Íslendingur - 02.08.1957, Síða 8
KAUPENDUt
vinsamlega beðnir að tilkynna af-
greiðslunni strax, ef vanskil eru á
blaðinu.
Föstudagur 2. ágúst 1957
5. síðan í dag:
Kains-lögmclið
eftir dr. Jón Dúason.
Cr HEIMAHÖGIM
Kirkjan. Messað í Akureyrarkirkju
næstk. sunnudag ki. 10,30 f. h. (K.R.)
Messað í Lögmannshlíðarkirkju n.k.
sunnudag kl. 2 e. h. Prófasturinn, sr.
Sigurður Stefánsson vísiterar kirkjuna
og predikar. (IC. R.)
Hjúskapur. Laugard. 27. júlí voru
gefin saman í hjónahand í Akureyrar-
kirkju ungfrú Svanhildur Ásgeirsdóttir
og Sveinbjörn Kristinsson verzlunarm.
Heimili þeirra verður að Ránargötu
26 Akureyri.
Sama dag voru gefin saman í kirkj-
unni ungfrú Linda Denny Eyþúrsdóttir
og Valgarður Jóhann Sigurðsson prent-
ari. Heimili þeirra verður Þórsgata 21
A Rvík.
Sunnudaginn 28. júlí voru gefin
saman í kirkjunni ungfrú Jenny Karls-
dóttir og Ingólfur Magnússon bifreiða-
stjóri. Heimili Aðalstræti 2 Akureyri.
Kveðjusamkoma fyrir lautinant Karen
Gudem verður sunnudaginn 1. ágúsl
kl. 8,30 e. h. Allir velkomnir.
Iljálpræðisherinn.
Aheit á Strandarkirkju frá Ingu
Gunnarsdóttur kr. 600,00, afhent af-
greiðslu Morgunblaðsins, Akureyri.
Dánardœgur. Sl. mánudag lézt hér í
sjúkrahúsinu ungfrú Valborg Ryel
verzlunarmær, tæplega fertug að aldri.
Hasard-höggleikur með % íorgjöf
verður háður á golfvellinum laugardag-
inn 3. ágúst 1957 og hefst kl. 2 e. h.
Þátttökugjald kr. 25,00. Veitt verða 3
verðlaun. Verðlaun afhent að keppni
lokinni. — Kappleikanefnd.
HéroiM ó M'rhrólii
tf fpÍlKÍÍÖID
Héraðsmót Sj álfstæðismanna í
Skagafirði verður haldið á Sauð-
árkróki annað kvöld í samkomu-
húsinu „Bifröst“. Hefst mótið kl.
8 síðdegis.
Ræður flytja Bjarni Bene-
diktsson, alþingismaður, og séra
Gunnar Gíslason í Glaumbæ.
Ennfremur flytja þau Guðmunda
Elíasdóttir, Þuríður Pálsdóttir og
Guðmundur Jónsson, óperu-
söngvarar, vinsælan söngleik eft-
ir Offenbach með aðstoð Fritz
Weisshappel. Síðan verður stig-
inn dans.
Er ekki að efa, að ræðurnar
verði fróðlegar og skemmtunin
ÖII hin veglegasta. Má benda þeim
bæjarbúum, sem ætla sér eitl-
hvað út úr hænum um helgina, á
að sækja þessa samkomu.
A sunnudaginn verður svo
héraðsmót í Egilsstaðaskógi fyr-
ir Múlasýslur. Verður þar einnig
vandað til skemmtiatriða.
Hinn 17. júní sl. voru fjögur ár liðin frá því að íbúar Austur-
Þýzkalands gerðu uppreisn gegn ofriki og kúgun rússneskra vald-
hafa. Uppreisnin var bæld niður af rússneskum skriðdrekum, en
það fordæmi, sem fólkið gaf, er það réðist á skriðdrekana með ber-
um hnefum, mun seint gleymast.
Mfpriír if MirlfflÉ
W .ÍÁ l
Briiin yfir Jökulsá í Axarfiröi sfærsta
mannvirkið
Langl komið er nú að byggja
nýja brú yfir Jökulsá í Axarfirði,
og er það stærsta mannvirkið í
brúagerð hér á landi, sem við er
unnið í sumar. Er þar að verki
brúarflokkur Jónasar Snæbjörns-
sonar, og hófst undirbúningur að
byggingunni fyrir 2 árum. Til
•þeirrar brúar er veitt fé úr brúa-
sjóði.
Jökulsárbrúin er 72 metra löng
hengibrú, en auk hennar verða
landbrýr beggja megin, og verð-
ur samanlögð lengd brúarinnar
fullir 130 metrar. Gamla brúin á
Jökulsá þolir nú enga þunga-
flutninga, og er því nýja brúin
mjög aðkallandi. Væntanlega
verður henni lokið á þessu ári.
Þá er allmikið brúarmann-
Rætt við Guðmund
Fyrir nokkrum kvöldum varð
tíðindamanni blaðsins litið inn í
málningavinnustofu Guðmundar
Halldórssonar málara í Brekku-
götu 3 B, og blöstu þar við aug-
um nokkur olíumálverk í falleg-
um litum. Barst þá þessi iðja
hans í tal, og skýrði hann frá
því, að hann væri nýlega kominn
austan úr Þingeyjarsýslu, þar
sem hann hefði haldið sína fyrstu
málverkasýningu, og hefði um
helmingur myndanna selzt á sýn-
ingunni. Var sýningin haldin í
barnaskólahúsinu á Grenjaðar-
stað.
Byrjaði ungur,
en langt hlé.
Þegar við spyrjum Guðmund
virki í byggingu yfir Norðurá í
Skagafirði við svonefndan Skelj-
ungshöfða innan við Silfrastaði.
Vinnur þar brúarflokkur Þor-
valdar Guðjónssonar. Verður
þetta 103 metra löng bitabrú og
miklar uppfyllingar við brúar-
sporða. Með henni er verið að
tengja svonefnda Kjálkabyggð
við þjóðvegakerfið.
Af öðrum brúm má nefna:
Brú yfir Hafrá í Hörgárdal, 30
m., er brúarflokkur Þorvaldar
byggði í vor, brú yfir Lónsá hjá
Eldjárnsstöðum á Langanesi, 10
m., brú yfir Núpsá í Miðfirði, 12
m. og brú yfir Þverá í Vestur-
hópi, 10 m., auk nokkurra smærri
brúa.
Halldórsson málara
að því, hvenær hann hefði byrj-
að að mála myndir, kvað hann
það hafa verið um 15 ára aldur.
— Þá þótti þetta fávitaháttur,
segir Guðmundur. — Og eftir
það lagði ég aðallega stund á
húsa- og húsgagnamálningu. En
á miðjum aldri bilaði heilsan, og
ég fór þá aftur að föndra við
olíuliti. Margt af myndum mín-
um hef ég gefið vinum og kunn-
ingjum. Ég kann betur við að
hafa þær í höndum manna, sem
hafa ánægju af að virða þær fyr-
ir sér. Það er mér meira virði en
verðlausar krónur.
Var hvattur til
að sýna.
— Svo var það í vor, að kunn-
I Meistaramót
fslands í tugþraut
Pétur Rögnvaldsson
varð tugþrautarmeistari
Tugþraut íslandsmótsins lauk
á Akureyri 28. f. m. og sigraði
Pétur Rögnvaldsson KR og hlaut
í 5903 stig.
2. Ingvar Hallsteinsson FH 5057
3. Einar Frímannsson KR 4613
4. Sigurður Björnsson KR 4506
5. Bragi Hjartarson Þór 4103
6. Eiríkur Sveinsson KA 3659
7. Leifur Tómasson KA 3611
8. Björn Sveinsson KA 3176
Bezti árangur í hverri einstakri
grein var:
100 m.: Pétur, Einar og Leif-
ur 11,3 sek.
Langstökk: Pétur 6,47 m.
Kúluvarp: Ingvar 12.50.
Hástökk: Pétur og Ingvar 1,72.
400 m.: Pétur 39,14.
110 m.grindahlaup: Pétur 15,0
Kringlukast: Pétur 39,14.
Stangarstökk: Einar 3,50.
Spjótkast: Ingvar 52,91.
1500 m. hlaup: Sigurður 5.02.6
Einnig var haldin aukakeppni í
nokkrum greinum og urðu þessir
hlutskarpastir:
Þrístökk: Jón Pétursson 14,25.
Hástökk: Jón Pétursson 1,80.
Sleggjukast: Þórður B. Sig-
urðsson 50,19.
800 m. hlaup: Svavar Markús-
son 1.57.0.
3000 m. hlaup: Svavar Markús-
son 8.50.6.
Kriglukast: Þorsteinn Löve
51,57 (lengsta kast í ár).
Stangarstökk: Valgarður Sig-
urðsson 3,60.
Mótstjóri var Haraldur Sig-
urðsson, sýsluskrifari, Akureyri.
ingjar mínir hvöttu mig til að
koma upp sýningu á myndum
mínum, og réðst ég þá í að fara
með um 30 myndir austur að
Grenjaðarstað. Mest eru þetta
olíumálverk, landslagsmyndir,
„fantasíur“ o. fl. Af þeim seldi ég
14. Nokkuð hefi ég íengizt við
húsgagnamálningu jafnframt, en
bakið þolir það ekki, að ég leggi
fyrir mig húsamálningar. Þess
vegna hefi ég aftur horfið að
þessu föndri.
Er honum heilsugjafi.
— Þessi iðja hefir verið niér
ótvíræður heilsugjafi, bætir Guð-
mundur við, og ég mun halda
henni áfram, meðan ég stend
uppi, og helzt vildi ég velta út af
með pensilinn í hendinni.
Myndir Guðmundar eru yfir-
leitt í björtum litum, og hann
málar ekkert eftir reglustiku. All-
ar „fantasíur“ hans seldust á sýn-
ingunni á Grenjaðarstað, en þær
eru margar athygliverðar.
»Bezt að velta utaí með pensilinn
í hendinnú
Ánnél! íslendings
Ilallgrímskirkja að Saurbæ á Ilval-
fjarðarströnd vígð við liátíðlega at-
höfn.
Danska stjórnin heiðrar Björn Pálsson
sjúkraflugstjóra fyrir flug til Græn-
lands eftir sængurkonu á sl. vetri.
Sjö ára gömul stúlka í Vestmanna-
eyjuin vcrður fyrir hifreið og bíður
bana.
Efri hæð hraðfrystihússins Heima-
skagi á Akranesi brennur með öllu,
sem þar var innanstokks. Tjón mjög
tilfinnanlegt.
Norræn vinabæjamót haldin á Siglu-
firði og Akranesi.
Borað eftir vatni í Vtestmannaeyjum
og komið niður á góða vatnsæð á 95
m. dýpi á h. u. b. miðri Heimaey.
Rdðvilltir slúðrarar
í sambandi við farmanna-
deiluna hafa stjórnarblöðin,
og þá einkum Tíminn, sakað
Sjálfstæðisflokkinn um að
standa að baki henni og þá sér
í lagi aðalritstjóra Morgun-
blaðsins, Bjarna Benediktsson
fyrrv. ráðherra. Er þessi kenn
ing nánast sagt furðuleg, þar
sem sömu blöðin hafa hingað
til talið Bjarna og aðra for-
ustumenn Sj álfstæðisflokksins
fulltrúa atvinnurekenda og
„braskara“.
Þótt Sjálfstæðisflokkurinn
eigi meiri ítök í stéttarfélög-
unum en Framsókn og Kratar
til samans, er hann víða Íítils
ráðandi í félögum þeim, er
sagt hafa upp kjarasamning-
um á þessu ári.
Til sönnunar því, að Sjálf-
stæðisflokkurinn fagni hinni
löngu deilu farmanna, birti
Tíminn nýlega mynd af frétt
Morgunblaðsins um afdrif til-
lögunnar um gerðardóm, þar
sem sagt var, að farmenn
hefðu hafnað henni einhuga.
Tíminn skýrði sjálfur frá úr-
slitum með þeim orðum, að
tillögunni hefði verið hafnað
einróma. Hver er munurinn?
Þá er upplýst, að Framsókn-
armenn hafa lætt þeirri slúður-
fregn út um sveitir landsins,
að Eimskipafélag íslands liafi
greitt farmönnum alldrjúga
peningaupphæð þann dag, er
þeir greiddu atkvæði um til-
löguna.
En nú er mörgum spurn:
Hvers vegna höfnuðu Skipa-
deild SIS og Skipaútgerð rík-
isins fyrstu sáttatillögunni?