Íslendingur


Íslendingur - 08.05.1959, Qupperneq 2

Íslendingur - 08.05.1959, Qupperneq 2
2 ISLENDINGUR Föstudagur 8. maí 1959 Fimmtugir bræður: Hagnðs og Cuðmundur Jinassynir Tvíburarnir, Guðmundur Jón- asson bifreiðastjóri og Magnús Jónasson lögregluþjónn áttu íimmtugsafmæli sl. sunnudag. A 10. aldursári fluttust þeir bingað til bæjarins vestan úr Skagafirði með móður sinni, Jón- ínu Guðmundsdóttur, sem þá var nýorðin ekkja eftir Jónas Magnús son bónda á Syðri-Húsabakka í Skagafirði. Lézt Jónína fyrir hólfu öðru ári á 82. aldursári. Bræðurnir hafa því verið bú- settir hér í bænum full 40 ár. Urðu þeir snemma að létta undir með móður sinni og dvöldu í sumarvistum vestur í Skagafirði fyrstu árin. Báðir hófu þeir iðn- nám á ungum aldri, Guðmundur járnsmíði hjá Stefáni Stefáns- syni járnsmíðameistara í 3 ár en Magnús söðlasmíði hjá Halldóri Ilalldórssyni og lauk frá honum sveinsprófi í iðninni. Vann hann síðan nokkur ár að söðlasmíði, fyrst hjá Halldóri en síðan á eig- in vinnustofu, og allt til þessa dags hefir hann gripið í söðla- smíðina, þegar tómstundir gefast. Guðmundur var um skeið verk-1 stjóri við kolaverzlun Axels Kristjánssonar, en gerðist síðan atvinnubílstjóri. Hefir hann ekið frá BSO mörg undanfarin ár og er með þekktustu og ötulustu bíl- stjórum bæjarins, ætíð snemma á ferli til starfs síns og gefst ekki upp fyrir erfiðri færð fyrri en i fulla hnefana. Guðmundur er kvæntur og á 4 börn. Heimili hans er að Gránufélagsgötu 15. Magnús hefir ekki kvænzt. Hélt hann heimili með móður sinni að Strandgötu 13 árum saman en síðast í Glerárgötu 1, þar sem hann býr nú. Var mikið ástríki með frú Jónínu og sonum hennar og heimili þeirra orðlagt íyrir rausn og hjálpsemi. Skagfirðing- ar allir, og þó einkum þeir, sem hingað þurftu að leita læknis- hjálpar, töldu þar annað heimili sitt. í desember árið 1940 gekk Magnús í lögreglulið Akureyrar, og hefir gegnt starfi þar samfleytt síðan við almennar vinsældir. Báðir eru þeir tvíburarnir miklir þrekmenn og hafa reynzt hinir á- gætustu borgarar. J. Ó. P. Magnús og Guðmundur Jónassynir. Nýtt félagsheimili I unnið. Þorsteinn Einarsson, framkvæmdastj óri Félagsheimila- Framhald af 1. ,ÍSu | sj s>mþykkt stað8elning. dóltir flutti ávarp af liáifu Kven- un3; en Hólmgeir Þorsteinsson félagsins Iðunnar og Óttar Skjól- hefði selt heimilinu allgóða viðbót dal af hálfu U. M. F. Iramtíð. Þá af lam]j. þar sem það stendur. töluðu Hreiðár Eiríksson, Kristj- Byggingaframkvæmdir hefðu haf- án Vigfússon málari og Hólm- izt sumarið 1956. geir Þorsteinsson. Karlakór söng Húsameistari var Gísli Hall- undir stjórn frú Sigríðar Schiöth. úórsson arkitekt, teikningu gerði Veizlustjóri las upp skeyti og orð- ólafur Júlíusson verkfræðingur, sendingar, sem vígsluhátíðinni en Sigurður Thoroddsen verk hafði borizt, m. a. írá tveim ung- fræSingur teiknaði lagnir. Bygg. mennafélögum og tveim kvenfé- ingameistari Var Þórður Frið- lögum í Öngulsstaðahreppi og bjarnarson, er áður hafði byggt Magnúsi Jónssyni alþingismanni. tvö félagsheimili í firðinum, múr- Að lokum ávarpaði Hólmgeir verk og járnaiagnir annaðist Jón Þorsteinsson gestina og skýrði frá B jónsson múrarameistari, raf- því, að Hraínagilshreppsbúar, nú lagnirj miSstöS og vatnslögn ann- núsettir á Akureyri, hefðu safnað aðist KEAj malningu önnuðust saman nokkurri peningaupphæð, bræðurnir Kristján og Hannes er verða skyldi stofnfé að hljóð- Vigfússynir. Slippstöðin á Akur- færasjóði ryrir félagsheimilið eyri smiSaði hurðir og glugga, en Laugarborg, en Halldór Guð- Eriðrik Kristjánsson Kristnesi iaugsson þakkaði með ræðu. Að annaðist innréttingu húsvarðar- hófinu loknu var dans stiginn íbúðar. Konur í hrepp num unnu fram eftir nóttu, en jafnframt og gáfu öll gluggatjöld, en starfs- gengu veizlugestir um húsið og menn viS bygginguna lýsingu í skoðuðu það. kaffistofu. Þrír eigendur. ! Alls er byggingin 350 fermetr- í ræðu sinni gat Halldór odd- ar og 2220 rúmmetrar. Samkomu- viti þess, að undirbúningur að salur er 12o ferm., upphækkun byggingu Laugarborgar hefði (kaffisalur) 40 ferm. og leiksvið hafizt fyrir mörgum árum. Gamla 60 ferm. Á neðri hæð er 30 ferm. þinghúsið, sem tekið var í notkun for(]yri, snyrtiherbergi, fata- fyrir 34 árum, liefði verið orðið ófullnægjandi sem samkomuhús, þótt það gæti nú hentað sem skólahús, eftir að það hefði verið hitað upp með vatni úr Hrafna- gilslaug. Raddir hefðu verið uppi um að byggja hið nýja félags- heimili annars staðar í hreppnum, en jarðhitinn við Hrafnagil hefði ráðið úrslitum, enda væri heimil- ið hitað upp með laugarvatni og myndi því spara hitunarkostnað svo um munaði. Eigendur að heimilinu væru þrjú félög: Hreppsfélagið með 60%, U.M.F. Framtíðin með 20% og Kvenfélagið Iðunn með 20%. Lýsing hússins. Þá lýsti Halldór byggingunni og gat þeirra, sem að henni hefðu geymsla og anddyri. Þá er 42 ferm. viðbygging, þar sem fyrir er komið eldhúsi, búri og snyrt- ingu. Yfir veitingastofu er salur fyrir fundi og smærri samkvæmi, og er þar gert ráð fyrir rúmi fyrir bókasafni Lestrarfélagsins Mímir. Þá er íbúð húsvarðar, þriggja herbergja, 83 ferm., en húsvörð- ur er Bernharð Pálsson bifreiðar- stjóri. í kjallara er loftræstinga- kerfi, þvottahús og geyinslur. Um hverfis húsið eru rennisléttar eyr- ar, sjálfgert bílastæði fyrir hundr- uð bíla. Hið nýja félagsheimili í Hrafnagilshreppi mun vera með rúmbeztu og glæsilegustu bygg- ingum sinnar tegundar, en uin kostnað við bygginguna er enn ekki að fullu vitað. •i a «• S ^ ; ■* " f' • S •* íí '••'• '* ‘ >< * * * * 5éáf yfir hinn glcesilega samkomusal í jélagsheimilinu Laugarborg á Hrafnagili. T. h. á myndinni stendui Þórður Friðbjarnarson bygg- ingameistari. F*á bæjarstjórn Framhald af 1. síðu. sem spurzt er fyrir um, hvort bær- inn myndi fáanlegur til að styðja útgerð handfæraskips, sem mann- að yrði að mestu unglingum á aldrinum 13—16 ára, og gert út liéðan frá Akureyri á komandi sumri. Er þess óskað, að bærinn ber.i hálfan halla af útgerð þessari, og samkvæmt áætlun, sem fylgir erindinu, er reiknað með heildar- halla á þriggja mánaða útgerð kr. 72.000.00. Bæjarstjórn leggur til að bær- inn styðji þessa tilraun með því að taka að sér að greiða hálfan halla af þessari útgerð á þessu sumri.“ Hér er um að ræða mark- verða tilraun, sem vonandi er að vel takist. Eitt hið stærsta vandamál margra fjölskyldna hér í bænum er að finna heppi- lega atvinnu fyrir unglinga yfir sumartímann og er sýnilegt, að takast má með þessu að bæta nokkuð úr þeirri brýnu þörf. Bygging rogara- dróftarbrautar. Á bæjarstjórnarfundinum var samþykkt svofelld bókun frá hafnarnefnd: „Hafnarnefnd felur bæjarstjóra að sækja um þrjú hundruð þús- und króna framlag úr Hafnarbóta- sjóði á þessu ári til byggingar tog- aradráttarbrautar á Akureyri. — Ennfremur felur hafnarnefnd bæjarstjóra að leita leyfis Sam- göngumálaráðuneytisins til að leita lána erlendis fyrir erlendum efniskostnaði vegna fyrirhugaðr- ar togaradráttarbrautar. Ennfremur verði leitað eftir því við ríkisstjórnina, að Akureyrar- bæ verði endurlánaður hluti af lánsfé, sem fyrirhugað er að taka erlendis til hafnarmannvirkja, og verði því fé varið til togaradrátt- arbrautar. Þá leggur nefndin til við bæj- arstjórn, að hún samþykki áskor- un til Alþingis um að lækka ekki framlag á fjárlögum til bygging- ar togaradráttarbrautar á Akur- eyri.“ Léíeg frammisfaða Togaradráttarbrautin hefir ver- ið mjög brýnt hagsmunamál fyrir þetta bæjarfélag, og gegnir furðu hve treglega hefir gengið að hr.inda því áleiðis. Ekki verður annað sagt en að þingmaður stað- arins og uppbótarþingmaðurinn héðan hafi staðið þar lélega í í- staðinu. Má minna á, að er Jónas G. Rafnar átti skamma setu á Al- þingi á síðasta kjörtímabili sem varaþingmaður flutti hann þings- ályktunartillögu varðandi þetta mál, en fulltrúar staðarins feng- ust þá ekki til að vera meðflutn- ingsmcnn. Þannig hafa þessir full- trúar bæjarins á Alþingi lagzt gegn þvi að þetta þarfa mál næði fram að ganga. --------□---------- MhiorÉgel fyrir opnum íjöldum. Jónas frá Brekknakoti segir í Degi í fyrradag: „Formaður Sj álístæðisflokks- ins, Ólafur Thors, mælti á áhrifa- stundu í fjölmenni síns flokks fyr- ir ekki löngu á þá leið, að þeir, Sjálfstæðismenn, gættu fyrst eig- in hags, þá hagsmuna síns ágæta flokks og síðan þjóðarhags.“ Það er ekki alltaf nóg, Jónas, að drekka í sig blekkingar Tím- ans. Hvar og hvenær mælti Ólaf- ur Thors þessi orð? Svar óskast. Grein sína nefnir Jónas „Lýð- ræðið í hættu“. En er ekki sið- gœðið í yfirvofandi hættu, er menn seilast svo langt um blekk- ingar í opinberu blaði?

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.