Íslendingur - 23.06.1956, Síða 6
6
ÍSLENDINGUR
Laugardagúr 23. júní 1955
f / ■ / -l* -l. OG '\
mm
Mp@L,-~
> «
Hátíðahöld
blaðanna,
Stærsta blað landsins, Morgun-
blaðið, var 21 síður 17. jiíní, og
var þar hvergi orði hallað á
flokka, blöð eða menn í tiiefni
kosningabaráttunnar. Hin blöðin
öll héidu upoi hinu hversdagsleg \
aurkasti, en bezt mun Timauum
hafa tekizt við „hátíðahöldin".
Var hann 32 síður, og þótt meg-
inrúm hans væri fylit hinuin
venjulegu auglýsingum kaupfé-
laganna um land alit á þeim degi,
notaði hann afgangs-rúmið vel til
að sletta auri úr pennum rithöf-
unda sinna yfir andstæðingana
jafnt i óbundnu máli sem bundnu.
Enginn skiidi því ugga um, að
háttvísin verði biaðinu að bana-
meini.
? ?
í þjóðhátíðarleiðara Tímans
segir:
.... Bandaríkin munu teljd
það hagstætt fyrir sig, ef Sjálf-
stæðisfiokkurinn, sem hefir nú
gerzt ógrírnuklœddur málsvari
langvarandi hersetu, sigrar í
kosningunum. Sovétríkin munu
hins vegar telja það hagstætt sér,
ef Alþýðubandalagið hiýtur
meira fylgi en Sósíalistaflokkur-
inn hafði 1953. Stefna þess er
nefnilega að slíta sem mest tengsl-
in við vesturlönd og gera ísland
liáð austurbiökkinni viðskipta-
lega og efnahagslega. Stefna þess
er að gera ísland að austrænu
leppríki.“
Nú hljóta menn að spyrja:
Hvað eru þeir að ráðast á með-
reiðarmenn 6Ína í varnarmálun-
um? Studdu ekki þeir þingmenn,
er síðar gengu í Alþýðubandalag-
ið, Framsóknarflokkinn dyggilega
í síðustu ákvörðunum hans í
varnarmálunum? Varð ekki vilji
Hræðslubandalagsmanna og
kommúnista að einum vilja í því
máli?
Og hverjir eru það þá, sem
æskja Hræðslubandalaginu 6Íg-
urs í kosningunum? Það 6kyldu
þá ekki vera Suður-Ameríku-
menn?
Leyfði sér að tala
um bæjarmál!
Alþýðumaðurinn segir frá út-
varpsumræðum frambjóðend-
anna á Akureyri sl. mánudag3-
kvöld, og er hann stórhneykslað-
ur yfir því smekkleysi Jónasar G.
framkvæmdir hér í bænum og
önnur bæjarmál, rétt eins ig hann
vildi láta þakka sér fyrir að hafa
ekki „lagzt gegn“ þeim! Það var
þó munur með Friðjón. Hann
passaði sig með að koma ekki
inn á bæjarmálin, en hélt sig fast
við atkvæðaverzlunina milli Her-
manns, Haraldar og Gylfa, með
öðrum orðum við aðalatriði en
ekki aukaatriði eins og málefni
kjördœmisins og svoleiðis vit-
leysu!
Stofuylur
og vornæðingur.
Þá segir Alþýðumaðurinn: „í
andsvörum s!o Jónas mjög undan
og fór á bak við hurðir, enda að
skapgerð enginn baráttumaður,
en kurteist prúðmenni, sem kann
stofuyl vel.“
Þessi ummæli hafa vakið góð-
látlega vorkunnsemi hjá þeim, er
nlýddu á málflutning frambjóð-
enda umrætt kvöld. Og skal ekki
dregið úr sjálfsánægju Alþýðum.
yfir hinum hraðlœsa ekjóistæð-
ingi sínum. En einhverjum kann
að hafa fúndist, að stofuylur
kynni að vera mörgura kærari en
J. G. R., jafnvel frambjóðendum
Hræðslubanddagsins hér og í
Húnaþingi. Og eitthvað rekur
oss minni til, að „meðreiðarsvein-
ar“ ritstjóra Alþm. við Dag
hafi talið honum vel vært í
„tryggingahægindinu“, og vænt-
anlega hefir hann skrúfað frá ofn-
unum þar, sr hann kom heim á
dögunum úr nepjunni, er lugði
gegn honum á yfirreið haus í
Austur-Húnavatnssýslu.
Eyðimörk og
Heljardalsheiði.
Fræg eru orðin þau skrif Her-
manns Jónassonar, er hann lýsir
íslandi nútímans sem „eyðimörk41
og segir, að þjóðin sé nú á „eyði-
merkurgöngu“.
j Frambjóðandi Alþýðuflokksins
(á Akureyri hefir sýnilega haft
ýms ritverk Hermanns Jónasson-
ar til fyrirmyndar, er hann
samdi framboðsræðu sína á dög-
unum. Hafa eymdarlýsingar Her-
manns haft þau áhrif á þann
mæta mann, að hann sér heldur
ekkert nema svartnætti framund-
an og segir, að þjóðin sé nú
stödd á „Heljardalsheiði“.
Friðjóni hefir sýnilega tekizt
vel að tileinka sér hugsunarháít
síns nýja meistara, Hermanns
Jónassonar, því að „Dagur“ hæl-
ir framboðsræðu hans á hvert
reipi.
Hvemig skyldi þeim mönnum
líða, ef verulega þrengdi að í
Rafnar að vera að þvæla þar um
Sjáliboðaliðar,
sem vilja vinna á kjördegi, eru beðnir
að koma á kosningaskrifstofuna í
Geislagötu 5 (hús Kr. Kristjánsson-
ar) í dag kl. 5.
Skrifstofa
Sjálfstæðisflokksins.
Feröafólk!
Vandaðar ferðatöskur með
trégjörðum.
Einnig mjög ódýrar ferða-
töskur.
Svefnpokar,
Tjöld o. fl.
Brynj. Sveinsson li.f.
Sími 1580.
KJÓSIÐ RÉTT!
Kjósið GLADDIXG
Allir veiðimenn þekkja
Gladding kastlínurnar.
Nýkomnar kastlínur og
spinnlínur frá 12—30 Ibs.
Verðið mjög sanngjarnt.
WEBER
NYLONGIRNIÐ
er lóksins komið.
12—25 lbs.
Hjá okkur fáið þér eins og
undanfarið bezta úrval
landsins utan Reykjavíkur,
af alls konar veiðarfærum.
Sendum í póstkröfu.
Brynj. Sveinsson li.f.
Sími 1580. Pósthólf 225.
þjóðfélaginu, sem finnst þeir
vera staddir í miðri „eyðimörk“
eða uppi á „Heljardalsheiði“,
þegar almenn velmegun og fuil
atvinna er í landinu?
Sýnishorn aí kjörseðli á Akureyri
HETJAN FRÁ PARÍS
FÉKK EKKI AÐ TALA
Það hefir vakið nokkra undr-
un, að dr. Kristni var ekki hleypt
að hljóðnemanum við útvarpsum-
ræðurnar nú í vikunni. Er það
næsta kynlegt, þar sem vamar-
málin hafa verið mjög ofarlega á
baugi í kosningabaráttunni, og af-
staða utanríkisráðherra í því eam-
bandi ekki aðeins vakið þjóðar-
athygli heldur heimsathygli.
Er hugsanlegt, að Framsóknar-
menn sjálfir séu orðnir eitthvað
I vafa um það, að afrek dr. Krist-
ins séu Framsóknarflokknum til
vegsauka, þvi að naumast hafa
þeir áhyggjur af sóma þjóðarinn-
ar?
Sem sárabætur fékk dr. Krist-
inn að skrifa langhund í „Tím-
ann“ um vamarmálin, líklega í
trausti þess, að enginn nerinti að
lesa greinina. Sú málsvöm er
líka svo bágborin, að það hefði á-
reiðanlega ekki verið heppilegt
fyrir Framsóknarflokkinn, að
hún næði eyrum alþjóðar gegn-
um útvarpið.
Björn Jónsson
frambjóðandi Alþýðubandalagsins.
Friðjón Skarphéðinsson
frambjóðandi Alþýðuflokksins.
X
Jónas G. Rafnar
frambj óðandi Sj álfstæðisflokksins.
Bárður Daníelsson
frambjóðandi Þjóðvarnarflokksins.
A Landslisti Alþýðuflokksins.
B Landslisti Framsóknarflokksins.
D Landslisti Sjálfstæðisflokksins.
F Landslisti Þjóðvarnarflokksins.
G Landslisti Alþýðubandalagsins.
Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar Jónas G. Rafnar, frambjóð-
andi Sjálfstæðisflokksins hefir verið kjörinn.
Golfkcppnir 1050
Holur KL
30. Æfingabikarinn 27 14.00
Júlí 1. Olíubikarinn, úrslit 36 9.00
4. Einnar kylfu keppni 18 19.30
8. Mickey’s cup 36 8.30
19.-22. Landsmót í Reykjavík
25. Nýliðabikarinn, upphaf 18 19.30
Ág. 3. Upphaf Firmakeppni 18 19.30
8. Fjórleikur 18 19.30
12. Nýliðabikarinn, úrslit 36 8.30
12. Oldungabikarinn 18 13.30
15. Afmælisbikarinn 18 19.30
18. Sama 18 14.00
19. Sama 36 8.30
22. Akureyrarmeistari 18 19.30
25. Sama 18 14.00
26. Sama 36 8.30
Sept. 2. Nafnlausi bikarinn 18 9.00
9. Bændaglíma og kaffidrykkja . 18 14.00
16. Drife og uppáskot 14.00
LISTI SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS
i Eyjafjarðarsýslu er D-listi.
Kappleikanefnd áskilur sér rétt til að breyta tímanum, ef
þörf þykir.
Kappleikanefndin.
TILKYNNING
um umferð á kosningadaginn.
Á kosningadaginn 24. þ. m. verður einstefnuakstur settur
á Laugagötu, til norðurs og niður í Grófargilið, en þar verða
sett merki, sem banna akstur upp á Laugagötuna. Bifreiða-
stæði verða merkt norðan Skólastígs og austan íþróttahúss-
ins. Þar geta menn sett bifreiðar sínar, en löng staða verður
ekki leyfð þar.
Á sjálfri Laugagötunni verður bifreiðastjórum bannað að
yfirgefa farartæki sín og er þess óskað, að viðstaða verði, í
hvert sinn, svo stutt sem ástæður leyfa.
Löqreqlustjóri.