Íslendingur - 23.06.1966, Síða 3
íslandsmótið í knattspyrnu:
Enii brást ÍBA-liðiim Jbogalistin’
- tapaði fyrir Val 0:3
A SUNNUDAGINN var léku
Akureyringar annan leik sinn í
íslandsmótinu í knattspyrnu, I.
deild, við Val á Melavellinum í
Reykjavík. Sagan endurtók sig
frá fyrsta leik liðsins, að það
gat ekki skorað, þrátt fyrir
mörg gullin tækifæri.
ÍBA-liðið átti betri leik fram
an af en Valsmenn, sköpuðu sér
tækifærin, hvert af öðru, án
árangurs. Fyrri hálfleikurinn
varð markalaus.
í seinni hálfleik voru Vals-
menn sterkari aðilinn og tókst
þeim að skora tvívegis skömmu
eftir að hann hófst. Síðar bættu
þeir þriðja markinu við, sem
var mjög fallega skorað.
Hin klaufalega frammistaða
sóknarmanna ÍBA-liðsins við
mark andstæðinganna það sem
Valgarður Sigurðsson í stangarstökki.
UR HEIMHHOGUM
AKUREYRARKIRKJA: Mess-
að á su'nnudáginn kerndr kL'
10.30 f. h. Séra Finn Tuliníus
prestur í Danmörku kemur í
heimsókn og prédikar og
ávarpar sérstaklega þá dani,
sem eru búsettir hér og í ná-
grenni bæjarins.
ATTRÆÐUR varð í gær (22.
júní) Kristján Björnsson
Norðurgötu 49 Akureyri.
DAVÍÐSHÚS er opið í sumar,
sem hér segir: Virka daga kl.
5.30 til 7 og sunnudaga kl. 2
til 5. Gæzlumaður er Kristján
Rögnvaldsson.
KJALLARI
„VERÐBÓLGUSTEFNA”
ÞAÐ ER orðinn eins konar kæk
ur hjá ýmsum aðilum stjórnar-
andstöðunnar, að tala um „verð
bólgustefnu ríkisstjórnarinnar“.
f sjálfu sér er þetta ósköp og
skelfing mcinlaus fullyrðing,
því íslendingar eru síður en svo
eins auðblekktir og stjórnarand
stæðingar óska sér. Hún sýnir
liins vegar hve fátæklegt fram-
lag stjórnarandstöðunnar er oft
af er þessu íslandsmóti er vissu
lega ástæða til að grípa til rót-
tækra aðgerða, ef einhverjar
eru tiltækar. Það er ekki upp-
örvandi, að eiga létt leikandi og
fríska menn í þær stöður, ef
þeir geta ekki rekið hinn nauð-
synlega endahnút á leik sinn.
Þetta verður að segjast, eins og
það er. Varnarmennirnir hafa
verið betri hluti liðsins í þess-
um tveim leikjum, enda þótt í
þann hóp vanti bezta manninn
á undanförnum árum, Jón
Stefánsson, sem er nú að ná sér
eftir meiðsli og leikur vonandi
með innan skamms.
ÍBA-liðið virðist vanta
trausta forystu á leikvelli, hvort
sem það er vegna þess, að fyrir
liðinn hefur ekki haft' næg völd
eða hann hefur skort _-i'öggsemi.
Hins vegar þarf einhverra ráð-
stafana við varðandi .framherj-
ana, stöðubreytingar.' eða ný
andlit. Er vissúlégá miSur hve
liðið hefur átt kost á fáum æf-
ingaleikjum í' vor,' einá og
reyndar oft áður fyrir íslands-
mótið, en þeir ■ Iiefðu án efa
styrkt liðið og þjálfara þess til
að finna rétta ,;tóninn“ í tæka
tíð. Um þetta tjóir ekki að fást.
„Ei skal gráta Björn bónda,
heldur safna liðr.“ Allir á völl-
inn á sunnudágihn Tœmur og
hvetjum okkar rnenn til sigurs.
17. JÚNÍ-MÓTIÐ:
Reynir Hjartarson og Sigurður
Viðar hlutu afreksbikarinn
SEINNI HLUTI 17. júní móts-
ins fór fram á þjóðhátíðardag-
inn og var keppt í 5 greinum.
Kjartan Guðjónsson sigraði í
þrem greinum og var í boð-
lilaupssveitinni er sigraði í 1000
m. boðhlaupinu. Þá hafði hann
sigrað í alls 6 greinum og hlot-
ið 7 verðlaunapeninga. 17. júní
bikarinn hlutu þeir Sigurður V.
Sigmundsson og Reynir Hjartar
son. Bikarinn sem er nýr og
mjög veglegur, gefin af Olíu-
söludeild KEA, er veittur þeim
Akureyringi eða Eyfirðingi sem
beztum árangri nær samkvæmt
stigatöflu. Reynir og Sigurður
fá bikarinn fyrir 100 m. hlaup
á 11,4 sek.
Úrslit:
100 m. lilaup. sek.
1. Kjartan Guðjónsson ÍR 11,1
2. Birgir Asgeirsson ÍR 11,2
3.-4. Sig. V. Sigmundss. UMSE 11,4
3.-4. Reynir Hjartarson Þór 11,4
Of mikill meðvindur var þeg
ar hlaupið fór fram og voru að-
q RÚN 59666247 — Frl .-.
H. & V. Rós
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. — Fundur fimmtudag-
inn 23. þ. m. kl. 8.30 e. h. í
Alþýðuhúsinu. Fundarefni:
Vígsla nýliða. Rætt um
Drangeyjarferð. Sagt frá Stór
stúkuþingi. Hægnefndar-
atriði. Eftir fund: Kaffi o. fl.
Æ. T.
NATTÚRUGRIPASAFNIÐ. —
Sumarmánuðina júní, júlí og
ágúst verður safnið opið al-
menningi alla daga nema
laugadaga kl. 2—3 e. h. Sími
safnsins er 21258.
á tíðum, hve langt hún getur
komizt frá heilbrigðum mál-
efnalegum umræðum til lág-
kúrulegs niðurrifs.
Verðbólgan, sem riðið hefur
húsum hér á landi um áratuga-
skeið, er vissulega ekki stefnu-
mál neins íslenzks stjómmála-
flokks. Þvert á móti hefur hún
haldið velli, þrátt fyrir viðleitni
þeirra til að hamla gegn henni.
Það er svo önnur saga, að
misjafnlega hefur þeim auðnazt
stæður því ekki löglegar gagn-
vart metum.
Spjótkast. m.
1. Kjarlan Guðjónsson ÍR 40,41
2. Oddur Sigurðsson KA 44,68
3. Sig. V. Sigmundsson UMSE 36,99
4. Halldór Jónsson KA 36,20
Árangurinn í spjótkastinu
var mjög slakur, sérstaklega
hjá Kjartani. Halldór lofar
góðu, en hann er enn á sveina
aldri. ■ .
Hástökk. i m.
1. Kjart'an Guðjónsson ÍR 1,85
2. Sig. V. Sigmtindsscm UMSE 1,60
3. Jóhann Friðgeirsson UMSE 1,55
Allir hafa þéssir menn náð
betri stökkum áður.
1500 m. hlaup. mín.
1. Bergur Höskuldsson UMSE 4.37,2
2. Ásgeir Guðmundsson KA 4.37,5
3. Þórir Snorrason UMSE 1 4.37,7
Hlaupið var skemmtilegt til
að horfa á og úrslit fengust ekki
(Framhald á blaðsíðu 6)
MINJASAFNIÐ er opið dag-
lega. kl. 1.30—4 e.h. Á öðrum
tímum verður þó tekið á móti
ferðafólki ef óskað er. Sími
safnsins er 1-11-62, en safn-
varðar 1-12-72.
LÆKNAVAKT um helgina 25.
og 26. júní. Vagtlæknir Bald-
ur Jónsson, sími 12781 og
heima 12780.
Lækningastofa vagtlæknis er
opin á laugardag kl. 11—12
f. h. og vitjanabeiðnir berist
vagtlækni fyrir kl. 12 á há-
degi á laugardag ef vitjunin
á ekki að teljast til vagtlækn
isstarfa.
FRÁ Orlofsnefnd Akureyrar:
Vikudvöl fyrir húsmæður
verður að Löngumýri í Skaga
firði frá 2. júlí n. k. Umsóknir
berist fyrir 25. júní til ein-
hverra undirritaðra er veita
nánari upplýsingar: Þorbjörg
Gísladóttir, sími 11543, Júdit
Sveinsdóttir, sími 11488, Ingi
björg Halldórsdóttir, sími
11807, Margrét Magnúsdóttir,
sími 11794.
NONNAHÚS verður opið í
sumar alla daga vikunnar kl.
2—4 e.h. Uppl. í símum
1-13-96, 1-15-74 og 1-27-77.
að stemma stigu við verðbólgu
þróuninni. Þegar það er metið,
kemur að sjálfsögðu margt til
álita, ekki aðeins pappírsvísi-
tala, heldur einnig margháttuð
önnur atriði. Við þann saman-
burð fer enginn í grafgötur um
að illa fer Framsókn að
skrækja að núverándi ríkis-
stjóm. Er skemmst að minnast
„vinstri stjómarinnar“ sálugu
(undir forystu Framsóknar),
sem gekk fram af hengiflugi
verðbólgunnar, þar sem hún
beið bana við lítinn orðstír.
Ef nauðsynlegt er að kénna
einhverjum stjórnmálaflokki
um verðbólgúna, lenda þeir all
ir meira eða minna í sök.
Óheillavænlegust eru þó, án
efa, áhrif flokks, sem rekur
botnlausa hentistefnu og hvergi
kennir grunns, svo eygt verði
stundinni lengur. Þann leik hef
ur Framsókn iðkað af meiri inn
lifun en flest annað.
r
I
DAGSINS
ÖNN
VATNSSKORTUR
HAMLAR
GATNAÞVOTTI
AÐ UNDANFÖRNU hafa fjöl-
margir komið að máli við blað-
ið og borið sig upp undan því,
að rykið á malbikuðu götum
bæjarins fengi lítt áreytt að
þyrlast um gesti og gangandi,
þeim til óþæginda. Blaðinu hef
ur og verið bent á, að heilbrigð
isnefnd bæjarins muni á fund-
um bæði í fyrravor og vor sam
þykkt að láta framkvæma gatna
þvott að staðaldri yfir sumar-
mánuðina, en árangur af þess-
um samþykktum hafi orðið sár
grætilega lítill.
Nú hefur þetta vandamál
ekki farið fram hjá blaðinu, og
því er ljóst, að kvartendur hafa
ekki látið til sín heyra alveg að
ástæðulausu. Til þess að reyna
að grennslast fyrir um ástæður
fyrir vandamálinu, hafði blaðið
því tal ag bæjarverkstjóranum,
Carli Tuliníus, sem hefur með
gatnaviðhaldið að gera, og ósk-
aði eftir upplýsingum frá hans
hendi.
— Það er vatnsleysið í bæn-
um, sem hefur komið í veg fyr-
ir að við gætum þvegið göturn-
ar það sem af er vori og sumri
með þeim tækjum, sem við höf
um til þess. Eina leyfið fyrir
vatni frá Vatnsveitunni í ár var
gefið fyrir 17. júní, og reyndum
við þá eftir föngum að þvo göt
urnar.
— Ég er hins vegar að vona
að vatnsvandamálið leysist fljót
lega með bættum tækjakosti,
svo að við þurfum ekki að vera
undir Vatnsveitunni komnir.
Nýbúið er að smíða stærri
geymi á vatnsbílinn og til stend
ur að fá dælu, sem gæti þá dælt
bæði á geyminn og af honum
aftur, þá með nokkrum krafti,
sem þarf til að árangur náist
við gatnaþvettinn á jafnsléttu.
Ég get ekki sagt um hvenær
þessi dæla muni koma en von-
andi kemur hún í sumar.
Blaðið vill að fengnum þess-
um upplýsingum leggja á það
áherzlu, að hér er um óveru-
lega fjárfestingu að ræða, sem
þarf til að koma gatnaþvottin-
um í viðunandi horf. Þess
vegna ber að vænta þess, að
málið verði leyst, án frekari
tafa, svo að samþykktum heil-
brigðisnefndar verði framfylgt
og bæjarbúar geti notið full-
gerðu gatnanna og boðið gest-
um sínum í bæinn kinnroða-
laust að þessu leyti.
- Álögð aðstöðugjöld
á Akureyri
(Framhald af blaðsíðu 8).
15. Vélsmiðjan Oddi h.f.
kr. 123.200.00
16. Sana h.f. kr. 122.700.00
17. Útgerðarfélag KEA h.f.
kr. 120.300.00
18. K. Jónsson & Co. h.f.
kr. 114.900.00
19. Prentverk Odds Bjömsson-
ar h.f. kr. 112.000.00
3 ÍSLENDINGUR