Íslendingur - 27.06.1974, Qupperneq 7
Fréttabréf frá IMáttúru-
lækningafélagi Akureyrar
Á fundi Sambands Norðlenskra
kvenna að Löngumýri í Skaga-
firði í júní 1973, rakti Laufey
Tryggvadóttir það helzta sem
gerst hafði í heilsuhaslismálum
N.L.F.A. Nú á 60 ára afmæli
SiN.K. sem haldinjn var að
Hrafnagilsskóla í Eyjafir'rð 10.
—i—11. júní, fannst mér viðeig
andi að fulltrúar fundarins, sem
voru húsfreyjur úr öllum sýsl
um Norðurlands, fengju að
heyra hvað síðan hefur áunn-
ist og hvernig málin standa í
dag. Einnig sjálfsagt að hirta
þessa greinargerð í fjölmiðl-
um, svo allir sem vilja, geti
fylgst með.
í fyrrasumar og fram eftir
vetri, var unnið að sölu happ-
drættismiða á vegum Nártútu
lækningafélags íslands. Voru
tryggir samningar um það, að
N.L.F.A. fengi helming ágóða,
sem varð kr. 7—800,000,00. Er
okk'ar hlutur í láni á fullum
vöxtum hjá nýbyggingunni í
Hveragerði, þar til hafin verður
bygging hér fyrir norðan. Bas
ar héldum við í haust, einnig
hlutaveltu. Merkjasölu og kaffi
sölu 9. og 10. marz sl.
Dreifibréf voru send ýmsum
fé’lagasamtökum á Norðurlandi,
með beiðni um fjárframlög og
liafa borizt mörg jákvæð svör.
Upphæð sú er nú samtals kr
84.000,00. Sótt var um fjárveit
ingar, bæði úr ríkissjóði og
Menningarsjóði KEA. Úr Menn
ingarsjóði fengum við í fyrra
kr. 25.000,00. Á fjárlög Al-
þingis komust við ekki og hafa
þingmenn haft við orð, að
ekkert myndi veitt, fyrr en
framkvæmdir hæfust.
Á aðalfundi N.L.F.A. í vetur,
var kosin nefnd til að annast
undirbúning byggingarfram-
kvæmda. Er Ágúst Jónsson
bygginganneistari framkvæmda
stjóri þeirrar nefndar og hefur
liann starfað ötullega að undan-
förnu.
21. maí, komu 'tæknifræðing
arnir Karl Omar og Sigurður
Hermannsson norður, fóru út
að Skjaldarvík til jarðvegs-
rannsókna og er nú beðið eftir
skýrslu þeirra, varðandi bezta
stað fyrir hælið. Síðan verður
gengið að því að fáum end
anlegan úrskurð um hvort við
landi á Þelamörk. Væntum þess
fáum heita vatnið frá Lauga
að Akureyrarbær kosti að veru
legu leyti lögnina inneftir, á
þeim forsendum, að Elliheimil-
ið í Skjaldarvík geti notið henn
ar.,
Ef ekki reynist unnt að
komast að tryggum samningum
varðandi þetta aðalartiði máls-
ins, verðum við að velja hælinu
annan stað. Nægir staðir bjóð
ast á Norðurlandi og verðúr
að nýta það sem hagkvæmast
reynist.
Nýlega var fundur í N.L.F.A.
og mætti þar Árni Ásbjarnar-
son forstjóri heilsuhælisins í
Hveragerði. Var hann spurður
hvort Náttúrulækningafélag ís-
lands myndi ekki styrkja að
verulegu leyti hælisbyggingu hér
og svaraði hann á þá leið, að
af ýmsum ástæðum, yrði að
Ijúka vissum áfanga nýju vist
álmunnar í Hveragerði, helst
ekki seinna en árið 1976. Eftir
það, mun N.L.F.Í. einbeita sér
að hælisbyggingu hér og væri
mikið atriði að fleiri deildir
yrðu stofnaðar um landið,
liyggja helzt svona hæli í öll
um landsfjórðungum, sem svo
yrðu rekinn undir einni yfir
stjórn.
Nú verða Norðlendingar að
sameinast um að safna fé, svo
hægt verði að hefjast handa,
um leið og öli gögn liggja fyrir.
Happdrætti er i undirbúningi
og fáum við helmings ágóða
eins og í fyrra. Er það okkur
stór hagur, því margfaldir mögu
leikar eru á sölu miða á Suð
urlandi, miðað við Norðurland.
N.L.F.A. hefur yfir að ráða
•4—5 milljónum króna. Og er
það vitaniega ekki nema eins og
dropi í hafið, en lífsspursmál
að nota það sem fyrst, þar sem
verðbólgan vex hröðum skref-
um, t.d hefur byggingarefni
hækkað um 200% á tiltölulega
skömmum tíma, að ógleymdum
vinnulaunum.
Á áðurnefndum fundi Sam-
bands Norðlenskra kvenna, varð
ég vör við, að konur töldu það
mikinn vanza fyrir bæjarráð Ak
ureyrar, að hafa sett þau skil-
yrði fyrir fjárframlagi, að hæl
inu yrði valinn staður í Eyja
firði. Slíkar gjafir ættu að vera
óháðar öllum skilyrðum. Þeim
og öðrum sem hugsa á sama
hátt, vil ég leyfa mér að benda
á, að öll sveitarfélög og ein-
staklingar sem boðið hafa staði
undir hælið, hafa lofað fjár-
stuðningi með sömu skilyrðum.
Reykjahlíðarbændur voru fyrstir
til að bjóða land og höfðu
félög í Þingeyj arsýslu góð orð
um fj árstuðning, ef staðurinn
yrði þeginn.
Sýslumaður Húnavatnssýslu
skrifar 21. ágúst 1972, að vel
kominn sé staður að Laugar-
bakka í Miðfirði og muni sýsl
an fjármagna fyrirtaskið að veru
legu leyti, ef því ráði yrði horf’
ið. — Sýslumaður Skagafjarð
arsýslu skrifar 2. júlí 1973.
Bendir á 3 staði þar í sýslu og
heitir fyrir hönd sýslunefndar,
fjárstuðningi, verði staðurinn
valinn í Skagafirði.
Af þessum dæmum má sjá,
að svipuð sj ónarmið giida alls
staðar.
Flestir hafa vafalaust lesið
greinar Heimsi Hannessonar
héraðsdómslögmanns, um heilsu
ræktarmiðstöð. Hann heldur því
réttilega fram, að ef hægt yrði
að koma því til leiðar að slík
miðstöð yrði staðsett á Norð-
urlandi, mætti engin byggðatog
streita spilla fyrir framgangi
málsins.
Vonandi verðum við ekki svö
þröngsýn, að slík sjónarmið
eyðileggi möguleika á að koma
upp nauðsynlegri endurhæfing-
arstöð, sem örugglega lengir líf
og starfsgetu fjölda mnnas.
Akureyri 21. júní 1974
Svanhildur Þorsteinsdóttir.
Kjósendur, sem verðið
fjarverandi á kjördag
munið utankjörstaðar-
atkvæðagreiðsluna
x D
Símar
Sjálfstæðisflokksins
á kjördegi
Aðalskrifstofan í
Sjálfstæðishúsinu
Svæðisstjórar
í Bílaafgreiðslan
f Kaugvangsstræti 4
|fp|
22471 og 22472
22473 og 22475
22470 og 21504
m
m
1
KJÖRSTAÐIJR
við Alþingiskosningar, sem fram eiga að fara 30.
þ. m., verður í Oddeyrarskólanum.
Bænum hefur verið skipt í kjördeildir, sem hér
segir:
I. KJÖRDEILD:
Aðalstræti, Akurgerði, Álfabyggð, Ásabyggð, Ás-
hlíð, Ásvegur, Austurbyggð, Barðstún, Beyki-
lundur, Byggðavegur, Birkilundur.
II. KJÖRDEILD:
Bjarkarstígur, Bjarmastígur, Brekkugata, Dals-
gerði, Eiðsvallagata, Einholt, Einilundur, Eyrar-
landsvegur, Eyrarvegur, Engimýri, Espilundur,
Fjólugata, Fróðasund, Geislagata.
III. KJÖRDEILD:
Gilsbakkavegur, Gleráreyrar, Glerárgata, Goða-
byggð, Gránufélagsgata, Grenivellir, Grundar-
gata, Grundargeröi, Grænagata, Grænamýri,
Háagerði, Hafnarstræti, Hamarstígur.
IV. KJÖRDEILD:
Hamragerði, Helgamagrastræti, Hjalteyrargata,
Hlíðargata, Hólabraut, Hólsgerði, Holtagata,
Hrafnagilsstræti, Hríseyjargata, Hvannavellir,
Höfðahlíð, Kaldbaksgata, Kambagerði, ICambs-
mýri, Kaupvangsstræti, Klapparstígur, Kleifar-
gerði, Klettaborg, Klettagerði, Kotárgerði,
Krabbastígur, Kringlumýri.
V. KJÖRDEILD:
Kvistagerði, Langahlíð, Langamýri, Langholt,
Laugargata, Laxagata, Lerkilundur, Lyngholt,
Lundargata, Lækjargata, Lögbergsgata, Miðhúsa
vegur, Mýrarvegur, Munkaþverárstræti, Möðru-
vallastræti, Norðurbyggð.
VI. KJÖRDEILD:
Norðurgata, Oddagata, Oddeyrargata, Ráðhús-
stígur, Ráðhústorg, Ránargata, Rauðamýri,
Reynilundur, Reynivellir, Skarðhlíð 1 til Skarðs-
hlíð 21.
VII. KJÖRDEILD:
Skarðshlíð 23 til 40, Skipagata, Skólastígur, Snið
gata, Sólvellir, Spítalavegur, Stafholt, Steinholt,
Stekkjargerði, Stórholt, Strandgata, Suðurbyggð,
Vanabyggð.
VIII. KJÖRDEILD:
Víðilundur, Víðimýri, Víðivellir, Þingvallastræti,
Þórunnarstræti, Þverholt, Ægisgata, Býlin.
Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl.
11.00 síðdegis.
Akureyri, 24. júní 1974.
KJÖRSTJÖRN AKUREYRAR.
ÍSLENDINGUR - 7