Íslendingur - 26.08.1981, Qupperneq 8
Auglýsingar
21500
Tískufatnaöur - Skór
Töskur - Veski
YAMAHA
hljómflutningstæki.
Reiknaöu með
Chaplin.
Strætisvagna-
ferðum um
Glerárhverfi
fjölgað
Ferðir strætisvagna hafa nú
verið auknar um Glerár-
hverfi. Nú hafa verið teknar
upp ferðir um Austursíðu,
Bugðusíðu og Teigasiðu. Bið-
stöðvar verða í Bugðusíðu á
móts við Bjarg og norðan
gatnamóta Teigasíðu og
Bugðusíðu. Þá verður einnig
biðstöð í Teigasíðu viðgöngu
braut í Tungusíðu.
Að sögn forstöðumanns
Strætisvagna Akureyrar má
búast við lítils háttar breyt-
ingum á komutímum vagna í
Glerárhverfi og Oddeyri og
ætti þó ekki að skeika nema 5
mínútum eða svo. Þá er nú
ekið á hálftíma fresti allan
daginn en áður var ekið á
klukkutima fresti fyrir
hádegi.
Fólki er á það bent að hægt
er að fá leiðabók SVA í
biðskýlinu við Ráðhústorg
og í vögnunum.
Gítarleikur
og
Ijóðalestur í
Rauöa húsinu
N.k. miðvikudagskvöld,
þann 26. ágúst 1981 kl. 21
mun Arnaldur Arnarson
halda gítartónleika í Rauða
húsinu.
Arnaldur er vel kunnur
fyrir leik sinn og hefur haldið
tónleika víða um land.
Jón Oskar, skáld, mun
lesa upp í Rauða húsinu á
sunnudagskvöld um næstu
helgi þann 30. ágúst. Jón
Óskar er löngu kunnur fyrir
ljóð sín og ljóðaþýðingar. Á
seinni árum hefur hann birt
endurminningar sínar. Upp-
lesturinn hefst kl. 9 að
kvöldi.
Ritstjórn
21501
Lögfræðiþjönusta
BENEDIKT ÚLAFSSON HDL.
Hafnarstræti 99-101. Sími 25566
RAFORKA HF.
GLERÁRGÖTU 32 Slmar: 23257 og 21867
Raflagnir - viðgerðarþjónusta
á raflögnum og
heimilistækjum.
Islendingur
Eins og flestir vita hefur unarskyni. Seldi Þroskahjáip
Hallgrímur Marinósson verið á auglýsingar utan á bifreiðina og
hringferð um landið og er þetta í selur ennfremur límmiða í
fyrsta skipti í sögunni, sem einn tiiefni þessa. Allur ágóðinn
ökumaður reynir að bakka þá rennur til byggingar orlofsbúða
vegaiengd. Fer hann að sjálf- þroskaheftra.
sögðu öfugt í hringinn, öfugan Styrktarfélag vangefinna á
sólargang. Hallgrímur kom til Norðurlandi og Foreldrafélag
Akureyrar mánudaginn 24. barna með sérþarfir á Akureyri
ágúst. hafa tekið að sér sölu á limmið-
um og munu þeir verða seldir
Landssamtökum Þroska- þessa viku. Heitum við á bæjar-
hjálpar var gefinn kostur á að búa að taka sölufólki okkar vel,
, hagnýta sér ferð þessa í fjáröfl- nú sem endranær.
Bakkað í þágu þroskaheftra
i
Húnn farinn að stjórna KEA|
Húnn Snædal, flugumferðamtjóri, hefur á undanförnum
mánuðum gert sér það til dundurs að smíða sér flugvél, eða ■
tilraunaloftfar eins og hann kýs að nefna það. Vélin, sem er eins |
manns knúin Volkswagenmótor, hefur sést á flugi yfir bænum I
undanfarna daga.
Tilraunaloftfarið ber einkennisstafina TF-KEA og iná því
segja að Húnn sé sestur við stjórnvöl KEA þegar hann flýgur |
þessari smíð sinni.
Á myndinni sést er Húnn bíður þess í ofvæni að vélin fari í
gang í fyrsta skipti.
Mynd: H.Hansen.
MEGINMARKMIÐ ORLOFSBÚÐA
1. Sumardvalarheimili með full
kominni þjónustu fyrir
þroskahefta, sem kæmu bæði
frá stofnunum, skólum og
einkaheimilum í 1-4 mán.
2. Skammtímafósturheimili frá
vori til hausts, til að gefa
foreidrum eða öðrum að-
standendum þroskaheftra
tækifæri til hvíldar og eðli-
legs sumarleyfis sem jafn-
framt yrði sumarleyfi fyrir
viðkomandi, sem hann á rétt
á sem og aðrir þjóðfélags-
þegnar.
3. Stefnt yrði að, a.m.k.
norrænu samstarfí um gagn-
kvæmar skiptiheimsóknir
þroskaheftra milli sambæri-
legra stofnana.
4. Húsnæðið yrði nýtt yfir vetr-
artímann til ráðstefnu og
námskeiðahalds fyrir a.m.
foreldra þroskaheftra, kenn-
ara og aðra sérfræðinga sem
að þessum málum vinna og
einnig þroskahefta einstakl-
inga, sérstaklega þá sem að
staðaldri dvelja í heima-
húsum.
5, I nálægð við þessa stofnun
(miðstöð) yrði skipulagt
svæði þar sem hin einstöku
félög innan Þroskahjálpar og
ef til vill fleiri ættu kost á að
reisa og reka sumarbústaði
fyrir eigin reikning og
ábyrgð.
Verkmenntaskóli á Akureyri:
Gengið frá samningum milli
Menntamálaráðuneytis og
Akureyrarbæjar
í síðastliðinni viku var formlega
gengið frá samningum milli
Menntamálaráðuneytisins og
Akureyrarbæjar um Verk-
menntaskóla á Akureyri.
Að sögn Sigurðar J. Sigurðs-
sonar, bæjarfulltrúa, er samn-
ingur þessi tvíþættur. Annars
vegar er þar með staðfest að
verkmenntaskóli verði starf-
ræktur á Akureyri og hins vegar
felst í samningnum að hefja
megi framkvæmdir við fyrsta
áfanga skólahússins. Þá hefur
fjármálaráðuneytið einnig fyrir
sitt leyti gefíð samþykki sitt.
Þegar hafa jarðvegsskipti
verið borðin út og munu því
framkvæmdir hefjast innan
skamms og þá mun þess ekki
langt að bíða að boðinn verði út
fyrsti áfangi skólahússins.
Fjórðungsþing Norðlendinga
á Húsavík 3.-5. september
Aðalmál þingsins orku- og iönþróunarmál
Næsta Fjórðungsþing Norðlend
inga verður haldið á Húsavík
3.-5. september n.k. Þingið
sækja fulltrúar sveitarfélaga og
sýslufélaga á Norðurlandi, auk
alþingismanna úr Norðurlandi
og annarra gesta. Þingið er opið
öllum sveitarstjórnarmönnum á
Norðurlandi til áheyrnar. Þing-
staður er Gagnfræðaskólinn á
Húsavík. Þingsetning verður
fímmtudaginn 3. september kl.
4 e.h. Formaður Fjórðungs-
sambandsins Bjarni Áðalgeirs-
son, bæjarstjóri á Húsavík setur
þingið. fyrir þingið verða lagðar
fram tillögur milliþinganefnda
og fjórðungsráðs, svo og fjár-
hagsáætlun, ársreikningar og
skýrsla framkvæmdastjóra.
Á fundi á fimmtudagskvöld
verða kynnt málefni, sem
unnið er að á vegum Fjórð-
ungssambands Norðlendinga.
Örn Ingi Gíslason mun kynna
könnun um menningarsam-
skipti, Ólafur Steinar Valdi-
marsson mun kynna úttekt á
stöðu samgöngukerfis á Norð-
urlandi og Áskell Einarsson
mun kynna athugun á skipt-
ingu ríkisútgjalda eftir lands-
hlutum.
Á föstudag fyrir hádegi
verður umræðufundur um aðal
mál þingsins, sem eru orku og
iðnþróunarmál. Framsögu-
menn verða Pálmi Jónsson,
formaður rafmagnsveitna
rikisins, Hörður Jónsson, fram
kvæmdastjóri iðnþróunardeild
ar Iðntæknistofnunar íslands,
Finnbogi Jónsson, deildar-
stjóri í Iðnaðarráðuneytinu og
Gunnar Ragnars fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvar-
innar á Ákureyri. Umræður
verða með pallborðssniði. Eftir
hádegi á föstudag verða al-
mennar umræður og málum
vísað til þingnefnda og eftir
hádegi á laugardag fer fram
afgreiðsla mála og kosningar. í
þinglok býður bæjarstjórn
Húsavíkur þingfulltrúum og
gestum til kvöldfagnaðar.
Fyrir þinginu munu Iiggja
tillögur um aukna valddreif-
ingu, um jöfnun kostnaðar
vegna þjónustu, um áætlana-
gerð, um dreifingu ríkis-
útgjalda, dómsmálakerfið, um
samstarf sveitarfélaga, um
ráðstefnu um atvinnumál,
kirkjulega miðstöð að Hólum í
Hjaltadal, um undirbúning að
stofnun menningarsamtaka á
Norðurlandi, um yfirstjórn
framhaldsmenntunar, um
uppbyggingu Hóla og ráð-
stefnu um landbúnað, um
aukin áhrif heimamanna á
stjórn vegamála, um atvinnu-
mál sveitabyggða, um iðn-
þróunaráætlun, um staðarval
stærri ið.nreksturs, um orku-
mál á Norðurlandi, um sam-
ræmingu á skipulagi sam-
gangna, um uppbyggingu flug-
valla, um skipulagsmál, um
eflingu verslunar og þjónustu á
Norðurlandi, um áætlun um
viðskipta og þjónustustarfsemi
á Norðurlandi.
FASTEIGNASALA
Strandgötu 1
Símar: 21820, 24647
Sölumaður:
Stefán Gunnlaugsson
Heimasími: 21717
IÓN BMRNASON / ÚRSMIDUR
I
Er útsala?
LCD QUARTZ ÚR með hringjara,
skeiðklukku o.fl. - Mjög ódýr.
Kaupvangsstræti 4 - Siml 24175 - Akureyri