Íslendingur - 25.01.1956, Blaðsíða 2
2
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 25. jan. 1956
Úr Skagafirði:
»Ofan gefur snjó li snjó«
Sauðarkróki 23. jan. 1956. j
Hér er fátt til titla og ííð-
inda og sízt það er fréttnæmt
sé til fjarlægra staða. Deyfð
skammdegisins grúfir ennþá
yfir mönnum og málleysingj-
um. Þeir, sem einhver inni
eiga, halda sér til þeirra. Ó-,
sjúkt og mannheilt má þó ^
heita yfirleitt. En athafna-
semi úti við má lílil íeljast.
Engri fleytu ýtt á sjó, engin ^
branda þaðan fengin. Helzt
eru þeir athafnasamir Norðri^
og Snjólfur, og eru fæstir
hrifnir af, nema þá helzt
Þorri, sem í dag gengur í
garð. „Ofan gefur snjó á
snjó“ daglega. •— Þá má þó
eigi síður geta þess frá sjón-
armiði hins bjartsýna manns,
að sólin blessuð hefir fyrir
hér um bil þrem vikum aftur
birzt í dýrð sinni. Og nú þeg-
ar gengur hún það hátt, að
hún krýnir Mœlihnjúk á sig-
urgöngu sinni vestur yfir há-
lendi Skagafjarðardala. En
brátt verður hún einnig yfir
þá krýningu hafin, því að:
„Alltaf hærra en í gær, upp á
loftið sólin rennur.“
Ur lífi „mannfélagsins“
hér (sbr. orðalag vestur-ísl.
blaðanr.a) skal þó getið einna
tíðinda:
Torfi Bjarnason læknir er
burtfluttur úr Skagafirði til
Akraness, ásamt fjölskyldu
sinni.
Héraðslæknir 03
fjölskylda hans kvödd.
Torfa lækni Bjarnasyni og
fjölskyldu hans var haldið
kveðjusamsæti á Sauðárkróki
11. þ.m. Hófst það með því að
kirkjukór Sauðárkróks söng í
Sauðárkrókskirkju fullskip-
aðri eftir fullri söngskrá und-
ir stjórn Eyþórs Stefánssonar,
en læknisfrúin, Sigríður Auð-
uns, aðstoðaði með undirleik
á slaghörpu. Sig. P. Jónsson
söng einsöng með tveim lið-
um söngskrárinnar. í sönghléi
var frú Sigríði færður fagur
blómvöndur frá Kirkjukórn-
um og karlakórnum Heimi.
En þá kóra báða hefir frúin
mjög oft aðstoðað á undan-
förnum árum með undirleik
sínum og á annan hátt. •— I
lok söngsins afhenti söngstjóri
Sigríði myndabók af listaverk
nm Einars Jónssonar.
Var þá gengið til Bifrastar
til samsætis þar og kaffi-
drykkju. Bæjarstjóri, Björgv-
in Bjarnason veizlustjóri, á-
varpaði heiðursgestina með
ræðu. — Voru þarna mættir
um 209 manns, flestir af
Sauðárkróki, því að margir
héraðsbúar, sem við var bú-
izt, gátu eigi mætt sakir hins
mikla fannkingis. Ræður voru
þarna flu tar margar og ýms- '
ar snjallar. Stjórnaði Eyþór!
Stefánsson fjöldasöng á milli |
ræðuhalda. Var lœkni þakkað
fyrir dugnað og samvizku-
semi í erfiðum læknisstörfum
hins víðlenda héraðs í 17 ár.
Ennfremur fyrir störf hans í
Rauða krossinum hér og fyrir
ýmis önnur félög á staðnum,
og þá einnig fyrir bæjarstjórn-
arstörf. En forseti bæjar-
stjórnar hefir hann verið síð-
ustu árin. Var honum fært
mikið og fagurt málverk af
Skagafirði, gjört af Sigurði
Sigurðssyni listmálara frá
Sauðárkróki. Er það aðallega
gjöf frá Rotaryklúbb Sauðár-
króks, er hann hefir starfað í,
og um skeið sem forseti hans.
Læknisfrúnni var þá og gold-
in heil þökk fyrir margvíslega
lijálp og þátttöku í félagsmál-
um hér ýmsum. Sérstaka þökk
færðu henni sóknarpresturinn
og formaður sóknarnefndar
fyrir mikið og fagurt hljóm-
listarstarf hennar í söfnuðin-
um, bæði í samvinnu við söng
stjóra og organleikara kirkj-
unnar, og fyrir stjórn hennar
oftlega á þessum málum í
fjarveru og öðrum forföllum
hans. — Að lokum þakkaði
læknirinn, frú hans og eldri
dóttir með ræðum. — Fylgir
hlýhugur og þökk kaupstað-
ar- og héraðsbúa læknisfjöl-
skyldunni við búferlaflutn-
inginn, og fram á leið — inn
i hið óþekkta.
/. Þ. Bj.
StÁifiriðdrmót Ahure/rar
Síðastliðinn sunnudag fór
fram skíðamót í Búðargili og
var keppt í 2 flokkum. Urslit
urðu þessi:
A og B jl. (9 keppendur):
1. Skjöldur Tómasson 34.0
sek. 2. Kristinn Steinsson 34.8
sek. 3. Valgarður Sigurðsson
35.3 sek. 4. Gísli B. Hjartar-
son 36,3 sek. 5. Hjálmar Stef-
ánsson 38.3 sek. 6. Reynir
Pálmason 40,4 sek.
C-jlokkur (10 keppendur):
1. Matthías Gestsson 32.1 sek.
2. Gunnl. Sigurðsson 32.6
sek. 3. Tómas Sigurjónsson
34.0 sek. 4. Ottó Tulinius
43.3 sek. 5. Stefán Jónasson
48.6 sek. 6. Jóh. Haraldsson
53.5 sek.
Auglýsið í íslendingi.
Reglugerð
Frnmhald af 7. sitfu.
a) Ef eigendaskipti verða
að íbúðum þessum, skal hlut-
aðeigandi sveitarfélag eiga
forkaupsrétt að hinni seldu í-
búð, og er því skylt að leysa
íbúðina til sín og selja hana
eða leigja eftir reglum 6. gr.
reglugerðar þessarar, sbr. 3.
mgr. þessarar greinar. Sölu-
verð slíkrar íbúðar má ekki
vera hærra en síðasta kaup-
verð hennar að viðbæ:tri verð
hækkun, sem orðið hefir sam-
kvæmt vísitölu byggingar-
kostnaðar á þeim hluta kostn-
aðarverðs íbúðarinnar, sem
fallið hefir í gjalddaga og ver j
ið greiddur af seljanda, þegar
sala fer fram. Ennfremur skal
bæta við virðingarverði
þeirra endurbóta, sem gerðar
hafa verið, meðan íbúðin var
í eigu seljanda, og draga frá
hæfilega fyrningu, hvoru
tveggja samkvæmt mati dóm-
kvaddra manna. Fyrir endur-
bætur skal þó ekki greiða
meira en kostað hefir að full-
gera samsvarandi íbúð. Ekki
má leigja slíka íbúð eða hluta
hennar án samþykkis sveitar-
stjórnar, sem hefir forleigu-
rétl.
b) íbúðir þessar má aðeins
selja þeim, sem búa í heilsu-
spillandi húsnæði, enda verði
það jafnframt tekið úr notk-
un, sbr. 7. gr. reglugerðar
þessarar.
Ef um byggingu Ieiguhús-
næðis er að ræða, skulu eftir-
farandi reglur gilda um það,
unz lán ríkissjóðs er að fullu
greitt:
a) Leiga eftir húsnæðið má
ekki vera hærri en sem nemur
afborgunum og vöxtum þeirra
lána, sem á íbúðinni hvíla, og
kostnaði vegna eðlilegs við-
halds.
b) Leiguhúsnæði má aðeins
leigja þeim, sem búa í heilsu-
spillandi húsnæði, enda verði
það jafnframt tekið úr notkun,
sbr. 7. gr. reglugerðar þess-
arar.
Sveitarfélögum er skylt að
láta þær fjölskyldur, er í lök-
ustu húsnæði búa og mesta ó-
megð hafa eða eiga sam-
kvæmt vottorði læknis við
verulega vanheilsu að stríða,
sitja fyrir við úthlutun þes^
húsnæðis, sem byggt er sam-
kvæmt reglugerð þessari.
Lán samkvæmt 4. gr. korm
ekki til úthlutunar fyrr en við
komandi ónothæft húsnæð
hefir verið tekið úr notkun
samkvæmt vottorði viðkom-
andi lögreglustjóra, enda sé
húsnæði það, sem lánað er
ti]; orðið íbúðarhæft sam-
kvæmt vottorði matsmanna
hins almenna veðlánakerfis.
Oheimilt er að taka aftur til
Dýrt að byggja
í síðustu Hagtíðindum ei gerð grein fyrir bygginga-
kostnaði og byggingavísitölu, er þar kvað vera 904.
Koslnaður við byggingu húss er sundurliðaður og bor-
inn saman árin 1939 (1954) og 1955.
Skulu hér teknar upp tölurnar frá 1939 og 1955:
1939 1955
Trésmíði 3375,00 52249,00
Múrsmíði 4684,00 43691,00
Erfiðisvinna og akstur .. 4004,00 52247,00
Málun 1309,00 13492,00
Raflögn 2415,00 18463,00
Miðstöð, eldf 4964,00 27626,00
Veggfóðrun og dúkur . . 2002,00 11373,00
Járn. vír 0. fl 2328,00 11667,00
Hurða- og gluggajárn, saumur, gler 0. fl 689,00 5596,00
Timbur 1975,00 16314,00
Hurðir og gluggar .... 1275,00 10119,00
Sement 2623,00 18777,00
Sandur og möl 563,00 11041,00
Ymislegt 1077,00 8272,00
Af hinum einstöku kostnaðarliðum eru þrír hinir
fyrstu hreinir vinnuliðir, 4 næstu blandaðir (efni og
vinna), 6 næstu hreinir efnisliðir, en hinn síðasti
blandaður, eins og segir í skýrslu Hagtíðinda.
Skákeinvígið
Framhald af 1. síðu.
á morgun verður Friðrik 21
árs.
Fer hér á eftir 2. skák ein-
vígisins:
Friðrik: Larsen
Hvítt. Svart.
1. e2-e4 c7-c5
2. Rgl-Í3 d7-d6
3. d2-d4 c5xd4
4. Rf3xd4 Rg8-f6
5. Rbl-c3 a7-a6
6. Bfl-c4 Dd8-c7
7. Bc4-b3 e7-e6
8. 0-0 Rb8-c6
9. a2-a3 Bc8-d7
10. Kgl-hl Bf8-e7
11. f2-f4 0-0
12. Í4-Í5 Rc6xd4
13. Ddlxd4 b7-b5
14. Dd4-d3 Dc7-b7
15. Bcl-g5 Ha8-e8
16. Dd3-h3 e6xf5
17. e4xf5 Bd7-c6
18. Hal-dl h7-h6
19. Bg5-e3 Be7-d8
20. Be3-d4 a6-a5
21. Hdl-d3 b5-b4
22. a3xd4 a5xb4
23. Hd3-g3 Kg8-h7
24. Rc3-dl Bc6-b5
25. Hfl-gl Bd8-b6
26. Bd4xf6 g7xf6
27. Dh3-h4 He8-e4
^8. Dh4xf6 Hf8-g8
29. Hg3-h3 Hg8-g6
J0. f5xg6f f7xg6
31. Df6-f8 gefið.
búðar húsnæði, sem tekið
hefir verið úr nolkun sam-
kvæmt reglugerð þessari,
íema fyrir liggi vo'.torð hér-
aðslæknis (í Reykjavík borg-
arlæknis) um, að það sé eigi
iengur heilsuspillandi.
Fréttir frá S Þ
Norskir læknar, hjúkrunar-
konur og tæknisérfræðingar,
sem starfað hafa á vegum S.Þ.
í Kóreu, hafa gengizt fyrir
byggingu barnaspítala í Seo-
ul. Spítalinn hefir rúm fyrir
30 börn. Nýlega komu fyrstu
17 sjúklingarnir. Þeir voru á
aldrinum 2—12 ára.
X
Hreinar tekjur Alþjóða-
bankans sl. fjárhagsár námu
6,2 milljónum dollara (5,4
milljónir dollara árið áður).
Kostnaður við rekstur bank-
ans nam 9 milljónum dollara.
X
Suður-Kórea hefir gerst'
meðlimur í Alþjóðabankan-
um og Gjaldeyrissjóðnum.Eru
meðlimir þá samtals 58 þjóð-
ir.
X
Á fyrstu sex mánuðum
þessa árs nutu 17 milljónir
barna aðstoðar frá Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF).
X
Tuttugu prósent meiri bóm-
ull og hrísgrjón er nú fram-
leitt í heiminum en fyrir
stríð. Framleiðsla hveitis,
feitmetis og kjöts er 30%
meiri, 50% meira er fram-
leitt af sykri og 80% meira
gúmmí.
— Haldið þér, að það sé til 6•
heilla að gifta sig á föstudegi?
— Auðvitað. Iiví skyldu föstu•
dagar vera nokkur undantekn-
ing?
*
— Það sem þér þarfnist, frú,
er dálítil tilbreyting.
— O, það er ekki hægt, lœkn-
ir, hann Guðmundur er svo af-
brýðisamur.