Íslendingur - 27.06.1958, Blaðsíða 8
ÍSLENDINGUR
íæst í Söluturninum Hverf-
isgötu 1, Reykjavík.
5. síðcm í dag:
Hans Speidel
hershöjSingi Atlantshajsbandalagsins
Úr heimahögum
Kirkjan. Messað í Akureyrarkirkju
á sunnudaginn kemur kl. 10.30 f. h. •—
P. S.
Fimmlugur varð 20. þ. m. Skafti Ás-
kelsson framkvæmdastjóri dráttarbraut-
arinnar.
50 ára hjúskaparajmœli áttu hjónin
Þóra Hallgrímsdóttir og Páll Skúlason
kaupmaður 20. þ. m.
Hjónaejni. Ungfrú Ilrafnborg Guð-
mundsdóttir (Tómassonar framkv.stj.)
og.Pétur Ilólm stúdent frá Hrísey.
Málverkasýningu opnar Guðmundur
Halldórsson málari að Sólgarði í Saur-
bæjarhreppi á morgun. A sýningunni
verða 54 olíumálverk. Sýningin verður
opin aðeins á morgun og sunnudag frá
9 árdegis til 9 að kveldi.
Nœ'turlœknar. Föstud. 27. júní Erl.
Konráðsson. -— Laugard. 28. júní Einar
Pálsson. — Sunnud. 29. júní Einar
Pálsson. — Mánud. 30. júní Pétur Jóns-
son. — Þriðjud. 1. júlí Erl. Konráðs-
son.
Gunnar Huseby keppir sem gestur á
Islandsmótinu hér á Akureyri um helg-
ina í kúluvarpi og kringlukasti.
Kosningar til
Bunaðarþings
fara fram á sunnudaginn. Hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
hafa komið fram tveir listar, sem
merktir eru B. og D. Efstu menn
á B-lista eru Ketill Guðjónsson og
Garðar Halldórsson, en á D-lista
Árni Jónsson og Árni Ásbjarnar-
son.
Þann sama dag fara fram
sveitastjórnarkosningar og kosn-
ingar sýslunefndarmanna, og eru
það víða listakosningar.
Að standa við
orð sín
Dagur birtir í fyrradag ræðu
forsætisráðherra, Hermanns
Jónassonar, er hann flutti þjóð-
inni 17. júní s.L, en þar segir
Hermann m. a.:
,,Hér ó landi hefir það alltaf
verið talið skylt hverjum góð-
um dreng að standa við orð
sín."
Líklega hefir hugur forsæt-
isráðherrans hvarflað að lof-
orðum Hræðslubandalagsins
um brottför varnarliðsins, nýju
leiðirnar í efnahagsmálunum
og öll hin loforðin, er hann
stílaði ræðuna!
Moskvaíör ísl.
þingmanna
Annáll Íslendings
Borgjirzkir gœðingar og vinur þeirra. — Ljósm. vig.
Hópferð á hestnm
til Þingfvalla
Eins og skýrt hefir verið frá í
fréttum verður landsmót hesta-
mannafélaga háð í Skógarhólum
við Þingvelli nú í sumar, dagana
17. til 20. júlí. Þar verður sýning
á kynbótahrossum og góðhestum,
ennfremur kappreiðar og boð-
reiðar.
Hestamannafélagið Léttir hér
á Akureyri hyggst efna til hóp-
ferðar á hestum til Þingvalla að
þessu tilefni og væntir sem allrar
mestrar þátttöku Akureyringa og
Eyfirðinga í slíkri för. Einnig er
gert ráð fyrir hópferð í bíl, ef næg
þátttaka fæst.
Þeir, sem hyggjast fara á hest-
um suður þurfa að vera búnir að
tilkynna þátttöku eigi síðar en
sunnudaginn 6. júlí. Æskilegt er
að þeir, sem hyggjast fara þessa
för tilkynni það til stjórnar fé-
lagsins sem allra fyrst, til þess að
hægt sé að taka ákvörðun um það
hvort félagið tekur þátt í hópreið
inn á sýningarsvæðið og hvort
það getur sent sveit eða sveitir í
boðreiðarnar.
Um nánari tilhögun þessarar
ferðar verður fundur meðal þátt-
takenda eftir að þeir hafa tilkynnt
þátttöku sína. Líklegt er talið að
fara verði í byggð vestur fyrir
Blöndu en þaðan um Hveravelli,
Kjöl og Biskupstungnaafrétt suð-
ur. Til Þingvalla verður hópurinn
að vera kominn eigi síðar en um
miðjan dag fimmtudag 17. júlí.
Vonast er til að hægt verði að
hafa samflot með Skagfirðingum
eftir að vestur er komið.
Á Þingvöllum er gert ráð fyrir
að tilhögun verði sem hér segir:
Kynbótahross verði sýnd í fimm
flokkum. Stóðhestar, tamdir með
afkvæmum, tamdir, sýndir sem
einstaklingar og bandvanir. —
Hryssur sýndar með afkvæmum
og sem einstaklingar. — Góð-
hestasýning, þrír frá hverju fé-
lagi, nema 7 frá Fák. Hafa hestar
Léttis þegar verið valdir sem kunn
ugt er. — Forsýningar í hverju
héraði, sem fara fram um þessar
mundir eru vegna kynbótahrossa.
— Boðreiðinni verður hagað á
svipaðan hátt og boðhlaupi. Er
reiðin 800 m. og fjórir hestar í
sveit með 200 m. sprett hver, en
riðið er með boðhlaupskefli, sem
knapar láta ganga á milli sín að
enduðum hverjum spretti. Tvær
sveitir keppa í senn og ræður tími
úrslitum. Þá verður keppt í 400
m. stökki, 300 m. stökki og 250 m.
skeiði.
Þess er að vænta að Akureyr-
ingar og Eyfirðingar sjái sér fært
að fara sem allra flestir á hestum
suður yfir fjöll og sýni þar með
blómgandi félagslíf í Létti og vax-
andi mátt hestamennskunnar sem
íþróttar hér norðan lands. Vitað
er að sjaldan hefir á síðari árum
verið til jafn mikið úrval fagurra
gæðinga hér um slóðir og einmitt
Sjálfstæðisflokkurinn
tilnefndi enga fulltrúa
Utvarpið skýrði frá því í fyrra-
dag, að hópur íslenzkra þing- ]
manna legði af stað til Moskvu'
morguninn eftir (í gær) í boði
æðsta ráðs Sovétríkjanna, en ]
þessi boðsferð hefir staðið fyrir!
dyrum um all-langt skeið. í för-
ina fóru: Emil Jónsson, Pétur Pét-
ursson, Karl Kristjánsson, Sigur-^
vin Einarsson, Alfreð Gíslason og •
Karl Guðjónsson. Sjálfstæðis-’
flokkurinn tilnefndi hins vegar
engan til fararinnar. |
A útifundinum í Reykjavík,
sem haldinn var til að mótmæla
dómsmorðunum í Ungverjalandi,
sagði ritstjóri Alþýðublaðsins í1
ræðu sinni:
„Nú stendur fyrir dyrum
ferð íslenzkra alþingismanna
til Rússlands. Ég legg til, að
þeir forfallist frá að sækja
Rússa heim. Ég gæti hvorki
vakað þar né sofið, meðan
blóðið er að storkna í Ung-
verjalandi.“
Mælt er, að þessari tillögu H.
Sæm. hafi verið tekið af fundar-
mönnum með dynjandi lófataki.
Hins vegar hafa flokksbræður
hans á Alþingi ekki virt hana
mikils, fyrst þeir eru Jjegar flogn-
ir til Moskvu.
Sú afstaða Sjálfstæðisflokksins
að „forfallast“ frá Jsessari ferð,
mælist hvarvetna vel fyrir.
HnMóldiium ol
Lougdldodi
var slitið 15. júní, og luku 36
námsmeyjar prófi. Hæstu einkunn
hlaut Inga Þorhjörg Svavarsdóttir
Akureyri, 9,34. Kennarar við
! skólann á liðnum vetri auk for-
|
stöðukonunnar, ungfrú Lenu Hall
grímsdóttur: Ungfrú Sigrún
Gunnlaugsdóttir (vefnaður), ung-
frú Ingibjörg Þórarinsdóttir
(þvottur og ræsting) og ungfrú
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir (hús-
stj órn).
Námsmeyjar gróðursettu í vor
2 þús. birkiplöntur í nágrenni
skólans og aðrar 2 þús. á vegum
skógræktarfélags hreppsins.
nú. Það er því von og ósk stjórn-
ar Léttis að hlutur félagsins og
þar með Eyfirðinga og Akureyr-
inga megi vera sem glæsilegastur
á landsmóti hestamannafélaga í
sumar. Það skal enn vinsamlega
ítrekað, að menn tilkynni þátttöku
sína til stjórnar félagsins sem allra
fyrst.
(Fréttatilkynning frá Hesta-
mannafélaginu Létti.)
Ibúðarhúsið Brekkuholt á Stokkseyri
brennur að öllum innviðum og megin-
hluti innanstokksmuna.
Vísitala framfærslukostnaðar fyrir
júnímánuð reiknast 193 stig.
Farþegagjöld til útlanda hækka um
55% og farmgjöld með íslenzkum kaup-
skipum um 18—55%.
Kristján Búason, prestur í Olafsfjarð-
arþingum, vígður í dómkirkjunni í
Reykjavík. Hinn nývígði prestur pré-
dikaði. Sr. Jóhann Hannesson þjóð-
garðsvörðui' kjörinn löglegri kosningu
sem prestur í Þingvallaprestakalli. Sótti
einn um brauðið.
Joseph T. Thorson, hæstaréttardóm-
ari í Kanada, af íslenzkum ættum,
heimsækir Island ásamt frú sinni.
Frá Ferðafél. Akureyrar
Farið verður í Herðubreiðarlindir
um næstu helgi, og ráðgert að ferðin
hefjist í kvöld (föstud. 27. júní) kl.
20.30 frá Ferðaskrifstofunni og komið
heim á sunnudagskvöld. Þátttaka til-
kynnist Jóni D. Ármannssyni, sími
JO árd starfsafmœli
Síðastliðinn mánudag voru 50
ár liðin, síðan Olafur Thoraren-
sen bankastjóri gekk í þjónustu
Landsbankans. Var hann fyrstu
10 árin bankagjaldkeri við útibú-
ið hér, en síðan bankafulltrúi við
aðalbankann í Reykjavík, unz
hann tók við stjórn útibúsins á
Akureyri árið 1931.
Ólafur hefir frá fyrstu starfsár-
um sínum notið virðingar og vin-
sælda yfir- og undirmanna við
stofnunina, og eigi síður við-
skiptamanna bankans. Mörg
tímabundin vandræði félítilla
manna hefir hann leyst og reynzt
Jteim jafnan ráðhollur og velvili-
aður.
Öll stjórn hans á útibúinu hér
hefir verið traust og mjög til fyr-
irmyndar.