Íslendingur


Íslendingur - 27.03.1979, Qupperneq 3

Íslendingur - 27.03.1979, Qupperneq 3
MALEFNI ALDRAÐRA Um þessar mundir á sér stað mikil untræða í þjóðfélaginu um veiferð og þjónustu við aldraða, og hafa farið fram kannanir á aðstöðu þeirra á ýmsum stöðum á landinu. Sameiglnleg niðurstaða þess- ara kannana hefur leitt í ljós, að lang flestir ellilífeyris- þegnar kjósa að búa áfram á eigin vegum, svo sem þeir hafa lengstum gert. Þó virðast margir sætta sig við dvöl á elliheimili, þegar aðstæðureru þannig að ekki virðist vera um aðra laustt að ræða. Þessi niðurstaða er einkar skiljan- ieg, þvf- flestir hafa bundið ' tryggð við þann stað og það umhverfi sem þeir hafa lengst af búið í, ogeiga líka flesta sína kunningja í næsta nágrenni. Breytt þjóðfélags mynd Hin síðári ár hefur þjóðfélagið tekið miklum breytingum, sem komið hafa illa niður á öldruðum. Æ minna er unt það að fleiri enéin kynslóð búi saman eins og áður var al- gengt, og því hlutverki ömm- unnar og afans við uppeldi barna-barnanná svo til alveg lokið. Það er þá helst að til þeirra só leitaö þegar börnin þeirra gefa sér tíma til skemmt unar, en nú orðið vinna flestar mæður úti, sé þess nokkur kostur, því þjóðfélagið hcfur mismunað svo húsmæðrum, að það hlutskipti þykir ekki lengur fínt. Húsmæður fá líka ekki önnur laun en þakklæti eiginmanns og barna, en eng- * ar skattaívilnanir. Patent- lausnir hafa verið fundnar upp vegna þessara breyttu þjóðfé- lagsþátta, ömmurnar og af- arnir fara bara á elliheimili, og börnin eru vístuð á dagheimil- um. Sem betur fer eru þó enn- þá til heimili sem bera það mikla virðingu fyrir hinurn öldruðu, og uppeldishlutverk- inu, að ckki hefur enn þurft að byggja slíkar stofnanir á hverju götuhorni. Besta lausnin Vistun aldraðra á elliheimilum er þjóðfélaginu dýr lausn, og óæskileg ef hjá henni verður komist. Því hlýtur þjónusta við aldraða utan slofnana að i vera besta ogódýrastalausnin, auk þess sem flestir kjósa hana ef marka má kannanirnar scm gerðar hafa verið. Það er því full ástæða til þess fyrir hin stærri bæjarfélög að ii ,a meira til þeirrar úrlausnar á mál- efnum aldraðra,enda mun það koma í ljós ef sú þjónusta yrði aukin, að eftirspurnin eftir dvöl á elliheimilum ntuni fara ört minnkandi. Slík þjönusta er með ýmsurn hætti, svo sent aðstoð við matargerð, hrein- gerningar, sendiferðir alls- konar, viðhald og lóðarhirð- ing, svo eitthvað sé nefnt, auk heimilishjúkrunar. Þá þarf einnig að Ieggja mikið upp úr tómstundastarfi fyrir aldraða i og skemmtanalífi, því ein- angrun og athafnarleysi er eitthvað það versta sem aldrað ir vcrða að þola. Dvalarrými á uppboði Nýiega ákvað stjórn ellihcim- ilanna á Akureyri að auka við vistheimilið Hlíð, með byggingu 12 raðhúsaíbúða fyrír hjón. Þegar byggingar- kostnaður þessara íbúða er skoðaður, fer ekki milli mála hve sú lausn á vistun aldraða er þjóðfélaginu dýr, en væntan legur kostnaður á hverja íbúð Norðan- garri skrifar: er milli 13 og 14 miljónir króna. Það virðist líka hafa böglast eitthvað fyrir brjóstinu á stjórninni að fjármagna framkvæmdirnar, því hún hefur fengið smþykki. Bæjar- stjórnar Akureyrar fyrir því að fjármagna hluta byggingar- kostnaðarins með fjárfram- lögum væntanlegra vistmanna. Slíkar ákvarðanir eru ekki aðeins ósmekklegar, heldur eru þær ekki sæmandi bæjar- félaginu. Við eigum að virða meira áður unnin störf þeirra aðila í þágu bæjarfélagsins og þjóðfélagsins í heild, sem nauðsynlega vegna aðstæðna þurfa slíkrar vistunar með, að þeir séu ekki látnir kaupa sér vistun á elliheimili fyrir 1 eða 2 miljónir króna, eða hvað upphæðin svo sem verður, hvort heldur sem hún er látin heita fyrirframgreidd leiga eða lán. Það er líka svo, að þeir sent geta lagt fram slíkar fjárhæðir eru oftast þeiraðilar sem eiga húsnæði, oggætu því í flestum tilfellum komist af með heimilisþjónustu. Þeir sem ekki hafa fjármagn, eru þá jafnan færðir aftar á biðlist- ana, auk þess að verá flokkaðir af bæjarfélaginu sem annars- flokks þjóðfllagsþegnar. Meirihluti sjálfstæðismanna er andvígur slikum vinnubrögð- um, en teiur að allir eigi að sitja við sama borð, en aðstæður og þörf verði látin ráða úthlutun vistrýma. Það virðist skjóta nokkuð skökku við, þegar vinstri menn í bæjarstjórn, sem oftlega vilja kenna sig við jafnrétti og félagshyggju eru farnir að dýrka svo mjög þá sem yflr fjármagni ráða. Öðru vísi mér áður brá! Til fermingarinnar Blússur Hanskar Slæður Vasaklútar Blóm AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR 3d UTBOÐ Hitaveita Akureyrar óskar eftir tilboðum í lagningu dreifikerfis í Glerárhverfi austan Hörgárbrautar (13. áfangi). Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Hafnarstræti 88B gegn 50.000 kr. skilatryggingu. Til- boð verða opnuð í fundarsal Bæjarráðs að Geisla- götu 9 föstudaginn 6. apríl kl. 11.00. HITAVEITA AKUREYRAR. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu DAGNÝJAR PÁLSDÓTTUR, Skógargerði. Börn, tengdabörn og barnabörn. Fermingargjafir Hárliðunartæki: BRAUIM - PHILIPS - KRUPS Snyrtibox Gjafakassar llmvötn Hálsfestar SÖÓ3 verslunar og skrifstofu- húsnæði ►í verslunarmiðstöð v/Sunnuhlíð í Glerárhverfi Verslunar og skrifstofueiningar af ýmsum stærðum. í Kaupangi v/Mýrarveg Verslunareiningar af ýmsum stærðum. Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að skapa sér sjálfstæðan atvinnurekstur í eigin húsnæði. Allar upplýsingar veitir 5MARI HF BYGGINGAVERKTAKAR ÍSLENDINGUR - 3

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.