Íslendingur - 29.12.1977, Page 8
Spurt á „litlu jólun-
um“ á leikskólanum
Iðavelli. Hversvegna
höldum við jólin há-
tíðleg? Hvað langar
þig mest í í jólagjöf?
.lóhann Gunnar Arnarson
4 ára
.lólin eru haldin af því að
jólasveinarnir koma - nei,
nei. þau eru haldin af því að
Jesúbarnið á þá afmæli.
Mig langar mest í skemmti-
legan bíl. helst gulan.
Ása Eiríksdóttir 4 ára
Af því að Jesúbarnið
fæddist þá. Mig langar
mest í stórt brúðuhús. helst
rautt. þau eru fallegust.
Máni og Logi Péturssynir,
tvíburar, 3ja ára
Þeir vildu ekki segja
okkur hvers vegna jólin
\ æru haldin. en það sást þó
á ptakkaralegum svip
þeirra. að þeir vissu til-
ganginn. Logi vildi helst fá
flugvél. sem hægt væri að
toga í. en Máni gerði sig
ánægðan með að fá lítil
spil.
Inga Þórlaug Róberts-
dóttir, 3ja ára
Hún var ósköp feimin
við þennan ógurlega kall,
sem \ar með myndavél.
Hún sagði þó að sér
fyndist alltaf gaman á jól-
unum og um síðir hvíslaði
hún því í eyra blaðamanns-
ins. að sér langaði mest í
stóran kross til að hafa um
hálsinn í jólagjöf.
Rannveig Sigurðard., 5 ára
Jesúbarnið á afmæli ájól
unum. Mig langar bara í
dúkku og svoleiðis dót.
AUGLVSINGASÍMIÍSLENDINGS
215 00
InANGRUNARGLER
ISPAN HF. • FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI (%)2Í332
Islendingur
Akureyrarbæ boðið plötusafn
myndavélar o.fI. tilheyrandi
Sem er úr eigu þeirra Ijósmyndara, Hallgríms Einarssonar
og Kristjáns og Jónasar sona hans
Eftirlifandi börn Hallgríms heit
ins Einarssonar, Ijósmyndara;
þau Magnús, Olga, Gyða, Ólaf-
ur, Eygló og Einar, hafa nú
boðið Akureyrarbæ að gjöf það
plötusafn, Ijósmyndavélar og
hluti af ljósmyndastofu, sem að
uppistöðu til eru frá tíma Hall-
gríms, sem Jónas bróðir þeirra
lét eftir sig, en hann lést í janúar
sl. Áður höfðu erfingjar Krist-
jáns gefið bænum plötusafn
hans og Hallgríms og á 100 ára
afmæli Akureyrarkaupstaðar
keypti bærinn nokkuð af safn-
inu. Plötusafn Jónasar saman-
stendur af myndum, sem hann
hefur tekið í gegnum árin, en
einnig er þar með nokkuð af
plötum úr safni föður hans.
Safn þeirra feðga samankomið
er mikill menningarlegur fengur
fyrir Akureyrarbæ, verði því
komið fyrir á viðeigandi hátt,
það flokkað og greint og gert
aðgengilegt til notkunar.
Hallgrímur lauk prófi í ljós-
myndun í Kaupmannahöfn árið
1895. Hóf hann þá þegar Ijós-
myndun á Akureyri, en hafði þá
búsetu á Seyðisfirði fram að
aldamótum. Áð Hallgrimi látn-
um, 1948. tók Kristján við og
rak hann stofuna undir nafni
föður síns allt til dauðadags,
1963. Jónas rak sjálfstæða ljós-
myndastofu á Akureyri frá því
Róleg
jólahelgi
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Akureyri var jóla-
helgin friðsöm og engin veruleg
óhöpp urðu. Að kvöldi annars í
jólum voru dansleikir og „þetta
venjulega umstang í kringum
Sjálfstæðishúsið" að sögn lög-
reglunnar.
Eldur
í „Helga
magra“
Eitt útkall var hjá Slökkviliði
Akureyrar um jólahelgina. Á
jólakvöld tilkynnti vegfarandi
um að reyk legði úr vélbátnum
Helga magra, sem lá í Akur-
eyrarhöfn. Vareldur laus í lúkar
bátsverja, en báturinn var mann
laus og leikur grunur á að kvikn
að hafi í út frá olíukyntri elda-
vél. Slökkviliðinu gekk greið-
lega að slökkva eldinn, en
skemmdir urðu nokkrar af eldi,
sóti og reyk.
Þessi gamla mynd frá Akureyri er úr safni Jónasar heitins Hallgrímssonar.
fyrir stríð. Ferðaðist hann með-
al annars mikið um landið og
tók myndir, t.d. skólaspjöld og
staðamyndir. Jónas var breysk-
ur maður, sérstaklega hin síðari
ár, og tók þá lítið af myndum.
Er því megnið af plötusafni
hans gamalt. Síðustu árin starf-
aði Jónas mest við að stækka
gamlar myndir úr safni sínu.
Efingjarnir setja engin skil-
yrði fyrir gjöfinni, en að sögn
Magnúsar Hallgrímssonar er
hún gefin í þeirri von, að það
verði til að örva hugmyndir um
að halda sýningu á myndum
föður gefendanna í tilefni af 100
ára afmæli hans 20. febrúar nk.
- Við höfum einnig látið í ljós
vonir um að safnið verði skráð
og flokkað og því komið í að-
gengilegt horf og að komið
verði upp herbergi í minjasafn-
inu á Akureyri, þar sem tækjum
og hlutum frá myndastofunni
verði komið fyrir til minningar
um þessa liðlega átta áratugi í
iðnaðar- og menningarsögu
Akureyrar, sagði Magnús að
lokum.
Undir þessar óskir gefend-
anna skal tekið hér. Það er ekki
með öllu vansalaust fyrir Akur-
eyrarbæ, hvernig varðveislu
þeirra plötusafna, sem bærinn
hefur fengið til varðveislu, er
háttað. Plötusöfnin hafa veriðá
þvælingi hús úr húsi og ekkert
verið gert til að flokka þau eða
gera aðgengileg. því fólki, sem
þekkir fólk og staðhætti á þess-
um myndum fer fækkandi - það
verður að hefjast handa strax.
Án heimilda eru myndirnar
lítils virði fyrir komandi tíma.
Valgarður
Haraldsson
námsstjóri, látinn
Valgarður Haraldsson,
fræðslustjóri í Norðurlands-
kjördæmi eyslra, lést á jóla-
nóttina 53 ára að aldri. Val-
garður var fæddur 23. sept-
ember 1924, sonur Haralds
Þorvaldssonar og Ólafar M.
Sigurðardóttur.
Valgarður varð stúdent
frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1945, stundaði nám
í Háskólanum árið eftir, en
lauk síðan kennaraprófi
1952. Á meðan á námi stóð
kenndi Valgarður við barna-
skólann í Bíldudal og ungl-
ingaskólann á Drangsnesi,
en réðist síðan til Barnaskóla
Akureyrar að loknu námi.
Námsstjóri varð Valgarður
1964, en tók síðan við
fræðslustjóraembættinu og
veitti skrifstofu embættisins
forstöðu frá stofnun embætt
isins 1974. Eftirlifandi eigin-
kona Valgarðs er Guðný
Magnúsdóttir, hjúkrunar-
kona. Sendir blaðið henni og
börnum þeirra samúðar-
kveðjur. .
GARDlNUBRAUTIR
Tróstangir og allir fylgihlutL'
fbúðin, Tryggvabraut 22