Íslendingur - 26.08.1981, Side 3
Starfsemin
að
Skólastíg 5
lögð niður
Akureyrardeild Rauða kross-
ins hefur nú auglýst húseign
sína að Skólastíg 5 til sölu.
Rauði krossin hóf árið 1976
rekstur sjúkrahótels á húsinu
og stóð sá rekstur til ársloka
1978.
í ársbyrjun 1979 hófst
síðan samstarf Rauða kross-
ins og Félagsmálastofnunar
Akureyrar um notkun hússins
og fengu þeir þar inni sem af
ýmsum félagslegum ástæðum
áttu ekki í annað hús að
venda. Höfðu þeir þar hús-
næði og fæði og aðra að-
hlynningu og sóttu þaðan
vinnu. Litið var á starfsemi
þessa sem tilraun sem standa
átti eitt ár en var síðan
framlengd um annað. Að sögn
Bjarna Sigtryggssonar er nú
ljóst að sjúkrahótel verður
ekki rekið hér í bæ næstu árin
og koma þar til ýmsar
ástæður og mun Rauðakross-
deildin því snúa sér að öðrum
verkefnum einkum fræðslu-
málum og öldrunarmálum.
Leitar deildin því hentugra
húsnæðis undir þá starfsemi
og hyggst selja Skólastíg 5.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Skrifstofustarf
Hitaveita Akureyrar auglýsir hér með laust til
úmsóknar starf á skrifstofu.
Nánari upplýsingar veitir fjármálafulltrúi í síma
22105.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu Hitaveitu Akureyr-
ar, Hafnarstræti 88b, fyrir 4. september n.k.
Hitaveita Akureyrar.
NÝKOMIÐ
RÚMTEPPI
VÆRÐAVOÐIR
HANDKLÆÐI í ÚRVALI
Anorakkaefni, hvítt, rautt, Ijósblátt og
dökkblátt aðeins kr. 26 pr. metri.
VERIÐ í VIÐBRAGÐSSTÖÐU!
Flóamarkaðurinn opnar í Hafnarstræti 102 alveg á
næstunni.
N.L.F.A.
Starfskraftur
óskast hálfan daginn þ.e. eftir hádegi. Bókhalds-
þekking æskileg og þarf að geta unnið sjálfstætt.
Upplýsingar veittar kl. 1-6 e.h. ekki í síma.
Glerárgötu 26.
Tilkynning frá
Stofnlánadeild
landbúnaðarins
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1982
skulu hafa borist Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir
15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á
framkvæmdinni, þar sem meðal annars er tilgreind
stærð og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar,
skýrsla um búrekstur og framkvæmdaþörf, svo og
veðbókarvottorð.
Þá þurfa að koma fram í umsókn væntanlegir
fjármögnunarmöguleikar umsækjanda.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næstkom-
andi, hafi deildinni eigi borist skrifleg beiðni um
endurnýjun.
Reykjavík, 19. ágúst 1981.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
■...—---i-------
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Tilkynning frá
Strætisvögnum Akureyrar
Þann 24. ágúst hófst akstur um eftirtaldar götur í
Glerárhverfi: Norður Austursíðu, vestur Bugðusíðu,
austur Teigasíðu og norður Hlíðarbraut að Smára-
hlíð.
Einnig er ekið frá Ráðhústorgi á 30 mínútna fresti í
Glerárhverfi og Brekkur frá kl. 7.30 til 19.00 alla virka
daga.
Strætisvagnar Akureyrar.
v;...... ....—---
AKUREYRARÐÆR
AUGLÝSIR
Gangaverðir
óskast til starfa í Glerárskóla og Lundarskóla frá 1.
september n.k.
Hálft starf.
Umsóknarfrestur er til 28. ágúst. Uppl. veitir skóla og
launafulltrúi í síma 21000.
Bæjarstjórinn á Akureyri
Helgi M. Bergs.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Félagsstarf aldraðra
Farið verður til Sauðárkróks og um Hegranes föstu-
daginn 28. ágúst. Brottför kl. 10.00. Gjald kr. 50.00.
Þáttaka tilkynnist í síma 25880 milli kl. 10 og 12 f.h.
Félagsmálastjóri.
ÍSLENDINGUR - 3