Íslendingur - 02.05.1958, Qupperneq 1
Tónlistsiviha hefst i sunnudag
Tónlistaifélag Akureyrar 15 ára
þann dag
i
Tónlistarfélag Akureyrar er 15
ára á sunnudaginn, stofnað 4.
maí 1943. Hefir félagið gegnt þrí-
þættu hlutverki: Að reka tónlist-
arskóla, styðja starfsemi Lúðra-
sveitar Akureyrar og fá tónlistar-
menn og hljómsveitir til tónleika-
halds hér í bænum.
Venjulega hefir félagið gengizt
fyrir 3 til 4 tónleikum á ári, ýmist
með innlendum eða erlendum
kröftum. Hafa þar skipzt á ein-
söngvar, píanó-, fiðlu- og cello-
tónleikar, og tvívegis hefir Sin-
fóníuhlj ómsveit íslands leikið hér
á vegum félagsins. Með þessu
starfi og hinum öðrum, er nefnd
eru hér að framan, hefir Tónlist-
arfélagið unnið mikið menningar-
hlutverk hér í bænum.
f tilefni af afmæli félagsins efn-
ir það til „tónlistarviku“, og hefir
í því skyni fengið þrjá glæsilega
einsöngvara frá Reykjavík: frú
Þuríði Pálsdóttur, ungfrú Guð-
rúnu Á. Símonar og Guðmund
Jónsson. Undirleikari verður ung-
frú Guðrún Kristinsdóttir.
Tónlistarvikan hefst á sunnu-
daginn, 4. maí með einsöng frú
Þuríðar Pálsdóttur. Hefir hún
ekki sungið áður á vegum félags-
ins. Á miðvikudag 7. maí syngur
ungfrú Guðrún Á. Símonar, en
hún söng á vegum félagsins fyrir
4 árum. Með henni mun Guð-
mundur Jónsson syngja nokkur
tvísöngslög. Á fimmtudagskvöld-
ið syngur svo Guðmundur Jóns-
son, og hefir hann ekki sungið hér
á vegum félagsins, en margir bæj-
arbúar muna söng hans á Ung-
mennafélagamóti hér á íþrótta-
vanginum fyrir nokkrum árum.
Styrktarfélagar Tónlistarfélags-
ins eru nú orðnir það margir, að
þeir fylla með gestum sínum flest
sæti í Nýja Bíó, þar sem tónleikar
félagsins eru lialdnir. Er því hætt
við, að færri geti nolið þessarar
ánægjulegu tónlistarviku en kjósa
mundu.
Aðalhvatamaður að stofnun
Tónlistarfélags Akureyrar var
Árni Kristjánsson píanóleikari, en
stofnendur þess voru 12. Formað-
ur félagsins frá upphafi hefir ver-
ið Stefán Ág. Kristjánsson. Hefir
hið margþætta starf félagsins að
sjálfsögðu mætt mest á honum,
þótt fleiri hafi unnið þar af á-
huga. í stjórn með Stefáni eru nú
Jóhann 0. Haraldsson og Harald-
ur Sigurgeirsson.
Á þessum tímamótum munu
tónlistarvinir í bænum færa félag-
Guðmundur Jónsson óperusöngvari.
Frú Þuríður Pálsdóttir.
Ungfrú Guðrún Á. Símonar.
Ungfrú Guðrún Kristinsdóttir.
»Afbrýðisöm
eiginkona«
Leikfélag Akureyrar hefir nú
fullæft 4. verkefni sitt á leikárinu,
en það er gamanleikurinn „Af-
brýðisöm eiginkona“ í þýðingu
Sverris Haraldssonar. — Verður
leikurinn frumsýndur á þriðju-
daginn kemur.
Leikstjóri er Jóhann Ogmunds-
son og leikendur 9, þar af nokkrir
nýliðar.
Leikur þessi hefir verið sýndur
í Hafnarfirði og víðar við mikla
aðsókn og ágætustu viðtökur.
Skflrtoiipnerilnii opnuð
Nú í vikunni var opnuð hér í
bænum ný úra- og skartgripa-
verzlun að Kaupvangsstræti 3, þar
sem Litla bílastöðin var um eitt
skeið. Eigandi verzlunarinnar er
Frank Michelsen, og er þessi
verzlun útibú frá aðalverzlun hans
í Reykjavík, sem er löngu þekkt
víða um land. Er verzlunin vel bú-
in að úrum og skartgripum, en
auk þess selur hún borðbúnað,
postulíns- og kristalvörur o. fl.
Innrétting öll og frágangur er
eftir ströngustu kröfum tízkunnar,
unnin af ýmsum fagmönnum hér
í bænum og í Reykjavík. Verzlun-
arstjóri er frú Katrín Lárusdóttir.
TOGARARNIR
Kaldbakur kom af veiðum 23.
apríl sl. Landaði hér 253 tonnum
af ísvörðum fiski í hraðfrystihús-
ið og skreið. Fór til Reykjavíkur
í slipp og viðgerð 27. f. m. og er
þar enn.
Svalbakur kom af veiðum að-
faranótt 30. apríl. Afli áætlaður
ca. 230 tonn. Fer í ketilhreinsun.
Harðbakur kom af veiðum 25.
apríl. Landaði liér ca. 188 tonn-
um af ísvörðum fiski í hraðfrysti-
húsið og skreið. Fór aftur á veið-
ar 26. apríl s.l.
Sléttbakur kom af veiðum til
Sauðárkróks 25. apríl s.l. Land-
aði þar í hraðfrystihúsin 230
tonnum af ísvörðum fiski. Fór
aftur á veiðar s.l. mánudagsmorg-
un frá Akureyri.
Norðlendingur landaði á Sauð-
árkróki 21. apríl s.l. 247 tonnum
af ísvörðum fiski. Fór aftur á
veiðar frá Akureyri 23. apríl.
inu þökk fyrir það menningar-
starf, er það vinnur, og árna því
gengis um ókomin ár.
Unnið ttrS ti uuhnum tcngslum
vii Vcstur-blendinga
Nefnd skipuð til að vinna að málinu.
Nýlega skipaði ríkisstjórnin 5 manna nefnd, er vinna skal að aukn-
um samskiptum Vestur-lslendinga og heimaþjóðarinnar á grundvelli
tillagna, er Árni Bjarnarson bókaútgefandi á Akureyri hefir gert að
beiðni Steingríms Steinþórssonar fyrrv. forsætisráðherra. Nefndina
skipa: Árni Bjarnarson, formaður, sr. Benjamín Kristjánsson prest-
ur að Laugalandi, Steindór Steindórsson menntaskólakennari, Hall-
grímur F. Hallgrímsson aðalræðismaður Kanada og Egill Bjarna-
son auglýsingastjóri Reykjavík.
Formaður nefndarinnar, Árni
Bjarnarson, átti tal við blaða-
menn Akureyrarblaðanna s. I.
sunnudag ásamt meðnefndar-
manni Steindóri Steindórssyni,
og gerði lauslega grein fyrir til-
lögum þeim, sem áður getur og
fyrstu verkefnum nefndarinnar.
Kvaðst hann hafa ferðast um ís-
lendingabyggðir vestra sumurin
1946 og 1947 og safnað ýmsum
sögulegum fróðleik, er íslenzku
landnemarnir höfðu haft með sér
að heiman eða skráð vestra eftir
minni og munnmælum. Hefði
Norðri tekið að sér útgáfu á þess-
um sagnaritum, og væru þegar
nokkur bindi komin út.
Árni kvaðst hafa orðið þess
(Framhald á 2. síðu.)
Fatahreinsun Vigfúsar og Árna, sem um nokkur ár hefir starfað í
Strandgölu 13 B, flutti fyrir skömmu síðan í nýtt húsnœði við Hóla-
braut (sunnan Gránufélagsgötu). Fatahreinsun er nú sjálfsögð iðn-
grein í hverjum kaupstað, og eru tvœr slíkar starfandi hér í bœ og
virðist ekki skorta verkefni. Hið nýja húsnœði Fatahreinsunarinnar
er stórum betra og rýmra en það, er hún átti áður við að búa. —
Ljósm,: Gísli Olafsson.