Íslendingur

Issue

Íslendingur - 25.11.1953, Page 2

Íslendingur - 25.11.1953, Page 2
9, ÍSLENDINGUR Miðvikudagur 25. nóvember 1953 FRÁ ALÞINGl: Rehstur strandferöa og lióoMto. - [ndurshoiun ií gjaldshrd héraðsrafveitua. - llm jriðun rjúpu ojl. Tve'ir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, Gísli Jónsson og Sig- urður Ágústsson, flytja á Alþingi tillögu til þingsályktunar um rekstur strandjerða og flóabáta, svohljóðandi: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að leita nú þegar samn- inga við Eimskipafélag íslands og Samband ísl. samvinnufélaga um, að þau taki að sér frá næstu áramótum, eða svo fljótt sem verða má, allar strandferðir og flóabátaferðir umhverfis landið. Skal rmða samninga Við það, að aðilar skuldbindi sig til að halda uppi ferðunum á sinn kostn- að næstu 25 ár, að þær verði eigi óhagkvæmari almenningi en nú er og uppfylli jafnan þær kröfur, sem gera verður til slíkra ferða á hverjum tíma, enda taki þá fé- lögin við öllum þeim skipastól, er Skipaútgerð ríkisins hefur nú yfir að ráða og ríkissjóður er eigandi að. Þingsályktunartillögunni fylgir vel rökstudd greinargerð, og er slðari hluti hennar á þessa leið: Skipaútgerð ríkisins hefur nú yfir að ráða tveimur stórum, ný- legum, vel útbúnum og góðum skipum, sem beinlínis voru smíð- uð í því skyni að fullnægja fólks- flutningaþörfinni umhverfis land- ið vetur og sumar, og einnig að nokkru leyti vöruflutningaþörf- inni á sörtiu staði. Skipaútgerð- in hefur auk þess yfir að ráða tveimur smærri skipum, sem aðal- lega er ætlað það hlutverk að flytja vörur og fólk til þeirra staða á landinu, er eigi hentar hinum stærri skipum að sigla á. Þá var enn fremur hugsað að bæta síðar víð tveimur skipum af smærri gerðinni og leggja þá niður að fullu eða að mestu leyti allar flóa- bátaferðir. Var þá gert ráð fyrir, að hvort tveggja væri öruggt, að þjóðinni yrði séð fyrir viðunandi samgöngum meðfram ströndum landsins og að kostnaðurinn við slíkar ferðir yrði ekki tilfinnan- lagur baggi fyrir ríkissjóð, sbr. nefndarálit forstjóra Skipaútgerð- arinnar, þegar verið var að undir- búa skipulag þessara mála til frambúðar. Var þá og gert ráð fyrir því, að kostnaður við flóa- bátaferðir íélli að langmestu nið- ur. Reynsla undanfarinna ára hef- ur falað sínu máli og sýnt aðra og lakari niðurstöðu en gert var ráð fyrir, þegar lagt var í þann kostnað að smíða hin nýju skip. Annað hinna stærri strandferða- skipa og það skipið, sem betra er, hefur árlega verið tekið út úr strandferðunum, svo að mánuð- um skiptir, til þess að sigla með fólk í skemmtiferðir landa á milli, er sumar hverjar hafa kos'að þjóðina allmikinn erlendan gjald- eyri. Hafa þessar ferðir þó engan veginn staðið undir útgjöldum, svo að þjóðin hefir orðið að leggja á sig skatta beinlinis þeirra vegna. Á sama tíma hefur svo Skipaútgerðin oirðið að leigja alls konar skipakost í strand- ferðirnar, sem á engan hátt hefir uppfyllt lágmarkskröfur, sem gera verður til slíkra flutn- ingatækja, og þetla kostað þjóð- ina enn meira fé en þótt strand- ferðaskipin hefðu verið notuð til ferðanna, eins og ávallt var lil ætlazt. Beinlínis vegna þessa fyrir- komulags hefir fólkið orðið að nota önnur flu'ninga- og sam- göngutæki til þess að fullnægja aðkallandi þörf á hverjum tíma. Flutningsgjöld hafa þegar ver- ið ákveðin það há, að ýmsir aðr- ir aðllar hafa af því ágælan arð að sigla árum saman fyrir lægri flutningsgjöld á hinar ýmsu hafn- ir landsins, án þess að hafa til þess nokkurn styrk úr ríkissjóði. Á fjárlögum fyrir árið 1952 'roru áætlaðar um 5 millj. kr. til 'trandferðanna, en upphæð þessi hefir á því ári orðið rúmlega 10 rtllj. samkvæmt því, sem frá er skýrl í ríkisreikningnum, eða hef- 'r meira en tvöfaldazt, miðað við áætlun. Höfðu þó á þessu ári eng- r umbætur verið gerðar á sam- göngukerfinu, nema síður sé. Itanda engar vonir til þess, að dregið verði úr þessum kostnaði, nema þá að samfara því verði þjónustan gerð enn lakari en nú er að óbreyttu fyrirkomulagi. Er þess ekki að vænta, að þjóðin uni þessu öllu lengur. Á sama tíma sem þannig hallast meira og meira á ógæfuhliðina hjá Skipa- útgerðinni, auka aðrir aðilar, svo sem Eimskipafélagið og Sam- band ísl. samvinnufélaga skipa- kost sinn og fjölga um leið all- verulega viðkomum á hina ýmsu staði á landinu, er skip Skipaút- gerðarinnar sigla einnig á. Er því sýnilegt, að hér skapast sam- keppni um flutninga á fólki og vörum á milli allra þessara aðila og að Skipaútgerðin er dæmd til þess að tapa í þeirri samkeppni því meira, því lengur sem hún stendur. Ekkert er því eðlilegra og sjálfsagðara en að leita eftir samkomulagi við báða þessa að- ila, Eimskipafélagið og Samband ísl. samvinnufélaga, um að þeir 'aki að sér þessa þjónustu við fólkið, sem Skipaútgerðin hefir enn á hendi, og tryggja það jafn- framt, að hún verði hæði betri og ódýrari fyrir alla aðila. Má í þessu sambandi benda á, að skip þessara aðila sigla oft hvert á eíí- ir öðru eða samtímis á sömu hafnirnar, hvert með sinn slatta af vörum, öllum aðilum til óhag- ræðis. Það sýnist í alla s'aði bæði sanngjarnt og eðlilegt, að skipta tilteknum siglingasvæðum á milli þessara aðila, jafnframt því sem þá væru látnir fylgja þeim þeir farkostir, sem þeim bezt henta og Skipaútgerðin hefir nú yfir að ráða og eru eign ríkissjóðs, gegn því, að samningsaðili taki að sér ákveðnar skuldbindingar um Iangt árabil. Ætti þetta að gera samningana auðveldari fyrir alla aðila. Að síðustu skal á það bent, að um langan tíma stóðu um það deilur, hvort einstaklingar eða ríkið ættu að halda uppi sérleyfis- ferðum á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur og á milli Akureyrar og Reykjavikur. Var því lengi vel haldið' fiam af þeim, er vildu, að ríkið annaðist slíkar ferðir, að með ríkisrekstri fengi fólkið ólíkt betri, ódýrari og öruggari þjón- ustu en ef einslaklingar önnuðust reksturinn. Því sama hefir og ver- ið haldið fram um strandferðirn- ar. Reynslan hefir hins vegar sýnt það svo, að ekki verður á móti mælt, að síðan sérleyfisferð- irnar komust aftur í hendur ein- staklinga, hefir ríkissjóður ekki einasta spaTað hundruð þúsunda árlegan rekstrarhalla á þeirri þjónustu, heldur hafa fólkinu ver- ið látnar í té slíkar umbætur, að undrun sætir, og það án þess að þjónustan verði því dýrari. Mundi nú engum koma til hugar að láta ríkið taka á ný við þess- ari þjónustu. Það sama verður um árangurinn af skipulagsbreyt- ingu á strandferðunum, ef farið er eftir því, sem hér er lagt til. Það ber því brýna nauðsyn til þess að vinna að því nú þegar að losa ríkissjóðinn að fullu og öllu við lekslur strandferðanna, ekki einasta til þess að létta af þjóð- .nni þeirri 10 milljóna króna byrði, sem þetta kostar ríkið ár- lega nú orðið, heldur og til þess að tryggja þjóðinni betri og ör- uggari þjónustu í sambandi við flutninga á fólki og vörum um’ land allt. Þá flytja þeir Jón Sigurðsson, Pétur Oltesen og Jörundur Bryn- jólfsson till. til þ. ál. um endur- skoðun á gjaldskrá héraðsraj- magnsveilna ríkisins, í því skyni að lækka fastagjald af gripahús- um og fastagjald vegna vélanot- kunar, samkv. C 5, t. d. þannig, að það miðist við notkunartíma vélanna og greiðist ekki fyrir þá mánuði, sem vélarnar eru ekki notaðar. í greinargerð segja flutnings- menn: í gjaldskrá fyrir héraðsraf- magnsveitur ríkisins er svo fyrir mælt, að af gripahúsum og öðr- um húsum, sem notuð eru við bú- skap, skuli greiða fastagjald eins og af félagsheimilum, skólum, sjúkrahúsum, gistihúsum og þess háttar. Hefir þetta gjald valdið því, að þorri bænda treystist ekki til að taka rafmagn í útihús, nema það minnsta, sem komizt verður af með. Þá finnst bændum ósanngjarnt að verða að greiða auk gjalds fyrir raforkuna fastagjald, er nem- ur 1200 kr. á ári. af hverjum raf- magnsmótor, sem notaður er til heyblásturs eða annarra starfa um sumartímann. Skiptir það engu, hvort mótorinn er notaður í 1 mánuð eða t. d. 6 mánuði á ári hverju. Hefir þetta orðið til þess, að sumir hændur hafa horf- ið frá að afla sér slíkra mótora, en leitað í þess stað annarra úr- ræða. Að fenginni þessari reynslu teljum við flutningsmenn þessarar tillögu tímabært að taka þessi umræddu ákvæði til endurskoð- unar og leiðréítingar. Þá flytur Jón Pálmason frv. til laga um samþykktir um friðun rjúpu. Leggur hann til, að sýslu- nefndum verði með lögum heim- ilað að friða rjúpu innan héraðs um lengri eða skemmri tíma, og geti tvær eða fleiri samliggjandi sýslur ákveðið sameiginlega frið- un. í greinargerð segir flutnings- maður: Um það hefir oft verið deilt, hve langt eigi að ganga í því að leyfa rjúpnadráp, og einnig, hver Bstur d Samkvæmt lögum um gengis- skráningu, stóreignaskatt o. fl., nr. 22 1950, 13. gr , svo og bráða- birgðalögum 20. apríl 1953, á að verja 10 milljónum króna af skatti þeim, sem innheimtist samkvæmt lögunum til þess að bæta verð- fall, sem orðið hefur á sparifé ein- staklinga. Landsbanka íslands er með fyrrgreindum lögum falin fram- kvæmd þessa máls. Frestur sá, sem settur var upp- haflega til að sækja um bæturnar, hefur nú, skv. ákvörðun viðskipta- málaráðuneytisins, verið fram- lengdur til næstu áramóta. Hér á eftir er gerð stutt grein fyrir reglum þeim, er gilda um greiðslu bóta á sparifé. SKILYRÐI BÓTARÉTTAR. 1) Bótarétt hafa aðeins ein- staklingar, sem áttu sparifé í spari- fjárreikningum innlánsstofnana eða í verzlunarreikningum fyrir- tækja á tímabilinu 31. desernber 1941 til 30. júní 1946. Innstæður á sparisjóðsávísanabókum eru bótaskyldar, en hinsvegar greið- ast ekki bætur á innstæður í hlaupareikningum og hliðstæðum reikningum. 2) Bœtur greiðast á heildar- spariffáreign hvers aðila í árslok 1941, svo framarlega sem heildar- sparifjáreign hans 30. júní 1946 er að minnsta kosti juínná heild- arupphæðinni á fyrri tímamörk- um. En sé heildarspariféð lægra 30. júní 1946 en það var í árs- lok 1941, þá eru bæturnar mið- aðar við lœgri upphæðina. áhrif það hafi á stofninn. Hefir reynslan sýnt, að á Alþingi geng- ur illa að ná samkomulagi um viðunandi lagasetningu á því efni, því að margvísleg annarleg sjónar- mið grípa inn í. Þeir atburðir ger- ast líka nokkuð oft, að rjúpnadráp er rekið sem þjófnaður, þannig að óviðkomandi menn vaða leyf- islaust um lönd einstaklinga og héraða, og eru mörg dæmi um slíkt virðingarleysi fyrir eignar- rétti landeigenda á þeim sviðum. Þeir, sem hagsmuna hafa að gæta á þessu sviði, eru fyrst og fremst þeir, sem rjúpnalöndin eiga. Má og ætla, að þeir hafi réttari skilning á málinu en aðrir, sem meta það úr fjarlægð. Þess vegna þykir flutningsmanni þessa frumvarps rétt að færa valdið á þessu sviði yfir í hendur héraðs- stjórnanna, og gæti farið vel á því, að svo væri gert á fleiri svið- um. Loks flytur ríkiss'jórnin frum- varp til laga um réttindi og skyld- ur opinberra starfsmanna. Er það allmikill lagabálkur, sem ekki er rúm til að rekja hér, e’n það munu flestir mæla, að slík löggjöf sé fyllilega timabær. Er lagabálkur þessi í IX köflum, alls 38 grein- um, og fylgja honum ýtarlegar athugasemdir. ___,*_____ sporife 3) Ekki eru greiddar bœtur á heildarsparifjáreign, sem var lœgri en kr. 200.00 á öðru hvoru tíma- markinu eða þeim báðum. 4) S/ciIyrði bóta er, að spariféð hafi verið talið fram til skatls á tímabilinu, sem hér um rœðir. Þetta skilyrði nær þó ekki til sparifjáreigenda, sem voru yngri en 16 ára í lok júnímánaðar 1946. 5) Bótarélt hefur aðeins spari- fjáreigandi sjálfur á hinu um- rœdda timábili eða ef hann er látinn, lögerfingi hans. 6) Bótakröfu skal lýsl í síðasta lagi hinn 31. des. 1953, að vio- lögðum kröfumissi, til þeirrar innlánsstofnunar (verzlunarfyrir- tækis), þar sem innstæða var á tímamörkunum, 31. des. 1941 og (eða) 30. júní 1946. Umsóknareyðublöð fást í öll- um sparisjóðsdeildum bankanna, sparisjóðum og innlánsdeildum samvinnufélaga. Sérstök athvgli skal vakin á því, að hver umsækj- andi skal útfylla eitt umsóknar- eyðublað fyrir hverja innláns- stofnun (verzlunarfyrirtæki), þar sem hann átti innstæðu eða inn- stæður, sem hann óskar eftir að komi til greina við úthlutun bóta. Að öðru leyti vísast til leið- beininganna á umsóknareyðublað- inu. Heimilt er að grciða bætur þess- ar í ríkisskuldabréfum. Eftir lok kröfulýsingarfrestsins verður tilkynnt, hvenjer bóta- greiðslur hefjast og hvar þær verða inntar af hendi. Landsbanki fslands.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.