Íslendingur - 09.04.1953, Side 1
XXXIX. árgangur
Fimmtudagur 9. apríl 1953
14. tbl.
t
Frú
M • 9 líi
Dipiir Sigurjónsdóttir
lézt að heimili sínu. Hafnarstræti
18 B hér í bæ aöfaranótt 4. þ. m.
eftir stutta en þunga legu. Verður
hennar nánar minnst í næsla
blaði.
Mý íramhoð
Sjálfstæðisflokkurinn hefir til-
kynnt þessi framboð:
í Norður-ísafjarðarsýslu: Sig
urður Bjarnason alþm., í Suður
Þingeyjarsýslu: Gunnar Bjarna
son búfræðikennari, í Rangár-
vallasýslu: Ingólfm: Jónsson al-
þm., S'gurjón Sigurðsson bóndi
Raftholti, Guðmundur Erlendsson
hreppstjóri Núpi og sr. Sigurður
Haukdal á Bergþórshvoli.
KommúnisLar hafa ákveðið
Steingrím Aðalsteinsson í fram-
boð hér á Akureyri.
34 iiiciin ganga í Sjálf-
§(æái§félagit) á einiBin
fundi
Fjölgaði um 44 á starfsárinu
NírjrflÉmíistjwiJÞ
Loks hefir tekizt að ná sam-
komulagi um eftirmann Trygve
Lie sem framkvæmdastjóra S. Þ.
Er það sænskur ráðherra, að
nafni Dag Hammerskjöld. Það
var Oryggisráðið, sem tók
ákvörðun um kjör Hammer-
skjölds, er kom honuin á óvaTt.
Þrátt fyrir það tók hann kosn-
ingunni, og gaf sænska stjórnin
leyíi til þess, að hann tæki við
þessu virðulega embætti.
Aðalfundur Sjálfstæðisfél. Ak-
reyrar var hald'nn í fyrrakvöld.
Forinaður félagsins, Jónas G.
lafnar alþm. setti fundinn og
itjórnaði honum. Minntist hann
upphafi fundarins tveggja fé-
aga, er látlzt höfðu á árinu: Ei-
íks Einarssonar og Snorra Jó-
annessonar. Þá minntist hann
afnframt frú Dagmar Siguijóns-
’óttur, formanns Sjálfstæð’s-
' vennafélagsins „Varnar“, sem er
nýlátin. Vottuðu fundarmenn hin-
un látnu virðingu sína með því
að rísa úr sætum.
Formaður rakti síðan árs-
skýrslu félagsins, en gjaldkeri las
reikninga þess, er samþykktlr
voru athugasemdalaust. Fór því
næst fram s'.jórnarkosning, og
var hin fráfarandi stjórn öll end-
urkosin með nálega öllum at-
kvæðum, en hana skipa Jónas G.
Rafnar, fornjaður, Kristján Jóns-
son fulltrúi ritari og Gunnar H.
Kristjánsson gjaldkeri. Varafor-
maður, Helgi Pálsson, mæltist
eindregið undan endurkjöri, og
var Jón G. Sólnes kjörinn í stað
hans með 30 atkvæðum. Aðrir
varamenn, Arni Sigurðsson og
Jón Hallur Sigurbjörnsson, voru
endurkjörnir. Ennf emur endur-
skoðendur, þeir Einar Kristjáns-
son og Páll Einarsson.
Þá fór fram kosning 6 maniia í
f ulltrúaráð Sj álfs'. æðisfélaganna,
og hlutu kosningu: Páll Sigur-
ge’rsson. Einar Kristjánsson, Val-
garður Stefánsson, Tómas Bjö.ns-
's:n, Árn: Jónsson og Jón Hallur,
en til vara Gunnar Schram og
Tómas Steingrímsson. NausLa-
^borgarráð var og endurkjörið, og
I Sveinn Tómasson kjörinn í staðj
^ Eiríks Einarssonar, er' látizt hafði
á árinu.
Að lokum urðu nokkrar um-
ræður um ráðstöfun á eignum fé-
Iaganna í NausLaborgum, en að
lokuin samþykkt að fela s'jórn fé-
lagsins, fulltrúaráði og Nausta-
borgarráðl úrslltavald í því máli.
Á Jundinum var lesin upp inn-
tökubeiðni frá 34 mönnum, er
allir voru samþykktir inn í félag-
ið. Er þetta mesta aukning á ein-
um fundi í sögu félagsins. Alls
gengu 44 i féiagið á árinu.
Th merkisníKli
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefir komið á fót leiðbeininga
stofnun fyrir mœður og bamshafandi konur í ríkinu Paraguay í
Suður-Ameríku, Hér á myndinni sézt hjúlcrunarkonan■ við eina slíka
stofnun leiðbeina ungum mœðrum.
Dr. Sveinn Þórðarson skipaður
skólameistari að Laugarvatni
Vetarinn feerist í aukann
Landsamgöngur milli Suöur- og Noröurlands-
ins um flesía Ijallvegi tepptar
Á skírdagskvöld gerði norðan-'
hvassviðri með feiknamikilli snjó-
komu um allt Norður- og Norð-'
austurland, og stóð þetta veður J
nálega sólarhring. Nýbúið var þá
að ryðja fjallvegi eftir fyrra
áhlaupið, og fyllti nú allar slóðir
á ný. Hér í bænurn varð umbrola-
ófærð strax á föstudagsnótt og
hvergi fært bifreiðum. Eftir að
stytti upp var byrjað að ryðja|
snjó af aðalgötum og fram eftir (
firðinum, en víða eru götur í
bænum enn þungfærar eða ófær-J
ar venjulegum bifreiðum. Flug-
samgöngur féllu einnig niður, og|
fjöldi fólks, sem hugðist koma
hingað á Akureyrarvikuna, varð
að hætta við förina. Bílar, sem
voru á leið til Akureyrar frá
Reykjavik og lentu í þessum
tveim slórhríðaráhlaupum, voru
frá 6 og upp j 12 daga á leiðinni.
Hefir snjóbíllinn þeirra Svan-
laugssona haft nóg verkefni um
páskana.
M.kiII mjólkurskortur varð í
bænum á föstudaginn langa, en
síðan hefir ræ'.zt úr. Úr Svarfað-
ardal er mjólkin flutt sjóleiðis frá
Dalvík.
Ingimar Eydal
í fyrradag, 7. apríl, varð Ingi-
mar Eydal, fyrrv. ritstóri, áttræð-
! ur. Ingimar er einn af þekktustu
borgurum bæjarins eftir hartnær
hálfrar aldar dvöl hér í bænum.
Ingimar er fæddur Eyfirðingur
og ólst upp í firðinum þar til
hann fór i Möðruvallaskóla og
s ðan á Askov. Fékkst hann síð-
an nokkur ár við barna- og ung-
lingakennslu í Eyjafirði en réðst
árið 1908 að Barnaskóla Akur-
eyrar, og var hann þar kennari
um 30 ára skelð. Skólastjóri
Barnaskólans var hann eitt skóla-
ár. Þegar íslendingur vai- stofn-
aður árið 1915 gerðist liann með-
ritstjóri S.'gurðar Hlíðar við
blaðið, en tók við ritstjórn Dags
um eins árs skeið skömmu*síðar
og enn á ný 1928 og gegndi því
stas.fi þar til núverandi ritstjóri
tók við því. Þá var hann bæjar-
fulltrúi mn langt skeið og hefir til
skamms tíma átt sæti í stjórn
KEA.
Jóhann Þorkelsson
Fimmtugsafmœli átti Jóhann
Þorkelsson héraðslæknir 1. þ. m.
Jóhann er Svarfdælingur að ætt,
fjölmenntaður maður og fróður.
Að loknu læknanámi við Háskóla
fslands og framhaldsnámi er-
Icndis gerðist hann héraðslæknir
í Akureyrarhéraði frá ársbyrjun
Fyrir nokkru síðan var auglýst
Iaus til umsóknar staða skóla-
meistara við fyrsta menntaskól-
ann í sveit, sem taka á til starfa
að Laugarva'.ni í haust, og skvldi
staðan veitt frá 1. apríl. Þann dag
var tilkynnt, að í stöðuna hefði
verið skipaður dr. Sveinn Þórð-
arson menntaskólakennari á Ak-
ureyri.
Dr. Sveinn er fæddur að Kleppi
við Reykjavík ,sonur hins þjóð-
kunna manns, Þórðar Sveinsson-
ar yflrlælcnis. Að afloknu háskóla-
prófi í Reykjavík fór hann utan
og nam næstu 7 ár eðlisfræði við
háskólann í Jena og Kaupmanna-
höfn, og tók doktorspróf í Jena
árið 1939. Það sama ár réðst
hann kennari að Menntaskólan-
um á Akureyri og hefir verið það
síðan. Dr. Sveinn er ágællega
1938 og hefir veiið það síðan
Akureyrarhérað er eitt stærsta
læknishérað landsins og engum
aukvisum hent að gegna því. En
Jóhann er mikill dugnaðar- og
áhugamaður, ljúflyndur og reglu-
samur og hefir unnið sér traust
og vinsældir í erflðu starfi. Auk
héraðslæknisstarfanna er hann
trúnaðarlæknir Sjúkrasamlags
Akureyrar, forstjóri Heilsuvernd-
arstöðvar Akureyrar og forvígis-
maður krabbatneinsvarnafélags-
skaparins í bænum auk margra
annarra áhuga- og trúnaðar-
starfa.
menntaður og góður og vinsæll
kennari. Hann er tæplega fertug-
ur að aldri.
Alls sóttu 8 menn um skóla-
meistarastöðuna, og voru meðal
þeirra Steindór Steindórsson
menntaskólakennari, Guðmundur
Þorláksson magister og dr.
Broddi Jóhannesson. Áskilið var,
að umsækjandi hefði háskólapróf
í einhverjum kennslugreinum
mennlaskóla.
Hirkjutónlelliflr
Kirkjukór Akureyrai' hélt
hljómleika i Akureyrarkirkju á
föstudaginn langa undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar. Þrátt fyrir
að stórhr.ð var skollin á, er
hljómleikarnir fóru fram, mátti
aðsókn teljast góð.
Til hljómleika þessara var vel
vandað, verkin ágætlega æfð og
vel valin. Viðfangsefni voru eftir
ýms þekktustu tónskáld Evrópu,
en auk þess 4 viðfangsefni eftir
íslenzka höfunda: Áskel Snorra-
son, Björgvjn Guðmundsson,
Helga Helgason og Sigvalda
Kaldalóns. Einsöngvarar voru
Jóhann Konráðsson og Kr.’stinn
Þors einsson. Við hljóðfærið frú
Marg.ét Eiríksdóttir. — Þóttu
hljómleikar þessir ánægjulegir og
hálíðlegir, og voru þeir endur-
teknir á páskadag.