Íslendingur - 17.12.1967, Side 16
ISlENDINGURl
Sunnudagur 17. deseaiber 1967.
Heimilishjáipin á
Akureyri aukisi
FLUGUFREGN UM HANNIBAL
OG BJÖRN í RÍKISSTJÓRN!
Jólahaldið undirbúið. mikil verzlun
— tvær jóla„vertíðir“ í
JÓLAHALDIÐ er á næstu grös-
um, undirbúningur þess setur
nú svip sinn á bæi og kauptún
og sveitafólkið er í kaupstaðar-
ferðum. 1 borginni og stærri
bæjum er talsvert um skreyt-
ingar í verzlunum og á götum
úti, og víða er tekið til við að
koma upp jólatrjám. M.a. hefur
verið sett upp myndarlegt jóla-
tré á Ráðhústorgi á Akureyri.
Eins og vanalega, verzlar al-
menningur mikið fyrir jólin,
það þarf að kaupa margt til
ár hjá verzlunareigendum
heimilisins og gjafir til vina og
vandamanna. Þegar gengisfell-
ingin var í aðsigi, keypti fólk
kinstrin öll af ýmsum vamingi,^
sem venjulega hefur fallið und-
ir jólakauptlðina. Blaðið hafði
því samband við nokkrar verzl-
anir og innti eftir því, hvort
minna væri verzlað fyrir jólin
af þessum sökum. Svörin voru
misjöfn, en í heild virðist verzl-
unin álíka mikil og verið hef-
ur, ekki minni að ráði, nema í
þeim verzlunum, sem selja stóra
hluti, húsgögn, heimilistæki o.þ.
u.l. Þar var gengiskauptíðin
jólakauptíð um leið.
Myndirnar hér fyrir ofan eru
frá Húsavík og Ólafsfirði. Mynd-
in til vinstri er tekin i Val-
berg hf. í Ólafsfiröi, en til
hægri i Öskju hf. 1 Húsavík. —
Jólavarningur í hillum og jóla-
pakkar á borðum.
<S>
FÁLKINN í Rcykjavík hefur
gefið út nýstárlega og skemmti-
lega hljómplötu í samvinnu við
Æskulýðssamband kirkjunnar f
Ilólastifti. Heitir hún Jólavaka
og eru á henni jólasöngvar og
sálmar, auk jólaguðspjailsins. Er
hijómplatan miðuð við það, að
unnt verði að hafa helgistund á
heimilunum sjálfum á jólunum.
Börnin, sem flytja jólavökuna,
eru úr Barnaskóla Akureyrar.
Þau eru þátttakendur i sunnu-
dagaskólastarfi Akureyrarkirkju
og hafa sungið við barnamessur
á jólunum undir stjórn Birgis
Helgasonar söngkennara, sem
er orgelleikari sunnudagaskól-
ans. Stjórnar hann flutningi
jólavökunnar og leikur undir
á pipuorgel Akureyrarkirkju.
Hljómplötunni hefur þegar
verið geysivel tekið. Seldist
fyrsta sending upp á fáum dög-
um. Önnur sending er væntan-
leg nú um helgina.
Hótíðohöld ó 100 óra afmæli
Sauðórkróksstaðar undirbúin
I MARZMÁNUÐI sl. kaus
bæjarstjóm Sauðárkróks
nefnd tii að undirbúa hátíða-
höld i tiiefni af 100 ára
byggðarafmæli staðarins, ár-
ið 1971.
Nefndin hefur þegar starf-
að all mikið. Ákveðið hefur
verið, að koma á sögusýningu
og listmunasýningu, gefa út
sögu staðarins, sem Krist-
mundur Bjarnason fræðimað-
ur að Sjávarborg hefur unnið
að.
Loks hefur verið ákveðið,
að efna til samkeppni um
skjaldarmerki fyrir kaupstað-
inn. Verða greiddar 20 þús.
kr. fyrir þá tillögu, sem fyrir
valinu verður.
SÉRSTÖK nefnd hefur unnið að*
því undanfamar vikur á vegum
bæjarstjómar, að kanna leiðir
til aukinnar heimillshjálpar á
Akureyri.
Með auglýsingu leitar nefnd-
in nú eftir stúlkum i þeim til-
gangi að aukin verði hjálp við
heimili, þar sem erfiðleikar
steðja að, og eins, þar sem ósk-
að kann að vera eftir aðstoðar-
stúlkum i einhverjum mæli.
Loks leitar nefndin eftir ungl-
ingsstúlkum til barnagæzlu og
léttra heimilisstarfa.
Takist fyrirætlanir nefndar-
innar, verður komið á fót eins
konar miðlunarstofnun. Að
sjálfsögðu er gert ráð fyrir, að
vinnulaun verði greidd af heim-
ilunum, þar sem ekki eru sér-
stakar ástæður fyrir hendi.
Framhald á bls. 15.
— sjónleikurmn í Alþýðubandalaginu heldur áfram,
fær Hannibal silfurlampnnn?
H'VORKI hefur genglð né rekið
með úrslit í deilumálum Alþýðu-
bandalagsins. Hannibal heldur
áfram að skrifa í Verkamann-
inn, sem seldur er á tíkall á
meðan, og Lúðvík svarar jafn-
harðan í Þjóðviljanum. Hlífast
þeir ekki við opinskáum um-
ræðum um innanflokksmálin.
Mitt í öllu þessu endalausa
amstri, hafa flogið fyrir fhigu-
fregnir um það, að Hannibal
og Björn yrðu teknir inn í ríkis-
stjórnina eftir áramót, verðlaun-
aðir fyrir góðverk fyrir rikis-
stjórn Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins. Lítið fer fyrir
nánari skýringum á þessum góð-
verkum, og allt er þetta hlægi-
legt.
Erfiðleikar Hannibals eru
ekki á eina bókina lærðir i þess-
um deilum innan Alþýðubapda-
lagsins. Þaö mun nú komið á
daginn, að hann á ekki eins
auðvelt með hreyfingar og
menn hugðu. Með því að fara
aftur í samstarf við kommúnista
eftir kosningamar, glataðist eina
gullna tækifærið til þess að
stofna nýjan flokk, sem út af
fyrir sig hefði bjargað málun-
um. Hannibal virðist þvi til-
neyddur að halda sjónleiknum
áfram af sinni hálfu, og spum-
ingin er bara sú, hvort hann
fær silfurlampann fyrir frammi-
stöðuna.
Þessi gamanleikur er um leið
sorgarleikur, alla vega mikið
„stykki". Alvara málsins er sú,
að á meðan broddarnir deila, er
hagur umbjóðendanna í háska,
launastéttanna í landinu, Það
veit enginn hvað morgundagur-
inn ber í skauti sínu, hvað við-
víkur þeim, sem þar hafa verið
valdir til forystu. Þetta er mik-
il óvissa, en við henni mátti
búast, eins ug allt er i pottinn
búið.
Nýstárleg og skemmtileg
hljómplata:
JÓLAVAKA
Kvöldvökuútgófan 10 úra
— hefur gefið út tuttugu og sjö bækur
Á ÞESSU ÁRI á Kvöldvöku-
útgáfan hf. á Akureyri 10
ára afmæli. Á þessu árabili
hefur útgáfan sent frá sér 27
bækur, þ.á.m. safnritin Skáld-
konur fyrri alda, Islenzkar
ljósmæður og Því gleymi ég'
aldrei. Einnig hefur hún gef-
ið út allmargar ævisögur.
1 tilefni af afmælinu hefur
útgáfan endurprentað þrjú
málverk, Seglbát eftir Finn
Jónsson, Mótorbát eftir
Gunnlaug Scheving og Gam-
alt hlóðaeldhús á Gautlönd-
um eftir Gunnlaug Blöndal.
i