Íslendingur

Tölublað

Íslendingur - 25.01.1956, Blaðsíða 1

Íslendingur - 25.01.1956, Blaðsíða 1
XLII. árg. Miðvikudagur 25. jan. 1956 4. tbl. Reglugcrð nm ðtrýmingu heilso- SDillandi hMis Framkvæmdir faldar Húsnæöismálastjórn Félagsmálaráðuneytið hef- ur hinn 10. þ. m. gefið út reglugerð um útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Er reglugerð þessi sett samkvæmt II. kafla laga um húsnæðis- málastjórn, veðlán til íbúða- bvgginga og útrýmingu heilsu spillandi íbúða. Samkvæmt xeglugerð þess- ari skal húsnæcTismálastjórn af hálfu ríkisvaldsins vera að- ili að ráðstöfunum til útrým- ingar heilsuspillandi íbúðum, þar með taldir herskálar, og hafa um það samvinnu við bæjar- og hreppsfélög, er heita sér fyrir slíkum fram- kvæmdum. Húsnæðismálas'jórn skal beita sér fyrir því, að sveitar- félög safni sem ýtarlegustum skýrslum um það, hversu mik ið heilsuspillandi húsnæði sé notað til íbúðar og með hvaða hætti og á hve löngum tíma hlutaðeigandi sveitarfélög telja auðið að útrýma því. Sveitarfélög, sem hafa á- kveðið að gera ráðstafanir til útxýmingar heilsuspillandi íbúðum og óska eftir að njóta aðstoðar ríkisvaldsins, skulu Boðinn til Indlands Nóbelsverðlaunahöfundin- um Halldóri Kiljan Laxness hefir verið boðið að heim- sækja Indland sem gestur rík- isstjórnarinnar. Ekki mun fullráðið, hvort Kiljan tekur boðinu. sækja um slíka aðstoð til hús- næðismálastjórnar. Með umsóknum þessum skulu fylgja eftirtalin gögn: a. Kostnaðaráætlun fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir ásamt teikningum. b. Upplýsingar um það, hvenær framkvæmdir hafa hafizt og munu hefjast og hvenær þeim skuli ljúka. Taka skal fram á hvaða stigi slíkar framkvæmdir kunna að vera, þegar umsókn er send. c. Upplýsingar um, hvaða húsnæði á að útrýma, lýsing á því svo og hversu margt fólk býr í því húsnæði. d. Ef um annað húsnæði er að ræða en herskála, vott- orð viðkomandi héraðslækn- is, í Reykjavík borgarlæknis, um að húsnæði það, sem út- rýma á, sé heilsuspillandi. Nú samþykkir húsnæðis- málastjórnin áætlanir sveitar- félaga um útrýmingu heilsu- spillandi húsnæðis, og getur hún þá veitt lán af því fé, sem ríkissjóður leggur fram í þessu skyni, þó eigi hærra en nemur samanlögðu framlagi og láni frá hlutaðeigandi sveit arfélagi. Slík lán skulu veitt til 50 ára með 4% ársvöxtum og skulu vera jafngreiðslulán. Afborganir og vextir af lán- um þessum skulu renna í varasjóð hins almenna veð- lánakerfis. Skal veðdeild Landsbanka íslands sjá um afgreiðslu lánanna, innheimtu og reikningshald. Lán, sem veitt eru sam- kvæmt reglugerð þessari, skulu veitt sveitarfélögum, og er þeim heimilt að verja þeim. A. Til bygginga íbúða, er síðan verði seldar einstakling- um, fullgerðar eða ófullgerð- ar. B. Til byggingar leiguhús- næðis. Ef um fyrra tilfellið er að ræða, skulu eftirfarandi regl- ut' gilda um íbúðina. unz lán ríkissjóðs er greitt að fullu: Framhald á 2. síSu. I. A. neitað um »Nm oý koiu< til sýningir Leikfélag Akureyrar hefir haft hug á því, að taka sjón- leikinn „Mann og konu“ eftir Emil Thoroddsen til sýningar nú á næstunni, og var vali í hlutverkin langt komið, að því er formaður félagsins hefir upplýst. Var sótt um leyfi fyrir sýningu hans til Þjóðleikhússins fyrir nokkr- um vikum, en það ekki feng- izt, og mun því ekki geta orð- ið af sýningu hans. Kvað for- maður ekki tímabært að skýra frá frekari fyrirællunum fé- lagsins. Eins og kunnugt er, sýnir Þjóðleikhúsið Mann og konu um þessar mundir, og verður ekki séð, að sýning leiksins hér hefði dregið nokkuð frá Þjóðleikhúsinu. Þurfti L. A. ekki að leita til þess með leik tjöld eða búninga, sem komið gæti í bága við sýningar þess syðra. Það er þó á allra vit- orði, að Leikfélag Akraness hafði sýningarleyfi og liefir sýnt Mann og konu undanfar- ið, en ætla má, að sýning þar gæti fremur dregið úr aðsókn hjá Þjóðleikhúsinu en þótt leikurinn væri sýndur norður á Akureyri. Einhvern tíma mun því hafa verið haldið fram, að Þjóðleikhúsið ætti m. a. að greiða fyiir leiksýningum fé- laga úti um land, en eftir þess- um fregnum að dæma virðist það mjög hafa misskilið það hlutverk sitt. '\ .... • ....... 'V.Vfl Hér sézt lœknir bera auromychin í augu drengs, sem hald- inn er hinum útbreidda augnsjúkdómi „trachoma“, en liann er landlægur í Marokkó. Læknar frá Alþjóðaheilbrigðis- stofnuninni hafa á þrem sumrum tekið til lækninga 340 þús- und manns, sem lialdnir voru þessum sjúkdómi. lursen hejir I vinning yfir í hílfnuiri heppni Skákeinvígi Friðriks og Larsens aðal- umræðuefnið um land allt r Shdhíélags Ahureyror Skákfélag Akureyrar hélt aðalfund sinn 16. þ.m. Formaður var kosinn Jón Ingimarsson, ritari Haraldur Ólafsson, gjaldkeri Friðgeir I'iguibjörnsson. Áhaldavörður Anton Magnússon og spjald- skrárritari Guðmundur Eiðs- son. Varaformaður Júlíus Boga- son, vararitari Ilaraldur Bogason og varagjaldkeri Margeir Steingrxmsson. Gert er íáð fyrir að félagið tefli bi'áðlega símskák við Taflfélag Húsavíkur. Skákeinvígi þeirra meist- ara Friðriks Ólafssonar og Bent Larsens um skákmeist- aratitil Norðuxlanda hófst í Sjómannaskólanum í Reykja- vík 17. þ .m., og var svo margt áhorfenda fyrsta kvöldið, að maigir urðu frá að hverfa, cn húsrými mun vera þar fyrir 700 manns. Aðstaða til að fylgjast með skákunum, er mjög góð. Um allt land er fylgst með þessu einvígi, og má víða sjá uppsett taflborð á heimilum, skrifstofum og hverskonar öðrum vinnustöðv- um, þar sem taflstaða bið- skákar er athuguð og rædd, en útvarpið hefir í fréttum sínum lesið leikina jafnótt og fréttir berast af einvíginu. Larsen harður í horn cð íalca. Það kom fljótt í ljós, að hinn tvítugi skákmeistari Dana er enginn aukvisi í skákmennt og skák'ækni. Og er keppnin var hálfnuð í fyrrakvöld liafði hann 2Vz viiming gegn lVá, og voru þá margir fainir að spá honum öruggum sigri. Fyrsta og þriðja skákin (Larsen hafði hvítt í báðum) fóru í bið og voru tefldar á laugardaginn, og vann Larsen báðar. Aðra skákina vann Friðrik með yfirburðum, en sxi fjórða, er tefld var í fyrra- dag varð jafntefli. Næsta skák verður tefld annað kvöld, en Framhald á 2. síðu. AKUREYRARBÆR GEFUR f FRIÐRIKSSJÓÐ Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti á síðasta fundi sínum tillögu, flutta af Jóni Sólnes, Þorst. M. Jónssyni og Stein- dóri Steindórssyni, unx að ^veita Friðriki Ólafssyni skák- meistara 5 þús. kr. heiðurs- | gjöf vegna hinnar frábæru I frammistöðu á Hastingmól- ; inu.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.