Íslendingur - 07.08.1980, Page 4
Útgefandi:
Ritstjóri og ábm.:
Auglýsingastjóri:
Gjaidkeri:
Dreifingarstjóri:
Ritstjórn, simi:
Auglýsingar, sími:
Áskriftargjaid:
Lausasala:
Auglýsingaveró:
Prentun:
íslendingur hf.
Kristinn G. Jóhannsson
Guóiaug Siguróardóttir
Ottó Pálsson
Sigurlína Sigurgeirsdóttir
21501
21500
kr. 3000 á ársfjóróungi
kr. 250 eintakió
kr. 2400 dálksm.
Prentsmiója Björns Jónssonar
Af fólki, fisk
Yfirbragð
ríkisstjórnarinnar
er deyfðarlegt
Sérhver ríkisstjórn hefur sitt upplit og yfirbragð. Það
kemur snemma í Ijós, hvers af henni sé að vænta, - hvort
búast megi við því að hún reyni að takast á við erfiðleik-
ana eða láti danka frá degi til dags öllum til óþurftar og
ama. Sú ríkisstjórn, sem nú situr, hefur þá sérstöðu, að
ýmsir bundu við hana miklar vonir í upphafi. Einkum
Framsóknarmenn og kommúnistar, sem þóttust nú hafa
töglin og hagldirnar í stjórn landsins og m.a. komst
Ólafur Ragnar Grímsson svo að orði, að þessi stjórnar-
myndun væri mesti kosningasigur vinstri manna á öld-
inni, eins og allt var í pottinn búið. Svipað er af krötum
að segja. Hin síðustu misserin hefur það verið þeirra
eftirlætisiðja að fiska í gruggugu vatni og þeir hugðu sér
því gott til glóðarinnar.
Á hinn bóginn skiptust Sjálfstæðismenn nokkuð ítvö
horn. Sumir vildu ekki trúa því, að Gunnar Thoroddsen
gripi til þvílíkra aðgerða nema hann hefði nokkratrygg-
ingu fyrir því, að ríkisstjórnin sýndi röggsemi í barátt-
unni við verðbólguna og gerði tilraunir til að koma
niðurtalningunni af stað, - að menn yrðu að minnsta
kosti viðleitninnar varir, sem ætti að réttlæta fráhvarf
þessa elzta þingmanns Sjálfstæðisflokksins frá sínum
fyrri félögum.
Reynslan hefur orðið ótvíræð um það, hvers eðlis
þessi ríkisstjórn er. Það var fyrst nú á miðju sumri sem
nefnd var skipuð til þess að gera tillögur um það,
hvernig niðurtalningunni skyldi hagað og hefur hún enn
ekki lokið störfum. Á sama tíma hefur efnahagsvandinn
magnast, verðbólgan færist í aukana og áberandi upp-
gjafar er farið að gæta í röðum þeirra, sem ábyrgð bera á
rekstri atvinnufyrirtækja. Kostnaðarhækkanirnar eru
langt umfram mögulega tekjuaukningu, gengisskrán-
ingin er tilviljanakennd og röng og þess sjást æ fleiri
dæmi, að menn sitja ekki lengur við sama borð um fyrir-
greiðslu og starfsskilyrði.
Glöggt er dæmið af bændastéttinni. Sennilega hefur
ríkisstjórnin hvergi átt jafnmiklu fylgi að fagna fyrst í
stað eins og í röðum hennar. Nú gætir þar vaxandi tor-
tryggni, svo að landbúnaðarráðherra fór nýlega mikla
sneypuför á fund eyfirzkra bænda, enda Ijóst af afstöðu
Stefáns Valgeirssonar að fóðurbætisskatturinn styðst
ekki við þingmeirihluta nema þá með stuðningi Alþýðu-
flokksins. Á þessum punkti í fóðurbætisskattinum mæt-
ast Dagblaðið, Alþýðuflokkurinn og ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen í landbúnaðarmálum, en til að mynda
eyfirskir bændur fá að blæða, af því að þeirtóku kvóta-
kerfið alvarlega og höfðu þegar gert ráðstafanirtil fram-
leiðsluminnkunar, þegar fóðurbætisskatturinn var lagð-
ur á.
Síðast en ekki sízt eiga launþegar nú um sárt að binda.
Þeir finna, að Guðmundur J. Guðmundsson og félagar
hans í ASÍ meintu ekkert með slagorðunum um samn-
ingana í gildi, enda er kjaraskerðingin nú orðin áþreifan-
lega miklu meiri en í tíð ríkisstjórnar Geirs Hallgríms-
sonar og atvinnuástand ólíkt verra, svo að þar verður
engum samjöfnuði við komið.
Þegar á allt er litið dylst fáum nú orðið að yfirbragð
þessarar hinnar síðustu vinstri stjórnar er værðarlegt og
deyfðarlegt. Þess vegna er nú að vakna skilningur fyrir
nauðsyn stjórnarstefnu af allt öðru tagi. Menn vilja að
tekist sé á við erfiðléikaana, að landinu sé stjórnað af
festu og heiðarleika.
H.BI.
Júlíus dittar að sínu.
Ljósmyndir: Svavar B. Magnússon.
Vilmundur með ungum íþróttamnnnum.
framkvæmd
I Ólafsfirði
í blíðunni á dögunum rölti blm.
um Ólafsfjarðarkaupstað að hor
lífið og fólkið að spóka sig oc
eru þær myndir sem línum þes
teknar á förnum vegi
4 - ÍSLENDINGUR