Íslendingur - 07.08.1980, Side 8
Fjórðungsþing
Norðlendinga
haldið á
Akureyri
Fjórðungsþing Norðlend-
inga 1980 verður haldið á
Akureyri 31. ágúst til 2.
september n.k. í húsakynn-
um Menntaskólans á Ak-
ureyri, Möðruvöllum.
Þau mál er hæst munu
bera á þinginu verða sam-
skipti ríkis og sveitarfélaga,
verkaskipting og umdæm-
isskipulag. Einnig verður
fjallað um iðnþróunaráætl-
un fyrir Norðurland og
skipan framhaldsskóla í
ljórðungnum.
Aðalfundur
SUNN
Aðalfundur SUNN verður
haldinn á Akureyri, dag-
ana 23.-24. ágúst, ogverð-
ur hann sérstaklega tileink-
aður umhverfismálum bæj-
arins. Þá er fyrirhugað að
halda fund um sjávarmeng-
un í innanverðum Eyjafirði
í september í haust, en
rannsóknir þar að lútandi
hafa verið í gangi síðan árið
1971.
Hólahátíð
1980
Árleg Hólahátíð verður
haldin sunnudaginn 17.
ágúst n.k. og hefst með
guðsþjónustu í Hóladóm-
kirkju kl. 2. Þar predikar
Guðmundur örn Ragnars-
son sóknarprestur á Rauf-
arhöfn. Ræðumaður dags-
ins verður Pálmi Jónsson
landbúnaðarráðherra.
Fréttir af
togurum
Ú.A.
Þær fréttir eru af togurum
Útgerðarfélags Akureyr-
inga samkvæmt upplýsing-
um Gísla Konráðssonar að
Kaldbakur seldi nýlega í
Þýskalandi og er nú þar í
slipp en átti að losna í gær-
kveldi.
Svalbakur, Harðbakur
og Sólbakur eru á veiðum.
Sléttbakur kom úr „skrap-
túr“ á þriðjudag og landaði
um 115 tonnum.
Allir eru togararnir í
þorskveiðibanni fram yfir
15. ágúst.
Óvenjuvel geng-
ur að ráða í
kennarastöður
Samkvæmt upplýsingum
Sturlu Kristjánssonar,
fræðslustjóra, hafa um-
sóknir um kennarastöður á
Norðurlandi eystra borist
óvenju snemma nú í sumar
og taldi hann að aðeins
væri óráðið í 10-15 kenn-
arastöður í öllu umdæm-
inu en umsóknir lægju þc
fyrir um flestær þessar stöð-
ur þótt ófrágengnar væru.
Enn eru auglýstar örfáar
stöður á Akureyri.
Lögfræðiþjónusta
BENEDIKT ÚLAFSSON HDL.
Hafnarstræti 94 - Sími 24602
\M
.SV^IVIALNING
öllum regnnogans
itv9' N'~litum og annað til híbýlaprýði
íslendingur
Akureyri undir smásjánni
Náttúrugripasafnið á Akureyri
vinnur nú að könnun á náttúru-
fari í lögsagnarumdæmi Akur-
eyrar. I því felst m.a. könnun á
landslagi, jarðsöguminjum,
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum sl. föstudag að heimila
kaup á togara erlendis frá fyrir
Raufarhöfn og Þórshöfn og er
gert ráð fyrir, að fjármögnunin
verði á vegum Framkvæmda-
Róleg verslunar-
mannahelgi í
bænum
gróðri og dýralífi (fuglalífi) á
þessu svæði.
Gamlar búsetuminjar (rústir
o.fl.) eru einnig athugaðar og
skráðar og reynt að staðfæra
stofnunar ríkisins innan ramma
lánsfjáráætlunar fyrir næsta ár.
í tengslum við þessi togara-
kaup hefur Útgerðarfélag Norð-
ur-Þingeyinga h.f. verið stofnað
með aðild Jökuls h.f. á Raufar-
höfn að 40%, en 60% skiptast
milli Þórshafnarhrepps, Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar h.f.,
Kaupfélags Langnesinga og
Svalbarðshrepps. - Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins verð
ur Ólafur Kjartansson en stjórn-
arformaður Ölafur Rafn Jóns-
son.
örnefni sem til eru. Ennfremur
er hugað að núverandi landnýt-
ingu, jarðraski ýmiss konar og
almennri umgengni.
Landslag á Akureyri er ótrú-
Að sögn Ólafs Kjartanssonar
fer nú í hönd athugun á hentugu
skipi, en gert er ráð fyrir því, að
í framtíðinni verði aflanum af
Rauðanúpi og hinum nýja tog-
ara skipti milli Raufarhafnar og
Þórshafnar og við það miðað,
að unnt sé að ljúka vinnslu
aflans innan viku frá því að
hann berst á land. Rauðinúpur
mun landa á Raufarhöfn sem
áður en hinn nýi togari á Þórs-
höfn og síðan verður aflanum
ekið á milli eftir þörfum.
lega fjölbreytt og þar með einnig
gróður og dýralíf. Til dæmis
finnast þar flest jarðsöguleg
fyrirbæri (jarðmyndanir) og
flestar bergtegundir landsins
koma þar fyrir. Fuglalíf er
framúrskarandi auðugt og
gróðurinn víða mjög ríkulegur,
einkum í Glerárgili, og fjöldi
jurtategunda furðu mikill.
Það er vandi að byggja upp
borg í slíku umhverfi, og mikið í
húfi ef illa tekst til.
Því er ekki að neita, að tölu-
verðar skemmdir hafa verið
unnar á náttúrufari Akureyrar-
Iands á síðustu áratugum. Næg-
ir þar að minna á Glerárgilið og
næsta umhverfi þess, en gilið
hefur um áratuga skeið verið
notað sem allsherjar-ruslakista
og hver einasti malarhóll í
grennd þess hefurnú veriðjafn-
aður við jörðu.
Ýmsar af þessum breytingum
hefði trúlega mátt forðast ef
næg vitneskja hefði verið fyrir
hendi og skipulagið samræmt
hinum ýmsu þáttum náttúru og
mannlífs.
Það er megintilgangur nú-
verandi könnunar að koma í veg
fyrir „slys“ af þessu tagi og
skapa grundvöll fyrir fjölþætta
og skynsamlega nýtingu lands-
ins í framtíðinni, með því m.a.,
að skrásetja náttúruminjar og
söguminjar sem nauðsynlegt er
að vernda fyrir öllu raski og
aðrar sem þarf að hafa auga
með, benda á svæði sem henta
til útivistar fyrir almenning, til
tómstundabúskapar o.s.frv. og
vísa á hentugar gönguleiðir um
nágrenni bæjarins.
í tengslum við könnunina
hefur verið tekið allmikið af
ljósmyndum og er ætlunin að
efna til sýningar á þeim seinna í
sumar eða í haust. Einnig er
fyrirhugað að koma á stuttum
ferðum til skoðunar á umhverfi
bæjarins, eins og segir í frétta-
tilkynningu á bls. 2. Verða ferð-
imar á laugardögum næstu
helgar og hefkast kl. 2 síðdegis.
(Fréttatilkynning.)
Umsóknir um
starf bæjarstjóra
í Ólafsfirði
Úr Glerárgili.
ýr togari fyrir Raufar-
nöfn og Þórshöfh
- Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga hf. hefur verið stofnað
Hættir við Rússlandsför
vegna fóðurbætisskattsins
Að sögn lögreglunnar virtist
sem flestir bæjarbúar hyrfu úr
bænum yfir verslunarmanna-
helgina. Aðkomufólk setti því
mestan svip á bæjarlífið.
Helgin var mun rólegri en
venjulegar helgar í sumar þar
sem miðbærinn tæmdist nánast
strax eftir að skemmtistaðir
lokuðu þar sem aðkomufólkið
hafði ekki tileinkað sér siði
heimafólksins að dansleikjum
loknum hvað varðarmannfagn-
að á götum bæjarins fram eftir
nóttum.
Hins vegar varð nokkurt
ónæði á tjaldstæði bæjarins.
Lögreglumenn frá Akureyri
fóru einnig í Miðgarð í Skaga-
firði til löggæslu og var að
þeirra sögn nokkuð sukksamt
með köflum.
Ekki urðu teljandi umferða-
óhöpp utan hvað bíll fór útaf á
Þelamörk en ekki urðu þar slys
á mönnum.
Þau ummæli Pálma Jónssonar
landbúnaðarráðherra á bænda-
fundinum á Freyvangi að álagn-
ing 200% fóðurbætisskattsins
skapaði svigrúm til þess að
leggja kvótakverfið niður urðu
orsök harðra andmæla frá ýms-
um fundarmönnum svo sem frá
Stefáni Halldórssyni frá Hlöð-
um, Guðmundi Þórissyni frá
Hléskógum og Stefáni Valgeirs-
syni alþingismanni. Sá síðast
nefndi beindi þeirri spumingu
til landbúnaðarráðherra, hvort
hann héldi, að framleiðsluvandi
bænda yrði leystur einungis
með fóðurbætisskatti. - Vand-
inn í sauðfjárframleiðslunni er
leiðslunni, sagði hann. Eyfirskir
bændur eru vonsviknir og sárir
út af því, hvemig málin hafa
þróast.
Stefán Valgeirsson sagði enn
fremur, að hann hefði ætlað til
Rússlands um mánaðamótin
ágúst-september. Ummæli ráð-
herra um að leggja kvótakerfið
niður yllu því, að hann yrði að
hætta við þá för til þess að fylgja
sínum sjónarmiðum eftir á
fundi stéttarsambandsins. - Ef
uppi eru ráðagerðir um að
leggja niður kvótakverfið en
halda fóðurbætisskattinum er
áreiðanlegt að ekki gengur allt
hljóðalaust, sagði þingmaður-
inn.
Fjórar umsóknir bárust um
starf bæjarstjóra í Ólafsfirði en
umsóknarfrestur er útmnninn.
Tveir umsækjenda óska eftir að
með umsóknir þeirra verði farið
sem trúnaðarmál en hinir eru
Arnaldur Bjarnáson, Fosshóli,
og Jón E. Friðriksson, sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps.
Núverandi bæjarstjóri, Pétur
Már Jónsson, hefur sagt starfi
sínu lausu frá 1. des. n.k.
Nýtt blað gefið
ut í Ólafsfirði
Nýlega kom út nýtt fréttablað í
Ólafsfirði „Múli“. Fyrir þessari
blaðaútgáfu standa þrír ungir
menn þeir Helgi Jónsson,
Róbert G. Gunnarsson og Krist
inn Hreinsson. Blaðið er mynd-
arlega út gefið og fjölbreytt að
efni einkum af bæjarmálum í
MÁLFLUTNINGSSTOFA
11
Björn Jósef Arnviðarson hdl.
Hafnarstræti 108 Sími 25919
Hverskyns
lögfræði-
þjðnusta
IðH BlflRHHSON / ÚRSMIÐUR
lí
Allar gerðir úra
Verð kr. 10-200 þús.
Kaupvangsstrætl 4 - Slml 24175 - Akureyrl