Íslendingur - 17.12.1967, Page 9
Viðtalið er
skrifað i
júlimánuði
siðastHðnum
íþróttahúsið í byggingu. Hægra megin við það er Gagnfræðaskóli Neskaupstaðar.
YFIB Oddskarði var niðaþoka
og i Norðfirði tók við peninga-
reykur svo magnaður, að Nes-
kaupstaður varð ekki greindur
fyrr en ekið var fram hjá
fyrstu húsunum. — Bæjar-
stjórinn, Bjarni Þórðarson,
hló, þegar ég minntist á allan
þennan reyk og alla þessa lykt.
Mér sagði svo hugur um, að
hann hefði ekki hlegið yfir
reyk- og lyktarlausum bæ.
langt skeið verið í fylkingar-
brjósti Austfjarðabæjanna. Ber
þar margt til. Þetta er stærsti
bærinn og þar hefur byggzt
upp öllu jafnara en víða ann-
ars staðar á fjörðunum. Það
má þakka að nokkru legu bæj-
arins og nokkuð frábrugðnum
atvinnuháttum, þótt hafið sé
að sönnu gullkista þeirra, eins
og á hinum stöðunum.
Hjá Bjarna Þórðarsyni bæj-
reikna ég með að Akureyrar-
fyrirtæki, Iðja h.f., hefji bygg-
ingu á 5 einbýlishúsum, sem
þeir hafa fengið lóðir fyrir nú
nýlega. Eitt af því sem er á
döfinni hjá bæjarfélaginu er
að byggja leiguhúsnæði. Við
höfum lengi séð fram á það, að
hér þyrfti að örva íbúðabygg-
ingar á einhvern hátt og ætl-
um nú að reyna það, eins og
tök verða á. — Aðrar bygging-
í fyrra, sömuleiðis barnaheim-
ili. Unnið er að endurbyggingu
vatnsveitunnar með virkjun á
borholum hér inni í firði og
lagningu 4—5 km. stofnæðar
til bæjarins. Endurbætur á
bæjarkerfinu munu svo koma
í kjölfarið. Einnig var ætlunin
að halda áfram að steypa göt-
urnar f sumar, 300—400 m.
Og fleira er undir.
— Meðal þess sem bíður nú,
fært yrði hingað á bílum mest
allt árið. Þá framkvæmd tel ég
mikilvægan þátt í að leysa það
stóra vandamál, sem samgöng-
ur á landi eru hér á Austfjörð-
um.
— Það verður ekki annað
sagt en að undanfarin ár hafi
verið uppgangstími hér um
slóðir. Og þótt lækkandi af-
urðaverð og sölutregða hafi
valdið erfiðleikum urrí sinn, þá
Skipuleggja fjórföldun bæjarins
Þetta eru tákn þess, að hjarta
Austfjarða slær.
Hér í stærsta bæ Austfjarða
eru menn að stikla frá barn-
ingi til búsældar, eins og aðr-
ir íbúar þessa landshluta. Þeir
eru stoltir yfir sínu hlutskipti
um leið og þeir kvarta og berja
sér, eins og sannir búmenn.
Auðvitað finnst þeim ekkert
ganga, þótt alls staðar blasi
við uppbyggingin. Svona er
það í velmeguninni.
Neskaupstaður hefur um all-
arstjóra fræðist ég nokkuð um
gang mála f Neskaupstað.
— Það hefur gengið fremur
hægt undanfarið að byggja
upp bæinn, segir Bjarni, —
þangað til núna, að menn gefa
sér tfma til að byggja íbúðir
á meðan nokkur stöðnum er
við aðrar framkvæmdir vegna
fjárskorts, sem hefur verið til-
finnanlegur síðan snemma á
þessu ári. Nú eru f byggingu
um 45 íbúðir og 10 munu bæt-
ast við á þessu ári. Þar af
arframkvæmdir liggja að
mestu niðri, vegna fjárhags-
örðugleika, eins og ég drap á
áðan. En það er margt 1 tak-
inu og enn fleira á döfinni,
þegar fjárhagskreppan leysist.
— Stærsta verkefnið, sem
unnið hefur verið að undan-
farið, er bygging dráttarbraut-
ar, en við gerum ráð fyrir að
hún verði tilbúin til notkunar
f næsta mánuði. Þá er byrjað
á nýrri höfn ínni f botni fjarð-
arins. Iþróttaliús varð fokhelt
Nýja dráttarbrautin, sem tekin hefur verið f notkun.
Séð yfir sundlaugina út á höfnina.
auk leikuhúsnæðisins, er bygg-
ing við barnaskólann og heima
vist við gagnfræðaskólann, sem
að vísu hefur ekki enn fundið
náð fyrir augum fjárveitingar-
valds Alþingis. Við viljum þó
telja þá framkvæmd mikilvæga
og brýna, enda er unglinga-
fræðslu ákaflega ábótavant f
fjórðungnum enn sem komið
er, vegna ónógrar aðstöðu.
Loks vil ég í þessu sambandi
geta þess að við höfum áætlað
að hefja f haust byggingu hér-
aðslæknisbústaðar, en skortur
á hentugu húsnæði hefur án
efa valdið miklu um, að lækn-
ir hefur ekki fengizt til að
setjast hér að um nokkurra
ára skeið.
— Þá er nú unnið að við-
bótarskipulagi, sem gerir ráð
fyrir um fjórfaldri byggð á
við þá, sem þegar er risin. Sú
byggð verður að mörgu leyti
reist við hagkvæmari aðstæð-
ur en sú gamla, sem að mestu
byggðist í kringum árabátaút-
gerðina næst sjónum f mestu
brekkunum.
— Atvinna Norðfirðinga er
mest við sjóinn og f sambandi
við hann. Síldarvinnslan h.f.,
sem rekur síldarbræðslu, er
orðin vel búin, og verið er að
ljúka við að koma á fót ann-
arri síldarbræðslu, en að henni
stendur hlutafélagið Rauðu-
björg. Samanlagt munu þessar
bræðslur geta annaí um 900
tonnum á sólarhring. Söltunar-
stöðvar eru 6 talsins, frystihús
2. Við þessi atvinnutæki, stóra
báta og marga minni, er mesta
atvinnan, en stórir atvinnurek-
endur eru einnig Dráttarbraut-
in h.f. og Kaupfélagið Fram,
sem hefur megnið af verzlun-
inni hér í Norðfirði.
— 1 samgöngumálum varð
gjörbreyting, þegar reglu-
bundnar flugferðir voru tekn-
ar upp hingað eftir tilkomu
nýs flugvallar. En ég tel, að
gera þurfi átök varðandi land-
samgöngur, þrátt fyrir það. T.
d. mætti án efa grafa göng
undir Oddskarð, sem þýddi að
er ég sannfærður um að hlut-
verk Austfirðinga I þjóðarbú-
skapnum verður ekki minna á
næstunni en verið hefur — og
það er ekki vert að vanmeta.
Við búumst við mikilli sfld,
þótt hún komi ekki að ráði
fyrr en f haust, eins og verið
hefur. Þetta dýrmæta hráefni
verður að halda áfram að nýta.
Það viljum við gera að okkar
hluta og vonum að þjóðin öll
og forsvarsmenn hennar sjái
sér hag í þvf, eins og að und-
anfömu að við fáum valdið
verkefninu.
— herb.
9 ÍSLENDINGUR