Íslendingur - 07.08.1959, Side 7
Föstudagur 7. ágúst 1959
ÍSLENDINGUR
7
iMáVSí
Bólusetning verður á Heilsuverndar-
stöðinni mánudag 10. ágúst og síðan
fyrsta mánudag hvers mánaðar kl. 1—2
eftir hádegi.
Sextugur varð laugardaginn 1. ágúst
Guðmundur Jónsson bóndi að Mýrar-
lóni hér í bæ.
Dánardœgur. Nýlega er látinn hér í
bænum Þorsteinn Vilhjálmsson fiski-
matsmaður (frá Nesi í Höfðahverfi).
Iíann var ijúfmenni hið mesta og vel
kynntur.
GullbrúSkaupsafmœli áttu hjónin
Þórhalla Jónsdóttir og Konráð Vil-
hjálmsson rithöfundur og fræðimaður
18. júlí sl.
Fimmtugur varð 3. þ. m. Kurt Sonn-
enfeldt tannlæknir hér í bæ.
Kirkjan. Á sunnudaginn kemur verð-
ur messað í Akureyrarkirkj u kl. 10.30
árdegis. Sóknarpresturinn á Hálsi í
Fnjóskadal, séra Sigurður IJaukur
Guðjónsson messar.
Æ.F.A.K. ÆskulýSsfélagar. Þið, sem
ekki hafið enn tilkynnt þátttöku ykkar
í sumarferð félagsins til Skagafjarðar,
látið formenn deildanna vita hið fyrsta.
Lagt verður af stað á laugardaginn kl.
2 frá kirkjunni. Allur ferðakostnaður
verður 125 krónur. Félagar þurfa að
hafa með sér tjaldútbúnað.
Hjúskapur. Þann 18. júlí voru gefin
saman í lijónaband brúðhjónin Auð-
hjörg María Sigursteinsdóttir og Krist-
inn Jónas Steinsson húsasmiður. Heim-
ili Mýrarvegi 122, Akureyri. — Þann
25. júlí brúðhjónin Sigríður Dagrnar
Oskarsdóttir og Gunnar Þór Þórðar-
son pípulagningarnemi. Heimili Barma-
hlíð 37, Reykjavík. — Þann 25. júlí
brúðhjónin Guðný Kristjana Kjartans-
dóttir og Pétur Eggertsson, vélvirki.
Heimili Hjalteyrargötu 1, Akureyri. —
Þann 26. júlí brúðhjónin Kristín Guð-
rún Guðmundsdóttir og Sigtryggur
Jón Iíelgason, gullsmiður, Skólastíg 3,
Akureyri.
Frá FerSafélagi Akureyrar. Næsta
ferð er eins dags ferð um Bárðardal
sunnudaginn 9. ágúst. — Þá verður far-
ið til Ólafsfjarðar 15.—16. ágúst. n. k.
Nánari upplýsingar í Skóverzlun. M. H.
Lyngdals (sími 2399).
HjálprœSisherinn. Kapt. E. Stene og
frú, sem undanfarið voru leiðtogar
Hjálpræðishersins á Akureyri, hafa ný-
verið tekið við stjórn flokksins í
Reykjavík. Um næstu helgi tekur nýr
foringi við stjórn flokksins á Akureyri,
kapt. Gunnvör Dybvik, og verður fagn-
aðarsamkoma fyrir hana n. k. sunnu-
dag kl. 20.30. Atriði kvöldsins: Söng-
ur, músik og vitnisburðir. Allir vel-
komnir. — Ltd. D. Lathi.
Ijísir töskur
nýjar gerðir.
r
Verzl. Asbyrgi
FÍNN
STRÁSYKUR
GRÓFUR
MOLASYKUR.
Vöi'uhúsið h.f.
SÓLAR-OLÍA
Navix sólar-skum
Navix sólar-olía
Navix sólar-spray
Nivea sólar-olía
Pigmentan
Lytia suntan lotion.
Gpörudalan
HAFNARSTRAtTI IOH
AKUREY.RI
VANTAR ÍBÚÐ
2ja til 3ja herbergja
í haust.
Magnús Björnsson, sími 1316.
Aljrýðublaðið 26. júlí telur upp
ýmislegt, sem gestir að sumar-
hótelinu Bifröst í Borgarfirði geti
gert sér til dægradvalar þar, og
endar upptalningin á þessum orð-
um:
„Loks er gestum að sjálfsögðu
frjálst að fá sér gönguferðir um
nágrennið.“ ( ! )
Vér ætlum, að slík greiðasemi
sé víðar fyrir hendi á gististöðum,
jafnvel á Borginni.
* * *
í sama Alþýðublaði segir:
„Lesendur hlaðsins geta ....
verið alls óhræddir, þótt slys beri
að höndum. Alþýðublaðið liefir
lykil að blóðbankanum.“
E. t. v. bregður þetta ljósi yfir
J)að, hve Alþýðublaðið hefir blás-
ið út á undanförnum mánuðum
og margfaldað „flottheit“ sín í
myndbirtingum og öðrum nýj-
ungum, er kosta mikið fé, — m.a.
í sama sunnudagsblaði stofnað til
5 J)ús. króna verðlauna til handa
söltunarstúlkum á Norðurlandi.
Til slíkra hluta þarf aukið blóð
og Jjví sennilegt, að blaðið hafi
eignast „blóðbankalykil“.
* * *
Málatilbúnaður er nú hafinn
vegna auglýsingar um „ítölsku
peysuskyrtuna Smart Keston“. —
Auglýsandinn hefir gefið blöðum
J)á skýringu á auglýsingunni, að
skyrtan væri ítölsk uppfinning,
„framleidd úr ítölsku garni“.
Á sömu röksemdum ættu brauð-
gerðarhús hér að auglýsa fransk-
brauð setn Canadisk hveitibrauð,
ef í þau er notað hveiti frá Kan-
ada.
LÍNSTERKJA
( „stívelsi“ )
í pökkum,
nýkomið.
Vöruhúsið h.f.
BORGARBÍÓ
Sími 1500
Myndir vikunnar:
Leyndardómur
ísauðnanna
(The Land Unknown)
Spennandi og sérstæð ný, ame-
rísk kvikmynd, um óþekkt
furðuland inni í ísauðnum
Suðurskautslandsins.
Ga rðy rkj umaðu rin n
(The Spanish gardner)
Frábærlega vel leikin litmynd,
byggð á samnefndri sögu eftir
A. J. Cronin.
Aðalhlutverk:
Dirk Bogarde,
John Wliitelwy o. fl.
NÝJA BÍÓ
Sími1285
Mynd vikunnar:
S A A D I A
Spennandi bandarísk kv.ik-
mynd í litum, myndin gerist í
frönsku Marokko.
Aðalhlutverk:
Mel Ferrer og
Rita Gam.
Um helgina:
Gög og Gokke
í Villta Vestrinu
NÝKOMIÐ
GúmmísHgvél
barna, ýmsir litir.
Karlm. bomsur
og skóhlífar,
finnskar og tékkneskar
Hvannbergsbræður
HEYHLÍFAR
Ágæt nótastykki, kaðla,
færi o. fl. selur
Guðrn. Pétursson, sími 1093.
Ameríska hreinsiefnið
SPIC AND SPAN
til gólfþvotta og hreingerninga.
Ekkert skrúbb. Ekkert skol. Eng-
in þurrkun. Þér þurfið aðeins að
blautvinda klútinn eða þvegilinn
og strjúka einu sinni yfir og öll
óhreinindi strjúkast af á svip-
stundu. í 12 1. fötu þarf % bolla.
''tPY \()l áöliitiirninn Vf
1 ‘00 5/Áf. ,/7//
San§ égral
VARALITUR.
-
Verzl. Skemman
SÍLDARSUMAR
Síldveiði hefir gengið betur í
sumar en mörg undanfarin, og
var heildaraflinn um sl. helgi orð-
inn þessi (svigatölur frá 1958):
í salt 180576 tn. (217564).
í bræðslu 562550 mál (153858).
í frystingu 13079 tn. (10138).
Aflahæstu skipin voru um helg-
ina Faxaborg með 12042 mál og
tunnur, Víðir II með 11967 og
Snæfell með 10957.
--------□--------
JÚLÍ :
Tveir menn slasast, er tveggja manna
flugvél fellur til jarðar skammt frá
Borgarnesi.
□
Eyjólfur Jónsson sundkappi syndir úr
Drangey til lands á 4 klst. og 20 rriín. í
fremur slæmu veðri.
□
Sr. Ilelgi Konráðsson prófastur að
Sauðárkróki andast að heimili sínu 56
ára að aldri.
□
Bærinn að Holti í Álftaveri brennur
til grunna á kosningadaginn. Var eng-
inn lieima, er eldurinn kom upp.
□
Sinfóníuhljómsveit Islands fer í
hljómleikaför um Norður- og Austur-
land. Heldur m. a. hljómleika í Akur-
eyrarkirkju við mikla aðsókn og aðdá-
un.
□
Fjölmennt skátamót haldið í Vagla-
skógi í tilefni af 35 ára afmæli Banda-
lags ísl. skáta. Forseti íslands gerist
verndari skátahreyfingarinnar.
9
□
Vatnsflaumur hrýtur 300 m. hreitt
skarð í varnargarð á Mýrdalssandi, er
þjóðvegurinn liggur um. Tepptist um-
ferð þar nokkra daga, meðan gert var
við skemmdir.
□
íslendingar vinna landsleik við Nor-
eg á Laugardalsvellinum í Reykjavík
með 1 marki gegn engu.
□
16 ára piltur á v.b. Þórunni frá
Vestmannaeyjum bíður bana af höfuð-
liöggi á sildveiðum út af Langanesi.
Var liann sonur skipstjórans.
□
Eyjólfur Jónsson sundkappi syndir
frá Vestmannaeyjum til lands á Land-
eyjarsandi á 5VÍ klst.
□
Ungur maður, Bogi Guðmundsson,
PEYSU-SKYRTAN
„SMART KESTON"
14 litir. Létt og falleg.
dátáta/an
HAFNARSTRÆTI /06
akureyp.i
Du Ponf- Duco lím
sem límir allt.
Gullbronce
í glösum.
Aluminium bronce
í glösum.
STÓR ÍBÚÐ
4 herbergi og eldhús í nýju
húsi, til leigu nú þegar.
Afgr. vísar á.
frd Bindiodisfélagi
inmonno
F ramkvæmdastj óri Bindindis-
félags ökumanna, Ásbjörn Stef-
ánsson, var-hér á ferð um Norður-
land til að ræða við formenn
deilda og deildarstj órnir um
framhaldandi starf deildanna og
leiðbeina þeim um góðakstur.
Framkvæmdastjórinn sat fund
með deildum, gaf þeim upplýsing-
ar um starfsemi félagsdeildarinn-
ar, einkum tryggingamálin, flutti
erindi og hvatti til aukinna átaka
og útbreiðslustarfsemi.
Deildir B. F. O. eru nú orðnar
14 talsins, þar af 3 á Norðurlandi,
og hafa sumar hverjar unnið þeg-
ar vel að umferðarmálum á svæð-
um sínum.
Annað landsþing Bindindisfé-
lags ökumanna verður háð í
Reykjavík í haust.
hverfur í Reykjavík.
□
Sextán ára stúlka í Ilafnarfirði tniss-
ir handlegginn um olnboga, er hún
lendir í færibandi í frystihúsi.
□
Axel llelgason forstjóri fyrrverandi
rannsóknarlögreglumaður, drukknar í
Heiðavatni í Mýrdal, þar sem liann var
einn að veiðum.
□
Miðaldra maður frá Möðruvöllum í
Ilörgárdal, Kristján Magnússon, fellur
úr bifreið og verður undir hjóli liennar.
Bíður nær samstundis bana.
□
Halldór Vilhjálmsson, 64 ára, fellur
úr stiga við húsbyggingu á Selfossi, og
skaddast svo á ltöfði, að hann andast
skömmu síðar.
□
Friðrik Olafsson stórmeistari og Ingi
R. Jóhannsson íslandsmeistari í skák
heyja skákeinvígi, cr Friðrik vinnur
með 2Vá vinningi gegn VA.
□