Íslendingur - 31.05.1950, Qupperneq 6
N 1y Á L L , dr. Helga Péturs
snmstæður, alls 6 bindi í góðu
bandi. Verð nú aðeins kr. 200,00
Örfá eintök óseld.
Bókaverzlun Björns Árnasonar.
Gránufélagsgötu 4 — Akureyri.
iiaur
Miðvikudaginn 31. maí 1950
Mólaflutningsskrifst'ofa
Jónas G. Rafnar
Hafnarstræti 101
Sími 578
Munið ufmœlismót Þórs 6. júní næstk.
á Þórsvellinum. Sjá grein í blaðinu í dag.
Dáinn er í Winnipeg Manitoba Capteinn
J. B. Skaptason fæddur að Hnausum i
Húnavatnssýslu 14. nóv. 1873. Foreldrar
hans Björn Stefán Jósepsson Skaptasonar
héraðslæknir og Margrét Stefánsdóttir.
Jósep gekk í 108. herdeiídina 4. desember
1915 og var skipaður gjaldkeri hennar og
sæmdur kapteinstign. Jósep var kvæntur
Jóhönnu Guðrúnu Símonardóttur frá
Gönguskörðum í Skagafirði, hálfsystur dr.
Valtýs Guðmund-sonar, er var í Kaup-
mannahöfn.
Áheit á Akureyrarkirkju kr. 130.00 frá
H. C. N. og kr. 200.00 frá N. N. N. Enn-
fremur kr. 500.00 frá ónefndri konu. —
Þakkir. Á. R.
Þar sem kirkjugarðurinn hefir keypt
jarðarfararbílinn af Eyþóri Tómassyni og
ætlar £fð reka hann framvegis til líkflutn-
inga, geta menn snúið sér til Sigurðar
Haraldssonar trésmiðs eða Kristjáns S.
Sigurðssonar Brekkugötu 5 B, sími 1276.
50 ára leikaraajmœli á frú Svava Jóns-
dóttir á þessu ári. í tilefni af því hefir
Leikfélag Akureyrar ákveðið að heiðra
leikkonuna n. k. laugardag, 3. júní, með
sérstöku skemmtikvöldi í Samkomuhús-
inu, þar sem skemmtiatriði verða: Leik-
þáttur, þar sem frúin sjálf leikur aðal-
hlutverkið, ávörp, söngur, upplestur og
dans. Þeir bæjarbúar og aðrir, sem heiðra
vilja listakonuna með nærveru sinni, eru
vinsamlega beðnir að skrifa nöfn sín á
lista, er liggur frammi í Bókaverzl. Eddu
h.f. til föstudagskvölds.
Músíkmyndin ,,Humoresque“. Skjald-
borgarbíó sýnir í þessari viku óvenju
ánægjulega músíkmynd, sem Ilumoresque
heitir. Þetta er amerísk mynd, sem hinir
kunnu leikarar Joan Crawford og John
Garfield, fara með aðalhlutverkin í. Um
mynd þessa segir eitt Reykjavíkurblaðið
nýlega á þessa leið:
„Hér er vakin athygli á þessari mynd,
vegna þess að myndin er í tölu betri músík-
mynda, sem komið hafa hingað um langt
skeið. Efni myndarinnar er ekki í sama
hlutfalli og hljómlistin, enda er því þann-
ig oft farið um góðar músíkmyndir, að
efnið er venjulega ekki í sama hlutfalli og
hljómlistin, enda mun það vera erfitt verk,
að samræmá slíkt.
I myndinni eru leikin verk, sem mjög
njóta almennrar hylli eftir ýmsa af kunn-
ustu tónskáldum, sem uppi hafa verið. Að
vísu er þess ekki getið, hverjir leika ein-
leikana í fiðlukonsertunum, eða hver hann
er sem leikur á píanóið, en hér eru að
verki miklir snillingar. Unaðslegt er að
hlusta á leik Sinfóníuhljómsveitarinnar. —
Humoresque er ein þeirra músíkmynda,
sem tónlistarunnendur ættu ekki að láta
framhjá sér fara.“
ÝMSAR
FREGNIR
Ákveðið hefir verið að fella niður
verðlagseftirlit á veitingum greiða-
sölustaða og gistihúsa. Mun nokkur
hækkun verða á kaffiveitingum af
eðlilegum ástæðum og einnig á föstu
fæði vegna mikillar hækkunar á
kaffi. Hins vegar er ekki búizt við
verulegri hækkun á elnstökum mál-
tíðum.
*
Bílvegir milli landshluta eru nú
óðum að opnast. Golt færi er nú
milli Akureyrar og Reykjavíkur og
sæmilegt milli Akureyrar og Húsa-
víkur. Hins vegar er Austurlands-
leiðin enn ekki fær.
*
Íslandsglíman var nýlega háð í
Reykjavík. Glímukappi fslands varð
Rúnar Guðmundsson úr U. M. F.
Vöku, og er það í fyrsta sinn, er
hann vinnur þenna titil. Er hann
mjög efnilegur glímumaður.
*
Nýja vísitalan, sem ákveðin er
samkvæmt gengisskráningarlögun-
um, reyndist 105 stig.
*
Hæsta burtfarapróf, er tekið var
við farmannadeild Sjómannaskólans
í Reykjavík tók Rikard Jónsson, Lög-
bergsgötu 3 hér í bæ, aðaleinkunn
7,47, sem nálgast ágætiseinkunn.
*
í Lýtingssíaðahreppi í Skagafirði
hefir nýtt, fjölritað sveitablað hafið
göngu sína. Rilstjóri er Indriði G.
Þorsteinsson.
Kirkjan. Sjómannamessa kl. 11 f. h. •—
P. S.
Þakkir jrá Æ. F. A. K. ■— Islendingur
hefir verið beðinn að færa þakkir öllum
þeim, sem keyptu blöð og merki félagsins.
Sérstaklega vill það færa þakkir til ó-
nefndar konu, er sendi því áheit að upp-
hæð kr. 300,00.
Hjúskapur: Þann 26. maí voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Soffía Georgs-
dóttir og Sigurður Hannesson, múrari. —
Heimili þeirra er Oddeyrargata 14.
Hjúskapur. Þann 27. maí voru gefin
saman í hjónaband Oddný Laxdal og Ilall-
dór Ólafsson, úrsmiður. Heimili þeirra er
Helgamagrastræti 21.
Sjáljvirka símastöðin verður opnuð n.k.
laugardag 3. júní, eins og áður hafði verið
ákveðið.
Höjnin: Hafrannsóknar- og gæzluskipið
Maria Julia var statt hér yfir Hvítasunn-
una.
Dánarjregn. Þann 7. maí andaðist í
Montclair í Ameríku Gunnar S. Magnús-
son. Hann var Norðlendingur, fæddur í
Bitrugerði í Eyjafirði, sonur hjónanna
Sigurjónu Jónsdóttur og Magnúrar Gunn-
arssonar, er lengi voru á Skipalóni. Ilann
var kvæntur Margrétu Guðmundsdóttir frá
Hrísey.
Ávarp Sverris Ragnars við
komu Gullfoss hins nýja
Gjaldeyrisekla og bílar. — IIvað á
að gera við unglinga?
Ó, skrifar mér: ,.Það eru leiðinlegar
sögur, sem maður heyrir frá hinum og
öðrum, sem maður veit ekki, hvort maður
á að trúa. Maður af Akureyri biður um
yfirfærslu á 200 krónum vegna dóttur
sinnar sem er við nám í Danmörku. Ifann
fær þvert nei. Sömu dagana skýtur upp
fjölda af nýjum bílum, — ekki til atvinnu-
bílstjóra, heldur einstakra, háttsettra
manna. Og á sama tíma er kunngert, að
heilar fjölskyldur ætli til útlanda til mán-
aðardvalar eða lengur. Verzlun sækir um
innflutning á skólavörum, sem hvergi eru
til í landinu, þrátt fyrir frámunalega skóla
skyldu. Þvert nei! Til livers eru skólarnir,
ef börnin geta hvorki skrifað stíl eða
teiknað inynd, vegna þess, að æ ofan í æ
er neitað um innflutning á þeim vörum,
er til slíkra hluta þarf. Engin mótmæla-
rödd hefir enn heyrst frá kennarastéttinni.
Er það fyrir það, að kennarar hafa sín
föslu laun frá ríkinu, hvort sem nokkur
innflutningur fæst á skólavörum eða ekki?
Til bvers er ríkið að byggja skólaliús um
alll land, án þess að skilyrði séu fyrir
rekstri þeirra?--Jæja, Jón minn,----
það er svo margt, sem maður vildi spyrja
um, að ég held ég hætti í bili, en vel get-
ur verið að ég skrifi þér annað bréf síð-
ar.“
ÉG GET ekki svarað svona bréfi, garnall
maður og þreyttur, en það er annað mál,
sem mér liggur nokkuð á hjarta. Nýja
skólaskipanin heldur fjölda unglinga í
skólum frá hausti til vors, en hvað tekur
þá við? Ef maður býður börnin í sveitir,
þá er nóg fyrir af þýzku fólki, sem flutt
var inn í fyrra. Hvað er þá annað fyrir en
að gera börn vor að útflutningsvöru til
að afla gjaldeyris fyrir nýjum bifreiðum
handa þeim, sem ekki þurfa þeirra með.
Atvinnuleysi unglinganna, sem samkvæmt
Brynjólfs-lögunum eru neydd til að vera
í tkóla langt fram á vor, er orðið þjóðar-
mein. Fjöldi ungra telpna veit ekkert,
hvað þær eiga við sig að gera, og ekkert
verkefni fæst fyrir þær. Vinnuskólabug-
mynd bæjarstjórnarinnar var ágæt, en úr
henni virðist ekkert ætla að verða, því
miður. — Þetta er orðið þjóðfélagsmein,
sem allt verður að reyna til að leysa.
TAURÚLLA
til sölu í Þórunnarstræti 93
(niðri að norðan).
Háttvirtu tilheyrendur!
Við erum nú hér saman komin
til þess að fagna komu þessa nýjasta
og glæsilegasta skips íslenzka flot-
ans. — Það er sennilega smiðshögg-
ið á djarfar og mikilfenglegar ný-
byggingar Eimskipafélags Islands í
bili, nýbyggingar, sein þjóðin fagn-
ar einhuga, og er hreykin af, og
þakkir séu Eimskipafélagi íslands
fyrir framsýni og stóihug í áæ'.lun-
um og framkvæmdum eftirslríðsár-
anna, unt endurnýjun og aukningu
verzlunarflotans.
Siglingar eru nauðsyn, sögðu
Rómverjar til forna. Þetta hafa sigl-
ingaþjóðir heimsins haft hugfast, og
þykir svo mikið við liggja, að þrátt
fyrir óhemju afhroð í síðustu styrj-
öld, mun verzlunarfloti heims, nú
þegar, vera orðinn all-miklu meiri en
hann var fyrir styrjöldina. •— Hverj-
um æiti þessi sannleikur að vera aug-
ljósari en okkur íslendingum, sem
byggjum þetta land, umflotið sævi,
lengst af, á hjara veraldar. — For-
feður okkar virðast hafa misst sjónar
á þessari nauðsyn í lok Þjóðveldis-
! tímabilsins, og það er enn lítt rann-
sakað mál, hvern þátt tómlæti þeirra,
um viðhald skipastólsins, át.i í því
aldalanga myrkri, sem þjóðin átti þá
fyrir höndum. — Héðan af hendir
okkur ekki slíkt sinnuleysi. Þjóðin,
með E. í. í fararbroddi, þekkir sinn
vitjunartíma í þessum efnum og
skilur til fulls, að siglingar eru nauð-
i syn og iíftaug þessa eylands. —- Hin
nýju skip okkar, og þetta góða skip,
þeim öllum fremur, ásamt fleirum
góðum samgöngutækjum, hefir flult
ísland til um set á hnettinum. Við er-
um ekki lengur á hjara veraldar. —
Mér er fyrir barnsminni, þegar fyrsta
skip E. I. sigldi hér inn á höfnina,
fyrir um það bil 35 árurn siðan. Ég
hef seinna skilið það betur, heldur
en ég gerði þá, hvílíkum aldahvörf-
um stofnun E. í. réði í sögu þjóðar-
innar, og hver höfuðnauðsyn það
var, að hafizt væri handa um bygg-
ingu kaupskipaflota, þegar af þeirri
ástæðu, að sjálfstæði eylands er ó-
hugsandi án hans. — Hvers virði
væri okkur sjálfstæði, og hefðum
við í raun og veru haft nokkurn rétt
til að öðlast það, vanmegnugir um
að eiga að minnsta kosti þá'.t í flutn-
ingum til og frá landinu. — Slíkl
umkomuleysi verður ekki samræmt
þeim kröfum, sem gera verður til
fullvalda ríkis. •— Eimskipafélagi ís-
lands hefir vegnað vel á þessum ár-
um, það hefir þróast og dafnað, með
eðlilegum hætti, og guði sé lof fyrir
það. — Megi gæfan fylgja því, svo
að það verði megnugt um að sinna
hlulverki sínu á ókomnum árum,
rneð sania stórhug og glæsibrag,
sem hingað til. — í þessu kærkomna
tilefni óskum við Akureyringar E. í.
árs og frlðar, skips jóra og skipshöfn
hellla og velfarnaðar og þjóðinni til
hamingju, með hinn ágæta farkost.
Fyrir hönd Akureyrarbæjar vil ég
að lokum leyfa mér að bjóða „Gull-
foss“ velkominn á höfn okkar. Megi
hamingja fylgja honum og skipshöfn
hans. Góðir Akureyringar, látum
okkur árétta árnaðaróskir okkar með
ferföldu húrra.
„Gullfoss", hið nýja skip E. í.
lengi lifi!
FÉLAGSLÍF
Boðhlaupsæfing annað
kvöld kl 8 á íþróttavellin-
Jm, og drengjamótið í
frjálsum íþróttum 8 — 15
ára hefst á föstuda.ginn kl. 8 e.h.
F rjálsiþróftadeilílin.
Samkonm í lcristniboðshúsinu Zíon
(fórnarsamkoma) n. k. sunnudag kl. 8,30,
séra Jóhann IJIíðar talar. — Allir vel-
komn!r.
HVÍTIR
KVENSLOPPAR
með stutturn ermum
BRAUNS-verzIun
Páll Sigurgeirsson
Nýja símanúmerið
1909
3 línur.
B. S. A.
Frumbækur,
Hofuðbækur
Fundargerðarbækur
Bréflím
Glerlím.
Bókaverzl. EDDA h.f.