Íslendingur


Íslendingur - 19.12.1979, Qupperneq 30

Íslendingur - 19.12.1979, Qupperneq 30
Leikarar LA komnir heim úr vel heppnaðri Svíþjóðarferð Æfa Puntila og Matta af fullum karfti - Örfáar sýningar á,, Öngstrœtinu“ og Galdrakarlinum Leikhópur Leikfélags Akureyrar tók þátt í norrænni leiklistarráðstefnu í Svíþjóð dagana 3.-8. desember sl. Ráðstefnan var ætluð atvinnuleikhúsum utan höfuðborga- svæða og sóttu hana 2 leikhús frá Finnlandi, 1 frá Noregi, 3 frá Svíþjóð, 1 frá Danmörku ásamt Leikfélagi Akureyrar, sem sýndi „öngstræti“ Arnar Bjarnasonar við mjög góðar viðtökur. Auk sýninganna fóru fram á ráðstefnunni námskeið og umræður um starfsemi ieikhúsanna, sem voru í senn skemmtileg og fræðandi, að sögn Leikfélagsmanna. „öngstrætið var sýnt tvisvar við prýðisgóðar viðtökur. Leik- ið var á íslensku, en söguþráður verksins hafði verið tekin sam- an á norðurlandamálunum og prentaður í leikskrá. Hins vegar kom það leikurunum á óvart hvað áhorfendur virtust fylgjast vel með efnisatriðum verksins, þótt leikið væri á íslensku. Það var Norræni menningarsjóður- inn sem stóð á bak við þessa ráðstefnu og stóð straum af kostnaði við ferðina. Voru móttökur og allur aðbúnaður í Svíþjóð til mikillar fyrirmynd- ar, að sögn Leikfélagsmanna. Æfingar eru hafnar af fullum krafti hjá Leikfélaginu á „Pun- tila og Matta", sem Hallmar Sigurðsson leikstýrir og gerir hann einnig leikmyndina. 14 leikarar koma fram í sýning- unni, sem er gamansöm með alvarlegum undirtón. Theodór Júlíusson leikur Puntila, Þráinn Karlsson leikur Matta og Svan- hildur Júlíusdóttir fer með hlutverk Evu, dóttur hans. örfáar sýningar verða á „öngstrætinu" og barnaleikrit- inu „Galdrakarlinn í OZ“ á milli jóla og nýárs, en „Puntila og Matti“ verður frumsýnt seinnipartinn í janúar. Flóttamannasöfnunin Þessir strákar heita Halldór Sveinn Kristinsson, Orri Páll Ormarsson og Kristinn Freyr Kristinsson. Þeir héldu hlutaveltu og varð ágóðinn 4.400 kr. sem þeir hafa gefið til Flóttamanna- söfnunarinnar. Hafa forráðamenn söfnunarinnar beðið blaðið fyrir bestu þakkir til drengjanna. Fjölskyldukort í skíðalyftumar í Hlíðarfjalli I vetur verður sú nýbreytni tekin upp að seld verða fjölskyldu- kort í lyfturnar í Hlíðarfjalli. Kortin getur faðir eða móðir keypt fyrir sig og börn er hann, eða hún hafa á framfæri sínu, þ.e. börn sem eiga lögheimili hjá foreldrum. Forráðamaður fjölskyldu (faðir eða móðir) greiðir kr. 38.000. - maki og börn 16 ára og eldri greiða kr. 22.000,- og börn 15 ára og yngri, fædd 1965, greiða kr. 12.000.- Með þessu fyrirkomulagi er gerð tilraun til að börn og foreldrar geti stundað skíðaferðir saman og notið um leið hollrar útiveru. Börn sem falla undir reglur um kort Skíðaráðs Akureyrar geta ekki keypt fjölskyldukort. Árskort fyrir einstaklinga 16 ára og eldri kosta kr. 36.000.- 15 ára og yngri greiða kr. 18.000.- Graflk í sýning- arsal Amar Nú eru uppsettar um 40 grafik- myndir í sýningaraðstöðu Arnar Inga, Klettagerði 6, eftir eftirtalda höfunda: Kjartan Guðjónsson Björg Þorsteinsdóttir Elías B. Halldórsson Edda Jónsdóttir Jón Reykdal Lísa K. Guðjónsdóttir Þórður Hall Sigrún Eldjárn Ingunn Eydal Jónína Lára Einarsdóttir Guðmundur Ármann Þessar myndir eru að mestu leyti úrtak úr afmælissýningu I'sl. Grafikfélagsins, sem nú er á ferðalagi um 13 borgir Norður- landa. Myndir þessar eru mjög fjölbreyttar að gerð bæði frá tæknilegu sjónarmiði og eins að inntaki myndgerðar. Af gefnu tilefni skal tekið fram að fyrirkomulag í þessari sýningar- aðstöðu er ekki bundið einstök- um sýningum, heldur miklu fremur þeim möguleika að það sem er til sýningar geti breyst frá degi til dag. Opið virka daga frá 4.00 til 6.00 og fram að jólum, laugar- daga og sunnudaga frá kl. 3.00 til 6.00. Til sölu íbúðir tveggja og þriggja herbergja Staðlaðir gluggar Loftaklæðning V eggj aklæðning Smíðum glugga eftir teikningum. Einangrunargler Við framleiðslu íspan-einangrunarglers eru . notaðar nýjustu fáanlegar vélar og tæki og jafnan fylgst með nýjungum, sem fram koma erlendis viðvíkjandi gæðum og hagræðingu við framleiðsluna. Pantið tímanlega Höfum eigin bíl til glerflutninga EINANGRUNARGLERi Furuvöllum 5 - Akureyri - Sími (96)21332 Auk spegla bjóðum við: Bílagler Öryggisgler Glerhillur Rammagler Plexigler Borðplötur Baðskápar eru að koma. Ýmsar gerðir af fallegum skápum með læstum hurðum fyrir t.d. meðul og annað, sem óæskilegt er að geyma í ólæstum hirslum. Lítið inn! Furuvöllum 13, Akureyri, sími 22688 - Box 455. 30 - ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.