Íslendingur - 07.08.1959, Blaðsíða 6
6
ÍSLENDINGUR
Föstudagur 7. ágúst 1959
Bíllinn er góður - en shilor hreyfillinn fuilri orhu?
Eigi hann að skila fullri orku — hámarkshestöflum — á
hvern benzínlítra verður benzínið að nýtast til fulls, en það
gerir það aðeins með I. C. A.
I. C. A. (Ignition Control Additive) eykur afköst hreyfils-
ins með því að koma í veg fyrir glóðarkveikj u og skamm-
hlaup, sem myndast af glóandi útfellingum í strokknum og
kertum.
Nýjustu bílar eru sérlega næmir fyrir slíkum truflunum, en
það eru eldri gerðir einnig. Allir bílar þurfa Shell-benzín
með /. C. A.: Það gerir útfellingar óskaðlegar og tryggir íulla
nýtni hreyfilsins.
Því hærra, sem þj öppunarhlutfallið er,
því nauðsynlegra er I. C. A.
Aðeins SHELL-benzín er
blandað I. C. A.
Reynið SHELL-benzín með I. C. A.
og sannfærizt.
Línuritið* sýnit áukningu þjöppunarhlutfalls *
bilum lielztu framleiðslulanda.
Biskupinn verndari ísl. kirkju-
félagsins vestra
Á nýloknu þingi Hins evangel-
iska lútherska kirkjufélags Islend-
inga í Ameríku, sem haldið var í
Selkirk, Man., var hr. Sigurbjörn
Einarsson, biskup Islands, ein-
róma kjörinn verndari Kirkjufé-
lagsins. Er hann þriðji íslenzki
biskupinn, sem kjörinn hefir ver-
ið í þann sess. Hr. Sigurgeir Sig-
ursson, sem ferðaðist mikið vest-
an hafs og prédikaði í íslenzkum
kirkjum hér, var fyrsti verndari
Kirkjufélagsins, og við lát lians,
var hr. Ásmundur Guðmundsson,
sem einnig var vel þekktur á með-
al Vestur-íslendinga, hafði m. a.
þjónað íslenzkum söfnuði í Kan-
ada um hríð, kjörinn verndari
Kirkjufélagsins. Og nú standa
vonir til, að hr. Sigurbjörn Ein-
arsson, biskup muni ferðast með-
al íslendinga vestan hafs næsta
sumar og þá einnig sitja Kirkju-
þing, en á því þingi mun verða
haldið hátíðlegt 75. afmæli Hins
íslenzka kirkjufélags.
Á þessu sama þingi voru hr.
Ásmundur Guðmundsson og frú
Steinunn Magnúsdóttir kjörin
heiðursfélagar Kirkj ufélagsins og
eru þau fyrstu Islendingarnir,
sem heima eiga austan Atlantsála,
sem þann heiður hljóta.
Embættismenn Kirkjufélagsins,
kjörnir á þessu þingi, eru: Séra
Eric H. Sigmar, forseti; séra
Valdimar J. Eylands, varaforseti;
séra Ölafur Skúlason, ritari og
Oscar Bjorklund, gjaldkeri.
Tveir nýir prestar gengu inn í
Kirkjufélagið á þessu þingi, báð-
ir frá Akureyri, þeir séra Jón
Bjarman og séra Ingþór Indriða-
son. Og vonir standa til, að enn
einn íslenzkur prestur muni
hverfa vestur til starfa á næsta
hausti, og verða þá fimm prestar
að heiman í þjónustu Kirkjufé-
lagsins, hinir eru séra Eiríkur S.
Brynjólfsson og séra Ólafur
Skúlason.
Við hátíðlega athöfn síðasta
dag þingsins, sem fram fór á Elli-
heimilinu Betel á Gimli, afhenti
séra Jón Bjarman málverk eftir
Jóhannes Kjarval, sem íslenzka
þjóðkirkjan og íslenzka ríkið gefa
elliheimilinu. Málverkinu veitti
móttöku séra Eric Sigmar, sem
þakkaði þessa rausnarlegu gjöf,
sem hr. Ásmundur biskup var
frumkvöðull að, og minntist á þau
sterku bræðrabönd, sem tengja
íslendinga beggja megin hafsins.
Auglýsið í íslendingi.
UM „VERZLUNAR-
MANNAHELGINA"
var umferð á þjóðvegum með
mesta móti. Eng.in slys urðu þó af
akstri hér norðanlands, enda
sýndu ökumenn óvenjulega var-
færni og tillitssemi í akstri sín-
um.
Eitt ökuslys varð sunnanlands
um þá helgi, 'þar sem ung kona
lemstraðist. Um næstu helgi á
undan óku 3 bílar út af veginum
á Akureyri og nágrenni, en slys
urðu ekki teljandi nema á öku-
manni einnar bifreiðarinnar.
-------------□--------
íþróttir
(Framh. aj 2. síðu,.)
fram hér á Akureyri 15.—16. ág.
Sundmót Norðlendinga verður í
septemberbyrjun og um svipað
leyti Bandalagakeppni í frjálsum
íþróttum á Kjalarnesi.
Meistaramóti Akureyrar í
frjálsíþróttum er að mestu lokið,
en úrslit og umsögn verður að
bíða næsta blaðs.
Tvö sundmet voru sett nýlega
á sundmóti, er KA gekkst fyrir,
voru þar að verki Helga Haralds-
dóttir, sem synti 50 m. bringu-
sund á 42.4 sek. og Rósa Pálsd.,
sem bætti met sitt í 50 m. bak-
sundi í 45.1 sek. Erla Möller synti
á 45.8 og bætir hún tíma sína
stöðugt í baksundinu. Eiríkur
Ingvarsson og Óli Jóhannsson
syntu 50 m. skr.ið á 31.4 sek. Er
það rösklega gert hjá Óla að ná
jafntefli við methaíann.
Iþróttablaðið Sport er nýlega
útkomið og flytur að vanda marg-
víslegan fróðleik urn það helzta,
sem er að ske í íþróttamálum okk-
ar. Fjöldi mynda prýða ritið. í-
þróttamenn eru hvattir til að
kaupa blaðið, sem er ómetanlegt
þeim, sem áhuga hafa á íþróttum.
Ritstjóri blaðsins er Jóhann
Bernharð.
------X------
Vestmanneyingur
golfmeistari
Fyrir nokkru var Meistaramót
íslands í golfi háð í Vestmanna-
eyjum. íslandsmeistari 1959 varð
Sveinn Ársælsson Vestmannaeyj-
um. Sigraði á 310 höggum. Næst-
ir urðu Akureyringarnir Hafliði
Guðmundsson (311 högg) og
Hermann Ingimarsson (314
högg).
NOTIÐ
i^uB^s GLER
í gluggana.
ÞAÐ BORGAR SIG.
Einkaumboð:
Byggingavöruverzlun
Tómosar Björnssonar h.f.
Sími 1489.
BÆNDUR Á HÓLS-
FJÖLLUM HIRÐA
TÚN SÍN
Blaðið átti á miðvikudag tal
við Kristján Sigurðsson bónda á
Grímsstöðum og sagði hann tíð-
arfar hafa verið framúrskarandi
gott fram að sl. helgi, en þá kóln-
aði talsvert í veðr.i. Spretta er
mjög góð, og margir bændur eru
þessa dagana að hirða tún sín.
Rigningarsúld var komin og
hiti aðeins 7 stig.
Óvenjulega mikil umferð
ferðamanna var um Fjöllin um
verzlunarmannahelgina, og hefir
vart orðið meirá svo vitað sé áður.
------X-------
— f 0omni —
— Heyrðu mig Siggi, ég sá,
að þú lœtur fœra þér tvo kokteila
í rúmið á hverjum morgni, alveg
eins og þú hefðir einhvern til þess
að dreklca með.
Já, ejtir einn kokteil finnst mér
ég vera allt annar maður, og auð-
vitað verð ég að gefa lionum einn
líka.
— ilafa nokkrar af bernsku-
vonum þínum rœtzt?
— Já. Þegar mamma togaði í
liárið á mér, þegar ég var lítill,
óskaði ég jiess, að ég hefði ekkert.