Íslendingur - 09.08.1957, Blaðsíða 1
XLIII. árg.
Föstudagur 9. ágúst 1957
28. tbl.
Farmftititadeilan lcjjst
Laun hækka um 7-17 prósent auk
íríðinda
Fœreyski handlcnattleiks/lokkurinn, sem hér dvelur.
Ljósm. Gísli Olafsson.
Færeyskt handknattleikslið
í heimsókn
það er fyrsta erlenda iiðið, sem Í.B.A.
býður heim
Hér í bænum er nú statt íær- ur knattspyrnuflokkur keppt hér
Hin langa vinnudeila stýri-
manna, vélstjóra og loftskeyta-
manna á kaupskipaflotanum
leystist fyrir síðustu helgi. Náð-
ist samkomulag milli samninga-
nefnda á sáttafundi, er staðið
hafði mikið á annan sólarhring,
og voru samningarnir samþykkt-
ir á fundum stéttarfélaganna, og
hjá skipaútgerðunum með þeim
fyrirvara, að ríkisstjórnin sam-
þykkti að bæta félögunum hinn
aukna reksturskostnað útgerðar-
innar, er af samningunum leiða.
Beinar grunnkaupshækkanir
eru nokkuð misjafnar, eða frá
ca. 7—17%, hærri yfirleitt hjá
þeim lægst launuðu. Þá eru tekn-
ar upp nýjar greiðslur, svo sem
„mótortillag11 hjá vélstjórum og
sérstök aukagreiðsla í strand-
ferðum, styttur dagvinnutími og
lengd leyfi. Ekki er blaðinu
kunnugt um, hve þessi „fríðindi“
nema miklu, miðað við hundr-
aðshluta kauphækkunar, en það
mun vera nokkuð misjafnt. Þá
var og samið um lífeyrissjóðs-
réttindi til þeirra farmanna, er
ekki hafa notið þeirra, og eitt-
hvað fleira.
Strax og verkfallið leystist var
liafizt handa um að losa þau skip,
sem biðu í höfnum með farm, og
fóru þau að láta úr höfn að nýju
strax á næsta degi eftir að sam-
komulag náðist í deilunni.
Verkfall þetta, sem staðið
hafði í 7 vikur, er búið að valda
geigvænlegu tjóni og gjaldeyris-
tapi, auk þess sem það hefir rýrt
tiltrú íslendinga erlendis. Ýmsir
útlendingar munu hafa haft hug
flutningar nubast hjá
Loftleiðum
Samanburður hefir nú Verið
gerður á flutningum með flug-
vélum Loftleiða fyrstu 6 mánuði
þessa árs og á sama tímabili í
fyrra, og hefir komið í ljós, að
þeir hafa farið mjög vaxandi.
Fyrstu 6 mánuði ársins 1956
fluttu Loftleiðir 8.590 farþega,
en nú 10.330 og nemur aukning-
in 20.3%. Vöruflutningar hafa
aukizt um 16.4% á þessu sama
tímabili.
Mjög er nú leitað eftir flugför-
um frá meginlandi Evrópu og
Bretlandi til Bandaríkjanna og er
næstum hvert sæti skipað í þær
ferðir Loftleiða, sem fyrirhugað-
ar eru til Ameríku fram í miðjan
næstkomandi októbermánuð.
á að ferðast hingað til lands í
sumarleyfi með íslenzkum far-
jegaskipum, eða jafnvel verið
komnir hingað með þeim, og
hafa svo nánast orðið „stranda-
glópar hér“ vegna hins skyndi-
lega verkfalls. Allt geip stjórnar-
blaðanna um tryggðan vinnufrið
hefir orðið ríkisstj órninni til
minnkunar og um leið þjóðinni
til álitshnekkis og óbætanlegs
skaða.
Kynnis- og
skemmtiferð K.A.
Um næstu mánaðamót íer
Knattspyrnufélag Akureyrar í
keppnis og skemmtiferð í tilefni
af 30 ára afmæli félagsins, er
verður innan fárra mánaða, suð-
ur á land, og er ætlunin að vera
5 daga> í ferðinni. Farið verður
frá Akureyri laugardaginn 31.
ágúst og komið heim á miðviku-
dagsnótt. Á sunnudag 1. sept.
verður horft á landskeppni í
knattspyrnu milli íslendinga og
Frakka á Laugardalsvellinum, og
fyrir þann leik keppir 3. fl. í KA
við 3. fl. KR á sama velli. Þann
dag verður einnig keppt við
Reykjavíkurfélög í fleiri íþrótta-
greinum.
Næstu daga verður síðan farið
til Keflavíkur og Hafnarfjarðar
og keppt í íþrótlum á báðum
stöðum.
Á miðvikudagskvöld er ráð-
gert að sjá landsleik i knattspyrnu
milli íslendinga og Bélga, og að
honum loknum verður haldið
heim. Ráðgert er að fara með 3.
og 4. fl. í knattspyrnu, sundflokk,
körfúknattleiksflokk, handknatt-
leiks- og frj álsíþróttaflokk.
Þeir K. A. félagar auk kepp-
enda, sem hafa hug á að fara í
ferð þessa, eru beðnir að hafa
samband við Hermann Sigtryggs-
son síma 1546 eða Leif Tómas-
son síma 1352 sem allra fyrst.
KARTÖFLUGRAS
SKEMMIST AF FROSTI
Aðfaranótt sunnudags 28. júlí
kólnaði snögglega, svo að hiti
fór niður fyrir frostmark sums
staðar í innsveitum norðanlands.
Uppi í bæjarlandi Akureyrar var
grátt af hélu um sólaruppkomu á
sunnudag, og sér þar nokkuð á
kartöflugrösum. Sömu sögu er að
heyra úr Þingeyjarsýslu.
Benhö brósar góðum sigri
Sl. sunnudag þreytti ungverski
skákmeistarinn Pal Benkö 22
samtímaskákir hér á Akureyri,
vann 19, gerði 1 jafntefli, en tap-
aði tveim.
Á þriðjudagskvöld tefldi hann
hér aftur klukkuskákir við 8
meistaraflokksmenn, og lilaut 7^/2
vinning. 1 fyrrakvöld tefldi hann
samtímaskák á Húsavík við 23
skákmenn. Vann 22 en lapaði
einni.
Bjjörgunarskútan
»AIbert«
sem annast á hjálparstarfsemi
á miðunum fyrir norðan land og
jafnframt landhelgisgæzlu, verð-
ur nú senn tilbúin. Hefir smíði
tafizt óþægilega mikið og afhend
ing skipsins dregizt mánuð eftir
jmánuð af þeim sökum. Verður
þetla hið vandaðasta skip, enda
dýrt orðið, en við byggingu þess
hafa slysavarnasveitir á Norður-
landi, og þá einkum kvennadeild-
irnar, aðstoðað með all-ríflegum
fjárframlögum.
K.R. otj Í.B.A. jöfn
1 kappleik Akurnesinga og KR
á Islandsmótinu unnu hinir
fyrrnefndu með 4 mörkum gegn
0. Er þá sýnt, að KR og ÍBA eru
jöfn eftir mótið, með 2 stig
hvort, og verða að þreyta úrslita-
leik um fallið niður í II. deild.
Ræður Bjarni
þar líka?
Dagur segir í gær í forystu-
grein um farmannaverkfallið:
„.... aðalritstjóri Morgun-
blaðsins hefur notað aðstöðu
sína bjá Eimskip til að spilla
samningaviðræðum og sam-
komulagsleiðum deiluaðilja“.
Það situr illa á Degi, að
saka Eimskip eða stjórnendur
þess öðrum útgerðárfélögum
fremur um að sáttatillagan í
deilunni var felld. En þar
stóðu öll útgerðarfyrirtækin
jajneinliuga (ef nola má það
orð) gegn samþykkt tillög-
unnar, einnig Skipaútgerð
ríkisins, sem heyrir undir rík-
isstjórnina, og Skipadeild SÍS.
Varla ræður Bjarni Benedikts-
son afstöðu þeirra til deilunn-
ar. Ætti Dagur að upplýsa
næst, hvers vegna þessar tvær
framannefndu útgerðir liöfn-
uðu sáttatillögunni.
eyskt handknattleikslið kvenna,
sameinað lið frá Sandavogi og
Vestmanna, alls 10 ungar stúlkur,
ásamt tveim fararstjórum, Sigurd
Petersen kennara og frk. Malvina
A. Dunga frá Þórsliöfn.
Þetta er fyrsta erlenda liðið,
sem íþróttabandalag Akureyrar
býður heim, en handknattleikslið
kvenna héðan fór í keppnisför til
Færeyja í fyrra, sem þá var ýtar-
lega skýrt frá hér í blaðinu. Þá
er þetla fyrsta handknattleikslið-
ið, sem Færeyingar senda hingað
til íslands, en áður hefir færeysk-
Önnur þj óðhöfðingj aheimsókn
in á þessu sumri stendur nú fyrir
dyrum. Er forseti Finnlands,
Urho Kekkonen, væntanlegur í
opinbera heimsókn til íslands 13.
ágúst, ásamt frú sinni og fylgdar-
liði. Stendur hin opinbera heim-
sókn yfir til 15. ágúst, en eftir
það 'dvelst Finnlandsforseti
nokkra daga hér í boði forseta
íslands.
Laugardaginn 17. ágúst munu
forsetarnir og föruneyti þeirra
koma flugleiðis hingað til Akur-
á íþróttasvæðinu fyrir 3 árum,
en liann var hér í boði ísfirð-
inga.
Ferðast um landið.
í Reykjavík annaðist hið ný-
stofnaða Handknattleikssamband
íslands móttökur flokksins fyrir
hönd ÍBA, en þangað kom hann
með Dr. Alexandrine s. 1. föstu-
dag. Fór flokkurinn í boði
Reykjavíkurbæjar austur um
sveitir, svo sem Grímsnes, Hvera-
gérði og að Ljósafossstöðinni.
Framhald á 6. síðu.
eyrar og skoða eitthvað af bæn-
um, m. a. sundlaugina, Lystigarð
inn og hraðfrystihúsið nýja, sem
þá verður væntanlega að taka til
starfa. Daginn eftir verður farið
til Mývatns.
Þess er vinsamlega óskað, að
bæjarbúar reyni að láta líta sem
þriflegast út í kringum sig, með-
an forsetarnir stanza hér í bæn-
um, svo að þeir megi eiga góðar
minningar um hreinlegan og hlý-
legan bæ frá heimsókninni hing-
að.
[uWsforstti kemur til llnr-
eyrar II. dpúst