Íslendingur - 23.06.1966, Side 8
- niðurstöðutölur á aðstöðugjaldaskránni eru kr. 13.532.900.00
BJARNI JÓNSSON úismiður
KULM
JÓN BJARNASON úrsmiður
SAMHLIÐA skrá um álögð úl-
svör í ár á Akureyri var á mánu
daginn lögð fram aðstöðugjalda
skrá. Aðstöðugjöld voru að
Jjessu sinni lögð á 553 aðila,
samtals krónur 13.532.900.00,
þar af á 404 einstaklinga kr.
I. 967.100.00 og 149 félög kr.
II. 565.800.00.
Aðstöðugjöldin eru miðuð við
rekstursútgjöld sl. árs og reikn
ast samkvæmt aðstöðugjalds-
stiga, eftir tegund reksturs.
Gjöidin í ár eru kr. 2.175.400.00
hærri samtals en í fyrra, en
gjaldendum hefur fjölgað um
64.
Samkvæmt aðstöðugjalda-
skránni eru hæstu gjaldendur í
ár þessir:
Eftirtaldir aðilar bera yfir kr.
100.009.00 í aðstöðugjald:
1. Kaupfélag Eyfirðinga
kr. 3.633.900.00
2. Samband ísl. samvinnufé-
laga kr. 1.448.200.00
3. Utgerðarfélag Akureyringa
h.f. kr. 607.400.00
4. Amaro h.f. kr. 281.800.00
5. Valtýr Þorsteinsson
kr. 214.800.00
6. Bílasalan h.f. kr. 211.000.00
7. Slippstöðin h.f.
' kr. 210.500.00
8. Byggingavöftiv. T. Björns-
- sonar kr. 205.900.00
9. Bifreiðaverkstæðið Þórs-
hamar h.f. kr. 193.700.00
10. Kaffibrennsla Akureyrar
h.f kr. 193.400.00
11. Súkkulaðiverksmiðjan
Linda h.f. kr. 184.600.00
12. Valgarður Stefánsson
kr. 150.200.00
13. Kaupfélag Verkamanna
kr. 124.500.00
14. VaJbjörk h.f. kr. 124.400.00
(Framhald á blaðsíðu 3)
Félög um kísilgúrinn stofnuð í byrjun næsta mánaðar:
FRAMLEIÐSLUFÉLAG I MÝVATNSSVEIT
OG SÖLUFÉLAG! HUSAVÍK
UM SÍÐUSTU HELGI var
haldinn stjórnarfundur Kís-
iliðjunnar h.f. í nýbyggðu
skrifstofuhúsnæði á athafna
svæði kísilgúrverksmiðjunn-
ar. Var þetta síðasti fundur
bráðabirgðafélagsins, sem
stofnað var um undirbúning
kísilgiirvinnslunnar. Blaðið
náði tali af Magnúsi Jóns-
syni fjármálaráðherra, sem
verið hefur stjómarformað-
ur félagsins, og innti hann
eftir fréttum af því, hvernig
málin stæðu.
— Nú eru tæknilegu vanda-
málin að fullu leyst, sagði
Magnús. Næsta skrefið er því
að ganga endanlega frá stofnun
framleiðslufélagsins og sölufé-
lagsins, og ég býst við að það
verði gert í byrjun næsta mán
aðar. Framleiðslufélagið verður
staðsett í Mývatnssveit og sölu-
félagið í Húsavík. Með þeim
stjórnarfundi undirbúningsfé-
lagsins, sem við héldum um
helgina, teljum við raunveru-
lega að hlutverki okkar sé lok-
ið, og við taki hið endanlega
fyrirkomulag.
— Allar framkvæmdir ganga
eftir áætlun, svo að ekki er
ástæða til að ætla annað en
áætlanir um þær muni stand-
ast. Fyrirtækin, sem taka við,
munu efalaust verða mikil lyfti
stöng fyrir Mývetninga og Hús
víkinga, en til þessa reksturs
hefur verið vel vandað, að mín-
um dómi.
Þá var um helgina haldinn
almennur hreppsfundur í Mý-
vatnssveit, vegna kísilgúrverk-
smiðjunnar, og mætti stjórn
Kísiliðjunnar h.f. á þeim fundi,
að beiðni Mývetninga, og enn-
fremur mætti þar dr. Finnur
Guðmundsson fuglafræðingur.
Tilefni þessa fundar var að ýms
ir hafa óttazt, að náttúru og
dýralífi væri hætta búin af
verksmiðjunni. Á fundinum
urðu miklar umræður, en blað-
ið hafði ekki fengið nánari
fregnir af honum í gærkvöld.
Viðtækjaverzlun
í nyjum húsakynnum
FYRIR skömmu flutti Radio
viðgerðarstofa Stefáns Hall-
grímssonar í nýtt eigið hús-
næði að Glerárgötu 32. Fyr-
irtækið rekur þar einnig við
tækjaverzlun, sem býður
geysifjölbreytt úrval útvarps
’ viðtækja, plötuspilara o. þ.
I u. 1.
Radioviðgerðarstofan er 8
| ára gömul. Hún hefur verið
til húsa í Geislagölu 5 fram
að þessum tímamótum.
' Starfsmenn eru 7.
Auk viðtækjasölu og þjón
| ustu annast stofan marghátt
I aða þjónustu við skipaflot-
, ann, niðursetningar á fiski-
leitar- og siglingatækjum og
' viðgerðir á þeim. Þá hcfur
einn af starfsmönnum fyrir- j
tækisins þegar verið á nám-
‘ skeiði í sjónvarpsvirkjun, og
! hefur það þannig hafið und-
| irbúning að því að mæta upp
| setningu og viðhaldi sjón-
varpstækja, þegar íslenzka
sjónvarpið hefur innreið
' sína hingað norður.
Það vakti athygli, þegar
| hin nýju húsakynni voru tek
i in í notkun, að sett hafði ver
ið upp í vérzluninni fyrsta
sjónvarpstækið hér norðan-
lands, ásamt innanhússmót-
I takara, þannig að gestir og
I gangandi gátu litið sjálfa sig
i á sjónvarpsskerniinum.
Myndin er af sjónvarps-
| tækinu, og á skerminum mót
, ar fyrir mynd af fólki í verzl
uninni, ef Ijósmyndin prent-
ast vel.
MATSTOFA KEA FULLGERÐ
UNDANFARIN tæp 4 ár hefur
KEA verið að byggja upp mat-
stofu (cafiteriu) í Hafnarstræti
OHÐSENDING FRÁ
ÍSLENDINGI
TIL ÁSKRIFENDA
BLAÐIÐ vill í vinsemd beina
því til áskrifenda, að inna af
höndum áskriftargjald fyrir yf-
irstandandi ár. Á undanfömum
árum hafa póstkröfur verið
sendar til innheimtu á áskrift-
argjaldinu, en kostnaður við
það er mikill, auk vinnu. Því er
það fróm ósk blaðsins, að
áskrifendur greiði gjaldið að
þessu sinni á skrifstofunni í
Hafnarstræti 107, 3. hæð, eða
seridi í pósti að öðrum kosti.
Það mundi í senn spara blaðinu
fé og fyrirhöfn.
(Framhald á blaðsíðu 7)
89. ÞVí er nú lokið og er mat-
stofari nú prðin með hinum vist
legustu á landinu. Allur frá-
gangur á smíði og húsgögnum
er til sóma.
80 manns komast í sæti á
matstofunni í senn. Starfsfólk
er 14 manns. Opið er frá kl. 8
árdegis til 11 síðdegis allan árs-
ins bring.
KEA ÁTTRÆTT
ÞANN 19. þ. mán. átti Kaup
félag Eyfirðinga áttræðis-
afmæli. Þess er minnst á ár-
inu með ýmsu móti, m. a.
útgáfu dagatals og til stend-
ur að gefa út afmælisrit. Á
afmælisdaginn voru gluggar
kaupfélagshússins við Kaup
vangstorg skreyttir sérstak-
lega, eins og sézt á mynd-
inni hér að ofan.
Drengjameistaramót
íslands á Akureyri
DREN G J AMEIST AR AMÓT
íslands fer fram á Akureyri
dagana 2.—3. júlí n. k.
Drengir sem fæddir, erú 1948
og síðar liafa rétt til þátt-
töku. Kcppni hefst báða
dagana kl. 14.00. Keppnis-
greinar verða þessar:
Fyrri dagur. 100 m. hlaup,
kúluvarp, hástökk, 800 m,
hlaup, spjótkast, langstökk,
og 200 m. grindahlaup.
Seinni dagur. 110 m.
grindahlnup, kringlukast,
stangarstökk, 300 m. hlaup,
þrístökk, 1500 m. hlaup, og
4x100 m. boðhlaup.
Þátttiikutilkynningar her-
ist Hreiðari Jónssyni íþrótta
vellinum Akureyri, sími
12722 fyrir 30. þ. m.
Skipuleggjum íerðir endurgjaldslaust L&L Fyrir hópa og einstaklinga
LÖND O G L E I Ð I R . Sími 12940 |
ÍSLENDINGUR
BLAÐ SJÁLFSTÆDISMANNA í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
52. ÁRG. FJMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1986 26. TBL.
Álögð aðsföðugjöld á Akureyri sfóðust áæílun