íslands og notaði hann
drjúgum betm en núverandi
sljórn, skyldi hafa sleppt íangar-
haldi af honum. En ekki varð
annars vart en hann gerÖi það
ótilkvaddur og óneyddur.
ÓHAGSTÆÐUR SAMAN-
BURÐUR FYRIR FRAMSÓKN.
Á æskulýðssíðu „Dags“ er vik-
ið að því, hvor myndi verða
heppilegri þingfulltrúi fyrir Ey-
firðinga, Magnús Jónsson eða
Tómas Árnason. Að sjálfsögðu
kemst greinarhöfundur að þeirri
niðurstöðu, að Tómas yrði snöggt
um drýgri, þar sem hann sé
hlynntur KEA og einlægur sam-
herji Jakobs Frímannssonar kaup-
félagsstjóra.
Dugnaður og góður vilji Tóm-
asar skal hér ekki dreginn í efa.
Hins vegar skiptir það megin máli
um þingsetuhorfur Tómasar, að
sýslubúar munu yfirleitt vera á
allt annarri skoðun en „Dagur“
varðandi þetta atriði. Líta flestir
svo á, að æskilegra sé fyrir kjör-
dæmið að hafa fulltrúa á Alþingi
frá báðuni stærstu flokkum þjóð-
arinnar. Með þeim hætti verði
hagsmunum héraðsins bezt borg-
ið. Þá er það og almennt viður-
kennt, að Magnús Jónsson hafi
reynzt óvenju duglegur þingmað-
ur fyrir sýsluna þann skamma
t'ma, sem hann hefir setið á Al-
þingi. Hugsa menn úr öllum
flokkum gott til samstarfs við
liann og treysta hæfileikum hans
og dugnaði.
Það er nokkuð síðan að Fram-
sóknarmenn hófu kosningaundir-
búninginn hér í sýshmni. Henda
Vísnabálkur
INNGANGUR.
Víkja skal á vísnaþing,
vana hlíta fornum.
Egna fyrir íslending
ögn af mærðarkornum.
ÓSAMRÆMI.
Mjög er lánað misjaínt pund
mönnum, þ;átt er veldur grandi.
Ósamræmið alla stund
er og verður þjóðar fjandi.
IflSMIÐ.
Þegar grunns ei þekkjast skil,
þrotin sóknar rök og varna,
harla mörgum hættir til
hismið velja fyrir kjarna.
EÐLISHNEIGÐ.
Ólík tjái t öllum hjá
eðlis-rótin greypta.
Aldrei sá ég íta þrjá
í einu móti steypta.
IIANNES FRÁ HLEIÐARGARÐI.
Lengi Hannes inarkverð mál
minnis farm í glæðum.
Víst er hann af hug og sál
heill i sannleiksfræðum.
? TIL „DAGS“.
Svinni „Dagur“, seg þú mér,
sárt er þekking brestur;
Hvort nuin bjarga betur þér
hrúnn eða rauður hestur?
SVO ER ÞAÐ.
Framsegjenda fátt er val,
firna hart á dalnuni.
Halt og bjagað holgómstal
hrín í útvarpssalnum.
EF------
Yrði margt til bóta breytt,
bæði dag og kvöldin,
væri aldrei óhreint neitt
unnið bak viff tjöldin.
BALDVIN SKÁLDI.
Baldvin kvað og brosti hýrt
böls í naða þjarki.
Vísnablað hans skartar 6kýrt
skáldsins aðalsmarki.
EYÐIBÓL.
Hér við íslands eyðiból
endar þrautasaga.
Enn þó skín þar sama sól
sein í fyrri daga.
Hvar í flokk sem festist þú,
fræðist viðhlítandi,
ef þú helgar ást og trú
eigin þjóð og landi.
Lykta stöku Ijóðið skal:
logn og rosaveður.
Þröngum lífs í Þorradal
þetta Svartur kveður.
8. marz 1953.
Leiðrétting. í siðasta blaði Islend-
ings og síðustu vísu í Vfsnabálki
stendur: sem þú vísur -------, fyrir
Sem fiví, eins og Lggur í augum uppi.
sýslubúar orðið gamati af öllum
bægslaganginum, þar sem allir
kunnugir vita, að kosning Tóm-
asar er gersamlega vonlaus.
KROSSAREGN.
Háskólarektor upplýsti nýlega,
að 350 Danir hefðu verið sæmdir
riddarakrossi fálkaorðunnar, og
munu þar finnast inargir sauðir
innan um, sem ltafa lítið til þess-
arar vegsemdar únnið og aðrir,
setn beinlínis hafa unnið í óhag
íslands.
Það er niörgum farið að verða
áhyggjuefni, hve veiting þessa
heiðursnterkis hins unga lýðveld-
is liefir verið gálauslega fram-
kvæmd á undanförnum árum,
bæði hvað snertir innlenda sem
erlenda aðila, og getur orðið til
athlægis, verði ekki betur aðgætt
en verið hefir.
Stutt er að minnast, að útlend-
ur söngvari, sem sungið hafði
tvisvar opinberlega í Reykjavík,
var sæmdur stórkrossi íálkaorð-
unnar!
Hvaða orðu fær Snoddi?
S.
FLOKKSHAGSMUNIR —
ÞJÓÐARHAGSMUNIR.
Tómas lögfræðingur Árnason,
frambjóðandi Framsókuarflokks-
ins í Eyj afj arðarsýslu, skrifaði
fyrir skömmu siðan í „Dag“
greinarkorn um lýðræðið og
framtíð þess. Af jafn langskóla-
gengnum ntanni og Tómasi hefði
mátt búast við annarri og betri
ritgerÖ um þetta merka efni. En
það er aðeins eitt atriði í þessari
hugvekju Tómasar, sein ég vildi
gera athugasemdir við.
Tómas fullyrðir, án þess að
hafa fyrir því að rökstyðja þaÖ
nánar, að Sjálfstæðisflokkurinn
sé reyndur að því að taka hags-
riiuui flokksins fram yfir hags-
muni þjóðarinnar. Ég vil þá
spyrja, hvernig getur Framsókn-
arflokkurinn, sem alltaf lítur á
hagsmuni þjóðarinnar (ekki
hagsmuni S. í. S.) unnið með
sl kum flokki í ríkisstjórn?
Hvernig má það vera, að Fram-
sóknarmenn hér í bæjarstjórn.
sem eingöngu líta á hagsmuni
bæjarfélagsins (ekki K. E. A.)
geta haft nokkurt samstarf við
Sjálfstæðismennina, sem ein-
göngu hafa flokkshagsmuni fyrir
augum, eflir því, sem Tómas seg-
ir?
Spurull.
fyrirliggjandi
Bílamiðstöðvar
Þokuluktir
Afturljós
Hliðarljós
og margs konar annar
Ijósaútbúnaður.
Verzlun
Axels Krisfjánssonar h.f.
Brekkugötu 1. Sími 1356