Íslendingur - 21.09.1956, Blaðsíða 2
ÍSLENDINGUR
Föstudagur 21. sept. 1956
A dagskránni:
Síldarsöltun norðanlands. — Auka þarf tunnusmíði.
— Bygging tunnugeymslu. — „Dagur" í fyrirheitna
landinu.
260 þús. tunnur
saltaðar.
í sumar var saltað hér norðan-
lands meira af síld en áður til
margra ára. Nam söltunin 260
þús. tunnum. Þegar litið er á und-
anfarandi ár, er um mikla aukn-
ingu að ræða, en söltunin nam:
Árið 1951 87.221 tn.
— 1952 49.463 -
— 1953 173.285 -
— 1954 61.682 -
— 1955 176.900 -
í ár hafa auk þess verið gerðir
samningar um sölu á 100.000 tn.
af saltaðri Faxasíld, þannig að
veiðist upp í það magn, verða alls
saltaðar í ár á öllu landinu um
360.000 tunnur.
Auka þarf tunnusmíðina
innanlands.
Með aukinni söltun hlvtur hag-
ur Tunnuverksmiðja ríkisins að
hafa batnað til muna. Meðan sölt-
unin var lítil, söfnuðust fyrir
birgðir af tunnum í landinu, sem
geyma varð frá ári til árs. Þar
sem tunnurnar voru geymdar
undir beru lofti, lágu þær undir
skemmdum, auk þess sem mikill
kostnaður leiddi af geymslunni.
Nú er viðhorfið allt annað. í land
inu eru tiltölulega litlar birgðir
af tunnum, og tunnuverksmiðj-
urnar á Akureyri og Siglufirði
hafa losnað við alla sína fram-
leiðslu.
Á síðastliðnum vetri munu
hafa verið smiðaðar um 104.000
tunnur, þar af um 36.000 hér á
Akureyri. Miðað við þó tunnu-
tölu 09 hina óvenjulega miklu
söltun í sumar væri ekki til of
mikils ætiast, þótt Síldarútvegs-
nefnd léti nú i vetur smiða 200.-
000 tunnur. Kæmu þó um 70.-
000 tunnur í hlut okkar Akur-
eyringa miðað við sama hlutfall
og i fyrro.
Verður að koma upp
funnugeymslu.
Eftir að Guðmundur Jörunds-
son og Jónas Rafnar komust í
Síldarútvegsnefnd, batnaði hagur
tunnuverksmiðjunnar hér í bæn-
um. Fram til þess hafði tunnu-
smíðin hér stöðugt farið minnk-
andi, komst einn veturinn ofan í
um 8000 tunnur. Ekkert var gert
til þess að haida vérksmiðjunni
sómasamlega við, svo ekki sé
minnst á umbætur. Á meðan var
komið upp tunnugeymslu á Siglu-
firði og verksmiðjan endurbætt.
Sem betur fór tókst Guðmundi
og Jónasi verulega að rétta hlut
verksmiðjunnar hér á Akureyri.
Tunnusmíðin var þrefölduð og
miklar endurbætur gerðar á
húsa- og vélakosti verksmiðjunn-
ar.
Hvað eftir annað hefir verið ó
það bent, að koma þyrfti upp
tunnuskýli fyrir Akureyrarverk-
smiðjuna, en Síldarútvegsnefnd
ekki treyst sér til þess oð róðast í
þó framkvæmd af fjórhagsóstæð-
um. Að sjólfsögðu hefir sildar-
leysið undanfarandi sumur dregið
úr. Einnig það, að vegna van-
rækslu undanfarandi óra hefir
þurft að standa straum af kostn-
aði vegna aðgerða ó húsi verk-
smiðjunnar og vegna vélakaupa.
Nú ætti þeim útgjöldum oð vera
lokið i bróðina. Vegna hinnar ó-
venju miklu söltunar hlýtur hag-
ur tunnuverksmiðjanna að vera
góður, — og ætti því að vera
unnt að koma tunnugeymslunni
upp, enda er það ófrúvíkjanleg
krafa Akureyringa.
„Dagur" í
fyrirheifna landinu.
Meðan stjórn Sjálfstæðismanna
og Framsóknar sat að völdum,
varð „Dagur“ síður en svo sakað-
ur um að vera eindregið stjórnar-
blað. Það leið varla sú vika, að
ekki birtust þar skammargreinar
um samstarfsflokkinn í ríkisstjórn
inni og stjórnarsamstarfinu lýst
sem eins konar neyðarúrræði.
Eftir að ríkisstjórn Hermanns
Jónassonar og kommúnista tók
við völdum, er Framsóknarblaðið
hér í bænum orðið eitt skelegg-
asta stuðningsblað ríkisstjórnar-
innar — skákar næstum því
„Þjóðviljanum“ í málafylgjunni.
í garð samstarfsmannanna í rík-
isstjórninni fellur nú aldrei eitt
einasta styggðaryrði. Má því
segja, að forráðamenn „Dags“
séu nú eftir langa og stranga
eyðimerkurgöngu (orð H. J.)
loksins komnir til fyrirheitna
landsins og uni sér þar harla vel.
Frá lö^reglunni
Undanfarnar nætur hefir borið
á því, að maður eða menn hafi
lagt leið sína niður á Tangann,
farið þar í mannlaus hús og skrif-
stofur, sýnilega í leit að pening-
um.
I Lögreglan sér ástæðu til að
vara menn við að skilja peninga
eða önnur verðmæti eftir í mann-
lausum húsum yfir nóttina.
.__*___
Eyjirðingir unnu
Síðastliðinn sunnudag kepptu
4 Ungmenna- og íþróttasambönd
í frjálsum íþróttum hér á íþrótta-
svæðinu, og unnu Eyfirðingar
keppnina. Vegna rúmleysis í blað-
inu í dag verða nánari fregnir af
keppninni að bíða næsta blaðs.
____________*___
Sitthvoð frd fnreyjum
Framhald af 7. si3u.
ey rafmagn frá þessari stöð. Er
loftlínan yfir Vestmannasund
milli Straumeyjar og Vogeyjar
1400 metrar. Hæð undir línuna
yfir sundin frá sjávarborði er um
60 metrar. Ekki er talið fært að
leggja línuna á sjávarbotni vegna
sterkra strauma í færeysku sund-
unum, en straumhraðinn getur
orðið allt að 8 mílur, og verður
að sigla eftir vissum reglum á
þessurn slóðum. Þótt Þórshöfn
fái rafmagn frá þessu orkuveri,
hefir hún auk þess dieselrafstöð.
Kolanám hafa Færeyingar, og eru
þeir sjálfum sér nógir um elds-
ne ti til upphitunar, þótt kol
þeirra séu úrgangssamari en
venjuleg kol.
Samgöngur.
Aðalsamgöngur milli eyjanna
eru á sjónum, og ganga margir á-
ætlunarbátar daglega milli þeirra.
En bifreiðanotkun fer æ vaxandi
þar, þrátt fyrir ófullkomna og erf-
iða vegi. En stefnt er að því að
lengja og bæta vegakerfið eftir
föngum. Talsvert mikið sézt þar
af nýjum fólksbíium, en ending
þeirra er yfirleitt ekki nema 3—4
ár, sakir slæmra vega. Þó aka
þeir furðulega hratt á hinum
gömlu, mjóu og þröngu götum,
þeyta bílflautuna óspart og hafa
hægri handar akstur. Flugsam-
göngur eru engar, en þeim er
mikið í mun að fá flugvöllinn í
Vogey í notkun, sem Bretar
byggðu á stríðsárunum, og munu
jafnvel hafa lagt fram fé í því
skyni, en þar skortir öll öryggis-
tæki, og því hafa Danir ekki vilj-
að leyfa lendingar þar. Er von-
andi að þeim verði sem fyrst
komið þar upp, því vel getur bor-
ið nauðsyn til að grípa til hans 1
neyð, þegar flogið er um Færeyj-
ar milli íslands og meginlands
Evrópu. Þá liggur Sörvogsvatn
við hliðina á flugvellinum og er
þar einnig hægt að lenda flugvél-
um. Á stríðsárunum malbikuðu
Bretar veginn frá Sandavogi að
Sörvogi.
Kaupgjald og
verðlag.
Atvinnuástand í Færeyjum er
yfirleitt í bezta lagi, og má í því
sambandi benda á, að í Vest-
—1200 manna bær, eru gerðir út
tveir nýtízku togarar og frá
Sandavogi, rúmlega 700 manna
bæ, ganga 4 togarar, þar af einn
nýtízku togari. Auk þess hafa þeir
þar 6 skútur. Árshlutur háseta á
nýju togurunum færeysku er um
15 þúsund krónur (færeyskar).
Tímakaup daglaunamanns er um
kr. 3.60 í almennri vinnu en iðn-
aðarmanns um kr. 4.40. Til sam-
anburðar er rétt að nefna verð-
lag nokkurra nauðsynja. Mjólk-
urverð er frá 65—80 aura Itr.,
smjör kr. 8.00 kg„ kartöflur (ný
uppskera) var 65 aura kg„ benzín
lítrinn 60 aura og olía til húsa-
kyndinga 30 aura. Góðir kven-
eða karlmannaskór kosta 50—60
krónur, Ojg annað verðlag er eftir
því.
Bindindisstarfsemi
og fleira.
Góðtemplarareglan hefir tölu-
verða starfsemi í eyjunum, og á
hún t.d. myndarlegt hús í Sanda-
Aðwörnn
vegna ólöglegs aksturs
vélhjóla.
Lögreglustjóri hefir beðið blað-
sæmi,
ins.
vogi. Jafnframt hefir hún látið til iS fyrir eftirfarandi orðsendingu
sín taka á íþróttasviðinu, m. a. til eigenda reiðhjóla með hjálp-
komið upp handknattleiksliði, er arváj.
keppti í Þórshöfn meðan Akur- ^ Ajjmikii fjölgun reiðhjóla með
eyringarnir dvöldu þar. Einnig hjálparvél hefur orðið hér í bæn-
hefir stúka úr Reykjavík nýlega um nú , seinni tíS> en jafnframt
sótt þá heim með íþróttaflokka. hefir farið j vöxt) að réttinda-
Engin opinber áfengissala er í jausir drengir, og þá oftast innan
eyjunum, en menn hafa levfi til við f5 úra aJcJur, stjórnuðu þess-
að panta áfengi frá Danmörku í um hjólum. Þar sem hér er oft um
pósti að vissu marki. að ræða drengi, sem eigi bera
Þá er skátahreyfingin töluvert fulla ábyrgð gerða sinna sökum
öflug, og eru skátarnir í Þórshöfn æsku, er athygli foreldra og ann-
langt komnir að fullgera myndar- arra forráðamanna drengjanna
Iegt hús fyrir starfsemi sína, en vakin á því, að framvegis verður
auk þess eiga þeir mjög fallegt tekið harðara á því en hingað til,
mótorskip, sem þeir bregða sér á ef lög og reglugerð um meðferð
milli eyjanna. þessara farartækja er brotin, m.a.
r. . , . imeð því að eigendur þeirra, er
Lngm starfandi utvarpsstoð er r . 0 r ,
. r, . 11 . ir • láta það viðgangast að réttmda-
1 f'æreyjum. og hlusta f'æreying- 1 , , .
, , . - oc , , ..•*■ lausir aðilar stjórna hjolum
ar helzt a Norðurlandastoðvar. J J
Við góð hlustunarskilyrði heyrist Þeirra’ verði látnir sæta abyrgS
ilega til Reykj avíkurútvarps- samkvæmt lögUm og *e'T’ SCm
I brjóta nefnd lög og reglur með
því að stjórna slíkum hjólum, án
Heyskap stunda Færevingar þess að hafa öðlast skirteini til
nokkuð, en allar aðstæður eru þar þesSj geta reiknað með þv{ að fá
erfiðar, tún víðast snarbrött og ekki réttindin strax og þeir hafa
því notuð mest hin gömlu verk- náð tilskyldu aldursmarki.
færi: orfið og hrífan, en heyið jafnframt er hlutaðeiganda
oft þurrkað á hesjum. Eru verk- hent á það að marggefnu tilefni,
færi þeirra og vinnubrögð nokk- að ekki er heimiit að valda óþarfa
uð frábrugðin því, sem við eigum hávaða eða ónæði f bænum með
að venjast. framangreindum farartækjum og
í Þórshöfn eru hvorki meira né er bent á, að slíkt varðar við á-
minna en 8 prentsmiðj ur, en að kvæði lögreglusamþykktar kaup-
sjálfsögðu eru þær flestar litlar. staðarins.
Þar eru a. m. k. gefin út 3 blöð, --------------------------------
sem koma út tvisvar til þrisvar í
viku hvert, og auk þess hafa þeir ||(|^{Q|)||)fl|f )| 1)115. ||f.
eina prentmyndagerð. |
Handknattleiksflokkurinn frá Ólafsfirði, 18. sept.
Akureyri hafði með sér til Fær- Öndvegis tíð ltefir verið í Ólafsfirði
eyja tvær stuttar litkvikmyndir a® undanförnu, hlýindi og blíða hvern
frá fræðslumálaskrifstofunni, og dag. Lítið var róið sl. viku vegna suð-
lánaði þær til sýningar í barna- vestan °g vestan storma. Vélskipið Stíg-
skóla Þórshafnar, en skólar í andi, eign samnefnds sameignarfélags,
Færeyjum byrjuðu 10. ágúst sl. f®r á föstudaginn var til Danmerkur,
Vöktu kvikmyndirnar almenna á- t)ar sem skipt verður um vél í skipinu.
nægju Og athygli og hafa ótvirætt V.s. Gunnólfur, eign s.f. Stíganda, fer
aukið þekkingu frændanna þar á a togveiðar næstu daga. Gunnólfur er
landi og þjóð. nýr bátur, smíðaður í Danmörku, og
„ , , , , , „ ,, kom til landsins í júnímánuði sl. Há-
Meðal þess, sem okkur ferðafe-
lögunum mun verða einna minn-
isstæðast, er heimsókn að hinum
fræga Kirkjubæ. Verður e. t. v.
tækifæri síðar til að geta nánar
um hana.
setahlutur á honura á hringnótaveiðum
í sumar var um kr. 31 þúsund. V.s.
Einar Þveræingur, eign Magnúsar
Gamalíelssonar, mun á næstunni hefja
veiðar með línu, en nokkur ár eru lið-
in síðan stærri bátar hafa stundað línu-
veiðar héðan að haustinu til, og væri
óskandi að þessi tilraun gæfist vel.
Togarinn Norðlendingur landaði hér
í gær og dag 260 lestum af fiski, mest-
megnis karfa, sem fór í frystingu. Mjög
er það bagalegt að hér skuli ekki vera
Skríjstoja ájengisvarnanejndar Ak- hægt að vinna verðmæti úr karfabein-
ureyrar hefir verið flutt í Varðborg, um, — þau eru flutt til Siglufjarðar í
herbergi nr. 31, og verður opin á mið- bræðslu, — en vonir standa til, að úr
Leikskólinn. Enn er hægt að koma
nokkrum hörnum í leikskóla Barna-
verndarfélagsins á Oddeyri. Upplýsing-
ar í síma 1262.
vikudögum og fÖ6tudögum kl: 5—7 s.d. þessu rætist á næsta ári.
S. M.
Mínar hugheilustu þakkir sendi ég ykkur öllum, sem glödd-
uð mig á 60 ára afmœlisdaginn 12. september með heimsókn-
um, rausnarlegum gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
ZÓPHÓNÍAS M. JÓNASSON,
Eiðsvallagötu 9, Akureyri.