Íslendingur


Íslendingur - 28.07.1954, Blaðsíða 8

Íslendingur - 28.07.1954, Blaðsíða 8
T. Kirkjan. Mes:aS í Akureyrarkirkju n.k. sunnudag kl. 11 árd. Séra Jósef Jónsson, fyrrum prófastur að Setbergi Snæfellsnesi messar. Séra Jósef Jónsson, fyrrum prófastur að Setbergi og frú hans eru komin hingað til bæjarins, en séra Jósef hefir verið ráðinn hingað að-toðarprestur næsta mánuð og e. t. v. lengur. Heim- ili hans hér verður að Munkaþverár- stræti 3, s.'mi 1976. Heslamannafél. Léttir fer skemmti- ferð á hestum austur á Flateyjardal um n.k. helgi. Farið verður með hest- ana héðan frá Akureyri á laugardags- morgun kl. 8 og verða þeir reknir au:t- ur í Fnjóskadal. Kl. 13.30 verður farið með fólkið í bíium áleiðis á efiir hest- unum. Þátttakendur gefi sig fram við formann félagsins, Arna Magnússon, eða Guðmund Snorrason, sem gefa nánari upplýsingar um ferðina. Frá Ferðafélagi Akureyrar. Miðviku- daginn 28. júlí n.k. verður kvöldferð í Svarfaðardal og miðvikudaginn 4. ág. til Grenivíkur. Farið verður frá Stefni kl. 8.00. Farseðlar verða að vera teknir fyrir kl. 5.00. Gamalt áheit á Strandarkirkju kr. 120.00 frá S. E. Guðni Þór Ásgeirsson flytur fyrir- lestur um áfenglsmál í Samkomuhús- inu í kvöld kl. 8.30. 100 ára varð 20. þ. m. ekkjan Val- gerður Sigurðardóttir Hraukbæjarkoti í Kræklingahlíð, móðir Valdimars Guð- munds:onar bónda þar og Valmundar járnsmiðs hér í bæ. Er hún nú elzti í- búi Eyjafjarðarsýslu. Valgerður og maður hennar, Guðmundur Árnason, bjuggu lengt að Grísará í Ilrafnagils- hreppi. Áttrœður verður í dag Símon J. Jónsson, fyrrum útvegsbóndi í Gríms- ey. nú til heimilis að Norðurgötu 56 Akureyri. Ekki hefir ellin leikið Símon harðara en það, að hann stundar í sumar sjóróðra f.'á Grímsey á eigin trillubát. ásamt sonarsyni sínum, og mun hafa í huga að halda því áfram fram á níræðisaldurinn. Áttrœður verður 30. þ. m. Jón Jóns- son Geislagötu 35, fyrrum bóndi að Vatnsenda í Eyjafirði. Áttrœður verður 2. ágúst Páll Mark- ússon Norðurgötu 32. Fimmtugur verður á föstudaginn 30. júlí, Sveinn Tómasson varaslökkviliðs- stjóri Laugargötu 3. Hjúskapur. Ungfrú Solveig Kristj- ánsdóttir verzlunarmær og Einar M. Gunnlaugsson verzlunarmaður. Ungfrú Margrét Magnúsdóttir hjúkr- unarkona og Valgerður Ilaraldson kennari. Ungfrú Stefania Arnadóttir (frá Hjalteyri) húsmæðrakcnnari Reykja- vík og Bjarni Magnússon viðskipta- fræðingur Akurf:yri. Dánardægúr. Nýlega lézt hér í sjúkrahúsinu írú Dagný Bogadóttir, húsfreyja á Suirhamri í Eyjafirði, rúm- lega fimmtug. Ungfrú Guðrún Stefánsdóttir (Guðnasonar læknis) hefhr nýlega lok- ið prófi í blaijamennsku við háskóla í Bandaríkjuni'j.n og var jafnf.-amt sæmd melstaranafnb 5t (Ma:ter of Sciense). Guðrún tók stúdentspróf við Mennta- skólann á Akureyri vorið 1949 og lauk B.A.-prófi viíi háskólann 1952. tcudi«ðw Miðvikudagur 28. júlí 1954 Frá aðalfundi Leikfélag:§ Akureyrar Vignir Guðmundsson kjörinn formaður Aðalfundur Leikfélags Akur- eyrar (fyrri hluti) var haldinn í „leikhúskjallaranum“ (hinum gömlu bæjarskrifs'ofum) 16. þ.m. Formaður félagsins, frú Sigur- jóna Jakobsdóttir, gaf skýrslu yf- ir starfsemi félagsins á liðnu leik- ári, en afkoma félagsins varð sæmileg, vegna ágætrar aðsóknar að „Skugga-Sveini", er félagið tók til sýningar. Tvö verkefni iók félagið fyrir á leikárinu: Fjöl- skylduna í uppnámi, þýddan gam- anleik, undir leikstjórn Guðmund ar Gunnarssonar, og hinn vinsæla og klassiska leik Skugga-Svein, undir leikstjórn Jóns Norðfjörð. Var aðsókn að honum meiri en nokkru sinni áður og meiri en að ^ nokkrum öðrum leik, er félagið hefir sýnt. Alls voru á árinu 31 leiksýning og 7 þús. sýningargest- ir. Auk þessara sýninga lék félag- ið tvívegis í útvarpið (Johan Ulfstjerne, leiks'j. Jón Nqrðfjörð og Melkorka e. Kristínu Sigfús- dóttur, leikstj. Agúst Kvaran). Við stjórnarkjör baðst frú Sig- urjóna Jakobsdóttir undan endur- kosningu eflir tveggja ára for- mennsku í félaginu, og var Vignir Guðmundsson tollvörður kjörinn formaður félagsins fyrir næsta ár. í s’að Júlíusar Ingimarssonar, sem er fluttur úr bænum, var kjörin frú Sigríður Pálína Jóns- dóttir, en aðrir í stjórn voru end- urkjörnir, þeir: Björn Þórðarson ritari, Sigurður Kristjánsson gjaldkeri og Oddur Kristjánsson. Varaformaður var kjörinn Jón Kristinsson og varameðstjórnend- ur frú Björg Baldvinsdóttir og Jón Ingimarsson. Að fundarlokum þökkuðu Vignir Guðmundsson, Björn Þórð arson og Jón Ingimarsson fráfar- andi formanni, frú Sigurjónu Jakobsdóttur, vel unnin störf í þágu félagsins um langt árabil, en frúin þakkaði gott samstarf á stjórnaráruin sínum og árnaði fé- laginu heilla um alla framtíð. Leikfélag Akureyrar hefir tekið á leigu hið gamla húsnæði bæjar- skrifstofanna í kjallara leikhúss- ins, og mun með því bætt úr vandræðum félagsins um húsnæði fyTÍr starfsemi sína, svo sem sam- lestur leikrita og fyrstu æfing- ar m. m. Viii tifllin við Húidvej) í sumar hefir norskur vega- verkfræðingur athugað vegar stæði fyrir Ólafsfjarðarmúla að tilhlutan Sveinbjarnar Jónssonar byggingameis'ara, og er álit frá honum væntanlegt á hverri stundu. Jarðýta er um þessar mundir að ryðja veg Ólafsfjarðar megin í múlanum, og er gert ráð fyrir, að hún ryðji inn að Ófæru- gjá ef þær 50 þús. kr. hrökkva til þess, sem ætlaðar eru til þessa verks af vegafé á þessu ári. Hafa Ólafsfirðing ar fullan hug á að hrinda þessari vegagerð í fram- kvæmd til að stytta sér leiðina til Akureyrar. Dauft ylir síldveiðiuni Aflamagn svipað og í fyrra, en minna að verðmæti Gfluifllt fólh I shcmmti- fcrð dú IdHfflsi Kvennastúkan „Auður“, sem undanfarin sumur hefir boðið gömlu fólki úr bænum til skemmtiferðar, bauð því síðast- liðinn fimmtudag að Laufási við Eyjafjörð. Oddfélagar úr stúkunni Sjöfn, er bifreiðar áttu, lögðu til farartækin og óku gamla fólkinu. Voru 18 bílar í ferðinni og um 60 gamalmenni, sem boðin voru. Var fyrst ekið að Laufási og gamli bærinn og kirkjan skoð- uð, en í bakaleið var s'aðnæmst við samkomuhús Svalbarðsstrand- arhrepps, þar sem Auðarsystur buðu upp á veitingar af mikilli rausn. Veður var hið bezta, og lét gamla fólkið mjög vel yfir för- ínni. BREZKT OFBELDI FYRIR 30 ÁRUM Annáll Islendings Fólksbíll með biluðum hemlum renn- ur aftur á bak niður í Miðfjarðará. Maður, sem kom að í jeppa, bjargar mönnunum með snarræði, og voru þá tveir meðvitundarlausir. Fluttir til læknis að Hvammstanga og hjörnuðu þar við. * Eldur kemur upp í vörugeymslu í húsi í Reykjavík, sem fljótt er slökkt- ur, en á efri hæð húszins finnst með- vitundarlaus maður, er deyr skömmu síðar af kolsýrlingseitrun. Hafði reyk lagt upp á hæðina með miðstöðvarrör- um. Ungur maður jálar að hafa kveikt í vörubirgðunum, sem hann átti sjálf- ur, en hann var í fjárkröggum, en trygging varanna há. Maðurinn var við öl, en kvaðst liaía álitið húsið mann- laust. * Framkvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, Ismay lávarður, keinur í heim- sókn lil Reykjavíkur. * Iðnaðarbanki íslands h.f. opnar úti- bú á Keflavíkurflugvelli. * Mikið hlaup kemur í Skeiðará, og leggur þaðan brennisteinsfýlu víða um land, en fuglar drepast af eimnum. Ekkert eldgos fylgdi hlaupinu. * Hemlalaus langferðavagn ekur á 4 bifreiðar við Elliðaárbrú, og stór- skemmdust flestar. * Hús við Lindargötu í Reykjavík stórskemmist af eldi. Manni bjargað meðvitundarlausum af efri hæðinni, en kemur til sjálfs sín eftir 15 mín. lífg- unartilraunir, þó nokkuð brenndur. * íbúðarhúsið að Skeggjastöðum í Fellum brennur. Innbú bjargast að miklu leyti. * Maður verður bráðkvaddur í Sund- höll Ilafnarfjarðar, er hann þreytir sundraun norrænu sundkeppninnar. Var bilaður á hjarta. * Drengur í Fljótshlíð fellur út úr bif- reið föður síns og lendir undir henni. S. 1. laugardag höfðu veiðst tæpl. 108 þúsund mál síldar í bræðslu, 33856 tunnur í salt og 4666 tunnur í frystingu. Er það svipað aflamagn og á sama ííma í fyrra, en þar sem meginhluti aflans hafði þá verið saltaður, var verðmæti hans meira en nú. er mikill meirihluti hefir verið bræddur. Síðan um helgi hefir l til eða engin veiði verið vegna óhagstæðs veðurs. Þrjú aflahæstu skipin voru Snæfell með 3709 mál og tunnur, Jörundur með 3274 og Baldur Dalvík með 2569. Yfir 2 þús. mál og tunnur höfðu auk þess Súlan (2089), Bára Flateyri, Kári Söl- mundarson og Sigurður Siglu- firði. Afli Akureyrarskipanna, sem ekki hafa áður verið nefnd: Akraborg 1363 mál og tunnur, Auður 1233, Njörður 706 og Sæ- finnur 813. Ingvar Guðjónsson hafði 1187 mál og tunnur, Garð- ar Rauðuvík 1367, Gylfi s.st. 1083, Vörður Grenivík 1633 og Vonin 867. Hlutur eyfirzku skip- anna er sýnu betri en annarra, þar sem 4 þeirra eru meðal 7 afla- hæstu skipanna, þar af 3 afla- hæstu skipin. 190 skip munu nú farin til síld- veiða, og höfðu 122 þeirra feng- ið 500 mál og íunnur eða meira um helgina. Krossanes. Krossanesverksmiðjan hefir nú tekið á móti ca. 9500 málum í bræðslu af 7 skipum, er þar leggja upp afla sinn. Auk þess hefir bát- ur Karls Friðrikssonar ú'gerðar- manns lagt þar upp á 3. hundrað mál af smásíld, sem hann hefir undanfarna daga veitt á Akureyr- arpolli og í Oddeyrarál. * Dolctor Sigurður Helgason (Skúla- sonar augnlæknis) hefir verið ráðinn stærðfræðikennari við einn stærsta og kunnasta verkfræðihá kóla Bandar.kj- anna, „Massaschusetts Institute of Technology", t(l eins árs. Sigurður var annálaður námsmaður og lauk nýlega doktorsprófi í stærðfræði. í íslendingi er svohljóðandi fréltapis’ill þann 1. ágúst 1924: „OFBELDI. — Blaðið Vestur- land segir 21. f. m. frá ofbeldi, er gæzluskip Vestfjarða, m.b. Enok, hafði orðið fyrir 2 dögum áður af enskum togara, er hann hitti við veiðar í landhelgi. Enok setti slýrimanninn og tvo háseta upp á togarann. En togarinn neitaði að hlýða og sigldi burt. Síðar kom hann við á Hesteyri og vildi koma mönnunum af sér. Hásetarnir fóru þar í land, en stýrimaðurinn af Enok neitaði að yfirgefa skipið, og fór það þá með hann áleiðis lil Englands. Varðskipin Fylla og Þór voru send til þess að leita að togaranum, en án árangurs. Tog- arinn heitir Lord Carson og cr frá Grimsby.“ Happdrœtti Landgrœðslusjóðs. Upp komu þessi númer: 327, 2348, 17815, 22313, 22717, 33046, 33333, 35577 og 26223. Birt án ábyrgðar. Athygli skal vakin á því, að rakara- stofur bæjarins vcrða lokaðar n. k. mánudag og þriðjudag, 2. og 3. ágúst. Bíður bana samstundis. * Guðmundur S. Guðmundsson verður Islandsmeislari í skák. Frlðrik Olafs- son tók ckki þátt í keppninni um meistaratitilinn, þar eð hann var ó- kominn af alþjóðarnótinu í Prag, er keppnin hófst. * Guðmundur Thoroddsen prófessor, fyrrum yfirlæknir Landsspítalans, ræð- ur sig sem skurðlækni til Grænlands um nokkurra mánaða skeið. * Skipverji á togaranum Ólafi Jóhann- essyni Patreksfirði fellur af brúarvæng togarans og höfuðkúpubrotnar. Minkur á leið til Eyjaffarðar. Laug- ardaginn 17. þ. m. kom Valur Þpr- geirsson brunavörður í Reykjavík á lögregluvarðstofuna hér með dauðan mink, er hann kvaðst þann sama morgun hafa unnið skammt frá þjóð- veginum vestan við Bakkasel. Lítur út fyrir, að minkurinn hafi verið í sumar- leyflsför á eyfirzkar slóðir, en slík loð- kvikindi eru engir aufúsugestir norður hér.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.