Íslendingur


Íslendingur - 29.03.1957, Blaðsíða 8

Íslendingur - 29.03.1957, Blaðsíða 8
KAUPENDUR vinsamlega be&nir a& tilkynna af- grei&slunni strax, ef vanskil eru á blaðinu. Föstudagur 29. marz 1957 5. si&an £ dag Faðir minn og fiðlan hans. % Kirkjan. Messa'ð í skólahúsinu í Glerárþorpi kl. 5 c. li. á sunnudaginn. Sálmar: 68 — 326 — 203 — 467 — 232. — P. S. Messað í Akureyrarkirkju næstk. sunnudag kl. 5 e.li. Sálmar: 223 — 231 — 230 — 670 — 367. Ath. breytt- an messutíma. — K. R. I. O. 0. F. — 1383298% — 11 — 9. Hjálprœðisherinn. Bazar og kaffi- sala í sal Hjálpræðishersins laugardag 30. marz kl. 3. Allir velkomnir. Spilakvöld. Skagfirðingafélagið á Akureyri efnir til tveggja spilakvölda á næstunni. Hið íyrra verður næstkom- andi sunnudag í Alþýðuhúsinu kl. 8.30 síðdegis. Góð verðlaun veitt. — Skagfirðingar, fjölmennið. KjörbúS KEA í Brekkugötu 1 verð- ur framvegis opin til mjólkur- og brauðasölu á sunnudögum kl. 10—12. Ætti sú ráðstöfun að geta greitt fyrir mjólkurafgreiðslunni á sunnudögum, en þá er ösin mest í mjólkurútsölunum. Spilakvöld heldur Skemmtiklúbbur Hestamannafélagsins Léttis í Alþýðu- húsinu í kvöld kl. 8.30. Sjá auglýsingu á öðrum stað í blaðinu. Barnastúkan SamúS nr. 102 heldur fund í Skjaldborg n.k. sunnudag kl. 10 f.h. Nánar auglýst í Barnaskólan- um. Dánardœgur. Nýlátinn er hér í bæn- um Hannes Jónsson fræðimaður, fyrr- um bóndi í Hleiðargarði, í hárri elli. Hjónaejni. Nýlega hafa opinbferað trúlofun sína Gunnlaug Kristjánsdótt- ir símamær, Hollagötu 3 og Óskar Gunnarsson, stýrimaður á m.s. Helga- felli. Fimmtugsajmœli. Kristján Geir- mundsson Aðalstræti 36, verður fimm- tugur í dag. Bazar heldur Skógræktarfélag Tjarn- argerðis að Stefni sunnudaginn 31. þ. m. kl. 4 e. h. — Nefndin. Frá starfinu i Zíon. Næstkomandi sunnudag kl. 8.30 síðdegis, fórnarsam- koma. Laugardag kl. 9 síðd. samveru- stund. Ólafur Ólafsson talar. Allir vel- komnir. Þórsfélagar! Skemmtun verður hald- in í Landsbankahúsinu föstudaginn 29. þ. m. kl. 8.30 e. h. Til skemmtunar verður kvikmynd og dans. Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti. — Handboltastúlkurnar. Frá Iþróttafélaginu Þór. Kennslu- kvikmynd í sundi verður sýnd fyrir meðlimi félagsins í Sundhöllinni n. k. þriðjudagskvöld kl. 8. Félagar beðnir að hafa með sér sundbúning. Til litlu stúlkunnar, sem missti hend- ina: Kr. 1000.00 frá saumaklúbb; kr. 100.00 frá Önnu Sigríði. Áheit á Strandarkirkju kr. 50.00 frá N. N. Kvennasamband Akureyrar heldur aðalfund að Hótel KEA (Rotarysal) föstudag 29. marz kl. 8.30 e. h. Venju- leg aðalfundarstörf. — Stjórnin. Úr Slippstöðinni. — Ljósni.: Gísli Ólafsson. Slippstöðin h.f. fær dráttarbrautina leigða áfram t Jón Norðfjörð bæjargjahlkeri andaðist í Sjúkra- húsi Akureyrar s.l. föstudag, 22. marz. Banamein hans var hjarta- bilun. Jarðarför hans fer fram á morgun. Þessa kunna borgara verður nánar minnst í næsta blaði. Almennnr æsknlýðsfundur Annáll íslendings oooo»ooooooooooooooooo Nokkrar skemmdir verða á húsi Torfa Bjarnasonar héraðslæknis á Akrancsi, er eldur kemur þar upp í kjallara. Ibúð læknisins skemmist þó ckki. íbúðarhúsið að Ilvalnesi í Skefils- staðahreppi brennur til kaldra kola, á- samt fjósi og hlöðu, cn gripir bjargast. Konan var ein í húsinu með þrjú ung börn, er olíuvél varð skyndilega alelda og logandi olía flaut út um gólf. Greip konan yfirsæng og vafði um yngsta Á fundi sínum 20. inarz síðast- liðinn leggur hafnarnefnd Akur- eyrar til við bæjarstjórnina, að Slippstöðinni h. f. verði leigð Dráttarbraut Akureyrar til næstu 5 ára, og sé ársleigan 200 þús. kr. auk helmings uppsáturs- og stöðugjalda, er fari frarn úr 125 þús. kr. Þó geti hvor aðili fyrir sig, bærinn eða Slippstöðin, krafizt endurskoðunar á samn- ingnum að 2 árum liðnum, og verði leigan, það sem eftir er af samningsbilinu þá, ákveðin eftir samkoinulagi eða mati þriggja dómkvaddra manna. verður á sunnudaginn kemur í Varðborg. Verður húsið opnað kl. 1.30 e. h. og hefst þá leikur Lúðrasveit- ar Akureyrar undir stjórn Jakobs Tryggvasonar. Á fundinum verða flutt ávörp, og aðalræðutnaður dagsins verður séra Sigurður Haukur Guðjónsson preslur á Hálsi í Fnjóskadal. Hann er ung- ur prestur, nýkominn að starfi og hefir getið sér góðan orðstír í sóknum sínum. Mikill söngur verður á fundin- um, og sýndur verður þáttur úr nýrri kvikmynd um ævi Marleins Lúlhers. Allir hjarlanlega velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir. Nánar í götuauglýsingum. . SKÁKEINVÍGIÐ Friðrik og Pilnik jafnir Skákeinvígi Friðriks Ólafsson- ar og Hermans Pilniks er enn ekki lokið. Eftir sex utnferðir höfðu báðir 3 vinninga (alltaf unnið á hvítt), en Friðrik vann 6. skákina í 33 leikjum. Þar sem þeir skildu jafnir, þurfa þeir að tefla tvær í viðbót. Sú fyrri var tefld í fyrrakvöld og fór í bið. TUNDURDUFL í VÖRPUM TOGARA Fimmtudaginn 21. marz síðast- liðinn kom nýi Norðfjarðartog- arinn Gerpir inn á höfnina hér með tundurdufl á þilfari, sem komið hafði í vörpu togarans, þar sem hann var að veiðum á Skagagrunni. Ólafur Torfason vélstjóri tók að sér að eyðileggja duflið úti í firði, en það reyndist vera virkt. Kvöldið áður hafði Hafnar- fjarðartogarinn Bjarni riddari einnig fengið tundurdufl í vörpu sína, og valt það með fiskkös- inni inn á þilfar hans. Það dufl reyndisl líka virkt, en varðskip kom til móts við togarann með duflasérfræðing, er gerði duflið óvirkt. Þriðja duflið kom i vörpu tog- arans Harðbaks út af Sléttu- grunni nú í vikunni og kom hann barnið, þriggja niánaða gamalt, og komst nauðulega út úr húsinu með börnin. Þótt hjálp bærist íljótt, varð engu bjargað, og misstu hjónin þar al- eigu sína. Innbú óvátryggt. 10 ára drengur verður fyrir bifreið í Reykjavík og hlýtur höfuðkúpubrot og fleiri mciðsl. Bifreiðaverkstæði í Innri-Njarðvík brennur, ásamt tveim bifreiðum, er þar voru til viðgerðar, en öll tæki og á- höld verkstæðisins ýmist stórskemmd- ust eða eyðilögðust. Islendingurinn Guðmundur Kolka (sonur Páls V. G. Kolka héraðslæknis) ferst í bifreiðaslysi úti í Skotlandi. Síðastliðinn sunnudag var Æskulýðsdagurinn hér á Akur- eyri haldinn hátíðlegur með guðsþjónustu í kirkjunni. Pró- fasturinn í Eyjafjarðarprófasts- dæmi, séra Sigurður Stefánsson á Möðruvöllum prédikaði og flulli árnaðaróskir frá biskupin- um yfir íslandi, herra Ásmundi Guðmundssyni dr. theoh, er bað æskulýðsstarfsemi kirkjunnar blessunar Guðs. Sóknarprestarnir séra Pétur Sigurgeirsson og séra Kristján Róbertsson þjónuðu fyrir altari, en kirkjukórinn annaðist söng. Þá söng Kristinn Þorsleinsson deildarstjóri einsöng. Viðstaddir guðsþjónustuna voru allir forráðamenn skólanna hér í bænum, margir kennarar og fjöldi nemenda. Var guðsþjón- uslan ein hin fjölmennasta, sem haldin liefir verið hér í kirkjunni og var öll hin hátíðlegasta. Slíkar æskujýðsguðsþjónustur fóru fram í ýmsum öðrum kirkj- um saina dag. hingað til hafnar með það í fyrrakvöld. Komu þá menn úr landhelgisgæzlunni flugleiðis hingað norður til að eyðileggja duflið, en það var einnig virkt. Harðbakur losaði síðan afla þann, er liann hafði innanborðs, um 90 tonn. Byggingalóðum úthlutað í stórum stíl Gifurleg eftirspurn eftir bygg- ingalóðum hefir verið nú að und- anförnu, og hefir bygginganefnd lagt til, að úthlutað yrði sam- kvæmt pöntunum nálega 30 bygg- ingalóðum, flestum í smáíbúða- hverfi bæjarins. Flestar eru lóð- irnar við Kringlumýri, en nokkr- ar við Löngumýri, Austurbyggð og aðrar götur. Nokkrum beiðn- um var synjað, þar sem gert var ráð fyrir byggingu timburhúsa, en þau vill nefndin ekki leyfa við hina nýju gölu — Kringlumýri. Þá varð að synja nær 20 beiðn- um, þar sem tveir eða fleiri höfðu sótt um sömu lóð, en dregið var um, hver hljóta skyldi leyfið, þegar svo bar til, að fleiri en einn sóttu. Þá var byggingaleyfi veitt fyr- ir íbúðarhúsi á áður leigðri lóð við Goðabyggð, og ennfremur leyfð bygging fyrirhugaðra bún- ings- og áhaldahúsa við íþrótta- völlinn, að tilskilinni tilfærslu bygginganna. Ennfremur voru leyfðar nokkrar viðbyggingar og breytingar á áður byggðum hús- um. Byggingavöruverzlanir bæjar- ins og nokkur iðnfyrirtæki sækja um byggingalóðir á Gleráreyrum, austan Glerárgötu. Er þar þegar í byggingu hús Kaffibrennslu Ak- ureyrar. Á fundi bygginganefnd- ar 8. marz lagði nefndin til, að Kexverksmiðjunni Lorelei yrði úthlutað umbeðinni lóð, en fjár- festingarleyfi fylgdi umsókninni. Þá var samþykkt að veita Bygg- ingavöruverzlun Akureyrar h.f., Byggingavöruverzlun Tómasar Björnssonar h.f. og Kaupfélagi Eyfirðinga lóðir á þessu svæði með tilteknum akilyrðum. Stjórn Glerárborgar (hverfis- félags Glerárþorpsbúa) liefir sótt um byggingaleyfi og lóðarrétt- indi vegna félagsheimilis, sem fyrirhugað er að reisa sem fyrst, en húsið er hugsað sem aðalhús fyrir fjöldasamkomur bæjarbúa, og óskar stjórnin sérstaklega eft- ir lóð vestan Hörgárbrautar gegnt Mólandi. Bygginganefnd leggur til að er- indinu sé vísað til skipulags- nefndar ríkisins til athugunar á, hvar heppilegast væri að byggja slíkt félagsheiinili, ef til kæmi. ___*____ Er aflinn að giæðast? ÓlafsfirSi i gœr. Gunnólfur landaði hér i gær 17 tonnum af mjög fallegum fiski. Enginn afli er hér á línu, og stunda trillurnar hér handfæra- veiðar, og hefir afli verið rýr þar til í gær, að ein trillan fékk tvö tonn af fullorðnum göngufiski. Eru menn vongóðir um, að afla- brögð taki nú að batna. Síðastliðinn sunnudag þreyttu 170 bæjarbúar landsgönguna 1 ljómandi fögru veðri. Við Ólafs- firðingar erum ánægðir með frammistöðu „okkar manna“ á skíðamóti KA siðastliðinn sunnu- dag. Auk þeirra tveggja, sem héðan kepplu og báðir hlutu I. verðlaun í sínum flokkum, eru þeir Eysteinn Þórðarson, Jón Ágústsson og Kristinn Steinsson fæddir og uppaldir hér í Ólafs-

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.