Íslendingur


Íslendingur - 09.08.1957, Síða 5

Íslendingur - 09.08.1957, Síða 5
Föstudagur 9. ágúst 1957 ÍSLENDINGUR DÖÐ L U R ný uppskera. R Ú S í N U R með steinum, sérstaklega góðar, — nýkomnar. Vöruhúsið h.f. HEILHVEITI nýmalað. RÚGMJÖL nýmalað. BANKABYGG nýmalað. SKORNIR HAFRAR Vöruhúsið h.f. Mi utðn Mfa Þeir, sem eiga matvæli geymd utan hólfa á frystihúsi voru, verða að liafa lekið þau fyrir 20. ágúst. Eftir þann tíma verður frostlaust í þessum geymsluklefum. Frystihús KEA. Milljónir Milljónir! Enn er eftir að draga út vinninga á þessu ári fyrir 7 milljónir 190 þúsund krónur hjá HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Sá, sem gleymir endurnýjun glatar rétti til vinn- ings í þeim flokki. Síðustu forvöð að endurnýja fyrir 8. flokk í dag, föstudag. Opið til kl. 10 í kvöld. Umboðsmaður. (M) Við höfum jafnan miklar birgðir varahluta í F#ll» frá Ameríku, Englandi, Þýfckálandi. Biðjið ja/nan um „ORGINAL" Ford hluti, en þeir fást aðeins hjá FORD umboðunum. Eftirlíkingar geta verið mjög hættulegar. Bílasalan h.f. Geislagötu 5 Sími 1649 Carrs súkkulaðikex Polo súkkulaðikex. Qorgnrðalan RÍDHÚiTfiKú r SMI })0C APPELSÍNURNAR eru búnar, en nýkominn er ágætur APPELSÍNU- OG GRAPEALDINSAFI frá Ameríku. Vöruhúsið h.f. TAFLMENN 35.50, 46.75, 69.75, 79.50, 109.85, 265.00. TAFLBORÐ 16.50, 18.50, 20.50, 32.50, 39.50, JBckcu>erj,ltui fjuunlaugú Trgggva nÁtnúsraRo / 'siMf uoo Gammasíubuxur margar gerðir. -Ií Kerrupokar 4 litir. * Treyjur og húfur stakar og í settum, — margar gerðir. Verzl. Ásbyrgi hf. Sími 1555 BANANAR TÓMATAR AGÚRKUR HVÍTKÁL. \gi SQuflfirwitnJf \\ l ■■■„TKí.Tn f/ " :■ ■ og slöngur fást nú í þessum stærðum: 475x16 500x16 550x16 600x16 650x16 700x16 650x15 700x15 32x6 34x7 Sendum gegn póstkröju. Belasalan h.f. Geislagötu 5 Sími 1649 Dömu ávalt til í fjölbreyttu úrvali. Náttkjólar Náttföt Undirkjólar Skjört (stíf) svört, hvít og rauð. Sokkabandabelti, margar gerðir. Nylon og perlon sokkar í fjölbr. úrvali. Ycrzt. AkureyH Síml: fSÍj ÍSLENDINGUR fæst í lausasölu: í Blaííasölunni. í Borgarsölunni. í Blaða- og sælgætissölunni. í Eddu. í Verzluninni Hofi. í Villabúð. JÓN SVEINSSON (Nonni) : Glæfrareið (Úr sögusafninu Á Skipalóni) Manni hreyfingarlaus. Vatnið náði honum nú upp á læri. Ef hann heldur sér vel og fær ekki svima, þá er honum óhætt. Annars er ekki að vita, hvernig fer, hugsaði ég með sjálfum mér. Eg hugsaði ekkert um sjálfan mig, svo áhyggjufullur var ég yfir afdrifum Manna hróður míns. „„Lokaðu augunum!“ kallaði ég til hans aftur og aftur. Svo stóð ég kyrr á bakkanum og horfði á eftir honum. Straumurinn hrakti hestinn, og allt í einu beygði hann við upp í strauminn, svo að hann klofnaði á brjósti lians. Hægt og hægt óð hann og nálgaðist nú bakkann hinum megin. Allt gekk vel góða slund, og ég var vongóður um, að Manni kæmist yfir heilu og höldnu. En allt í einu brá mér í brún. Hest- urinn hallaði sér skyndilega á hliðina upp í strauminn. Manni datt af baki og hvarf á samri stund. Ég skildi undir eins, hvernig á þessu stóð. Manni hafði eitthvað tekið í tauminn og hesturinn þá bylt sér til, svo að hann missti jafn- vægið. Ég vissi, að það var alltaf varasamt að láta hesta ekki ráða sér sjálfa í svona straummiklu vatni. Mér varð það íyrst fyrir, að ég féll á kné og fórnaði upp hönd- unum. „Almáttugi, góði guð! Hjálpaðu bróður mínum og láttu hann ekki drukkna!" kallaði ég í örvæntingu minni. Þá sá ég, að straumurinn hafði náð tökum á hestinum, svo að hann stefndi beint niður eftir ánni. Þannig leið örstutt stund, svo að ég vissi varla í þenna heim né annan. Allt í einu stóð ég upp og kaliaði: „Guð minn góður! Hvað er þetta þarna!" Ég sá eitthvað hreyfast í vatninu við hliðina á hestinum. Ég stóð sem steini lostinn og starði á þetta. Hesturinn hafði nú snúið við aftur og óð beint til lands. En mikil var gleði mín, þegar ég sá á höfuð Manna bróður míns við hliðina á honum. Manni hafði ekki sleppt tökum á faxi hestsins, þó að hann dytti af baki. Nú sá ég greinilega höfuð hans og axlir upp úr vatninu. „Guði sé Iof!“ kallaði ég himinglaður. Því næst hrópaði ég eins hátt og ég gat: „Þetta var ágætt, Manni. Ilaltu þér. Þetta fer allt vel. Þú varst duglegur.“ Ég vissi ekki, hvort hann heyrði til mín. Hesturinn var nú kom- inn alveg að bakkanum, og Manni hélt sér dauðahaldi í faxið. Loksins komust þeir upp úr. „Manni“, kallaði ég aftur, „slepptu ekki snærinu. Haltu vel í hestinn.“ Eg var lnæddur um að hann mundi sleppa taumunum á hestin- um. Þá mundi hann hlaupa frá honum undir eins. En þegar Bleikur komst upp úr ánni og Manni hékk í faxinu á honum sá ég, að liann fótaði sig á bakkanum og greip í snærið við snoppuna á hestinum. Þá sneri hann sér í'átlina til mín og veifaði til mín hendinni. Ég sá, að hann hélt í hestinn, og virtist hann vera hress og ó- meiddur. „Þetta tókst vel, Manni,“ kallaði ég yfir ána. „Þetta fór prýði- lega.“ Nú lyfti Manni höndunum, brá þeim fyrir munn sér og kallaði hárri og skærri röddu: „Nonni, heyrirðu til mín?“ „Já, Manni, ég heyri hvert orð.“ „Ég er rennvotur.“ „Já, ég Sé það. En það er ég líka.“ „Datztu líka í ána?“ „Já, alveg á kaf.“ „Þá erum við báðir votir. Hvað skyldi mamma segja, þegar við komum heim?“ Ég var feginn, að ekkert amaði meira að honum en þetta. Ég var hræddur um, að hann væri hálfdauður úr hræðslu. En nú t sá ég, að hann var miklu hugrakkari en ég hafði búizt við. „Manni“, kallaði ég aftur, „vertu alveg rólegur. Mainma þarf ekkert að vita, að við höfum vöknað.“ „Heldurðu ekki?“ „Nei, áreiðanlega ekki. Þegar við komum heim, getum við haft fataskipti svo lítið beri á, og þá þarf enginn að vita af iþessu.“ „Heldurðu, að við getum það?“ „Það vona ég, Manni. En nú þurfum við að reyna að ná saman aftur.“ „Já, það verðum við að gera. Mér er farið að verða kalt.“ „Því trúi ég vel. Þú ert svo votur.“ „En hvernig eigum við að ná saman, Nonni?“ „Ég veit það ekki enn. Ég þarf að hugsa mig dálítið um. Gakktu fram og aftur um bakkann og teymdu hestinn á eftir þér og reyndu að halda á þér hita.“

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.