Íslendingur - 19.12.1979, Qupperneq 26
Óskum starfsfólki okkar
og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og farsæ/dar á komandi ári
Þökkum viðskiptin
á líðandi ári.
KÍSILIÐJAN
Mývatnssveit
Síðasta baðstofan
íslenskir
málshættir
Almenna bókafélagið hefursentfrá
sér fslenska málshætti þeirra
Bjarna Vilhjálmssonar og Óskars
Halldórssonar í annarri útgáfu
aukinni. f kynningu á kápu bókar-
innar segir á þessa leið:
„Islenskir málshættir í saman-
tekt þeirra Bjarna Vilhjálmssonar
og Óskars Halldórssonar kemur nú
út í annarri útgáfu og fylgir henni
bókarauki með fjölmörgum máls-
háttum sem útgefendur hafa safnað
síðan fyrsta útgáfa kom út árið
Oskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og farsceldar á komandi ári.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Um síðastliðin áramót unnu hjá Sam-
bandsverksmiðjunum rúmlega 800 Ak-
ureyringar. Samvinnuiðnaðurinn á Ak-
ureyri er mikið afl og því er eðlilegt að
taka á með bæjarfélaginu ístöðugri við-
leitni þess til að skapa íbúum sínum
atvinnuöryggi og trausta lífsafkomu.
Nú um hríð hefur íslenskur iðnaður átt í
miklum erfiðleikum. Samvinnuiðnaður-
inn hefur ekki farið varhluta af þeim.
Þaðereðlilegtað íbúarhinnar blómlegu
byggðar við Eyjafjörð, sem þessi iðn-
aður hefur sannarlega átt mikinn og
heillavænlegan þátt í að skapa, beri ugg
í brjósti um framvinduna og finni betur
nú en máski oftendranæraðsamvinnu-
iðnaðurinn er það afl sem ekki má
bresta.
Akureyringar
Standið vörð um samvinnuiðnaðinn
IDNADARDEILD
SAMBANDSINS
Akureyri Glerárgötu 28 - Pósthólf 606 - Sími: (96) 21900
26 - ISLENDINGUR
1966. Þegar bókin kom fyrst út
voru menn strax á einu máli um að
íslenskum málsháttum hefðu aldrei
verið gerð viðlíka skil og í þessari
bók, enda hefur hún notið rótgró-
inna vinsælda og verið margri fjöl-
skyldunni ómissandi uppsláttarrit
og einnig verið notuð í skólum.
f ýtarlegri inngangsritgerð, þar
sem fjallað er um feril og einkenni
íslenskra málshátta kemst Bjarni
Vilhjálmsson svo að orði um máls-
hættina, að þeim megi „líkja við
gangsilfur, sem enginn veit hver
hefur rnótað." Þeir eru m.ö.o. höf-
undarlaus bókmenntaarfleifð, eins
konar aldaskuggsjá, sem speglar
lífsreynslu kynslóðanna í hnitmið-
uðu formi og einatt ískáldlegum og
skemmtilegum líkingum.
íslenskir málshættir eru í þeim
bókaflokki Almenna bókafélagsins
sem nefnist ÍSLENSK ÞJÓÐ-
FRÆÐI. Þessi bókaflokkur tekur
til hvers konar alþýðlegra fræða
sem til þess eru fallin að bregða ljósi
yfir líf horfinna kynslóða, hugsunar
hátt þeirra og dagleg hugðarefni í
önnum og hvíld. Út eru komnar í
þessum bókaflokki auk ís-
LENSKRA MÁLSHÁTTA bæk-
urnar KVÆÐI OG DANSLEIKIR
I—II, í útgáfu Jóns Samsonarsonar,
fSLENSK ORÐTÖK I-II, eftir
Halldór Halldórsson og ÞJÓÐ-
SAGNABÓKIN I-III í útgáfu
Sigurðar Nordals. Hafa allar bækur
þessa bókaflokks verið sérlega vin-
sælar og eftir því sem þær seljast
upp eru þær gefnar út í nýjum
útgáfum."
Þessi nýja útgáfa málsháttanna
er 427 bls. að stærð. Þar af er við-
aukinn 28 bls. Bókin er unnin í
Prentsmiðju Jóns Helgasonar,
Prentsmiðjunni Odda og Sveina-
bókbandinu. Útlit bókarinnar hef-
ur annast Hafsteinn Guðmunds-
son.
Með lífið í
lúkunum
Út er komin bókin Með lífið í lúk-
unum - Rögnvaldur Sigurjónsson í
gamni og alvöru - eftir Guðrúnu
Egilson.
Þetta er sagan af hinni litríku ævi
píanóleikarans Rögnvalds frá því
hann kom heim frá námi i lok
heimsstyrjaldarinnar og til dagsins í
dag.
1 kynningartexta bókarinnar
segir á þessa leið:
„Með lífið í lúkunum í gamni og
alvöru er undirtónninn í lífi og
starfi Rögnvalds Sigurjónssonar
píanóleikara. Þessi bók segir frá
rúmlega þrjátíu ára starfsferli hans
hér á Islandi, fjölmörgum tónlistar-
ferðum til útlanda, íslenskum sam-
tíma, tónlistarlífi og einstökum
uppákomum sem fáir hafa lent í og
enn færri sagt frá. Sagan einkennist
af alvöru listamannsins, hreinskilni
og víðsýni og umfram allt af óborg-
anlegri kímni sem hvarvetna skín í
gegn, hvort heldur listamaðurinn
eigrar í heimasaumuðum molskins-
fötum um íslenskar hraungjótur
eða skartar í kjól og hvítu í glæsi-
legum hljómleikasölum vestur við
Kyrrahaf eða austur við Svartáhaf.
Guðrún Egilson hefur skráð
þessa sögu í léttum og skýrum stíl
eins og bókina um bernsku og æsku
Rögnvalds, sem kom út í fyrra og
bar heitið Spilað og spaugað.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ
gefur bókina út.
f bókinni eru margar myndir.
Hún er 191 bls. að stærð unnin í
Prentsmiðjunni Odda og Sveina-
bókbandinu.
/---------------------------
Það er bara að hringja
í síma 2-1500
...sí&an færðu íslending
sendan heim á hverjum
þriðjudegi.