Íslendingur


Íslendingur - 27.01.1954, Qupperneq 7

Íslendingur - 27.01.1954, Qupperneq 7
Miðvikudagui 27. janúar 1954 1 ISLENDINGUR Þýzku Terkfærin komin Snittkassar Rörklúbbar Rörtengur Naglbítar Skrúflyklar Gatatengur Síðubítar Pumputengur Sagarútleggjarar Pakkningahnífar Smiðjutengur Jórnsagir og blöð Skrúfstykki Smergelhjól Þverskerar Bakkasagir Jórnheflar Stólmólbönd, 10 m. Sporjárn Skrúfjárn Hjólsveifar Tré-og járnborir Kjötsöx Axir Hamrar Sleggjuhausar Kíttisspaðar Meitlar Höggpípur Ziklingar Lyklaþjalir Bátasköfur Verzlun Eyjaf jörður h.f. MÁLN I NG Og VEGGFÓÐUR Agstur vetur i fljótum Bílfært úr Reykjavík að Siglufjarðarskarði Saurbæ i Fljótum 5. jan. 1954. Veturinn, sem af er, hefir verið með eindæmum pnldur hér í Fljótum. Oftast auð jörð og þíð. Fé hefir þess vegna verið mjög fóðurlétt hingað til og heyeyðsla í fullorðið íé mjög lltil. Hross hafa ekki koruið í hús. Hinn 30. desember gerði hér hvassviðri af suðvestri með snjóéljum. Felldi veður þetta strigaþakin hey á nokkrum bæjum, og ódrýgðust þau dálítið. Nú um jólin og ný- árið hefir bílfæri verið hér ágætt og skemmtanalíf fólks gengið að óskum. Akfæri hefir verið frá Reykjavík alla leið í Fljót að Siglufjarðarskarði og Lágheiði. Merkisafmæli. Á nýársdag átti merkisbóndinn Þorlákur Stefánsson frá Gauta- stöðum í Stíflu, nú bóndi að Gaut- landi í Vestur-Fljótum, 60 ára af- mæli. Fjörutíu ára starfsafmæli átti Þorlákur þenna dag sem for- P E N S L A R teknir upp í dag — fjölbreytt úrval. Verzlun Axels Kristjónssonar h.f. Brekkugötu 1. Simi 1356 Bsndur! Ný sending af vatnsknúnum MIELE þvottavélum kemur næstu daga. — Sendum gegn póstkröfu. Brynj. Sveinsson h.f. :Sími 1580 Pósthólf 225 söngvari í Barðs- og Hnappa- s'aðakirkjum í Fljótum. Kvæntur er hann Jónu Ólafsdótlur frá Gautastöðum í St.'flu. Á heimili þeirra hjóna var fjölmenni þenna dag, og færðu Fljótamenn afmæl- isbarninu að gjöf vandað stofu- orgel, en í ætt Þorláks eru söng- menn miklir langt aftur í tímann. Þorlákur heldur vel þeim ættar- einkennum. Er söngmaður og org- anleikari. Nálega öll börn þeirra hjóna leika á hljóðfæri. Eru nokkrir bræðranna (10 að tölu) þekktir víða um land undir nafn- inu „Gautlandsbræður“. Á nýársdag var hér óhagstætt veður. Þrátt fyrir það skemmtu menn og konur sér ágætlega á Gautlandi við ræðuhöld, drykkju og dans. Munu einnig þeir, er heima sátu af sveitungum þeirra hjóna hafa hugsað til þeirra þenna dag og óskað þeim heilla og blessunar á komandi æviárum. Jón Guðbrandsson. ALF ERLING 16 Hér og þar FramhalJ aj 2. siðu. sem fæstum orðum um húsnæðis- mál bæjanna, og ekki s'zt fyrir kosningar. Ferill Framsóknarfl. er ekki svo glæsilegur í því efni. Sitja þeir uppi með Bórð? Eins og kunnugt er óskaði Bárður Danielsson, efsti maður á Iista Þjóðvarnarflokksins (Nauðvarnarfiokksins) í Reykja- vík, eftir því að hverfa af listan- um, er blaðið Tíminn hafði borið hann þeim sökum að hafa mis- notað aðstöðu sína sem opinber starfsmaður til hagsbóta fyrir sjálfan sig og þannig ekki reynst sá vörður siðgæðis í opinberu lífi, sem fremstu menn Þjóðvarn- arflokksins teja sig vera. En er farið var fram á við yfir- kjörstjórn að nema nafn Bárðar brott af listanum, neitaði hún, og taldi sig ekki hafa lagaheimild til að þurrka nöfn manna brott, nema um dauðsfall væri að ræða, enda meira en vika liðin frá því kosning hófst, er beiðnin um út- þurrkunina kom fram. Lítur því helzt út fyrir, að listinn verði að sitja uppi með Bárð, þrátt fyrir það að stjórn Þjóðvarnarflokks- ins ællaði „fyrir sitt leyti“ að lofa honum að hverfa! Þola þeir samanburð? Einhver Framsóknarmaður hellir nokkrum fúkyrðum yfir Sjálfs'æðisflokkinn í laugardags- útgáfu Dags hinni síðustu og tel- ur hann „einn harðvítugasta íhalds- og afturhaldsflokk, sem um getur“. Það verður nú orðið mörgum á að brosa, þegar ungir Framsóknarlegátar tala um ihald og afturhald, minnugir þess, að Framsóknarflokkurinn einn skarst úr leik í hinni stórkostlegustu uppbyggingu atvinnuveganna og samgangnanna, sem um getur í sögu þjóðarinnar. Einnig er gam- an að piltinum. þegar hann er að tala um fylgistap Sjálfstæðis- flokksins úr 48% heildaratkvæða í 38%, þótt ÞRÍR NÝIR STJ ÓRNMÁLA FLOKKAR HAFI VERIÐ STOFNAÐIR Á ÞVÍ TÍMABILI. Og ekki hvarflar það að honum að alhuga stöðu síns flokks í því efni, sem er tiltölu- lega sýnu óhagstæðari, þar sem fylgi hans lekur á þessu tímabili úr fullum 30% atkvæða í 21.9%. Vilja enga stefnuskró. Dagur 23. þ. m. kveður 4 stjórnmálaflokka í bænum hafa birt bæjarmálastefnuskrár, og séu öll þau „plögg nauðalík, og vafasamt að almenningur geri nokkurn greinarmun á þeim“. Samt virðist blaðið vera annarrar skoðunar en það lætur, því að það ver löngu máli í að útlista, hve stefnuskrá Sjálfstæðisflokks- ins sé hálfvoig og óafgerandi, þar sem hlutunum sé ekki ákveðið lofað, heldur aðeins lofað „að vinna að“ eða stuðla að ýmsum framkvæmdum eða menningar- málum. Hins vegar minnist blað- ið ekkert á stefnuskrá þeirra flokka, er lofa tugmilljónabygg- ingum og öðrum framkvæmdum á næsta kjörtímabili án þess að benda á tekjuöflunarleiðir sem staðið gætu undir þeim. Þá segir blaðið: „Framsóknar- menn hafa aldrei soðið saman plagg af þessu tagi fyrir bæjar- stjórnarkosningar og munu held- ur ekki gera það nú“. Nei, vissu- lega er auðveldast að hafa enga s'efnuskrá, heldur afgreiða málin „eftir því sem aðstæður leyfa“. Þeim, sem ekki heitir að vinna að neinu framfara- eða menningar- máli né „stuðla að“ nokkrum Bræður myrkursins Það var hávaxinn, þreklegur maður með liðað hökuskegg og leiftrandi augu, sem voru á stöðugu flökti, og gáfu þannig til kynna, að maðurinn væri stöðugt á verði fyrir einhverju. „Sjakalnum“ þótti maðurinn grunsamlegur. Hann vildi því bíða, unz maðurinn færi út úr „Syni Póllands". Það lelð enn nokkur stund, unz knæpunni var lokað og gestirnir hurfu á bro'.t þaðan. Ivan Disna sá, þaðan sem hann lá í leyni, að menn söfnuðust í smáhópa úti fvrir dyrum veitingahússins og kvöddust þar með handabandi, en fóru síðan hver sína leið. Maðurinn, sem Sjakalinn hafði kosið að fylgiast með, gekk nið- ur göluna með nokkrum gestanna, og Ivan Disna fylgdi þeim eftir. Þeir höfðu ekki gengið langt, er maðurinn staðnæmdist og sneri sér við. Með eldingarhraða smeygði Disna sér niður í kjallara- gryfju, sem varð rétt á vegi hans í sama bili, og úr því fylgsni sá lögreglunjósnarinn, að maðurinn, sem sannfærzt hafði um að gatan væri mannlaus, beygði sig niður og stakk hendinni inn í skolp- leiðsluop, er lá frá einu húsinu. Ivan Disna sá hann taka eitthvað út úr skolprörinu og hraða sér með það að næsta götuljóskeri, en mennirnir fylgdu honum fast eftir. Hann rakti pappírsmiða sundur undir Ijósinu og las eitthvað af honum. Síðan sneri hann sér að fylgdarmönnum sínum, og Ivan Disna sá, að hann gaf þeim fyrirskipanir. Nokkrir fylgdarmann- anna héldu niðiur næstu götu, en sjálfur hvarf hann niður pólsku smuguna ásamt einum manni. Disna sá þetta allt saman úr fylgsni sínu, og þegar allt var orðið hljótt í „smugunni“, áræddi hann að fara úr því. Hraðaði hann sér að skolpleiðsluopinu og stakk hendinni inn í það. Það var tómt. — Einn hinna leynilegu bréfkassa Nihilis'anna, tautaði Sjakal- inn. Þetta var þýðingarmikil uppgötvun. — Næst verður það ég, sem tæmi hann. „Bréfakassi Nihilista" var alþekkt hugtak á þeim stöðum, er á- hangendur neðanjarðarhreyfingar Rússlands sóltu sínar fyrirskip- anir í. Nihilistar áttu marga slíka felustaði, og í margs konar furðu- legum formum tóku meðlimir þeirra samtaka við skipunum og að- vörunum þar, sem síðan voru látnar berast. Einn þessara staða var þá skolpleiðslan frá gamla kofanum í pólsku smugunni. Sjakalinn var ánægður yfir þessari uppgötvun, og hann hljóp á eftir mönnunum tveim til að ná þeim, en sá þá hvergi. Ef til vill var hinn leynilegi samkomustaður Nihilis'anna þar í nánd, eða þeir höfðu horfið inn í einhverja hinna þröngu ranghala. Sj akalinn mundi ekki geta veitt bráð sína þá nótt, en hann var glaður yfir þeim niðurstöðum, er hann hafði náð. Það, að finna einn af leynilegu „bréfakössunum“ þeirra Nihilista, var mikilvæg uppgötvun fyrir lögregluna. Og Sj akalinn gekk ánægður heim í herbergi sitt í gistihúsinu. í nótt skyldi hann sjá, hvort „bréfakassinn“ geymdi honum eitthvað nýtt og spennandi. Um miðnætti var Sjakalinn því staddur á ný í pólsku smugunni. Hann stóð við skolpleiðsluopið og Iitaðist um. Eins og að venju var smugan mannlaus, og enginn sá, er Sjakalinn stakk loppunni inn í skolpleiðsluna. Ivan Disna lá við að æpa af fögnuði, þegar hann fann pappírs- miða milli fingra sinna. Hann gekk að ljóskerinu, fletti miðanum sundur og las: í nótt. Göngin undir altarinu. Mikilsverðar fréttir. Greifinn kem- ur. Mætið! Grafhvelfingin.----Innsiglaða bandalagið. Hann kreisti miðann í hendi sér. — Grafhvelfingin, tautaði hann. — Hvað er grafhvelfingin? Og hvar er hún? Hann stóð þarna hugsandi um hrlð, og svo breiddist skilnings- ríkt bros yfir andlit hans. — Ójá, hélt hann áfram að tala við sjálfan sig, — nú veit ég það. Með grafhvelfingunni er aðeins átt við Maríuhvelfinguna, litla bænhúsið utan við borgina. Hm. Skyldi Innsiglaða bandalagið hafa stöðvar sínar þar? Það væri mikil uppgötvun. Hm. Það lítur sem sagt út fyrir, að Oslo greifi ætli að koma í heimsókn í grafhvelfing- una, ef trúa má miðanum. Ætti ég að hringja í Sarkas fursta og láta hann vita um þessa uppgötvun? Eða ætti ég fyrst að njósna á staðnum og kalla á aðstoð, ef ég sé tækifæri á að handsama hættu- legasta óvin ríkisins og keisarans, Oslo greifa? Hann ætlaði að fara til grafhvelfingarinnar til að ganga úr skugga um, hvað aðhafzt væri í bænahúsinu að næturþeli. sköpuðum hlut, verður aldrei brugðið um að hafa gengið á orð s.'n. Og í trausti þessarar vissu ællast Framsókn til, að hinir gömlu fylgismenn sínir kalli hana enn til starfa fyrir bæjarfélagið með hinn gamla húsgang í huga: Komdu kísa mín, kló er falleg þín, og grátt þitt gamla trýn, o. s. frv.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.