Íslendingur - 09.04.1953, Qupperneq 7
Fimmtudagur 9. apríl 1953
ÍSLENDINGUR
7
GDTABOX-
l|ósniyndav«I in
er heppileg fermingargjöf
Axel líilsljáii^on Ii.f.
Bóka- & rilfangaverzlun.
Hiis
Er kaupandi að 3ja herbergja íbúð ásamt eld-
húsi og baði. Æskilegt að hún væri í Glerár-
þorpi.
Allar upplýsmgar veittar í síma 1660 og 1357.
Eyþór H. Tómasson.
Kuldaúlpur
á fullorðna og börn.
Gott úrval.
Brauns-verzlun
Plastdúkar
og p'.astefni
nýkomin.
Brauns-verzlun
Strásykur
Verð kr. 3.50 kg.
Vöruhúsið h. f.
2. Athugununi og leiðbeiningum fyrir einstaka bændur,
búnaðarfélög og félagsræktunarstjórnir um það, hve
stórvirkar skurðgröfur og önnur vinnslutæki henti
bezt á hverjum stað til aðgerða samkv. 1. lið, og skal
jafnframt leitað álits hlutaðeigenda um, hver aðferð
þeim þyki hagkvæmust, er kemur til öflunar og um-
ráða tækjanna, t. d. eignarumráð samkv. IV. kafla
jarðræktarlaganna eða leigunot samkv. V. kafla sömu
laga.
3. Búnaðarfélag íslands skal leita álits búnaðarsain-
líanda, hreppsbúnaðarfélaga og annarra, er hlut eiga
að máli eftir tillögu þessari, um skoðanir þeirra á
nauðsynlegum breytingum jarðræktarlaganna vegna
þeirra aðgerða, er tillagan fjallar um, svo sem aukn-
ingu styrks til vélakaupa við framræslu eða breyttum
hlutföllum á styrk til hinna ýmsu jarðabó'a.
4. Niðurstöður framanskráðra rannsókna leggi ríkis-
stjórnin síðan fyrir Alþingi.
Flutningsmenn tillögunnar voru þeir Eiríkur Einarsson,
Haraldur Guðmundsson og Kristinn Andrésson.
Eitt af því, sem nefndin vann, var að semja frumvarp um
jarðræktar- ög húsagerðarsamþykktir í sveitum. Frumvarp
nefndarinnar var lagt fram á Alþingi 20. sept. 1944, flutn-
ingsinenn: Jón Sigurðsson, Bjarni Asgeirsson og Pétur 0 te.
sen. Það gekk greiðlega gegnum þingið, enda var þáverandí
landbúnaðar- og fjármálaráðherra Pétur Magnússon ákveð-
inn stuðningsmaður málsins. Varð frumvarpið lítíð breytt
að lögum 5. jan.194-5,
Aðal nýmæli þessara laga, að því er varðar jarðræktina,
eru í stuttu máli þessi:
Heil búnaðarsambönd eða hlutar af þeim geta gert sér
ræktunarsamþykkt og starfað samkvæmt henni sem ræktun-
arfélög eða ræklunarsambönd. Verkfæranefnd ríkisins —
síðar Vélanefnd ríkisins — áætlar þeim-nauðsynlegan véla-
kost til að vinna að nýræktarframkvæmdum á félagslegum
grundvelli. Til kaupa á hinum nauðsynlega og áætlaða véla-
kosti fær ræktunarsambandið framlag úr Framkvæmdar-
sjóði ríkisins (sem stofnaður var með lögum 4. júlí 1942)
. er nemur helmingi af verði ræktunarvélanna heimfluttra á
félagssvæði og samsetlra. Til þessa skyldi verja 3 millj. kr.
úr sjóðnum, — Mest allt anná’ð í lögunum er umbúðir og
aukaatriði.
í lögunum er svo til ætlast., að fæktunarsamböndin yrðu-
stór —r- næðu yfir svæði heilla búnaðarsambanda og.alis eigí'
minna en éina sýslu. -Þetta áttu að vera sterk og starfhæf
samtök með mikinn vélakosl Iivert félag. í lögunum er bein-
línis tekið fram, að stefnt skuli að því, „þegar um búnaðar-
sámbönd er að fæða, ér ná yfir tvö eða fleiri sýslufélög, að
hvéft sýslufélag geti orðið samþykktarsvæði út af fyrir sig“.
Það er að segja, ef ekki verður samkomulag um, að ræktun-
arsambayjið nái yfir allt félagssvæði búnaðarsambandsins.
Á þessu hafa hinsvegar orðið miklar misfellur. Búnaðar-
félag íslands, sem á að hafa liönd í bagga um þetta, liefur
loover-livottavélar
Þessar margeftirspurðu þvottavélar eru komnar.
Þeir, sem eiga þær pantaðar tali við m'g strax.
Verzlun LONDON
Eyþór H. Tómasson.
haldið svo mjúkt um tauma, að víða hafa búnaðarsambönd-
in klofnað í mörg smá ræktunarfélög, sem jafnvel ná ekki
yfir nema einn hrepp, illu heilli.
í þessu sambandi er þess að minnast, að vafalaust hefir
fordæmi Borgfirðinga og Skagfirðinga verið nefndinni mjög
í huga, er samdi frumvarpið að lögunum. Búnaðarsamband
Borgarfjarðar hafði í nokkur ár haldið úti vinnuvélum við
nýræktarstörf á félagssvæði sínu. Búnaðarsamband Skag-
firðinga lagði á árunum 1943-’44 grundvöll að samskonar
starfsemi, og var eiginlega búið að setja sér einskonar rækt-
•unarsamþykkt áður en lögin um ræktunarsamþykktir voru
sett, enda var það fyrsta búnaðarsambandið, sem fékk stað-
festa jarðræk'arsamþykkt samkvæmt lögunum, 20. marz
1946. Sljórn Búnaðarsambands Skagfirðinga skipuðu á
þessum árum Jón Konráðsson bóndi í Bæ formaður, Jón Sig-
urðsson Reynistað, Sigurður Sigurðsson sýslumaður, Kristj-
án Karlsson skólastjóri og Sigurður Þórðarson kaupfélags-
stjóri.
Það er aðeins í 5 sýslum að haldið hefur verið fast við
þá hugsjón Iaganna, að stofna ræktunarsambönd er ná yfir
heila sýslu eða meira. Það er í Skagafirði, Borgarfirði, í
Húnavatnssýslum og Vestur-Isafjarðarsýslu.
Lögin um ræktunar-samþykktir hafa vakið mikla fram-
kvæmd og orð!ð að afar miklu gagni, sem þó er enn eigi
fram komið nema að litlu leyti. Enn meiri framkvæmd og
ennþá meira gagn er í aðsigi.
Ræklunarfélög og ræktunarsambönd hafa verið stofnuð
svo að segja um land allt. í árslok 1952 höfðu alls verið
stofnuð 66 slík félög. Félögin hafa eignazt mjög mikið af
góðum ræklunarvélum og eru því vel búin til framkvæmda.
í árslok 1952 var vélakostur ræktunarsambandanna, sem
framlag hafði verið greitt til að kaupa, sem hér segir:
Polaroid
vatnagleraugun
eru kom'n aftur, 4 tegundir.
Nylon handfærin
eru komin.
Vesfis-vasahnífar
með lyklafesti.
Tiffilskoi'
2 stærSir.
Sendum í pöstkröfu.
Brynj. Sveinsson h.f.
"'imi 1580 Skipagöfu 1
’BÚÐ TIL LEIGU
5 herbergi, eldhús og haS i
Glerárþorpi.
Karl Friðriksson, sími 1657.
Langbylgiuofnarnir
komnir aftur.
Elektro Co. h.f.
10 skurðgröfur,
106 beltatraktorar með ýtu,
2 beltatraktorar án ýtu,
32 hjólatraktorar,
21 bílplógur, .
55 brotplógar,
40 akurplógar,
4 diskaplógar,
flutningaiækjum.
127 diskaherfi,
10 nótherfi,
14 fjaðraherfi,
11 flagheflar,
2 traktorferjur
og allmikið af öðrum
NILFISK-ryksugur
koma með Reykjafossi.
Nokkur stykki ólofuð.
Elektro Co. h.f.
Auk þess eiga sum ræktunarsambönd nokkuð af öðrum
eldri ræktunarvélum, sem ekki hefur verið greitt framlag til
að:kaupa. -
Stofnsjóðir ræktunarsambandanna námu í árslok 1952
alls kr. 9.714.000.00, en framlög ríkisins til kaupa á rækt-
úr.aryélum nema alls kr. 4.808.313.00,. Þegar þær 3 millj.
króna, sem lögin gerðu ráð fyrir að verja úr Framkvæmda-
sjcði ríkisins til þessara hluta voru þrotnar, var veitt fé á
fjárlögum til að greiða framlag'ð, 1950 kr. 1.000.000.C0,
1951 kr. 500.000.00, 1952 kr. 500.000.00 og 1953 kr
500.000.00.
. ^ á-i' ......................(Framhald.)
Akureyrarvika
Ferðamálafélagsins setti. minni
svip á bæinn en: orðið hefði, ef
tið hefði haldizt góð og samgöng-
ur orðið með eðlilegum hætti. —
Fjöldi manns í Reykjavík hafði
skráð s'g til norðurfarar, er all-
ar leiðir á landi og í lofti lokuð-
ust vegna illviðra. Hins vegar
náðu keppendur á Landsmóti
sk'ðamanna hingað í tæka tíð.
Flest skemmtiatriði, sem Ferða-
málafélagið hafði undirbúið,
voru þó látin fram fara, að und-
anteknum „kattarslag“ .: Hesta-
mannafélagsins, sem ekki varð
við komið vegna stórfennis.
s&t
KAUPIÐ m'ða í Happdrœtti
Sjálfs œðisjlokksins. 50 vinning-
ar, að verðmœti samtals 130
þúsund krónur. Miðinn kostar
aðeins 5 krónur. Miðarnir jást
á afgreiðslu Islend'ngs, í Verzl.
Drifu, Bókaverzl. Axels Kristj-
ánssonar h.f. og i Verzlun Vísi.