Íslendingur - 27.06.1974, Side 5
Æru landsins stefnt í voða ef vinstri stjórnin
situr áfram að völdum
- Rætt við Stefán Stefánsson 5. mann á lisfa Sjálfstf I
Stefán Stefánsson bæjarverk-
fræðingur skipar 5. sætið á
lista Sjálfstæðisfiokksins í
þessum kosningum. íslending
ur hitti hann að máli og ræddi
lítillega við hann um stjórn-
málin.
Var Stefán fyrst spurður um
ástandið í atvinnumálum:
— Efnahagsstefna vinstri
stjómarinnar hefur leikið at-
vinnuvegina hart, ekki síst
sjávarútveginn. í stað þess að
treysta þá og hlú að þeim,
er svo komið, að við þeim
blasa stórkostlegir erfiðleikar
og á það jafnt við um frysti-
húsin, sem rekstur togaranna.
Það hefur verið mikið keypt
af togurum til landsins og
frystihús endurbyggð. Ástæð-
an til þess er sú, að eftir á-
fallaárin 1967 og 1968 fór
verðlag sjávarafurða aftur
stórhækkandi ásamt góðum
aflabrögðum, og varð það
hvatning bæði útgerðaraðilum
og íbúum sjávarkauptúna
víðs vegar um landið til að
endurnýja skipaflotann og
kaupa nýja skuttogara til
hinna ýmsu staða. Góð reynsia
var þá fengin af skuttogurum
erlendis og hvarf síldarinnar
kallaði á breytta útgerðarhætti.
Þar sem menn bundu bjart
ar vonir við framtíð skut-
togaraútgerðar, höfðu þegar
verið bundin kaup á um hálf
um þriðja tug togara í tíð við
reisnarstjórnar, og stöðugt
fleiri togarar hafa bæst í hóp
inn síðan.
Þessi nýju atvinnutæki
hafa orðið íbúuin við sjávar-
síðuna mikil lyftistöng og
tryggt næga atvinnu. En hvern
ig fær útgerðin og frystihús-
in risið undir þeim mildu út-
gjaldahækkunum, sem hin
taumlausa verðbölga hefur
skapað. Það er nefnilega ekki
nóg að afla atvinnutækjanna
eins og vinstri stjórnin virðist
álíta, — heldur verður einnig
að búa svo að þeim, að hægt
sé að reka þau með eðlileg-
um hætti og þau verði sjávar
plássunum sú lyftistöng, sem
til er ætlast.
— Verður kosið um varn-
armálin?
— Það tel ég. Öll ríki ver-
aldar, sem frjáls eru gerða
sinna, leitast við að tryggja
frelsi sitt og sjálfstæði. Þegar
hinar vestrænu lýðræðisþjóðir
bundust samtökum til varnar
frelsi sinu með stofnun NATO
gerðust íslendingar aðilar þar
að, vegna þess að þeir töldu
öryggi sínu bezt borgið þann-
ig. Mörg dæmi höfðu þá sann
að að hlutleysið var fótum troð
ið og engin vörn eða trygging
smáþjóðunum.
Islendingar létu síðan Atl-
antshafsbandalaginu í té varn
arstöð með samningi við
Bandaríkin í trausti þess að
óþægindi þau, sem vörnunum
voru samfara, væru aðeins
smáræði, miðað við þá hættu
fyrir Iand og þjóð sem væri
samfara algjöru varnarleysi.
Atlantshafsbandalagið hefur
jafnhliða því að vera varnar-
bandalag hinna vestrænu
þjóða, unnið að því að minnlca
spennuna og auka samvinnu
milli austurs og vesturs. Að-
ild okkar að NATO er því
skerfur þjóðar okkar til frið-
ar og öryggis í Evrópu.
Það er að vonum, að fjöl-
mörgum íslendingum þótti ör-
yggi landsins og stöðu stefnt í
hættu, þegar vinstri stjórnin,
með tilvísun til málefnasamn-
ingsins, tilkynnti endurskoðun
varnarsamningsins við Banda-
ríkin með brottför hersins fyr-
ir augum, á sama tíma og inn-
an hennar var ágreiningur um
aðild íslands að NATO. Því
var það, að stofnað var til
undirskrifta meðal almennings
í landinu úr öllum flokkum
undir kjörorðinu: Varið land.
Með undirskriftum staðfesti
almenningur, að hann hvorki
treysti vinstri stjórninni til
þess að endurskoða varnar-
samninginn né heldur taldi
uppsögn samningsins tíma-
bæra. Hin almenna þátttaka
fólksins í undirskriftasöfnun-
inni varð til þess, að forysta
Framsóknarflokksins fór sér
hægar í brottrekstri varnar-
liðsins. Síðan hefur Framsókn
arflokkurinn hvorki verið hrár
né soðinn í þessu máli, og
bera tillögur utanríkisráðherra
um brottför hersins keim af
því.
Það er að vonum, að þorri
þjóðarinnar beri nokkurn kvíð
boga fyrir því, hverja stefnu
varnarmálin taki, ef vinstri
stjórn færi áfram með völd.
Forysta Alþýðubandalagsins
vill varnarlaust land og for-
ysta Framsóknarflokksins hef
ur sýnt slíkt stefnuleysi og
veikleika til þess eins að þjóna
Alþýðubandalaginu, að ástæða
er til að óttast, að öryggismál-
um þjóðarinnar verði stefnt í
voða með áframhaldandi
vinstri stjórn.
Það er út af fyrir sig eðli-
legt að endurskoða varnar-
samninginn, en sú endurskoð-
un má á engán hátt verða lil
þess að veikja öryggi landsins
eða stofna því í hættu. Við
þekkjum, hversu Finnland er
beitt pólitískum þvingunum.
Hinn mikli sovéski floti er
einnig til þess fallinn.
Sérhvert víxlspor, er við
kynnum að taka, gæti orðið til
þess að raska því valdajafn-
vægi, sem nú ríkir milli aust-
urs og vesturs, — dregið úr
nauðsynlegum varnarmætti
hinna vestrænu þjóða og spillt
fyrir samningum varnarbanda
laganna um gagnkvæma 'af-
vopnun.
— Hvað viltu segja um
byggðamáiin?
— Flutningur fólks frá
strjálbýli til þéttbýlis er þró-
un, sem heldur áfram og verð-
ur ekki stöðvuð. En með vilja
og raunsæi er hægt að beina
þróuninni inn á réttar braut-
ir og stöðva hinn stöðuga
straum fólks frá landsbyggð-
inni til Faxaflóasvæðisins.
Aðgerðir, er miða að því að
skapa jafnvægi í byggð lands-
ins, kosta fjármagn, — en
þeim mun meira fjármagn fer
forgörðum, ef byggðaþróunin
er látin afskiptalaus. Norð-
lendingar hafa haft forystu
um byggðamál og aðrir lands-
hlutar hafa þar fylgt á eftir.
Nátengd byggðamálunum í
fjórðungnum eru ýmis þjón-
ustuverkefni hins opinbera,
svo sem samgöngumál, heil-
brigðismál, upphitun húsa
með innlendum orkugjöfum
og raforkumál. Margt er ó-
unnið í þessum efnum og má
ekki búa við það öllu lengur,
— ber þar hæst raforkumálin
í þessu kjördæmi.
Það er með eindæmum,
hvað þeim málum hefur fylgt
mikið lánleysi í tíð vinstri
stjórnarinnar. Iðnaðarráðherra
þykist hafa þar einhverja for-
ystu, en allar framkvæmdir,
virkjun Kröflu eða byggðalína
að sunnan, eru óákveðnar og
hvort tveggja enn á rannsókn-
ar- og tilraunastigi.
Það verður að vera krafa
Norðlendinga, að á þessum
málum verði betur haldið
framvegis en hingað til, svo
að þeir geti búið við næga og
örugga raforku, — en eigi
ekki yfir höfði sér skömmtun
á rafmagni og orkuskort.
Stuðnings-
menn Sjálf-
stæðis-
flokksins
eru hvattir til að
mæta snemma til að
auðvelda starfið
— Kjörseðill við Alþingiskosningarnar 30. júní 1974
A-LISTI B-LISTI x D-LISTI F-LISTI G-LISTI M-LISTI
Bragi Sigurjónsson. Ingvar Gislason. Jón G. Sólnes. Kári Arnórsson. Stefán Jónsson. Tryggvi Helgason.
Björn Friðfinnsson. Stefán Valgeirsson. Lárus Jónsson. Andrés Kristjánsson. Soffía Guðmundsdóttir. Matthías Gestsson.
Hreinn Pálsson. Ingi Tryggvason. Halldór Blöndal. Eiríkur Jónsson. Angantýr Einarsson. Haraldur Ásgeirsson.
Snorri Snorrason. Kristján Ármannsson. Vigfús Jónsson. Jóhann Hermannsson. Jóhanna Aðalsteinsdóttir.
Sigurður Oddsson. Hilmar Danielsson. Stefán Stefánsson. Hörður Adólfsson. Guðlaugur Arason.
Guðný M. Magnúsdóttir. Heiniir Hannesson. Svavar B. Magnússon. Ingólfur Árnason. Líney Jónasdóttir.
Guðni Þ. Árnason. Grímur Jónsson. Skírnir Jónsson. Gylfi Þorsteinsson. Jón Þ. Buch.
Sigurjón Jóhannesson. Valgerður Sverrisdóttir. Óli Þorsteinsson. Úlfhildur Jónasdóttir. Þórhildur Þorleifsdóttir.
Birgir Marinósson. Þorsteinn Björnsson. Friðgeir Steingrímsson. Arngrímur Geirsson. Kristján I. Karlsson.
Kristján Ásgeirsson. Guðmundur Bjarnason. Svanliildur Björgvinsdóttir. Margrét Rögnvaldsdóttir. Erlingur Sigurðsson.
Guðinundur Hákonarson. Björn Hólmsteinsson. Benjamín Baldursson. Rúnar Þorleifsson. Helgi Guðmundsson.
Gauti Arnþórsson. Jónas Jónsson. Snorri Ólafsson. Guðmundur Snorrason. Jón Ingimarsson. •
Þannig lýtur kjörseðillinn út þegar D-LISTINIM hefurverið kjörinn
ÍSLENDINGUR - 5