Íslendingur - 07.08.1959, Qupperneq 1
i
Stofnendur voru Kristjón Árnoson og
Mognús é Grund.
Sfctrun hætt.
— Og nú eruð þið hættir að
slátra.
Á þessu sumri eru liðin 50 ár frá stofnun Verzl. Eyjafjörður, og
hefir Islendingur af því tilefni átt stutt viðtal við annan stofnandann,
Kristján Árnason, sem í öll þessi 50 ár hefir starfað að verzluninni.
8C0 kr. híutafé.
— Það var sumarið 1909, seg-
ir Kristján, — að við Magnús Sig-
urðsson hóndi og kaupmaður á
Grund stofnuðum þessa verzlun.
Kristján Árnason.
Leyfi var veitt fyrir henni 18.
júní, en hinn 29. júní var hún
opnuð. Eg lagði fram 800 kr. í
hlutafé, sem var aleiga mín, en
Magnús lagði fram vefnaðarvör-
ur fyrir svipaða upphæð. Til-
gangur verzlunarinnar var að
selja alls konar neyzlu- og fatnað-
arvörur, búsáhöld, verkfæri og
alls konar smávörur. Vörurnar
skyldi selja gegn staðgreiðslu, en
annars var áreiðanlegum við-
skiptamönnum lánað gegn
greiðslu í lausafé eða ýmsum
framleiðsluvörum bænda, svo
sem kjöti, gærum, ull, prjónlesi
o. fl.
SEútrun hafin.
Ár.ið 1914 fékk verzlunin leyfi
til að hyggja sláturskúr austan
við verzlunarhúsið, og var þá um
haustið byrjað á því að taka á
móti fé til slátrunar og einnig
kaupa fé á fæti. Eyfirðingar lögðu
fé sitt inn í viðskiptareikning, en
auk þess var fé keypt á fæti í
Fnjóskadal og Skagafirði. Var
slátrunin í fyrstu í smáum stíl, en
mun hafa komizt upp í 2000 fjár
síðustu árin.
Lamgur yinnudagur.
— Og hvað um sláturafurðirn-
ar?
— Kjötið var að mestu saltað
til útflutnings, mest stórhöggvið
en líka nokkuð spaðsaltað og selt
til Noregs gegnum umboðsmann
verzlunarinnar i Kaupmannahöfn.
Pylsur voru gerðar úr slögum
spaðsaltaða kjötsins og þær seld-
ar í Kaupmannahöfn.
Störfin í sláturskúrnum voru
mjög erfið vegna þrengsla, svo að
koma varð kjötinu úr húsinu fyr-
.ir kl. 7 að morgni næsta dags.
Varð því venjulega að hefja starf
kl. 4 að morgni en því ekki lokið
fyrri en kl. 7 að kveldi. En það
má segja fólkinu, sem að slátur-
störfunum vann, til verðugs lofs,
að aldrei varð vart óánægju hjá
því vegna langs vinnutíma.
ÍVerzlunarhús Verzl. Eyjafjörð- I
ur h.f., byggt fyrir 20 árum. I
— Já. Þegar ný löggjöf var
gerð um sláturhús, fullnægði slát-
urskúr verzlunarinnar ekki þeim
kröfum, sem í lögunum voru gerð-
ar urn slálurhús. Var þá gerður
samningur við stjórn KEA, að
sláturhús félagsins tæki á móti fé
til slátrunar frá viðskiptamönn-
um okkar og færði á -reikning
Verzl. Eyjafjörður. Að sjálfsögðu
varð breyting þessi til þess, að
viðskipti minnkuðu til muna við
bændur.
Velían komsf- í
2.5 milij. kr.
— Og vörusalan?
— Fyrstu árin var þetta allt í
smáum stíl. Við árslok 1909 var
nettóeign verzlunarinnar aðeins
1600 krónur. En verzlunin fór
vaxandi árlega og varð mest árið
1951. Þá náði vörusalan 2.5 millj.
krónum en lækkaði næsta ár nið-
ur í 1.8 millj. kr. og hefir síðan
staðið nokkurn vegipn í stað, þó
heldur vaxið síðustu árin.
Árið 1912 settum við upp úti-
Framh. á 2. síðu.
Minkurinn heldur stöðugt á-
fram að leggja undir sig landið.
Sífellt berast fréttir um það, að
minka liafi orðið vart á nýjum
stöðum og má nú heita að þessi
plága sé komin í flestar, ef ekki
allar sveitir hér norðanlands. —
Fyrir stuttu síðan var Steindór
FLÓTTABÖRN í TÚNIS
Um þessar mundir hefir flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna
það verkefni m. a. að leysa vanda 180 þús. flóttamanna frá Túnis og
Marokkó. Myndin sýnir hóp flóttabarna frá Túnis.
lileuzkn vikublöðin i Winni-
negr saineinast
Undanfarin ár hafa íslenzku
vikublöðin vestan hafs, Lögberg
og Heimskringla, átt í miklum
fjárhagserfiðleikum og bæði orð-
ið að draga talsvert saman seglin
lil að minnka útgáfukostnað.
Jafnhliða hefir stöðugt verið unn-
ið að því að sameina blöðin, en
margs konar erfiðleikar torveld-
að þá framkvæmd. En fyrir stuttu
síðan tókust samningar milli út-
gefenda beggja blaðanna á íundi,
sem haldinn var í Winnipeg, en
þar var m. a. mættur Thor Thors
sendiherra í Washington, sem
trist i ðahana
Kristfinnsson rafvirki á Þórs-
hamri í skemmti- og veiðiferð
uppi við Hraunsvatn, þegar hann
kom auga á 4 minka. Tvo þeirra
tókst honum' að leggja að velli
með veiðistönginni. Nokkru síð-
ar fór Mývetningur, sem hér
starfar að minkaeyðingu, upp að
vatninu og tókst að vinna 2
minka. Húsfreyjan að Þórsnesi
við Krossanes skaut mink út um
eldhúsgluggann, en skömrnu áður
hafði maður hennar skotið 3
minka í fjörunni framan við hús-
ið, alla út um eldhúsgluggann.
| Auk þess náð 2 öðrum skammt
frá heimili sínu.
i
Síðastliðinn sunnudag fóru
nokkrir menn héðan úr bæ út á
Flateyjardal. Er þeir komu að
Heiðarhúsuin, sem er um miðja
heiðina, sáu þeir 2 minka austan
árinnar. Einn mannanna, Erling
Pálsson, bílstjóri á Stefni, hafði
meðferðis riffil. Skaut hann ann-
að dýrið, en hitl slapp.
unnið hefir lengi að því, að blöð-
,in sameinuðust.
Hið nýja blað á að heita Lög-
berg-H eimskringla, og kemur
fyrsta tölublað þess út 18. ágúst
n. k. Ritstjóri þess verður frú
Ingibjörg Jónsson, en hún hefir
haft ritstjórn Lögbergs á hendi
mörg undanfarin ár. Ungur prent-
ari úr Reykjavík, Gísli Guð-
mundsson (vélsetjari úr Guten-
berg), er ráðinn starfsmaður hjá
prentsmiðju þeirr.i, er blaðið
verður prentað i. Áður vann þar
Islendingurinn Þór Víkingur, sem
nú er á förum til Seattle.
Lögberg-Heimskringla mun
koma út vikulega, og kostar ár-
gangurinn hér á landi kr. 125.00.
Reynt verður eftir föngum að
gera hið nýja vestur-íslenzka
vikublað sem bezt úr garði.
Fréttaritari þess hér á landi er
Árni Bjarnarson, Akureyri.
★--------------------★
Togaramir
Á þriðjudaginn kom Kaldbak-
ur með afla sinn frá Vestur-Græn-
landi, 260—270 tonn, eingöngu
karfa og Harðbakur á miðviku-
dag af Nýfundnalandsmiðum með
ca. 240 tonn, einnig karfa. Slétt-
bakur er við Vestur-Grænland og
kemur hingað um helgina. Sval-
bakur er á veiðum.
★--------------------★
Bræðslusíldarafli
h j á Krossanesverksmiðj unni
var sl. laugardagskvöld 15.600
mál og á sama tíma hjá Hjalteyr-
arverksmiðjunni 24.436 mál. Á
sunnudaginn kom Sigurkarfi úr
Njarðvíkum með 574 mál til
Hjalteyrar og er því bræðslusíld-
araflinn nú 25 þúsund mál.